Morgunblaðið - 28.06.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 28.06.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2021 síðde gisþát turin n Logi b ergma nn og siggi g unnar s Alla v irka d aga fr á 16 - 18 30 ÁRA Jóhanna María fæddist 28. júní 1991 í Reykjavík, en ólst upp á Látrum í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp. Núna býr hún í Búðardal. Hún lauk bú- fræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri (LbhÍ) árið 2012 og ári síð- ar, 2013, settist hún á þing fyrir Framsóknarflokkinn og varð yngst í Íslandssögunni til að vera kjörin á þing, þá 21 árs gömul. „Mér var mjög vel tekið, fékk að læra af og starfa með fólki úr öllum flokkum. Þykir af- skaplega vænt um að hafa fengið þetta tækifæri og bý að því alla tíð.“ Jóhanna María var á Alþingi til 2016 en var þegar byrjuð í Háskólanum á Bifröst og lauk BA-námi í miðlun og al- mannatengslum 2019. Hún starfaði sem framkvæmdastjóri Lands- sambands kúabænda sama ár og tók við stöðu verkefnastjóra hjá sveitarfé- laginu Dalabyggð í byrjun árs 2020. Meðfram dagvinnu rekur hún verk- takafyrirtæki með föður sínum og kennir ræðumennsku og skrif bæði sjálfstætt og í Leiðtogaskóla Íslands. Þar að auki lauk hún á dögunum viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu frá Há- skólanum á Bifröst. „Ég ólst upp í sveit og vil hvergi annars staðar búa. Ég hef alltaf haft það markmið að mennta mig þannig að ég geti búið úti á landi.“ Jóhanna María starfar mikið í félagsmálum og varð ung mjög áhugasöm um samfélagið. „Ég bað um að gerast aukafélagi í Búnaðarfélaginu heima 16 ára gömul og hef síðan þá verið virk í ýmsum félagsmálum. Þegar vinnunni og félagsmálunum sleppir eru helstu áhugamál hennar bókmenntir, ljóð og matreiðsla ásamt því að grúska í ættfræði og þjóðfræði. FJÖLSKYLDA Foreldrar Hönnu Maríu eru hjónin Jóhanna María Karls- dóttir, f.12.11. 1958, og Sigmundur Hagalín Sigmundsson, f. 2.12. 1958, bændur á Látrum. Systkini hennar eru Kristín sjúkraliði, Jón verkstjóri og Sigmundur verkamaður. Jóhanna María Sigmundsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Láttu það eftir þér að leika þér svo- lítið í dag. Reyndu að komast að sam- komulagi við fjölskyldumeðlimi um skipu- lagningu sumarfrísins. 20. apríl - 20. maí + Naut Einver vill hjálpa þér og líka gera þig að stærri hluta í lífi sínu. Flutningar, end- urbætur, viðhald eða eitthvað álíka verða á dagskránni næstu daga. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Reyndu að sjá til þess að þú fáir sem mestan vinnufrið. Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú tjáir þig um vissa hluti. Ef þú skilur ekki sjálfan þig, hver gerir það þá? 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Það má margt læra af nýjum stöð- um og nýju fólki. Drífðu þig af stað og þá kemur fljótt í ljós að ævintýrin bíða þín handan hornsins. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú átt þér marga talsmenn og þarft því ekki að örvænta um þinn hlut þegar ákvarð- anir verða teknar um framtíðarstöðu þína. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Ekki reyna að þröngva skoðunum þínum upp á aðra. Gefðu þér tíma til að vinna úr hlutunum. Þú hittir spennandi per- sónu í kvöld. 23. sept. - 22. okt. k Vog Stundum eru hlutirnir hreint ekki þar sem þér finnst þú hafa skilið þá eftir. Mik- ilvægt er að sýna þeim sem þú deilir fortíð- inni með ræktarsemi. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Vertu opin/n fyrir nýjum hug- myndum. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú mátt ekki skella skollaeyr- unum við nýjum upplýsingum sem varða verkefni, sem þú hefur lengi unnið að. Farðu í langa göngu. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það eru alls konar smáhlutir sem þarf að sinna. Einhver ágreiningur gæti kom- ið upp varðandi börn í dag. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú þarft ráðrúm til þess að vinna úr áhlaupi nýrra upplýsinga og breytinga. Ekki gefast upp fyrr en þú hefur fengið svör við þeim spurningum sem brenna á þér. