Morgunblaðið - 28.06.2021, Blaðsíða 27
Stjörnunni og á að baki leiki í efstu
deild með þeim liðum.
_ Phoenix Suns er komið í afar góða
stöðu í úrslitaeinvígi Vesturdeildar
NBA í körfuknattleik eftir að hafa unn-
ið sinn þriðja sigur gegn LA Clippers,
84:80. Phoenix er þar með 3:1 yfir í
rimmunni og þarf því einn sigur til við-
bótar til þess að komast í úrslit. Þar
mun liðið mæta annaðhvort Milwau-
kee Bucks eða Atlanta Hawks úr Aust-
urdeildinni. Þar er staðan jöfn 1:1.
_ Íslandsmeistarinn í golfi, Guðrún
Brá Björgvinsdóttir úr Keili, hafnaði í
33. sæti á Tipsport Czech-mótinu í
Tékklandi en mótið er hluti af Evr-
ópumótaröðinni, sterkustu mótaröð
álfunnar. Guðrún Brá sýndi mikinn
stöðugleika og lék
þrjá afar svipaða
hringi. Lék hún á
71 höggi á fyrsta
og öðrum keppn-
isdegi og 70 högg-
um á þriðja degi.
Guðrún keppir aft-
ur í vikunni en á
miðvikudag hefst
næsta mót hjá henni og fer það fram í
Hollandi.
_ Haraldur Franklín Magnús úr GR
hafnaði í áttunda sæti á Open de Bre-
tagne-mótinu í Frakklandi á Áskor-
endamótaröð Evrópu í Frakklandi. Har-
aldur lék fjóra hringi á samtals átta
höggum undir pari, en slakur annar
hringur gerði það að verkum að hann
endaði ekki enn ofar. Haraldur lék
fyrsta hring á 64 höggum, annan
hringinn á 74 höggum og tvo síðustu
hringina á 67 höggum.
_ Serbía varð í gær Evrópumeistari
kvenna í körfuknattleik í annað skipti í
sögunni með því að vinna 63:54-sigur
á Frakklandi í úrslitaleik í Valencia á
Spáni. Serbía varð meistari árið 2015,
einmitt eftir sigur á Frakklandi. Frakk-
ar hafa tapað úrslitaleiknum fimm
sinnum í röð.
_ Glódís Perla Viggósdóttir og liðs-
félagar hennar í Rosengård eru í afar
góðum málum á toppi sænsku úrvals-
deildar kvenna í knattspyrnu eftir
sterkan 2:0-sigur gegn Häcken í upp-
gjöri tveggja efstu liðanna. Glódís
Perla, sem fagn-
aði einmitt 26 ára
afmæli sínu í gær,
lék allan leikinn í
vörn Rosengård
en Diljá Ýr Zo-
mers kom inn á
sem varamaður
hjá Häcken þegar
um tíu mínútur
voru eftir. Sveindís Jane Jónsdóttir
heldur áfram að láta að sér kveða með
liði Kristianstad og skoraði eitt marka
liðsins í 6:1-sigri gegn Piteå.
_ Fastlega er búist við því að Rafa
Benitez skrifi undir samning við Ever-
ton snemma í vikunni samkvæmt
staðarmiðlum í Liverpool og verði
næsti knattspyrnustjóri.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2021
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Norðurálsvöllur: ÍA – Keflavík ........... 19.15
Leiknisv.: Leiknir R. – Víkingur R..... 19.15
Meistaravellir: KR – Stjarnan ............ 19.15
3. deild karla:
Sauðárkrókur: Tindastóll – Víðir............. 18
Í KVÖLD!
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, úrslit:
Milwaukee – Atlanta .......................... 125:91
_ Staðan er 1:1.
Vesturdeild, úrslit:
LA Clippers – Phoenix......................... 80:84
_ Staðan er 1:3.
EM kvenna 2021
Undanúrslit:
Hvíta-Rússland – Frakkland .............. 61:73
Serbía – Belgía...................................... 74:73
Úrslitaleikir:
1-2: Frakkland – Serbía ....................... 54:63
3-4: Hvíta-Rússland – Belgía .............. 69:77
5-6: Spánn – Rússland.......................... 74:78
7-8: Svíþjóð – Bosnía ............................ 63:82
>73G,&:=/D
Þýskaland
RN Löwen – Kiel ................................. 25:25
- Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir
Löwen.
Flensburg – Balingen ......................... 38:26
- Alexander Petersson var ekki á leik-
skýrslu hjá Flensburg.
- Oddur Gretarsson var ekki á leikskýrslu
hjá Balingen.
Ludwigshafen – Göppingen............... 25:27
- Gunnar Steinn Jónsson skoraði ekki fyr-
ir Göppingen. Janus Daði Smárason er frá
vegna meiðsla.
Lemgo – Magdeburg........................... 32:27
- Bjarki Már Elísson skoraði 15 mörk
fyrir Lemgo.
- Ómar Ingi Magnússon skoraði 12 mörk
og gaf eina stoðsendingu fyrir Magdeburg
en Gísli Þorgeir Kristjánsson er frá keppni.
