Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 14.02.1976, Qupperneq 20

Skólablaðið - 14.02.1976, Qupperneq 20
Stúdentahreyfingin 1968 og áhrif hennar á Skólablaðið 1969-70. Skóla blaðið fyrir 1969-70. riÞví er þetta blað til orðið, að þörf hefur þótt á að til væri eitthvert það band, er tengt gæti þá saman, sem eru innan skólans. Hefur nú um hríð ekki verið neinn sá félagsskapur, er þetta markmið hefði, en margir hins vegar saknað þess samhugar og þeirrar viðkynningar, er með skóia systkinum á að ríkja. Blaðstofnun álítum vér heppilega til þess að vinna að markmiði þessu, og þó eigi að þurfa að draga krafta frá félögum þeim, sem fyrir eru. En auk þess settl blaðið að gefa nokkra mynd af skólalífinu og hugsjónum þeim, sem í skóla bærast, og það vildum vér einnig láta sjást, að þau merki, sem upp eru tekin, muni eigi skjótt niður felld." Útgefendurnir. Skólablaðið, l.tbl.l.árg. Með þessum einkunnarorðum hóf Skólablaðið göngu sina. Það voru miklar hugsjónir, sem teerðust í brjósti þeirra einstaklinga, sem hófu útgáfu blaðsins. Á vissan hátt má segja að Skólablaðið hafi jafnan verið móttækilegt og opið fyrir nýjum straumum og sveiflum og því löngum endurspeglað þær umræður og viðhorf, sem voru efst á baugi innan skólans og reyndar þjóð- félagsins í heild. En meginefni blaðsins var þó yflrleitt af léttara tagi, hnyttnir brandarar um tilsvör kennara og nemenda eto. Greinilegt er að þá, sem nú hefur stærsti hluti nemenda kosið léttmeti, sem aðalefni blaðsins. Inn á milli voru þó greinar um skólamál eða pólitísk deilu- efni. En með timanum urðu greinar um menningar- leg efni og skáldskapur allsráðandi. Um 10 ára skeið (e.a. '60-'70) var þessi menningardýrkun ríkjandi. En þegar hé,r var komið sögu hafði bókmenntadýrkunin runnið sitt skeið, enda var skólinn sjálfur að breytast, auk þess var farið Á sjötta áratugnum höfðu stúdentar verið að vakna til lífsins, og farið að hugleiða stöðu sína, skólakerfið og styrjaldarekstur. Þessarrar hreyfingar varð fyrst vart i Bandaríkjunum og Bretlandi, en síðar í Frakklandi, Þýzkalandi, Spáni og víðar. í Bandaríkjunum markaðist þessi hreyfing af andstöðu gegn Víetnamstyrjöldinni, samfara kröfum um aukin áhrif nemenda á stjórn skóla og óskum um breytingar á kennsluháttum. Þetta varð til þess að stofnuð voru samtökin nStudents for a Demo- cratio Society" (S.D.S.). Þau gengust fyrir ráð- stefnu í Port Huron þar sem gerð var merk sam- þykkt, sem oft verður vitnað til. nSagt hefur verið að hinir frjálslyndu og sósí- alískustu forverar okkar hafi verið plagaðir af hugsjón án áætlunar en okkar eigin kynslóð sé plöguð af áætlun án hugsjónar." Brot úrthe Port Huron Statement, júní 1962. sjá viðtal við Tom Hayden Rolling Stone 26.8.1972. Þetta brot er dæmigert fyrir þær hreyfingar, sem komu fram meðal unglinga víða um heim. Þeir voru sér ekki fullkomlega meðvitaðir um óskir sínar. I Bretlandi, sem annars staðar, setti friðar- stefna sinn svip á þær hreyfingar, sem komu fram eins og samtökin, sem störfuðu undir kjörorðunum t.Ban the Bomb." Þau voru eins og nafnið bendir til stofnuð til höfuðs atómssprengjunni. Bresk skólayfirvöld gripu til þess ráðs að stofna lista skóla, til að taka við auknum fjölda ungmenna. Að sjálfsögðu var vinnumarkaðurinn ekki reiðubúinn að taka við öllum þessum fjölda, listmenntaðra manna og því ganga stórir hópar þeirra atvinnu- lausir. Fyrstu spor íslenzkrar námsmannahreyfingar. '68 var ekki kominn grundvöllur fyrir slikar hræringar á Islandi. Um '70 var komin upp sama sfcaða hér og ytra '68. Skólar voru að yfir- fyllast, árgangarnir voru fjölmennari og engar ráðstafanir^höfðu verið gerðar til að skólakerfií gæti^tekið á móti auknum fjölda nemenda. Nú voru að skapast aðstæður, sem gætu leitt af sér hreyfingar likar þeim, sem fram höfðu komið meðal stúdenta erlendis '68. Biðin varð ekki löng. Hagsmunasamtök skólafólks voru stofnuð 1969. Fyrstu öldurnar höfðu borizt til