Morgunblaðið - 28.06.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 28.06.2021, Síða 26
FÓTBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslandsmeistararnir í Val misstu niður 1:0 forskot gegn Fylki á loka- mínútunum þegar liðin mættust í Pepsí Max-deild karla á Hlíðarenda í gær. Valur er með 24 stig en liðið hefur aðeins tapað einum leik af fyrstu ellefu. Fyrirliðinn Haukur Páll Sigurðs- son skoraði skallamark fyrir Val eftir hornspyrnu á 55. mínútu. Á 88. mínútu jafnaði Arnór Borg Guð- johnsen fyrir Fylki og tryggði liðinu gott stig. Arnór skoraði þar gegn liði sem bæði faðir hans, Arnór, og hálfbróðir, Eiður Smári, léku með um tíma. „ Síðasta hlutann sóttu gestirnir enn stífar en það bauð upp á skyndi- sóknir Vals, sem í lokin voru mjög skæðar. En aftur gættu menn sín ekki og Arnór Borg Guðjónsson skoraði glæsilegt mark á 88. mínútu þegar hann smeygði sér á eftir flottri sendingu Þórðar Gunnars Hafþórssonar og jafnaði metin,“ skrifaði Stefán Stefánsson meðal annars í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is í gær. Tvö mörk á lokakaflanum Ekki vantaði dramatíkina þegar Kópavogsliðin HK og Breiðablik mættust í Kórnum. Breiðablik nældi í fyrsta sigurinn gegn HK í efstu deild síðan 2008 og vann 3:2. HK var hins vegar yfir í leiknum bæði 1:0 og 2:1. Blikar nýttu loka- kaflann afskaplega vel því Thomas Mikkelsen jafnaði úr víti á 85. mín- útu og Andri Rafn Yeoman átti lokaorðið þegar hann skoraði á 87. mínútu. Breiðablik er nú í 2. sæti deild- arinnar með 19 stig eftir tíu leiki. Víkingur er einnig með 19 stig en eftir níu leiki. Liðin eiga því bæði leiki inni á topplið Vals. HK er í næstneðsta sæti og hefur aðeins unnið einn leik af fyrstu tíu. „HK hefur nú tapað þremur leikj- um í röð og aðeins unnið einn leik í allt sumar. HK hefur m.a. tapað fyr- ir Stjörnunni, sem var í basli, Kefla- vík, sem eru nýliðar, og svo núna köstuðu þeir frá sér góðri stöðu í lokin. HK þarf að fara að safna stig- um og það sem fyrst ef ekki á illa að fara í sumar. Blikar eru á leiðinni í hina áttina og hafa unnið fimm leiki af síðustu sex í deildinni og er liðið í öðru sæti fyrir vikið. Breiðablik fær Leikni úr Reykjavík í heimsókn í næstu umferð og þar er dauðafæri til að halda sigurgöngunni áfram,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. í umfjöllun sinni á mbl.is. Seigla hjá KA-mönnum Þjálfarinn reyndi Ólafur Jóhann- esson stýrði FH í fyrsta skipti á Ís- landsmótinu síðan 2007 í gær þegar liðið fékk KA í heimsókn í Kapla- krika. Útlitið var gott fyrir FH um tíma en Steven Lennon hafði komið FH yfir með marki úr vítaspyrnu. KA-maðurinn Dusan Brkovic fékk rauða spjaldið á 67. mínútu eftir brot á Ágústi Eðvaldi Hlynssyni. FH-ingar virtust því eiga alla möguleika á því að ná í þrjú stig en svo fór ekki því Jonathan Hend- rickx, fyrrverandi leikmaður FH, jafnaði fyrir KA á 77. mínútu. „1:1-jafntefli varð því niðurstaðan eftir harðvítuga baráttu beggja liða. Líklega má kalla þetta sanngjörn úrslit milli tveggja sterkra liða. Engu að síður hljóta FH-ingar að vera svekktari með að hafa ekki getað nýtt sér liðsmuninn. Á sama tíma gefur stigið KA-mönnum lítið í toppbaráttunni. Bæði lið geta þó verið sátt við spilamennskuna, og eru bæði KA og FH óárennilegir mótherjar fyrir liðin sem þurfa að mæta þeim í næstu umferðum,“ skrifaði Stefán Gunnar Sveinsson í umfjöllun sinni á mbl.is. _ Leikur FH og KA var 700. leik- ur FH í efstu deild. _ Guðmundur Kristjánsson, mið- vörður FH, spilaði 300. deildaleik- inn á ferlinum. 152 þeirra hefur hann spilað hérlendis en 148 í Nor- egi. Líflegur grannaslagur Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason - Fylkir náði stigi gegn Val á Hlíðarenda - Tíu KA-menn jöfnuðu í Kaplakrika Á Hlíðarenda Parfitt- Williams með boltann en Haukur Páll og Birkir Már Sævarsson eru til varnar. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2021 Pepsi Max-deild karla FH – KA.................................................... 1:1 HK – Breiðablik........................................ 2:3 Valur – Fylkir ........................................... 1:1 Staðan: Valur 11 7 3 1 19:11 24 Breiðablik 10 6 1 3 24:15 19 Víkingur R. 9 5 4 0 15:7 19 KA 9 5 2 2 14:5 17 KR 9 4 3 2 15:10 15 FH 10 3 3 4 14:15 12 Fylkir 10 2 5 3 14:17 11 Stjarnan 10 2 4 4 8:14 10 Keflavík 8 3 0 5 9:15 9 Leiknir R. 9 2 2 5 9:13 8 HK 10 1 3 6 12:20 6 ÍA 9 1 2 6 9:20 5 Lengjudeild karla Fjölnir – Þór ............................................. 0:3 Selfoss – Víkingur Ó................................. 5:3 Þróttur R. – Afturelding.......................... 1:3 Grótta – Fram........................................... 0:1 Vestri – ÍBV.............................................. 0:3 Staðan: Fram 8 8 0 0 25:4 24 ÍBV 8 5 1 2 16:8 16 Grindavík 8 5 1 2 15:13 16 Kórdrengir 8 4 3 1 13:10 15 Fjölnir 8 4 1 3 10:9 13 Vestri 8 4 0 4 13:17 12 Þór 8 3 1 4 16:15 10 Afturelding 8 2 3 3 16:17 9 Grótta 8 2 2 4 16:15 8 Selfoss 8 2 2 4 15:21 8 Þróttur R. 8 1 1 6 12:22 4 Víkingur Ó. 8 0 1 7 10:26 1 2. deild karla Þróttur V. – Völsungur ............................ 3:0 Magni – Leiknir F .................................... 3:2 Fjarðabyggð – Haukar ............................ 1:4 Njarðvík – KF........................................... 2:1 Staðan: KV 8 4 4 0 18:11 16 Þróttur V. 8 4 3 1 19:10 15 Njarðvík 8 3 5 0 14:9 14 Reynir S. 8 4 1 3 18:15 13 Haukar 8 3 3 2 18:14 12 ÍR 8 3 3 2 13:12 12 KF 8 3 2 3 11:11 11 Völsungur 8 3 1 4 16:19 10 Magni 8 2 3 3 17:20 9 Leiknir F. 8 3 0 5 13:16 9 Fjarðabyggð 8 0 4 4 4:16 4 Kári 8 0 3 5 10:18 3 3. deild karla Ægir – KFS .............................................. 0:1 Augnablik – Elliði..................................... 2:1 Sindri – Einherji....................................... 2:0 Staðan: Höttur/Huginn 9 7 1 1 15:10 22 Augnablik 9 5 3 1 23:10 18 Ægir 9 4 4 1 13:8 16 Elliði 9 5 0 4 22:12 15 KFG 8 4 3 1 12:7 15 Sindri 9 3 3 3 15:15 12 Dalvík/Reynir 9 3 2 4 14:12 11 Víðir 8 2 3 3 9:14 9 Einherji 9 2 1 6 11:21 7 KFS 9 2 1 6 9:21 7 Tindastóll 7 1 2 4 11:14 5 ÍH 9 0 5 4 11:21 5 2. deild kvenna Einherji – Fram ....................................... 1:0 ÍR – Hamrarnir ........................................ 5:2 Álftanes – Völsungur ............................... 0:2 Staðan: Fjarðab/Höttur/Leiknir 7 7 0 0 32:7 21 Völsungur 7 6 0 1 19:8 18 Fjölnir 6 5 0 1 30:7 15 KH 6 5 0 1 17:4 15 Fram 6 4 0 2 14:7 12 Hamar 7 2 2 3 13:17 8 Hamrarnir 7 2 1 4 18:18 7 ÍR 6 2 1 3 13:14 7 Sindri 5 2 0 3 12:15 6 Einherji 6 1 2 3 4:11 5 SR 6 1 0 5 13:11 3 Álftanes 6 1 0 5 6:12 3 KM 7 0 0 7 1:61 0 EM karla 2021 16-liða úrslit: Wales – Danmörk..................................... 0:4 Ítalía – Austurríki............................ 2:1 (frl.) Holland – Tékkland.................................. 0:2 Belgía – Portúgal...................................... 1:0 _ Belgía mætir Ítalíu og Holland mætir Danmörku. Leikir í dag: Króatía – Spánn Frakkland – Sviss Noregur Bodö/Glimt – Stabæk.............................. 4:1 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Vålerenga – Klepp .................................. 7:0 - Ingibjörg Sigurðardóttir lék fyrri hálf- leikinn í liði Vålerenga. Amanda Andra- dóttir lék fyrstu 70 mínúturnar og skoraði. B-deild: Ull/Kisa – Aalesund ................................ 0:1 - Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn með Aalesund. Bandaríkin Houston Dash – Orlando Pride.............. 2:1 - Andrea Rán Hauksdóttir var ekki í leik- mannahópi Houston. - Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn fyrir Orlando og skoraði. 