Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.06.2021, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.6. 2021
08.10 Regnbogasögur
08.13 Ég er fiskur
08.15 Ást er ást
08.17 Veira vertu blessuð
08.20 Risastóra næpan
08.23 Blíða og Blær
08.45 Monsurnar
08.55 Víkingurinn Viggó
09.05 Adda klóka
09.30 It’s Pony
09.50 Mia og ég
10.15 Mörgæsirnar frá Mada-
gaskar
10.35 Lukku Láki
11.00 Ævintýri Tinna
11.25 Angry Birds Stella
11.30 Top 20 Funniest
12.10 Nágrannar
14.05 Impractical Jokers
14.25 Flipping Exes
15.10 First Dates
16.00 Börn þjóða
16.25 Stofuhiti
17.00 60 Minutes
17.45 Víglínan
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.40 Sportpakkinn
18.50 Ísland í dag
19.05 GYM
19.30 Race Across the World
20.35 Mr. Mayor
21.00 Keeping Faith
21.55 Brave New World
22.45 The Bold Type
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 . 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Á frívaktinni – Upptaka
á leikriti Leikfélagi
Suðárkróks
22.00 Landsbyggðir – Vilhelm
EA 11
22.30 Eitt og annað – Af sjón-
um 2
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Blönduð dagskrá
21.00 Blönduð dagskrá
22.30 Gegnumbrot
20.00 Höldum áfram
20.30 Mannamál (e)
21.00 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
Endurt. allan sólarhr.
11.15 The Block
12.20 Bachelor in Paradise
15.45 For the People
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves Ray-
mond
17.35 Ný sýn
18.05 Með Loga
19.05 The Block
20.10 Gudjohnsen
20.50 This Is Us
21.40 Black Monday
22.15 Gangs of London
23.15 Penny Dreadful: City of
Angels
00.15 Love Island
06.55 Morgunbæn og orð
dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Hringsól.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Svona er þetta.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Dóm-
kirkjunni.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Íslands hrafnistumenn.
15.00 Lestin.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu: Sigrún
spilar Beethoven.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Fólkið í garðinum.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Tímar í vindi.
20.35 Gestaboð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Refurinn Pablo
07.21 Hið mikla Bé
07.43 Poppý kisukló
07.54 Kúlugúbbarnir
08.17 Klingjur
08.28 Kátur
08.30 Hvolpasveitin
08.53 Hrúturinn Hreinn
09.00 Úmísúmí
09.23 Robbi og Skrímsli
09.45 Eldhugar – Margaret
Hamilton – ógnvekj-
andi leikkona
09.49 Sjóræningjarnir í næsta
húsi
10.00 Skólahreysti
11.00 Unga Ísland
11.30 Í kjölfar feðranna
12.20 Saga af sjónum
13.00 Popp- og rokksaga
Íslands
13.55 Í sambýli við
nátturuöflin
14.10 Mömmusoð
14.25 Af fingrum fram
15.15 Hljómskálinn
15.45 Landakort
15.55 Ísland: bíóland
17.00 Björgunarafrekið við
Látrabjarg
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Menningin – samantekt
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Vigdís Finnbogadóttir
20.10 Við
21.10 Hafið
22.55 Björgunarafrekið við
Látrabjarg
23.45 Dagskrárlok
9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán
spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og
síðdegisþáttum K100.
13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring
og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa
uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt-
unar á sunnudögum.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40
vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista
Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljóm-
plötuframleiðenda.
„Ég er einn af
þeim sem tóku
þátt í að stofna
Ferðafélag Borg-
arfjarðarhéraðs
sem var stofnað
núna 1. mars,“
segir Gísli Ein-
arsson fjölmiðla-
maður í viðtali
við morgunþáttinn
Ísland vaknar. Sökum heimsfaraldursins hóf ferða-
félagið ekki starfsemi fyrr en síðustu helgi og segir
Gísli það nú komið á fulla ferð. Hann segir gráupplagt
fyrir sumarbústaðaeigendur á svæðinu að skrá sig í fé-
lagið og fylgjast með þeim göngum sem fram undan
eru en þær verði að meðaltali annan hvern laugardag í
sumar ásamt tilfallandi ferðum inn á milli. Viðtalið við
Gísla má nálgast í heild sinni á K100.is.
Ljósmynd/Jón Heiðarsson
Ganga annan hvern laugardag
Gísli Einarsson og Guðni Th.
Jóhannesson í Jafnaskarðsskógi.