Islanás. Að miklu leyti með skiptinemum, sem höfðu kynnzt stúdentahreyfingunni í Ameriku. Samtökin gáfu út blað í nóvember 1969, Eirð. Þar segir um tilgang samtakanna: nSíðustu misseri hafa þær raddir orðið æ háværari meðal skólafólks er krefjast breyt- inga á skólunum og kerfinu í heild. Loks var svo komið að nauðsyn þótti að mynda samtök er næðu sem víðast til íslenzkrar æsku. I vor er leið voru válegar blikur á lofti; atvinnuleysi blasti við stórum hluta skóla- æskunnar og auk þess var ráðgert að takmarka enn námsleiðir, það var því brýnt hgsmunamál æskunnar i landinu að eignast baráttutæki er berðist fyrir meginþorra hennar." Sigurður Tómasson, Eirð, nóvember 1969. En samtökin lognuðust útaf stuttu eftir út- komu blaðsins, alla vega heyrðist ekki meira frá þeim. Helztu forkólfar samtakanna voru mennta- skólanemar, sem tóku nú til starfa innan skól- anna. Innan M.R. varð fyrst vart einhverra hræringa í Skólablaðinu. Strax i upphafi skólaársins '69-'70 voru gerðar róttækar breytingar á rekstri blaðsins. STÚDENTAR EIGA BARA AD VERA STÚDENTAR að gæta nokkurrar hnignunar, sem kom fram í nihilisma. itÞað þarf mjög þroskaða félagsvitund til þess að greina hvað eru dauðateygjur gamla heimsins og hvað eru fæðingahríðir hins nýja, greina á milli rústar og ófullgerðrar byggingar- og að sjá svo þennan verðandi heim í samhengi án þess að láta sér sjást yfir skuggahliðarnar hvað þá að fegra þær fyrir sér. Það er óliktauðveldara að einblina á hryllinginn, mannúðarleysið, eyðilegan og bramlaðan forgrunn samtímans og fordæma það allt, heldur en að kryfja eðli hins nýja, sem vex og verður. Og það því fremur sem hrörnunin er litauðugri, meira uppáfallandi og fjölbreytilegri en stritsöm uppbygging nýrrar veraldar. Og loks: nihilisma fylgja engar skyldur." Ernst Fisoher, Um listþörfina, Mál og menning 1973. Nú var ekki lengur aðeins fámennt úrval ungmenna, sem hafði aðstöðu til að setjast í skóla heldur komu fjölmennir árgangar eftirstríðsáranna og gerðu kröfur til jafnrar námsaðstöðu. Um sama leyti voru síðustu eiginlegu skólaskáldin að hverfa úr skólanum, en þau höfðu verið ötulust í að viðhalda þessum bókmenntaanda. Það voru m.a. Hrafn Gunnlaugsson, Þórarinn Eldjárn, Sigurður Pálsson, Steinunn Sigurðardóttir og Pétur Gunnars son eða bróðurparturinn af þvi liði, sem hefur komið fram víða um land undir nafninu nLista- skáldin vondu." ttt frá þessu er ljóst að Skólablaðið í þúver- andi mynd - þ.e. bókmenntarit þar sem þjóðfélags- mál bar sjaldan á góma og engin afstaða var tek- in til þeirra - var að ganga sér til húðar. Vakning stúdenta 1968. Skólar og nemendur þeirra eru þess ekkl umkomn- ir einir og sér að koma af stað hreyfingu enda að- eins brot af þjóðfélaginu því hljóta frekar stærri hreyfingar að endurspeglast meðal nemenda, en að þeir sjálfir komi einhverri af stað. nSkólablaðið er ekkert í sjálfu sér. Það verður tæpast gott nema að það sé hluti af einhverri hreyfingu. Þá kemur upp þetta vandamál að hreyf- ingin getur ekki orðið í menntaskólunum einum, vegna þess að fólk þar er anzi langt frá at- vinnulífinu og þvi sem er að gerast í þjóðlifinu Það er líka tiltölulega nýbyrjað að hugsa sjálf- stætt. Þess vegna þarf öll hreyfing í mennta- skólunum að styðjast við aðrar skyldar hreyfing- ar." Gestur Guðmundsson, Symposium Skól^blaðið, 3.tbl.50.árg. I Frakklandi voru skólar þegar yfirfullir og þegar árgangarnir urðu æ fjölmennari, kom i ljós að ekkert hafði verið gert, til að skólakerfið gæti tekið við þeim Árgöngunum var beint inn í þegar yfirfulla skóla og það var sem fólk vaknaði upp við vondan draum. Á sama tíma var veitt meira fé til kjarnorkurannsókna, en til allra mennta- mála landsins. . »De Gaulle tók líka stoltur undir með tekno- kratanum, sem upplýsti að fjárhagsáætlun 1968 feldi í sér miklu hærri útgjöld til kjarnorku- rannsóknar til öflunar vopna heldur en heildar- útgjöld til menntamála. Sá, sem skilur hugmynda- heim og ofurvald kaþólsku miðaldakirkjunnar, skilur einnig vald gamla hershöfðingjans með nefið. Hann skilur að honum var vandalaust að troða 40 manns í meðalbekk í menntaskóla og bæta 30.000 stúdentum í þegar fullhlaðna há- skóla Parísar." Árni Sigurjónsson, Frakkland: Maíbyltingin 1968. Skólablaðið, 5.tbl.48.