Morgunblaðið - 05.06.2021, Page 7

Morgunblaðið - 05.06.2021, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 7 BYGG býður þér til starfa Verkstjóri Óskað er eftir vönum og ábyrgum verkstjóra með byggingarstjóraréttindi. Framtíðarstarf. Upplýsingar veitir Gunnar S: 693-7310 – gunnar@bygg.is Uppsláttarsmiðir Óskað er eftir vönum uppsláttarsmiðum í uppmælingu, næg verkefni framundan. Upplýsingar veitir Gunnar S: 693-7310 – gunnar@bygg.is www.bygg.is BYGG byggir á 37 ára reynslu á íslenskum byggingamarkaði. Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. (BYGG) hefur á undanförnum árum byggt yfir 3.000 glæsilegar íbúðir á almennum markaði. Fyrirtækið hefur einnig byggt íbúðir fyrir Félag eldri borgara og húsnæðisnefndir í Reykjavík og Kópavogi. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 160 manns og er meðalstarfsaldur hár. Öll verkefni fyrirtækisins eru á höfuðborgarsvæðinu. Hjá fyrirtækinu er öflugt starfsmannafélag. Traust atvinna í boði. Yfirlæknir Sjúkratryggingar Íslands óska eftir að ráða yfirlækni í 100% starf á Réttindasviði stofnunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi stjórnunarstarf. Helstu verkefni og ábyrgð • Stjórnun læknadeildar SÍ • Læknisfræðileg ráðgjöf vegna verkefna Sjúkra- trygginga Íslands s.s. vegna mats á gæðum þjónustu, forgangsröðun og fleira • Ráðgjöf varðandi gagnreynda læknisfræði • Samskipti við lækna og sjúkrahús, innanlands og utan, vegna læknismeðferðar erlendis • Aðkoma að ákvörðunum varðandi sjúklingatryggingu og slysatryggingar (bótaskylda og mat á miska) Hæfniskröfur • Sérfræðiviðurkenning í læknisfræði • Starfsreynsla sem sérfræðingur æskileg • Þekking og reynsla á sviði gagnreyndrar læknisfræði æskileg (s.s. gerð klínískra leiðbeininga) • Reynsla af matsstörfum æskileg • Nákvæmni í starfi, vönduð og skipuleg vinnubrögð • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi og hæfni til að starfa sjálfstætt sem og í hópi • Jákvætt viðmót og samskiptahæfileikar Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um störfin á heimasíðu Sjúkratrygginga: www.sjukra.is/starf. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Bæði karlar og konur eru hvött til þess að sækja um starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.sjukra.is Umsóknarfrestur er til og með 10.06.2021 Nánari upplýsingar veitir María Heimisdóttir, maria.heimisdottir@sjukra.is, sími 515 0000. GENERAL SERVICES CLERK Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu General Services Clerk lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2021. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins: https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/ Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic Recruitment Application (ERA) The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for the position of General Services Clerk.The closing date for this postion is June 20, 2021. Application instructions and further information can be found on the Embassy’s home page:https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/ Applications must be submitted through Electronic Recruitment Application (ERA) Laugargerðisskóli á Snæfellsnesi auglýsir eftir starfsfólki Við leitum eftir umsækjendum í eftirfarandi stöður fyrir skólaárið 2021-2022. • Íþróttakennara í 30% stöðu • Almenna kennslu 70% • Umsjónarkennara yngsta stigi 100% • Stuðningsfulltrúum • Skólaliða • Matráð Laugargerðisskóli er sveitaskóli með 10 nemendur í 1.-10. bekk. Lögð er áhersla á fjölbreytta, skapandi og sveigjan- lega kennsluhætti og einstaklingsmiðað nám. Umsóknarfrestur er til 20. júní 2021. Nánari upplýsingar veitir Sigurður, skólastjóri í síma: 897 3605 eða tölvupóst siggi@laugargerdisskoli.is. Við leiðum fólk saman hagvangur.is Vantar þig fagmann? FINNA.is Aðstoðarmaður tannlæknis Tannlæknastofa í Reykjavík óskar eftir aðstoðarmanni eða tanntækni í 95-100% starf. Kostur er að viðkomandi hafi lokið tanntæknanámi, en starfsreynsla þar sem reynir á þjónustulund, frumkvæði, mannleg samskipti og vönduð vinnubrögð eru mikils metin. Æskilegt er að geta hafið störf eftir miðjan ágúst en annars eftir nánara samkomulagi. Þau sem hafa áhuga á þessu starfi eru vinsamlegast beðin um að senda upplýsingar um sig og meðmæli á netfangið flottartennur@gmail.com fyrir 18. júní nk. Fullum trúnaði er heitið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.