Fiskifréttir


Fiskifréttir - 06.06.1986, Side 17

Fiskifréttir - 06.06.1986, Side 17
16 föstudagur 6. júní föstudagur 6. júní 17 Vestmannaeyjar Mér er djöfullega vlð öll boð og bönnft Þeir sem horfðu á þáttinn „Á líðandi stundu“ sem sendur var út frá Vest- mannaeyjum, muna vafalaust eftir sögu Árna Johnsen af fölsku tönnunum. Þannig var að tveir heiðursmenn úr Eyjum, Óskar Matthíasson og Sveinbjörn Snæbjörnsson reru saman og í einum róðrinum átti Bjössi að hafa misst fölsku tennurnar útbyrðis. Hann grét tennurnar þó ekki lengi en hélt áfram að draga. Sagan segir að Óskar hafi þá séð sér leik á borði, tekið út úr sér tennurnar og brugðið upp í þorskinn sem hann var að draga. Síðan kallaði hann á Bjössa og sagði að nú bæri vel í veiði. Tennurnar væru fundnar. Bjössi tók þessu með Viðtals ESE Myndirs Loftur oAL — Þetta er helvítis lygasaga og ekki fótur fyrir henni, en hún er góð engu að síður. Palli Helga sauð þetta saman til þess að ljúga í farþega í rútunni frá flugvellin- um og ég held að þetta hafi verið vinsælasta sagan í ein tvö ár. Það er Óskar Matthíasson, út- gerðarmaður og skipstjóri í Vest- mannaeyjum sem hefur orðið en við Fiskifréttamenn gerðum hon- um heimsókn skömmu eftir um- ræddan sjónvarpsþátt. Að sögn Óskars eru þeir Bjössi sagðir bræður í sögunni og umræddur Bjössi því sennilega eini maður- inn á íslandi sem fengið hefur að giftast systursinni. Sundmagar og gellur Óskar Matthíasson er höfðingi heim að sækja. Eftir að við höfð- um komið okkur fyrir í stofunni, dró hann fram ,,reyðagull“ en svo nefna frændur vorir í Færeyjum, ölið sem bruggað er hjá Föroya Bjór í Klakksvík. Varð okkur að vonum gott af ölinu og ekki laust við að það hjálpaði aðeins til við að losa um málbeinið á mönnum. Óskar er fæddur og uppalinn í Eyjum og líkt og svo margir Eyja- peyjar byrjaði hann snemma að vinna fyrir sér. Kornungur var hann byrjaður að gella upp á mánaðarkaup hjá Gísla F. John- Óskar ásamt sonum sínum Sigurjóni og Kristjáni á Leó. Það þarf ekki að kvarta yfir fengnum. sen og var kaupið 150 krónur sem þótti gott í þá tíð. — Ég var líka í Kína en svo nefndist stór skemma hér í bæ, við að skera sundmaga úr fiski. Kerlingarnar hreinsuðu hann og söltuðu og Gísli gamli flutti hann út, þar sem hann var síðan notaður í matarlím. Það var verkaður sundmagi á nánast öll- um heimilum og þetta setti tals- verðan svip á bæjarlífið vegna þess að sundmaginn var breiddur til þerris á húsþökunum. Súrsað- ur sundmagi var líka herramanns- matur og ekkert til að fúlsa við, segir Óskar en hann segist ekki hafa byrjað á sjó fyrr en hann var 16 ára. — Ég hætti eftir fyrsta úthald- ið. Það er versta helvítið að byrja sem kokkur. Lyktin og hitinn ætl- uðu alveg að gera út af við mig. Sjóveikin fór ekki af mér fyrr en ég reri og beitti á vertíðinni 1937 eða 38 en ég mátti þó ekki koma nálægt lúkarnum. Það eru voða- lega fáir sem aldrei hafa fundið til sjóveiki og ég veit bara um tvo menn sem aldrei urðu sjóveikir. Það voru þeir Elvar Andrésson og Júlíus Sigurbjörnsson en það skrýtna er að þeir voru báðir sveitamenn ofan af fastalandinu. Óskar segist hafa róið nokkrar vertíðar sem háseti og síðar vél- stjóri en hann hafi þó fljótlega orðið skipstjóri og fyrsti báturinn sem hann stýrði var Glaður. — Ég keypti svo Nönnu, 25 tonna bát í félagi við Sveinbjörn Guðmundsson. Við keyptum þennan bát af Einari ríka en hann var þá að selja fjóra báta, alla á hundrað þúsund krónur nema einn sem var með ónýta vél. Hann fór á 45 þúsund. Að sögn Óskars voru hundrað þúsund krónur mikið fé og til marks um það segir hann að ný- sköpunarbátarnir sem komu til landsins um það leyti, hafi kostað 550 þúsund krónur. Þetta voru 50 tonna bátar og einn þeirra, Reynir var þá keyptur til Eyja. Aflakóngur á þrem vertíðum En hvernig skyldi Óskari hafa stakri ró, skolaði tennurnar upp úr sjó og skellti gómum. Stakk þeim síðan upp í sig en henti samstundis útbyrðis með orðunum — nei þetta eru ekki mínar tennur! Rætt við Óskar Matthíasson, skipstjóra og útgerðarmann