Füchse Berlín – Bergischer ............... 29:27
- Arnór Þór Gunnarsson var ekki á leik-
skýrslu hjá Bergischer.
Stuttgart – Melsungen........................ 26:26
- Viggó Kristjánsson skoraði 9 mörk fyrir
Stuttgart.
- Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki fyr-
ir Melsungen. Guðmundur Þ. Guðmunds-
son er þjálfari liðsins.
Lokastaðan:
Kiel 68, Flensburg 68, Magdeburg 53,
Füchse Berlín 52, RN Löwen 50, Leipzig
42, Göppingen 42, Lemgo 41, Melsungen
41, Wetzlar 41, Hannover-Burgdorf 36,
Bergischer 35, Erlangen 34, Stuttgart 32,
Balingen 29, Minden 28, Ludwigshafen 25,
Nordhorn 17, Essen 15, Coburg 11.
_ Markatala réð því að Kiel varð þýskur
meistari en ekki Flensburg.
B-deild:
Bietigheim – Hamburg....................... 28:27
- Aron Rafn Eðvarðsson varði 16 skot í
marki Bietigheim.
Grosswallstadt – Gummersbach ....... 27:33
- Elliði Snær Viðarsson skoraði 2 mörk
fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs-
son þjálfar liðið.
Aue – Wilhelmshavener...................... 36:23
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 1
mark og gaf 9 stoðsendingar fyrir Aue.
Sveinbjörn Pétursson varði 7 skot í marki
liðsins. Rúnar Sigtryggsson þjálfar Aue.
Lokastaða efstu liða:
Hamburg 56, N-Lübbecke 56, Gummers-
bach 55, Elbflorenz 42, Aue 41, Grosswall-
stadt 39, Dormagen 38, Bietigheim 38.
_ Tvö efstu liðin fara upp í 1. deild en fjög-
ur neðstu liðin þar falla niður í B-deild.
E(;R&:=/D
Svíþjóð
Rosengård – Häcken ............................... 2:0
- Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
- Diljá Ýr Zomers kom inn á hjá Häcken á
81. mínútu.
AIK – Eskilstuna...................................... 0:2
- Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan
leikinn með AIK.
Kristianstad – Piteå ................................ 6:1
- Sveindís Jane Jónsdóttir lék allan leik-
inn hjá Kristianstad og skoraði en Sif Atla-
dóttir var ónotaður varamaður. Elísabet
Gunnarsdóttir þjálfar liðið.
- Hlín Eiríksdóttir var ekki á leikskýrslu
hjá Piteå.
Staða efstu liða:
Rosengård 10 9 1 0 23:2 28
Häcken 10 6 2 2 24:5 20
Kristianstad 10 5 4 1 16:8 19
Hammarby 10 5 3 2 23:14 18
Linköping 9 3 4 2 11:10 13
Eskilstuna 10 3 4 3 9:10 13
Hvíta-Rússland
BATE Borisov – Zhodino ....................... 3:0
- Willum Þór Willumsson var ekki í leik-
mannahópi BATE vegna meiðsla.
KNATTSPYRNA
Belgar slógu Evrópumeistarana frá
Portúgal út í 16-liða úrslitum Evr-
ópumóts karla í knattspyrnu þegar
liðin mættust í Sevilla á Spáni í gær-
kvöldi. Belgía sigraði 1:0 með marki
frá Thorgan Hazard á 42. mínútu.
Portúgal er því úr leik en Belgía
mætir Ítalíu í 8-liða úrslitum keppn-
innar í München á föstudaginn.
Hazard skoraði með laglegu skoti
fyrir utan teig en Portúgalar settu
töluverða pressu á Belga þegar á
leið en tókst ekki að kreista fram
jöfnunarmark. Kevin De Bruyne
þurfti að fara af velli vegna meiðsla á
48. mínútu leiksins, sem er áhyggju-
efni fyrir Belga, en Joao Palhinha
tæklaði hann í fyrri hálfleik.
Ítalía, sem leikið hefur vel á EM,
hafði betur gegn Austurríki, 2:1, eft-
ir framlengdan leik á Wembley í
London á laugardagskvöld. Marka-
laust var að loknum venjulegum
leiktíma, en Federico Chiesa kom
Ítalíu loks yfir á 95. mínútu og Mat-
teo Pessina kom Ítölum tveimur
mörkum yfir tíu mínútum síðar.
Austurríkismenn náðu þó að minnka
muninn en það gerði Sasa Kalajdzic.
Danir í stuði
Velgengni Dana heldur áfram á
mótinu og eru þeir komnir áfram í 8-
liða úrslit eftir 4:0 sigur á Wales í 16-
liða úrslitum í Amsterdam á laug-
ardaginn.
Kasper Dolberg skoraði tvívegis
fyrir Dani í leiknum en Joakim
Mæhle og Martin Braithwaite skor-
uðu einnig. Dolberg spilar með Nice
í Frakklandi en hann hóf atvinnu-
mannsferilinn á Johann Cruyff-
leikvanginum í Amsterdam er hann
spilaði með hollenska stórliðinu Ajax
um árabil. „Hér byrjaði þetta allt
saman hjá mér og að koma á þennan
völl aftur, við þessar kringum-
stæður, það var ævintýralegt. Þetta
er einn af hápunktunum, það er á
hreinu,“ sagði kampakátur Dolberg
við danska ríkissjónvarpið.
