Morgunblaðið - 28.06.2021, Side 32
Heimildarmyndin Á móti straumn-
um var frumsýnd í Bandaríkjunum
25. júní sl. en í henni segir af lífs-
hlaupi Veigu Grétarsdóttur, kyn-
leiðréttingu og ferðalagi hennar á
kajak í kringum Ísland. Myndin er
eftir Óskar Pál Sveinsson og er nú
sýnd í kvikmyndahúsum í New
York og Los Angeles. Framleiðandi
myndarinnar er Klikk Productions
ásamt Pétri Einarssyni og í gær var önnur heimildar-
mynd framleidd af fyrirtækinu, Rebel Hearts, frumsýnd
á sjónvarpsstöðinni Discovery+. Sú fjallar um baráttu
sem nunnur kaþólsku reglunnar Sisters of the Immacu-
late Heart í Los Angeles hófu gegn feðraveldi kaþólsku
kirkjunnar fyrir 50 árum. Í haust verður svo frumsýnd
stuttmynd sem fyrirtækið framleiddi, Footsteps On The
Wind, sem fjallar um flóttamenn og er sögð frá sjón-
arhóli barna á flótta. Klikk Productions var stofnað árið
2002 af Kristínu Ólafsdóttur, leikstjóra og framleið-
anda, og hefur það að markmiði að framleiða myndir
tengdar mannúðarmálum.
Á móti straumnum í Bandaríkjunum
MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 179. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Valur hefur fimm stiga forskot á Breiðablik eftir leiki
gærdagsins í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu. Ís-
landsmeistarar Vals náðu ekki að landa sigri gegn Fylki
á Hlíðarenda þrátt fyrir að hafa verið 1:0 yfir þegar
skammt var til leiksloka.
Á ýmsu gekk á lokakafla leikjanna þriggja sem fram
fóru í gær en Breiðablik skoraði til að mynda tvívegis á
lokamínútunum gegn nágrönnum sínum í HK. Breiða-
blik og Víkingur eiga leik og leiki til góða á Val og topp-
baráttan gæti því átt eftir að harðna. »26
Á ýmsu gekk á lokamínútunum í
knattspyrnuleikjum gærdagsins
ÍÞRÓTTIR MENNING
ÞINN
STUÐNINGUR
ER OKKAR
ENDURHÆFING
Ljósavinir hafa snert líf mitt án þess að vita það.
Komdu í hópinn!
ljosid.is
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Félagarnir Hjörleifur Valsson fiðlu-
leikari og Jónas Þórir, orgel- og
píanóleikari, hafa unnið mikið saman
í gegnum árin og halda tvenna tón-
leika fyrir norðan á jafnmörgum
dögum í vikulok. „Við ætlum að leika
okkur saman eins og við gerðum í
fyrrasumar,“ segir Jónas Þórir og
vísar til tónleikaferðar þeirra um
landið í fyrra, þar sem þeir spiluðu,
sögðu sögur í bland og spjölluðu við
áheyrendur.
Leiðir tónlistarmannanna lágu
fyrst saman fyrir um aldarfjórðungi
og síðan hafa þeir lært inn á hvor
annan jafnt og þétt. Þeir hafa komið
fram saman í ýmsum verkefnum
eins og við kirkjulegar athafnir, í
veislum af ýmsum toga og á tón-
leikum. „Við þekkjumst orðið afar
vel síðan Hjörleifur gekk mér í föð-
urstað um miðjan tíunda áratuginn,“
segir Jónas Þórir. „Við pabbi, Jónas
Þórir Dagbjartsson, spiluðum fyrir
þann tíma lengi saman og þegar
hann hætti rúmlega áttræður hljóp
Hjörleifur í skarðið,“ útskýrir hann.
Hoknir af reynslu
Vinirnir leika mjög fjölbreytta
tónlist, allt frá Bach til Bítlanna, og
draga upp úr gullkistunni það sem
best á við hverju sinni á yfirreiðinni
um landið. „Við leikum okkur með
klassíkina, spinnum heilmikið, út-
setjum og búum til okkar eigin tón-
list,“ segir Hjörleifur. Austurevr-
ópsk tónlist á sérstaklega upp á
pallborðið hjá honum og hann hefur
haldið sambandi við kennara sinn í
Prag og spilar þar reglulega. „Við
verðum með mjög ólíka stíla og
stefnur, tónlist sem við höfum þróað
í gegnum árin, okkar tónmál.“
Fyrri tónleikarnir verða í Ak-
ureyrarkirkju á föstudagskvöld og
hefjast klukkan 20. Seinni tónleik-
arnir verða í Þorgeirskirkju á Ljósa-
vatni og byrja klukkan 14. Síðan
stendur til að fara vestur á firði, um
Suðurland og víðar en hvar og hve-
nær er ekki frágengið. Þó er ljóst að
þeir verða í Skálholtskirkju klukkan
20 föstudagskvöldið 16. júlí í
tengslum við Skálholtshátíð og þeir
ljúka yfirreiðinni í Hallgrímskirkju
síðsumars. „Við verðum með bland-
að prógramm og tökum mið af hverj-
um stað,“ áréttar Jónas Þórir. Hann
er kantor í Bústaðakirkju, byrjaði að
spila á fiðlu en lauk síðan námi í org-
el- og píanóleik á Íslandi áður en
hann fór í framhaldsnám í Noregi.
Hjörleifur kennir fiðluleik og hef-
ur verið sjálfstætt starfandi hljóð-
færaleikari í Noregi síðan 2010.
Hann er frá Húsavík, ólst líka upp á
Ísafirði, þar sem hann féll fyrir tón-
listinni, lærði síðan í tónlistarháskól-
anum í Noregi og tók meistaranámið
í Prag og Þýskalandi. „Það er alltaf
gaman og hressandi að koma heim
og spila,“ segir hann.
Fyrirbyggjandi aðgerðir vegna
kórónuveirufaraldursins seinkuðu
samæfingum, en Hjörleifur þurfti að
vera í sóttkví í fimm daga eftir kom-
una til landsins 17. júní. Þeir hafa
samt náð að stilla vel saman streng-
ina, eru spenntir fyrir verkefninu og
segja að ánægjulegt verði að rifja
upp liðna tíð í tónum og tali. „Við
höfum upplifað margt og mikið og
skemmtilegt verður að tengjast
áhorfendum með sögum og spili,“
segir Hjörleifur.
Vinir rifja upp liðna
tíð í tónum og tali
- Hjörleifur Valsson og Jónas Þórir með tónleika fyrir norðan
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Líf og fjör Hjörleifur Valsson og Jónas Þórir í góðri sveiflu.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Í Hallgrímskirkju Hjörleifur Valsson og Jónas Þórir á æfingu.