Fiskifréttir


Fiskifréttir - 06.06.1986, Blaðsíða 7

Fiskifréttir - 06.06.1986, Blaðsíða 7
föstudagur 6. júní 7 meðal annars einhver mesti afla- maður við íslandsstrendur. Slík- um mönnum fyrirgefst hitt og annað þar sem ég þekki til. Blíðk- aðist karl þá eins og hann vildi segja: Ja, það er nú annar hand- leggur. En ég man að hann sagði: Strong working - strong living.“ Magnað er Fransarakyn í ljóði Ása í Bæ um Sævar í Gröf, son Binna, segir: Handfæri lína nœtur og net í nepju og veðradyn, á Gullborgu slógu þeir met eftir met því magnað erfransarakyn. í formannavísum Ása í Bæ frumfluttum á skemmtun Sjó- mannadagsins í Vestmannaeyjum árið 1956 segir svo um Binna í Gröf undir laginu Davíð Crock- ett: Þó að hann fái eittflensuhret fleyinu stýrir og setur met, öslar hreifur þó ygglist höf aflakóngurinn Binni í Gröf. Skálum, skálum Binni, og skellum okkur austur á Vík. Það hafa margar vísur verið gerðar um Binna og eina má nefna úr Formannsvísum Óskars Kára- sonar frá vetrarvertíðinni 1950: Hrœðist aldrei hroða sjá hraustur Grafar Binni. Þundur fiskinn þykir sá það skal haft í minni. Fyrr hefur verið minnst á Sævar í Gröf, son Binna, en hann var af- burða fiskimaður og hinn besti drengur. Það er til skemmtileg saga af kappinu sem getur runnið slíkum mönnum í kinn. Þeir voru að koma á Gullborgunni úr sigl- ingu frá Þýskalandi, Binni og Sævar, og höfðu keypt sér forláta hríðskotabyssu til þess að grípa til þegar bráð gæfist. Þegar þeir nálg- ast Ystaklett rýkur Sævar upp og segir: Pabbi, pabbi, nú getum við prófað byssuna, það eru tveir selir þarna. Nú var rokið upp til handa og fóta, byssan sótt og hlaðin á með- an Gullborgin nálgaðist markið. Binni ákvað að prófa og hann ið- aði allur í skinninu. Binni miðar og bíður þess að skipið sigli nær selunum, en skyndilega kemur hik á hann, hann beinir byssunni frá og segir: Þetta eru ekki selir, þetta eru menn. En Sævar var kominn á suðupunkt og þá hratt út úr honum: Skjóttu samt, skjóttu samt pabbi. Menn hafa haft gaman af þess- ari sögu þótt hún sé ugglaust eitt- hvað færð í stílinn, því þegar komið er að hápunktinum í veiði- mennskunni hlýtur að vera erfitt að snúa við. „Einhver verður að sjá um það andlega“ Einu sinni sem oftar landaði Binni fullfermi af síld á Siglufirði. Með honum á Gullborgunni var Gölli Valda, Árni Valdason. Flonum þótti sopinn góður og í þetta skipti hefur hann verið orð- inn all þyrstur, því báturinn hafði ekki snert bryggjuna þegar Gölli sveif í land. Hann mætti ekki til skips fyrr en búið var að landa og verið var að leggja frá. Binni var alveg sjóðandi vondur og spurði hvern djöfulinn þetta ætti að þýða. „Einhver verður að sjá um það andlega," svaraði Göllinn af mestu rósemi og Binni kunni að meta svona gamansemi og málið var úr sögunni. Það var ekkert verið að liggja yfir hlutunum. Einu sinni kom Binni niður á Bæjarbryggju á sumardegi. Það var kaffitími í Hraðinu og stelp- urnar sátu í hóp á bryggjusporðin- um, sóluðu sig og dingluðu fótun- um. „Hvað eruð þið að gera stelp- ur mínar“ spurði Binni. „Veiða“, svaraði ein. „Veiða hvað,“ spurði Binni áfram. „Veiða menn“, svöruðu þær allar í kór þar sem þær sátu í makindum á bryggju- sporðinum. „Aldrei hef ég nú vit- að veiðiskap þar sem setið er á beitunni,“ svaraði aflaklóin Binni í Gröf að bragði. IS 001 ÁRMULA5 128 REYKJAVÍK SÍMI 685511 PJÓNUSTAN HF. HAUSINGARVÉL Hún sker með bogaskurði með bestu fáanlegu nýtingu og heldur göllum I lágmarki sem hefur áhrif á mat. fyrir saltfisk og skreið Vélin vinnur þreplaust og er þvi ein- föld og þægileg í notkun. BAADER ÞJÓNUSTAN HF. — REYKJAVÍK SÍMI (91) 685511 — TELEX 2170 BAADER ÍS — PÓST BOX 8920 — 128 REYKJAVÍK

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.