Morgunblaðið - 28.06.2021, Page 16

Morgunblaðið - 28.06.2021, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2021 Nú hefur höfundur skrifað ellefu greinar í Morgunblaðið um spill- ingu við undirbúning og gerð laga um fisk- eldi þar sem gerendur hafa haft að leiðarljósi mikinn fjárhagslegan ávinning. Þau vinnu- brögð sem hafa verið viðhöfð nefnast að „fanga ríkisvaldið“ (e. state capture) og það sorglega er að þeim virðist hafa verið viðhaldið eftir að lögin voru sam- þykkt frá Alþingi sumarið 2019. Byggja grunninn Í upphafi skyldi endinn skoða, það hefur eflaust verið gert af íslenskum athafnamönnum sem sóttu um fjölda eldissvæða fyrir laxeldi í sjókvíum. Til að tryggja framgang í leyfisveit- ingarferlinu og til að geta blokkerað aðra komu stjórnarformenn Arnar- lax og Fiskeldis Austfjarða sér í op- inberan stefnumótunarhóp í fiskeldi sem skilaði af sér skýrslu árið 2017 sem fylgt var eftir í gegnum alla stjórnsýsluna. Höfðu erlenda fjár- festa sem bakhjarla og virðast í raun hafa verið leppar þeirra. Margt já- kvætt hefur átt sér stað við upp- byggingu laxeldis í sjókvíum hér á landi, s.s. skapa störf og hleypa nýju lífi í sjávarbyggðir. Það sem er aftur á móti gagnrýnivert er hvernig stjórnarformennirnir nýttu aðstöðu sína við að semja leikreglur sér og erlendum fjárfestum til fjárhagslegs ávinnings á kostnað annarra, m.a. frumkvöðla í sjávarbyggðum. Verðmæti Arnarlax Til einföldunar verður aðeins fjallað um fjárhagslegan ávinning hjá einu fyrirtæki, Arnarlaxi, sem hefur verið leiðandi í uppbyggingu laxeldis í sjókvíum hér á landi. Arn- arlax hefur nú leyfi til að vera með hámarkslífmassa af laxi upp á 25.200 tonn og í umsóknarferli eru 14.500 tonn. Þegar öll leyfi eru komin í höfn hefur Arnarlax heimild til að vera með í sjó 39.700 tonna hámarks- lífmassa af laxi og ársframleiðslan getur þá verið yfir 50.000 tonn af laxi upp úr kvíum. Eigið fé Arnarlax er metið á um 15 milljarða króna. Verðmæti eldisleyfa Fram hefur komið í fjölmiðlum að markaðsverðmæti Arnarlax, sem kallar sig núna Icelandic Salmon í Noregi, er um 52 milljarðar króna. Ísland er á jaðarsvæði fyrir laxeldi í sjókvíum og eru vissar efasemdir um samkeppnishæfni greinarinnar næsta áratug og jafnvel næstu ára- tugi. „Hækkun í hafi“ um tugi millj- arða króna, m.a. með skráningu á er- lendan hlutabréfamarkað má því eflaust skýra að mestu leyti með verðmæti eldisleyfa. Hluti af leyf- unum er enn þá í umsóknarferli og kann verðmat á Arnarlaxi á erlend- um hlutabréfamarkaði hugsanlega að hækka þegar öll leyfin eru komin í höfn. Gildi lífeyrissjóður og Stefnir fjárfestu fyrir 4 milljarða króna, en eignast fyrir það eingöngu um 8% hlut. Að fanga ríkisvaldið Hér er um mikil verðmæti að ræða og því ekki að ástæðulausu að for- svarsmenn laxeldisfyrirtækja í meirihlutaeigu erlendra aðila hafa farið mikinn undan- farin ár með væntingar um verulegan fjárhags- legan ávinning að leið- arljósi: Farið með hótunum: Til að ná framgangi í sínum málum hefur verið farið með hót- unum og í sumum til- vikum hefur fyrrver- andi opinber starfsmaður og formað- ur stefnumótunarhóps- ins, nú lögfræðingur hjá Arnarlaxi, farið fremstur í flokki. Misnota opinbera starfsmenn: Fyrrverandi ráðherra hefur verið notaður í „lobbýisma“ og starfsmenn stjórnsýslunnar hafa verið misnot- aðir eins og bent var á í síðustu grein höfundar í Morgunblaðinu. Þrýstingur á þingmenn: Forsvars- menn laxeldisfyrirtækjanna hafa lagt mikið upp úr að þrýsta á stjórn- málamenn sínum málum til fram- dráttar og jafnvel eltir út í sjókvíar í kynnisferðum alþingismanna í Nor- egi. Eldisleyfi varanleg eign? Það er búið að skapa mikil verð- mæti með því að skrúfa verðmæti eldissvæðanna upp. Þegar kemur að endurnýjun á eldisleyfum eftir 16 ár verður þrýstingur á að um varanlega eign sé um að ræða. Sviðsmyndin gæti verið þessi.: Lækkun á lífeyri Ef íslenskir líf- eyrissjóðir verða búnir að fjárfesta mikið í laxeldinu verður mikill þrýst- ingur á að eldisleyfin verði fram- lengd án mikils kostnaðar til að koma í veg fyrir verulega lækkun á hluta- bréfum og þar með lífeyri sjóðs- félaga. Hóta að hætta: Leiðandi fjár- festar, jafnvel erlendir eigendur, geta hótað að hætta ef eldisleyfin fást ekki aftur ódýrt og þrýstingur verður frá nærsamfélaginu til að koma í veg fyrir að atvinnutækifæri tapist og verðmæti fasteigna minnki. Aftur ódýr eldisleyfi: Þegar að þessum tímapunkti er komið geta þeir sem fyrst komu að borðinu verið búnir að selja sinn hlut og taka út ávinninginn. Það munu hluthafar sem eftir eru, hugsanlega mest ís- lenskir, benda á og fara fram á að leyfin fáist aftur ódýrt. Beiðni um opinbera rannsókn Það hljóta margir áhrifamenn að skammast sín, sem hafa greitt götu