50$99(/:+0$ FH – KA 1:1 1:0 Steven Lennon (víti) 21. 1:1 Jonathan Hendrickx 77. M Gunnar Nielsen (FH) Eggert Gunnþór Jónsson (FH) Þórir Jóhann Helgason (FH) Björn Daníel Sverrisson (FH) Ágúst Eðvald Hlynsson (FH) Jónatan Ingi Jónsson (FH) Steven Lennon (FH) Matthías Vilhjálmsson (FH) Steinþór Már Auðunsson (KA) Jonathan Hendrickx (KA) Þorri Már Þórisson (KA) Steinþór Freyr Þorsteinsson (KA) Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA) Ásgeir Sigurgeirsson (KA) Rautt spjald: Dusan Brkovic (KA) 67. mínútu. Dómarar: Pétur Guðmundsson (Vil- hjálmur Alvar Þórarinsson) – 7. Áhorfendur: 369. HK – BREIÐABLIK 2:3 1:0 Arnþór Ari Atlason 22. 1:1 Kristinn Steindórsson 2:1 Birnir Snær Ingason (víti) 71. 2:2 Thomas Mikkelsen (víti) 84. 2:3 Andri Rafn Yeoman 87. M Birnir Snær Ingason (HK) Arnþór Ari Atlason (HK) Ívar Örn Jónsson (HK) Valgeir Valgeirsson (HK) Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki) Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki) Thomas Mikkelsen (Breiðabliki) Kristinn Steindórsson (Breiðabliki) Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki) Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 7. Áhorfendur: Um 500. VALUR – FYLKIR 1:1 1:0 Haukur Páll Sigurðsson 55. 1:1 Arnór Borg Guðjohnsen 88. M Sebastian Hedlund (Val) Rasmus Christiansen (Val) Almarr Ormarsson (Val) Patrick Pedersen (Val) Orri Sveinn Stefánsson (Fylki) Ásgeir Eyþórsson (Fylki) Orri Hrafn Kjartansson (Fylki) Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 8. Áhorfendur: 783. _ Aron Snær Júlíusson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar náði besta árangri sem Íslendingur hefur náð á EM áhugamanna í golfi sem fram fór í Frakklandi. Aron lék glimrandi vel og lék á samtals þrettán höggum undir pari en versti hringurinn hjá honum af fjórum var 70 högg. Skorið á hinum þremur var 67, 69 og 65. Aron Snær hafnaði í 5. sæti en Daninn Christoffer Bring sigraði á tuttugu undir pari. Fet- aði Bring þar í fótspor frægra kylfinga eins og Sergios Garcia, Rorys McIlroy og Tommys Fleetwood. Hákon Örn Magnússon úr GR og Kristófer Karl Karlsson úr GM kepptu einn- ig á EM en náðu ekki í gegnum niðurskurð kepp- enda. _ Willum Þór Willumsson, leikmaður hvítrússneska knatt- spyrnuliðsins BATE Borisov, er meidd- ur á hné og verður frá í um þrjá mán- uði. Hefur hann misst af þremur síðustu deildarleikjum liðsins vegna þessa og fór í aðgerð í Þýskalandi fyrir fyrir rúmum tveimur vikum. „Það eru um það bil tvær og hálf vika síðan ég fór í aðgerðina. Þetta verða tveir og hálfur til þrír mánuðir frá að- gerð, þannig að það eru rúmar tvær vikur búnar,“ segir Willum Þór meðal annars í samtali við mbl.is. _ Varnarmaðurinn Róbert Orri Þor- kelsson hefur gert tveggja ára samn- ing við kanadíska félagið Montréal, sem leikur í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu. Róbert Orri, sem er 19 ára gamall, hefur leikið sextán leiki í efstu deild með Breiðabliki. Áður lék hann með Aftureldingu í 1. og 2. deild. _ Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir var á skotskónum þegar hún skoraði eina mark Orlando Pride í 1:2-tapi gegn Houston Dash í efstu deildinni í knattspyrnu í Bandaríkj- unum. Houston, sem Andrea Rán Snæfeld Hauks- dóttir gekk til liðs við á dög- unum, komst í 2:0-forystu eftir aðeins 26 mín- útna leik. Snemma í síðari hálfleiknum minnkaði Gunn- hildur muninn eftir undirbúning brasilíska snillings- ins Mörtu, einnar allra bestu knatt- spyrnukonu sögunnar. _ Körfuknattleiksmaðurinn Róbert Sigurðsson hefur gert tveggja ára samning við ÍR. Hann kemur til félags- ins frá Álftanesi. Róbert hefur einnig leikið með uppeldisfélagi sínu Fjölni og Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.