J
ude er magnaður. Að hafa sautján
ára gamlan leikmann á æfingum
sem er hvergi banginn við að
reyna sig við eldri leikmennina og
hefur ekki aðeins tæknina til þess,
heldur ekki síður keppnishörkuna og
þroskann. Hann er gríðarlega
spennandi leikmaður og á eftir að
verða mikilvægur fyrir England. Við
höfum hann ekki bara með til þess að
hann geti lagt inn í reynslubank-
ann.“
Þau voru stór, orðin sem Gareth
Southgate, landsliðseinvaldur Eng-
lands, lét falla um Jude Bellingham,
eftir að hann valdi lokahóp sinn fyrir
Evrópumeistaramótið í knattspyrnu
2020, sem heimsfaraldurinn hefur
seinkað um heilt ár, eins og allir vita.
Hann hefur augljóslega tröllatrú á
ungstirninu, sem fagna mun átján
ára afmæli sínu í miðju móti, 29. júní,
og var tekinn fram fyrir margreynda
kappa á borð við Jesse Lingard og
James Ward-Prowse.
Góðar líkur á leiktíma
Og Southgate er ekki bara að slá pilti
gullhamra; líkurnar á því að hann
eigi eftir að koma við sögu á EM eru
þrælgóðar. Ég meina, það eru hér
um bil jafnmargir hægri-bakverðir í
hópnum (fjórir) og miðvellingar
(fimm). Þess utan kemur einn þeirra
lemstraður inn í mótið, Jordan
Henderson, og hinir þrír búa ekki að
mikið meiri landsliðsreynslu en Bell-
ingam en þeir eru Kalvin Phillips,
Mason Mount og Declan Rice.
Fáir hafa ferðast á meiri hraða
gegnum heimsfaraldurinn en Jude
Bellingham. Eftir að hafa slegið
rækilega í gegn með Birmingham
City í B-deildinni heima á Englandi
veturinn 2019-20 stóðu bunurnar út í
allar áttir af hálfu stórliða álfunnar.
Borussia Dortmund hreppti hnossið
að lokum enda þýska félagið frægt
fyrir að nostra við og hafa trú á ung-
mennum sínum; nægir þar að nefna
Jadon Sancho, félaga Bellinghams í
enska landsliðinu, og norska undrið
Erling Braut Haaland. Hermt er að
Dortmund hafi greitt 25 milljónir
sterlingspunda fyrir þjónustuna sem
gerir Bellingham að dýrasta sautján
ára leikmanni sparksögunnar. 46
leiki lék pilturinn í öllum keppnum á
þessum fyrsta vetri í Þýskalandi og
skoraði í þeim fjögur mörk, eitt í
Búndeslígunni, annað í Meistara-
deild Evrópu og tvö í þýska bik-
arnum sem Dortmund gerði sér lítið
fyrir og vann. Hann er yngsti marka-
skorarinn í 112 ára sögu félagsins,
sautján ára og 77 daga.
Southgate lét þess getið að það
væri ekki síst framganga Bell-
inghams í Meistaradeildinni sem
hefði sannfært sig um að ungi mað-
urinn ætti erindi á EM. Hann steig
til að mynda dans á jafningjagrunni
við Kevin De Bruyne í leik Dort-
mund og Manchester City, en hann
er af mörgum talinn besti miðvell-
ingur heims í dag.
Enginn á þessu getustigi
„Þetta er ótrúlegt. Það er enginn
annar enskur miðvellingur á þessu
getustigi,“ sagði landsliðsmaðurinn
fyrrverandi, Joleon Lescott, við BT
Sport eftir þá snerru.
„Ég held að Bellingham muni
byrja leikina fyrir Gareth á EM. Al-
hliða leikur hans er það góður; hann
er eins og fullorðinn maður á velli,“
sagði annar gamall landsliðsmaður,
Owen Hargreaves, við sama miðil.
Bellingham lék fyrsta landsleik
sinn gegn Írum í nóvember í fyrra,
sautján ára og 136 daga gamall. Að-
eins Theo Walcott og Wayne Rooney
hafa verið yngri. Þvílíkur ferill sem
gæti verið framundan, þvílíkur ferill!
orri@mbl.is
Jude Bellingham
í fyrsta landsleik
sínum, gegn Ír-
um á Wembley
í nóvember.
AFP
UNGSTIRNI VALIÐ Í ENSKA LANDSLIÐSHÓPINN Á EM
Sá er aldeilis í
ham, Bellingham!
Bellingham og Erling Braut Haaland fagna marki fyrir Borussia Dortmund.
AFP
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Glærir ruslapokar
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
695
1.995
Strákústar
á tannbursta verði
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Laufhrífur
frá999
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
frá 995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Garðslöngur
í miklu úrvali
Hrífur
Greinaklippur
frá 595
Burstar framan
á borvél 3 stk.
Mikið úrval af
garðstömpum