Morgunblaðið - 12.06.2021, Blaðsíða 14
G
unnar Malmquist Þórisson betur
þekktur sem Vikingblendz á samfélags-
miðlum er menntaður sveinn og meist-
ari í hársnyrtiiðn. Hann hefur alltaf
haft áhuga á herratískunni þegar
kemur að hári.
„Ég byrjaði að klippa af alvöru fyrir þremur
árum sirka og hef ekki snúið til baka síðan. Ég
hef nýlega lokið við meistaranám í hársnyrti-
iðn og er að klippa á Blondie hársnyrtistofu.
Þessa dagana er ég mikið að halda námskeið
og fara á milli hársnyrtistofa og kenna það sem
ég er að gera með herra hár. Stefnan í framtíð-
inni er að opna sjálfur rakarastofur og rakara-
skóla þar sem einstaklingar geta menntað sig í
herraklippingum og öllu því sem snýr að herrum. Í
dag er aðeins til iðngrein sem snýr að bæði herra- og
dömutísku en markmiðið mitt er að breyta því og gefa
einstaklingum þann möguleika að fá að velja hvað hann vill
læra. Rakarasamfélagið á Íslandi er að stækka með hverju
ári með ungum og efnilegum einstaklingum sem vilja
leggja áherslu á að klippa herra hár. Ég tel að við þurfum
að svara þessari auknu eftirspurn með því að búa til starfs-
leyfi fyrir þessa einstaklinga og gefa þeim tækifæri að læra
og mennta sig í öllu því sem snýr að herrahári.“
Herrar vilja vera með „fade“
Hvað getur þú sagt mér um nýjustu tískuna í herraklipp-
ingu?
„Það hefur sjaldan verið jafn augljóst og núna hvað er í
tísku í herraklippingum. Herrar í dag vilja flestir fara í ein-
hvers konar fade, það eru til margs konar útfærslur af herra
fade-i, skin fade, taper fade, burst fade. Það varð sprenging
fyrir einu til tveimur árum síðan þegar þessi herratíska festi
rætur sínar hér á landi og flestir sem mættu í klippingu vildu fá
fade. Ég sé alls ekki fram á að þessi herra tíska sé að fara yfir-
gefa okkur eitthvað á næstunni heldur býst ég við að hún þróist
og verði varanleg.“
Hvað ættu allir karlar að fá sér í hárið núna?
„Herrar eru ekki eins einfaldir í dag og þeir voru í gamla daga
þegar það var bara eitt gel sem hentaði öllum. Í dag þarf herrann
að hugsa um sitt hár og velja réttu vöruna sem hentar honum.
Ég mæli með öllum herravörunum frá Label m. Ég elska hvað
línan þeirra býður upp á marga möguleika fyrir herrann og er ég
viss um að hann geti fundið sér eitthvað sem hentar honum og
hans hártýpu. Einnig verð ég að benda á mótunarvörurnar frá
Fax. Fax er nýtt íslenskt hárvörumerki sem er að gera spenn-
andi hluti. Þeir bjóða upp á mótunarvörur fyrir herra og vilja
þeir einblína á að búa til gel sem hentar íslenskum karl-
mönnum.“
Karlmenn hugsa of sjaldan um hárið
Hvað ættu karlar að hætta að gera tengt hárinu?
„Mér finnst enn þá allt of margir karlmenn hugsa of sjaldan
um hárið. Þar sem við búum á Íslandi upplifum við miklar hita-
breytingar þar sen hársvörðurinn á það til að þorna og mynda
flösu.
Allt of margir karlmenn hafa verið að glíma við þennan vanda
– eiga það til að kaupa ódýrasta sjampóbrúsann í búðinni án þess
að athuga hvaða efni eru í honum og með því getur vandinn
versnað. Lausnin við þessu vandamáli er að fræða okkar menn
um hvað er í boði, hvaða efni eru góð og hver eru ekki góð. Til að
mynda mæli ég með puryfing-sjampóinu frá Davines fyrir þá
sem þjást af þurri eða feitri flösu.“
Strákar skína af sjálfstrausti í dag
Hvað getur þú sagt mér um liti í hárið fyrir karla? „Strákar í
dag eru alls ekki hræddir við að lita á sér hárið. Það er ótrúlega
gaman að sjá hvað strákar í dag skína af sjálfstrausti og þora að
vera öðruvísi með því að lita hárið sitt alls konar litum. Vinsæl-
asti liturinn hjá strákum í dag er klárlega silfurhvítar strípur.“
Hvað getur þú sagt mér um „fade“-hárgreiðsluna?