i Vestmanna- eyjum um lífið og tilveruna Með Bjössa vini sínum. Manninum sem henti tönnunum og er sam- kvæmt sögunni, giftur systur sinni. líkað að vera kominn í hóp skip- stjóra og útgerðarmanna ? — Það var auðvitað ágætt að vera orðinn sjálfs sín herra og ekki spillti fyrir að komast í þennan ágæta félagsskap. Nei, mig dreymdi aldrei fyrir fiskeríi en vel má vera að sumir hafi verið draumspakari en aðrir. Það var haft fyrir satt að sumir notuðu draumana eins og aðrir nota ný- tísku fiskileitartæki. Aðalatriðið var þó að vera sjálfstæður og þora að prófa fyrir sér. — Var mikill metingur á milli skipstjóra og einstakra áhafna? — Það varð allt vitlaust þegar líða tók á vertíðina. Allir reyndu að verða hæstir og undir lokin voru veðmál í gangi í landi um það hver yrði hæstur, segir Óskar en hann blandaði sér í þennan slag árið 1956 á gamla Leó, 39 tonna trébáti. Aflakóngur varð Óskar þó ekki fyrr en á vertíðinni 1963. Hann varð aftur efstur árið eftir og aflakóngur í þriðja sinn varð hann á vertíðinni 1969 eða 1970. Óskar segir að fátt hafi ver- ið eftirsóknarverðara á þessum árum en að vera á þeim báti sem varð aflahæstur. Það hafi verið lit- ið upp til aflamanna og oftast hafi sömu menn verið í áhöfn ár eftir ár. Sannkölluð tálbeita Gamli Leó tók við af Nönnu en að sögn Óskars var Leó byggður 1917. Óskar lét endurnýja bátinn mikið enda átti hann Leó fram til 1959 er hann fékk nýjan 100 tonna bát frá A-Þýskalandi. Við spyrjum Óskar hvernig fiskeríið hafi gengið á þessum fyrstu skip- stjórnarárum hans ? — Þetta gekk upp og ofan. Það voru talsverðar sveiflur í veiðinni en á stríðsárunum breyttist hún mjög til hins betra vegna minni sóknar. Annars er mér alltaf minnisstætt að eitt árið hafði afli verið mjög lélegur. Við rerum með línu og aflinn var þetta eitt til tvö tonn í róðri. Þá var einn bátur héðan sem fór til að veiða loðnu í beitu en loðnan var þá ekki kom- in lengra en austur undir Höfn. Við fengum loðnuna til að beita og þá brá svo við að allir mokfisk- uðu. Bátarnir voru með þetta 20 til 30 tonn í róðri í eina viku og það þótti lélegt að vera með aðeins 15 tonn. En þá kom loðnu- gangan og botninn datt úr veiðun- um. Þannig var loðnan sannköll- uð tálbeita, segir Óskar og brosir þegar hann minnist þessara tíma. Hálftíma niður ölduna Það fer ekki hjá því þegar fjall- að er um sjómennsku í Vest- mannaeyjum að válynd veður og sjóslys beri á góma. Við spyrjum Óskar hvort hann hafi aldrei kom- ist í hann krappann. — Ekkert sem orð er á gerandi en það fer auðvitað ekki hjá því að menn lenda í ýmsu. Versta veður sem ég man eftir var þegar Helgi fórst við Faxasker í kringum 1951. Það var aftakaveður og vindmælirinn fauk þegar vind- hraðinn var kominn upp í 17 vindstig. — Hvernig er ölduhæðin í svona veðri? — Öldurnar þurfa ekki að vera svo háar. Vindurinn heldur þeim niðri. Annars má veðrið vera ansi slæmt til þess að bátar fari niður. Ef menn halda ró sinni og sýna aðgæslu og andæfa þá á það að duga. Annars held ég að sjóslys séu óumflýjanleg en með aðgæslu mætti hins vegar fækka þeim mik- ið, segir Óskar en hann hefur misst nokkra góða vini í sjóslys- um. — Nú hefur maður heyrt sögur af skipum sem hafa lent í svo slæmu veðri að þau hafi tekið niðri úti á rúmsjó. Hefur þú lent í slík- um öldudal ? — Maður hefur heyrt svona tröllasögur, segir Óskar og hlær við. — Eitt sinn komu hingað A- Þjóðverjar sem sögðust hafa lent í brjáluðu veðri á leiðinni. Þeir fullyrtu að þeir hefðu verið 20 mínútur upp ölduna og hálftíma niður, þannig að væntanlega hafa þeir verið nálægt því að taka niðri. 