Danir mæta Tékkum í 8-liða úr-
slitum en Tékkland vann Holland 2:0
í Búdapest í gær. Hollendingurinn
Matthijs de Ligt fékk brottvísun á
55. mínútu en fram að því hafði leik-
urinn verið nokkuð jafn. Hafði þetta
nokkur áhrif á leikinn og Tékkar
gengu í það minnsta á lagið. Tomás
Holes skoraði á 68. mínútu og Patrik
Schick bætti við marki á 80. mínútu.
_ Ivan Perisic, einn lykilmanna
króatíska landsliðsins í knattspyrnu,
hefur greinst með kórónuveiruna.
Perisic hefur verið settur í 10 daga
einangrun og því er óvíst með frek-
ari þátttöku hans á EM.
Króatía á leik gegn Spáni í 16-liða
úrslitum EM í dag. Nái liðið að kom-
ast í 8-liða úrslitin færi sá leikur
fram næstkomandi föstudag. Því
þyrfti Króatía að komast alla leið í
undanúrslit eigi Perisic að eiga
möguleika á að spila meira á mótinu.
kris@mbl.is
Evrópumeistararnir úr leik
- De Bruyne varð
fyrir meiðslum
AFP
Tilfinningar Leikmenn Belgíu fagna sigrinum, en Cristiano Ronaldo grettir sig af skiljanlegum ástæðum.
Spænski framherjinn Álvaro Mon-
tejo kvaddi Þór frá Akureyri með
glæsibrag er hann skoraði þrennu í
3:0-sigri liðsins á Fjölni í Graf-
arvoginum í 1. deild karla í knatt-
spyrnu, Lengjudeildinni, á laugar-
dag. Montejo er á leiðinni til
heimalandsins þar sem hann mun
spila með Union Adarve á næstu
leiktíð og var því ljóst að í dag yrði
hans síðasti leikur með Þór í bili.
Þór er með 10 stig og er í sjöunda
sæti deildarinnar en staða Framara
er vænleg á toppi deildarinnar.
Fram er með 24 stig eftir að hafa
unnið fyrstu átta leikina, en í gær
náði Fram í þrjú stig út á Seltjarn-
arnes. Fram vann Gróttu 1:0 með
marki Arons Þórðar Albertssonar.
Hið öfluga lið ÍBV er til alls lík-
legt í toppbaráttunni eftir að hafa
unnið fimm af síðustu sex leikjum
sínum. ÍBV vann Vestra 3:0 fyrir
vestan en þar skoraði Spánverjinn
José Sito tvívegis. Guðjón Pétur
Lýðsson skoraði einnig fyrir Eyja-
menn í leiknum, sem eru með 16
stig eins og Grindavík í 2. og 3. sæti.
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Á Seltjarnarnesi Fram náði í enn einn sigurinn á Seltjarnarnesi.
Kvaddi með stæl
Selfyssingurinn Ómar Ingi Magn-
ússon skoraði flest mörk í þýsku
Bundesligunni í handknattleik en
tímabilinu í efstu deild lauk í gær.
Er þetta annað árið í röð sem Ís-
lendingur verður markakóngur í
þýsku deildinn því Bjarki Már El-
ísson var markahæstur í fyrra.
Ómar er fjórði Íslendingurinn
sem verður markakóngur í Þýska-
landi. Sigurður Sveinsson varð
markakóngur með Lemgo, eins og
Bjarki, árið 1985 og Guðjón Valur
Sigurðsson varð markahæstur með
Gummersbach árið 2006.
Ómar skoraði 274 mörk fyrir
Magdeburg á tímabilinu en hann og
Bjarki mættust í lokaumferðinni og
báðir voru í miklum ham. Bjarki
skoraði 15 mörk og má velta því
fyrir sér hvort Íslendingur hafi náð
því fyrr í leik í efstu deild í Þýska-
landi. Bjarki skoraði samtals 254 og
varð þriðji markahæstur í deild-
inni. Lemgo sigraði 32:27 en Ómar
skoraði 12 mörk fyrir Magdeburg í
leiknum í gær.
Alexander Petersson var ansi ná-
lægt því að verða þýskur meistari
með Flensburg en hann gekk til liðs
við félagið í janúar. Kiel og Flens-
burg fengu flest stig í deildinni en
Kiel varð meistari með hagstæðari
markamun. Kiel gerði jafntefli
gegn Rhein Neckar Löwen á úti-
velli í lokaumferðinni og stigið
nægði því til sigurs.
Gummersbach, sem Guðjón Val-
ur Sigurðsson stýrir, hafnaði í
þriðja sæti í næstefstu deild og náði
því ekki að fara upp um deild, en
Hamburg og Lübbecke leika í efstu
deild á næsta tímabili. kris@mbl.is
Ómar fjórði íslenski
markakóngurinn
Morgunblaðið/Eggert
Markakóngur Ómar Ingi skoraði
12 mörk í lokaumferðinni.