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Ekki á hlusta á þá sem segja að draumar þínir geti aldrei ræst. Sýndu sveigj- anleika, því stífni borgar sig sjaldnast. s seldi öll þessi stóru verk. Enn þann dag í dag er verið að spyrja mig hvort ég sé alveg hætt að vefa. Það var farið að festast við mig að ég væri með þessa veggskúlptúra.“ Árið 1979 gifti Nína sig og stofn- aði fjölskyldu. „Ég hafði alltaf verið við hjúkrun af og til í mörg ár, sér- staklega þegar ég kom heim á sumr- in. Eftir að ég var komin með lítil börn þurfti ég að velja hvort ég vildi vera listamaður eða hjúkka. Það gekk ekki upp að vera í hvoru tveggja.“ Þegar Nína fór til Níger í Afríku með fjölskylduna fór hún að vinna með leður. „Við bjuggum í Níger í tvö ár sem var ótrúlega mikil reynsla, enda gjörólíkur heimur og landið eitt fátækasta land veraldar. Ég hugsaði oft að svona hlyti lífið að hafa verið á tímum Krists: fólk í síð- um hempum, búið í leirkofum og allt mjög frumstætt. Einn daginn fór ég N ína Gautadóttir fædd- ist í Reykjavík og ólst upp í Vesturbænum. „Ég var fyrst á Mel- unum en frá 11 ára aldri bjó ég á Ásvallagötunni og þar á ég líka íbúð núna.“ Á sumrin var Nína í sveit hjá afa sínum og ömmu í Landeyjum. „Ef maður horfði til suðurs frá bænum var bara endalaus sjórinn, en í norður voru fallegu fjöll- in og Eyjafjallajökull. Þarna strax 10-12 ára var ég farin að láta mig dreyma um útlönd, fara suður þar sem var dulúð framandi heima.“ Nína gekk í Gaggó Vest, sem hún segir að hafi verið kallað villta vestr- ið og fannst það mjög gaman. „Þar kenndi Jóhann Briem mér myndlist og hann hafði mikil áhrif á mig. Ég var gífurlega áhugasöm og þarna fékk ég þessa listamannabakteríu svona snemma.“ Foreldrar Nínu vildu að hún lærði eitthvað praktískt svo hún gæti alltaf fengið vinnu. Það varð úr að Nína fór í Hjúkrunarskóla Íslands og kunni mjög vel við sig. „Þetta var góður skóli og ég vann í tæplega tvö ár til að safna fyrir utan- landsferð til Parísar. Það hafði alltaf verið draumur hjá mér að komast til Frakklands og vera í eitt ár. Það má segja að það hafi teygst ansi mikið úr þessu ári,“ segir Nína. Þegar hún kom til Parísar árið 1970 kynntist hún ótrúlegum lífsstíl fyrir algjöra tilviljun. „Ég gat unnið sem einkahjúkrunarkona hjá ríkum barónessum í París. Ég vann hjá einni sem hafði búið í 25 ár í svítu á fimm stjörnu hóteli. Í rauninni var þetta ekki hjúkrun, því hún þorði ekki að vera ein á nóttunni, svo ég fékk bara herbergi og gerði mest lít- ið en fékk samt vel borgað. Þetta fyr- irkomulag var afar hentugt því Nína byrjaði á því að fara á námskeið í Sorbonne fyrsta árið bæði í frönsku og í teikningu og síðan fór hún í Listaháskólann í París þar sem hún lauk námi í málun árið 1976. „Þótt ég væri mest að vefa, varð ég að útskrif- ast úr málaradeild.“ Nína hefur alltaf farið sínar eigin leiðir, líka í listinni. Margir sjá í vefn- aði vísun í handverk formæðra í gegnum aldirnar, en Nína gerir stór og fyrirferðarmikil verk sem eru þrí- víð og taka pláss og þau eru kraft- mikil og full af kvenlægri orku. „Ég var svo heppin að þetta vakti mikla lukku og ég var með sýningu heima 1980 sem vakti mikla athygli, ég niður að ánni þar sem verið var að súta leður og datt í hug að fá leður litað og nota í listaverk. Þarna voru hirðingjar, túaregar, sem eru mjög hávaxnir og myndarlegir og stoltir. Þeir búa til allt sem þeir þurfa úr leðri; tjöld til að sofa í og fleiri nytja- hluti sem auðvelt er að flytja yfir eyðimörkina. Konurnar kenndu mér að búa til kögur úr leðri svo ég fór að nota þetta eins og þræði í verkin mín, klippti það og saumaði og flétt- aði og gerði úr því textílverk. Einn yfirmaður á svæðinu hafði heyrt að þessi hvíta útlenska kona væri að bralla eitthvað með leður og kom í heimsókn. Þegar hann sá verkin uppi á vegg missti hann alveg andlit- ið og skildi ekkert í þessu.“ Fjölskyldan sneri til Parísar í eitt ár en þá var ferðinni heitið til Kam- erún. „Þá fór ég með striga með mér og fór í málverkið. Ég var aldrei sátt við sjálfa mig sem málara og vildi Nína Gautadóttir listakona í París – 75 ára Listasafn Íslands Nína fyrir framan verk sitt á Listasafni Íslands á ári kófsins, 2020, eins og sjá má á grímunni. Ársdvölin í París varir enn Nína í æsku Hér sést Nína horfa fram alvarleg en íhugul á svip. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.