„Hún er sú allra vinsælasta í dag og getur tekið á sig mismun-
andi mynd. Í grunninn er „fade“ að fara úr stuttu hári yfir í síð-
ara hár án þess að einhver lína myndist. „Fade“ klippt í hliðarnar
á herrum snýst um að ná að blanda öllum síddunum frá stuttu í
sítt án þess að mynda línu. Í dag er ég mikið að fara á milli hár-
snyrtistofa og kenna „fade“ og hvernig er hægt að ná sem flott-
ustu útkomunni með þeirri aðferð.“
Uppáhaldsfötin hjá Kölska
Hvað með skegg – er það inni líka?
„Fyrir nokkrum árum varð spenging í skeggtísku á Íslandi og
hafa íslenskir karlmenn ekki snúið til baka síðan. Skegg verður
alltaf í inn svo lengi sem konan á heimilinu samþykkir það að
karlinn fái að vera með smá skegg. Það sem við höfum samt tekið
eftir er að þessi löngu síðu skegg eru að minnka sérstaklega á
sumrin. Í staðinn vilja karlmenn vera með stutt skegg með
skarpar og flottar útlínur.“
Áttu þér uppáhaldsfatahönnuð?
„Ég á mér engan uppáhaldsfatahönnuð og tel ég mig ekki vera
neitt rosalegt „merkja-freak“ en uppáhaldsfötin mín sem ég
klæðist eru klárlega frá Kölska sem er íslensk klæðskeraþjón-
usta.“
Hvað með skartgripi – ertu með slíkt?
„Ég er yfirleitt með hálsmen og þegar ég nenni þá finnst mér
gaman að vera með hringa. Eini gallinn er að ég er með frekar
feita putta sem þýðir að ég þarf að eyða fimm til tíu mínútum að
taka þá af mér ef ég set þá upp.“
Bylting hjá ungum mönnum í dag
Notarðu góð efni í hárið? „Ég sjálfur er mjög einfaldur þegar
kemur að hárinu mín. Númer eitt, tvö og þrjú þá þarf ég að vera
með gott sjampó. Þegar kemur að mótunarvörum þá vil ég meina
að minna sé meira. Ég nota því Power to wax-efnið á hverjum
degi til að fá þurra og flotta áferð í hárið.“
Hvað viltu hvetja fleiri unga menn að gera?
„Ég vil hvetja fleiri stráka til að kynna sér hársnyrtiiðn. Það
hefur verið bylting síðastliðið ár hvað það eru margir ungir
strákar að fikta við að klippa hárið á vinum sínum sem sýnir að
það er svakalegur áhugi til staðar hjá ungum mönnum. Því vil ég
hvetja þá að taka næsta skref og skrá sig í nám.“
„Fade“ er
komið til
að vera
Gunnar Malmquist Þórsson er sérfræðingur í
fade-klippingu fyrir herra. Hann segir karlmenn
farna að átta sig á að þeir þurfi að nota vand-
aðar vörur í hárið og nú þori menn meira en áð-
ur þegar kemur að útlitinu.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Fade“ er notað til
að mynda línu á
milli hárs sem er í
mismunandi sídd.
Gunnar Malmquist starfar á
Hárgreiðslustofunni Blondie.
„Fade“ er vin-
sælt um þess-
ar mundir.
Hárvörur-
nar sem
Gunnar
Malm-
quist er
hrifnastur
af.
Fax hárvörurnar
eru gerðar fyrir
karlmenn á öll-
um aldri.
Gunnar Malmquist
er góður í að gera
„fade“ í hár karla.
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 2021