árg. Svipaðar orskir voru fyrir mótmælunum í Þýzka- landi. En á Spáni beindist andstaðan að sjálf- sögðu gegn stjórnvöldunum. Þetta voru helztu ástæður fyrir því, að uppúr sauð, samfara almennri óánægju og vonleysi kyn- slóðar eftirstríðsáranna með heiminn, sem hún átti að erfa. Heim sífelldra styrjalda, atóm- sprengju og mengunar. Ástandið var ekki neitt glæsilegt, það var ekki nema eðlilegt að þeim syrti fyrir augum. I sjálfu sér var þetta ékki það, sem hafði úrslitaþýðingu á að mótmælin sköpuðu af sér hreyfingu, heldur viðbrögð yfirvalda og frétta- flutningur fjölmiðla af friðsamlegum mótmælum. Friðsamlegum mótmælum var svarað með miklu offorsi, lögreglumönnum vopnuðum táragasi og kylfum sigað á vamarlaus ungmennin. Frásagnir af þessum mótmælum voru falsaðar og sannleikanum hliðrað til. Talað var um öfga- fulla uppreisnarseggi eto. Líklega hefði ekki verið hægt að bregðast öllu heimskulegar við meinlausum kröfum um aukin áhrif á stjórn skóla og endurbætur á skólakerfinu. En yfirvöld vissu upp á sig skömmina, þvi sveið þeim þetta sárt. En hafi vopnað lögreglulið átt að lægja öldurnar mistókst það gersamlega. Augu æskunnar opnuðust til fulls og hin fallega mynd, sem þeim hafði verið innrætt frá bernsku um margrómað lýðræði og skoðanafrelsi Vesturlanda, var afhjúpuð gersamlega. Ákveðið var að kasta hinu gamla ritnefndar- fyrirkomulagi fyrir borð og nefndin var opnuð öllum. Lagabreyting þar að lútandi var borin uppá skólafundi 24.okt '69. Hún var samþykkt með 14-7 atkvæðum gegn 7. Á forsíðu fyrsta blaðs vetrarins var auglýstur fyrsti opni fundurinn: nVið bjóðum til starfa alla áhugamenn um skólablaðsútgáfu, áhugamenn um skáldskap, listir og menningarmál, um skólamál, almenn félagsmál og þjóðfélagsmál, áhugamenn um að blaðið verði skemmtilegt, kryddað kimni og höfði til hins almenna nemanda. Áhugamenn um útlit og alla þá sem yfirleitt hafa áhuga á einhverju og vilja vinna að sínum áhugamálum í félagi við aðra og koma þeim á framfæri. Komið til starfa með opinni ritnefnd." Ritnefnd, Skólablaðið, l.tbl.45.árg. Þetta fyrsta blað vakti athygli. Andlits- teikning af Matthiasi Johannessen, skáldi og ritstjóra, var aðalskreyting. Alls 11 heil og 2 hálf andlit. Þetta átti að vera eins lags „striðsyfirlýsing" gegn því menningarsnobbi,_sem svo mjög hafði sett svip sinn á skólann og félags lífið. öllum föstum þáttum var ýtt til hliðar um stund. Blaðið átti ekki að lifa á tradition heldur vera ferskt og nýtt. Það var haldið á brattann með merkar hugsjónir, að gera Skóla- blaðið að virku blaði, sem gæfi öllum nemendum kost á þátttöku. En áhugi nemenda var af skornum skammti og takmarkaðist þegar við fámennan hóp. Um 30 manns mættu á fyrsta opna fundinn., Sá hópur vann að næstu 2 tölublöðum. Nú er það ekki lengur listin sem heltekur huga nemenda heldur þjóðfélagsmál, skólamál og félagslífið. Um hið siðast talda hafði svo sem verið ritað áður, en nú er ritað um, það á annan hátt. Reynt er að kryfja félagslífið til mergjar. Greinar um Víetnamstríðið, skóla- kerfið, andstöðu gegn Davíð Oddssyni inspeotor og Einari Magnússyni rektor (fyrir brottrekstur þeirra nema, sem kusu heldur að fara á þing- pallana til að fylgjast með umræðum um Kvenna- skólafrumvarpið, en sitja í skólanum). Svona efni átti ekki frekar þá en nú upp á pallborðið hjá sljóum og lítt hugsandi nemendum þessa skóla, Skólablaðið hafði svo sem ekki höfðað neitt meira til þeirra áður, en fyrirsagnirnar einar nægðu til að raska ró hins þögla meirihluta, sem vildi fá að lifa óáreittur í eigin fáfræði og afstöðu- leysi. 72

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.