2230 tonn á 100 tonna bát Óskar eignaðist Þórunni Sveinsdóttur VE árið 1971 en það hefur reynst mikið happaskip. Óskar var með Þórunni á einni vertíð og fékk samtals rúm 1300 tonn en á því ári varð aflinn alls rúm 2000 tonn. Mesta ársaflann fékk hann þó á Leó, rúm 2230 tonn sem þætti góður árskvóti minni skuttogara nú á tímum kvótakerfisins. Óskar fór í land 1977 og tók þá við stjórn fiskverk- unar fjölskyldunnar þannig að hann hefur ekki verið á sjó eftir að kvótinn var settur. En hvaða skoðun hefur hann á umræddum kvóta? — Mér er djöfullega við öll boð og bönn. Ég vil fá að vera í friði. Það skynsamlegasta hefði verið að koma í veg fyrir smáfiskadrápið með því að friða ákveðin svæði. En það er eins og við er að búast af þessum fiskifræðingum. Þeir eru bara til bölvunar, segir Óskar og bætir því við að hann hafi enga trú á fiskifræðingunum. — En er það ekki spor í rétta átt að auka samstarf sjómanna og fiskifræðinga eins nú hefur verið gert, t.d. með togaraverkefninu? — Þetta er það eina sem þeir geta gert til þess að halda andlit- inu. Með þessu móti komast þeir best frá þessu og geta þannig siglt á milli skers og báru, segir Óskar og dregur enga dul á fyrirlitningu sína. „Þið getið litið á bellina“ Til marks um það hve Óskar er mikið á móti boðum og bönnum. þá segir hann að einu skiptin sem hann fari á sjó, sé þegar hann megi það ekki. — Ég á smá trilluhorn sem ég nota sárasjaldan en ég gat þó ekki stillt mig um að bregða mér á sjóinn í banninu í fyrra. Ég hef gaman að láta þessa djöfla eltast við mig, segir Óskar og hlær dátt. — Ég fór út klukkan átta um morguninn og var kominn að um kvöldmatarleytið. Sat svo hér í mestu makindum og var að borða er barið var að dyrum. Þar voru komnir tveir eftirlitsmenn úr Reykjavík til þess að tilkynna mér að þeir vissu að ég hefði farið á sjó í trássi við bannið. Ég sagði það litlar fréttir en þeir vildu þá fá að vita hvað ég hefði veitt mikið. Ég sagði þeim þá að Guð hefði aldrei sent nótu með þessu en bellirnir væru niðri í trillu og þeir gæti kíkt á þá og talið, ef þeir hefðu áhuga. þeir sögðust þá verða að gefa skýrslu en síðan hef ég hvorki heyrt þá né séð, segir Óskar og fír- ar upp í pípunni sinni, glottuleit- urásvip. — Þú ert þá einn af þessum „frekjuhundum“ sem Garðar kallar svo? — Ætli það ekki, segir Óskar og brosið breikkar enn. — Annars skil ég ekkert í honum Garðari að láta þennan fjanda út úr sér. Karl- arnir eru alveg kolbrjálaðir út í hann og þeir gleyma þessu ekki svo fljótt. Heimsreisur og hnattsiglingar Óskar Matthíasson var á sjó mest alla ævi sína og við spyrjum hann hvort hann sakni ekki sjó- mennskunnar. — Nei, síður en svo. Ég er feg- inn að vera kominn í land. Af og til kemur þó yfir mig löngun til þess að fá mér lítinn snurvoðarbát en það væri sennilega mesta vit- leysa. Ég get hins vegar leyft mér það og það eru hreinar línur að ég get látið allt eftir mér. Ég þarf ekki að spyrja kóng né prest að því, segir Óskar en þó hann sé kominn í Iand, verður ekki annað sagt en að hann haldi tengslunum við hafið. Fjórir synir hans eru skip- stjórar, Kristján með Emmuna, Leó með Nönnuna, Matthías með Bylgjuna og Sigurjón með Þór- unni Sveinsdóttur. — Hefur Óskar Matthíasson aldrei langað í togara? — Ekki get ég sagt það. Ég er enginn togaramaður og hef aldrei verið á togara. Við buðum þó á dögunum í annað raðsmíðaskipið á Akureyri en vorum lágir. Buð- um 140 milljónir í skipið sem raunverulega var alltof hátt en það voru margir sem buðu meira. Þeir virðast bjóða hæst sem ekkert eiga en þó eru þarna innan um sterkir aðilar s.s. Barðinn í Kópa- vogi. Það er komið að lokum samtals okkar og „reyðagullið" er á þrot- um. Við ræðum að síðustu um nýjasta áhugamál Óskars, ferða- lögin. — Við hjónin höfum farið í tvær heimsreisur og komið til Ríó og Kenya og í fyrra fórum við hel- víti mikla reisu með 20 þúsund tonna lúxusdalli um Karabíska hafið. Það var mikið ævintýri og eins var líka mjög gaman í heims- reisunum. Ég veiddi risavaxinn „gullfisk" á stöng í Kenya en illa líst mér þó á útgerðina í þessum löndum. Skipin sem við erum að henda hér heima eru sennilega tíu sinnum betri en þessir mann- drápsbollar sem maður sér t.d. í Ríó, segir Óskar en auðvitað er það fyrsta verk þessa gamal- reynda skipstjóra að labba sér niður að höfn og líta á bátana hvort sem hann er staddur í Vest- mannaeyjum eða Venesúela. Höfnin er og verður lífæðin.

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.