eða látið undan miklum þrýstingi stjórnarformannanna og annarra sem hafa unnið vel og skipulega að sínum málum með mikinn fjárhags- legan ávinning að leiðarljósi. Þess hefur ítrekað verið óskað að stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd láti fara fram opinbera rannsókn, en nefndin hefur valið þá leið að reyna að þagga málið niður með því að svara ekki beiðnum. Eflaust hugsa menn að e.t.v. er best að sópa þessu máli und- ir teppi. Eftir Valdimar Inga Gunnarsson » Þess hefur ítrekað verið óskað að stjórnskipunar- og eftir- litsnefnd láti fara fram opinbera rannsókn Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og hefur m.a. unnið við ýmis mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. valdimar@sjavarutvegur.is Lög um fiskeldi Meðal eldra fólks er nú mikil umræða um stofnun stjórn- málaflokks á þess veg- um. Kannanir hafa verið gerðar meðal eldri borgara og var niðurstaðan sú að meirihluti þátttakenda var jákvæður varðandi þessa hugmynd. Stjórn LEB hefur fengið þetta mál til meðferðar og það undarlega gerðist að fyrsta verk þess var að fara á fund forystu- manna núverandi stjórnmálaflokka og spyrja þá hvort þeir hefðu nokk- uð við það að athuga að samtök eldri borgara stofnuðu stjórnmálaflokk! Þessi vinnubrögð eru vægast sagt hlægileg og furðuleg í meira lagi; að spyrja andstæðinga um leyfi til að keppa við þá í kosningum til Alþing- is. Í núverandi stjórnarskrá stendur í 74 gr.: Rétt eiga menn á að stofna félög í löglegum tilgangi án þess að sækja þurfi um leyfi til þess o.s.frv. Þessi staðreynd sýnir að forystu- sveit LSB er óhæf til baráttu fyrir eldra fólk. Fjöldi eldri borgara 67 ára og eldri er rösklega 45.000 manns og í síð- ustu kosningum 2017 voru 196.259 atkvæði gild til kjörs þeirra 63 þingmanna sem nú sitja á Alþingi. Þetta þýðir að hver núverandi þingmaður hefur 3.115 atkvæði á bak við sig. Þetta þýðir að eldri borgarar gætu nú átt átta manns á þingi með 100% þátt- töku. Segjum að í alþingis- kosningum kysi aðeins helmingur eldri borgara flokk sinn, þá gæfi það fjóra þingmenn. Flestir eldri borgarar hafa eign- ast afkomendur og ég tel víst að nokkur hluti þeirra myndi kjósa mömmu eða pabba eða afa og ömmu, svo þaðan gætu komið mörg atkvæði, sem gerði nokkuð öruggt að framboð stjórnmálaflokks á veg- um eldri borgara næði góðri stöðu á Alþingi. Eldra fólk sem hætt er brauð- stritinu hefur nægan tíma til að starfa að ýmsum þjóðfélagsmálum og er skammarlegt hve lítið er um að nýta starfkrafta þess. Af langri reynslu hefur það sýnt sig að loforð stjórnmálmanna um kjarabætur fyrir eldra fólk eru lof- orðin ein, sem enginn tekur mark á lengur. Verkfallsvopnið er það afl sem al- þýða þessa lands hefur beitt til að berjast fyrir bættum kjörum, en það er ekki okkar lengur. Því er eina vopnið sem gamla fólkið hefur að stofna stjórnmála- flokk, því það óttast núverandi vald- hafar. Með því að eignast þingmenn á löggjafarþingi landsins myndi staða eldri borgara gjörbreytast, en því miður er ekki mikil von til þess að úr því verði meðan forysta LEB er eins og hún er. Eftir Hafstein Sigurbjörnsson »Um nauðsyn þess að gamla fólkið stofni stjórnmálaflokk til baráttu fyrir bótum og fái að vera þátttakandi í þjóðfélaginu. Hafsteinn Sigurbjörnsson Höfundur er eldri borgari. hafsteinnsig@internet.is Að stofna stjórnmálaflokk Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Við þekkjum það úr æviágripum, afmælisviðtölum og minningargreinum hversu misjafnt er hvað safnast af vegtyllum og ábyrgðastörfum á fólk. Sumir eru allt í öllu og engin ráð ráðin án þeirra að- komu. Þeir þefa uppi hverja nefnd, sama hverja, og þykja alls staðar sjálfsagðir innstu koppar í búri, líka oft að eigin áliti. Þótt þetta séu að öllu jöfnu „besta“ og hæfileikarík- asta fólkið og ávinningur að þeirra þrotlausa starfi í þágu lands og lýðs þá er borðleggjandi að þannig eykst fáræði í stjórnun og ákvörðunum. Útkoman getur þá orðið meiri lýðræðishalli, minna gegnsæi og hreint ekki það jafnræði sem allir vilja keppa að nú um stundir. Það hljóta líka að vera takmörk fyrir hvað ein mann- eskja kemst yfir í krefjandi störfum og betra að hafa fleiri á vaktinni en færri. Einnig skal hér minnt á þá stefnu sem oft er höfð á orði og mætti líka vera á borði, að betri sé nærstjórnun á hlutunum heima í héraði þó að síminn sé góður og tölvurnar sömuleiðis. Sunnlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Að fara fram úr sér Nærstjórnun á hlutunum heima getur oft verið betri en síminn þó bæði sími og tölvur séu góðar. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir ör- yggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lyk- ilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.