Morgunblaðið - 28.06.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2021
„HANN SLASAÐI SIG VIÐ AÐ TAKA
SJÁLFU – MEÐ SKÍFUSÍMA.“
„GASTU EKKI FUNDIÐ ÞÉR
VIÐKUNNANLEGAN KÆRASTA FRÁ ÞESSARI
PLÁNETU?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gera tanntökuna
bærilegri.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HÆ, LÍSA!
HVAÐÆTLAR …
HEI, GRETTIR!
HVAÐ …
MEGRUN-
ARVIKA
KVÆÆÆS!
DAG EINN, ÞEGAR ÞÚ ERT GIFT ,
MUN EIGINMAÐUR ÞINN KVARTA
UNDAN KVÖLDMATNUM!
EKKERT
VANDAMÁL!
ÉG SEGI HONUM BARA AÐ VIÐ GETUM
PRÓFAÐ NÝJA VEITINGASTAÐI ÞAR
TIL VIÐ FINNUM EINHVERN SEM
HONUM LÍKAR!
vinna í því og málaði mikið í akrýl.
Það var allt öðruvísi þar en í Níger.
Þeir eiga olíu og eru auðugir svo það
er ekki jafn frumstætt, en á sama
tíma ekki eins áhrifamikið.“
Nína hefur gengið í gegnum mörg
tímabil í listinni og eftir heimkom-
una stúderaði hún egypskar híróg-
lýfur og blandaði saman við íslensk-
ar rúnir í mörgum verka sinna.
Síðan hefur hún málað, ofið og hún
viðar að sér efni víða sem hún notar í
verk sín. Hún hefur haldið sýningar
víða en mest í Frakklandi og á Ís-
landi. Nína hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga og haldið yfir 30 einka-
sýningar og hlotið margvísleg verð-
laun fyrir verk sín, m.a. frá Par-
ísarborg, Aþenuborg og fleirum.
Fjölskylda
Eiginmaður Nínu var Antoine
Mercier, byggingaverkfræðingur í
París, f. 16.11. 1952. Þau skildu.
Börn þeirra eru 1) Ásta Ant-
onsdottir Mercier ferðamálafræð-
ingur, f. 22.2.1980. Hún á dótturina
Eydísi Nínu Mercier, f. 8.12. 2020;
2) Smári Antonsson Mercier, flutn-
ingafræðingur, f. 26.7. 1981. Hann á
með Sarah Bassett börnin Gaspard
Sigurð, f. 7.8. 2016, og Alice Hildi, f.
26.1. 2018. 3) Freyja Antonsdóttir
Mercier, f. 12.9. 1987, í sambúð með
Adren Heral og þau eiga dótturina
Lönu Esju, f. 5.6. 2020.
Bræður Nínu eru Brynjólfur, f.
27.9 1947, d. 12.12. 1967, og Skúli,
menningarfulltrúi Vestfjarða, leik-
ari og tónlistarmaður, f. 25.10.
1959.
Foreldrar Nínu eru Elín Guð-
jónsdóttir, leikkona og leið-
sögumaður í Reykjavík, f. 4.5. 1926,
og Gauti Hannesson kennari, f. 7.8.
1909, d. 4.4. 1982.
Nína
Gautadóttir
Sigríður Einarsdóttir
húsfreyja á Reynishólum,
Reynissókn
Jón Jónsson
bóndi og sjómaður á
Reynishólum í MýrdalGuðríður Jónsdóttir
húsfreyja á Fornusöndum
undir Eyjafjöllum og í
Berjanesi í Landeyjum
Guðjón Einarsson
bóndi á Fornusöndum
undir Eyjafjöllum, síðan
í Berjanesi í Landeyjum
Elín Guðjónsdóttir
leikkona og leið-
sögumaður í Reykjavík
Guðrún Eyjólfsdóttir
húsfreyja á Fornusöndum
undir Eyjafjöllum
Einar Pálsson
húsbóndi á Fornusöndum
undir Eyjafjöllum
Elín Sesselja Jónsdóttir
húsfreyja á Gautsstöðum
á Svalbarðsströnd
Jóhann Friðberg Bergvinsson
bóndi á Hallanda og Gautsstöðum.
Fór til Vesturheims 1900 en kom ári
seinna og var húsmaður á Garðsvík
Jónína Jóhannsdóttir
húsfreyja í Hleiðargarði í Eyjafirði
Hannes Jónsson
bóndi, kennari og oddviti
í Hleiðargarði í Eyjafirði
Sigríður Ólafsdóttir
húsfreyja í Hleiðargarði í Eyjafirði
Jón Jóhannesson
húsbóndi í Hleiðargarði í Eyjafirði
Úr frændgarði Nínu Gautadóttur
Gauti Hannesson
kennari í Reykjavík
Í formála fyrir úrvali úr óprent-uðum ljóðum Páls Ólafssonar
útg. 1955 sem Páll Hermannsson
fv. alþingismaður valdi og bjó til
prentunar segir hann: „Börn lærðu
ljóð Páls á líkan veg og þau lærðu
að ganga eða tala, þ.e. ósjálfrátt.
Páll er börnunum góður félagi.
Hann kann þá sjaldgæfu list að
leika sér eins og barn, eðlilega og
innilega, og hann er hláturmildur
fram á grafarbakkann.
Sólskríkjan mín situr þarna á sama
steini,
og hlær við sínum hjartans vini,
honum Páli Ólafssyni.
Þannig kveður hann á áttræð-
isaldri. Sólskríkjan gæti fljótlega
hafa breyst í elskulega, litla
stúlku.
Settu nú rjómann og sykrið í bollann,
svolítið koníak, hrærðu svo í,
kysstu mig síðan og kærðu þig skoll-
ann
þó Kristín og mamma þín hlæi að því.
Þannig sagði Páll lítilli stúlku til
verka, er bar góðgerðir fyrir gest-
inn.“
Gunnar J. Straumland yrkir á
Boðnarmiði:
Enn í stöku stöku helst
stuðlar hafa valdið
en vísan lítils virði telst
ef vantar innihaldið.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir
„Á Hornströndum“ út af nýjustu
tíðindum:
Magnað er á Hornströndum, minkur á
þar spor,
melrakki á greni og fuglar prýða skor.
Sílspikaðir ísbirnir sumarkvöldin löng
„fljúga austur heiði með fjaðraþyt og
söng“.
Jón Atli Játvarðarson er á svip-
uðum nótum þegar hann segir:
„Margt verður óhugnanlegt í bjór-
þokunni á Hornströndum um
sumarsólstöðurnar“:
Hvíta þúst í þoku lít
þurr mjög varð um kokið.
Er við fundum álftaskít
öllum var mér lokið.
Reyr frá Drangsnesi segir frá
því, að Ásgeir Jónsson haldi úti fa-
cebooksíðunni „Heimur batnandi
fer“. Ekki eru allir sammála þeirri
fullyrðingu:
Áður fyrr var allt svo gott
allt í traustum skorðum;
þá var bæði þurrt og vott
þrátt og súrt á borðum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Svolítið koníak,
hrærðu svo í