Fiskifréttir - 06.06.1986, Qupperneq 29
föstudagur 6. júní
29
Fréttir
Hrognum fleygt í sjóinn:
300 milljónir í súginn
Ef öll hrogn, sem fleygt var fyr-
ir borð á fiskiskipum fyrstu þrjá
mánuði ársins, hefðu verið hirt og
farið til frystingar og útflutnings,
hefði fob-verðmæti þeirra numið
316 milljónum króna. Þetta full-
yrti Ingólfur Arnarson hjá Fiski-
félagi Islands á ráðstefnu um
þróun sjávarútvegs, sem haldin
var í Reykjavík í síðustu viku.
Hann leiddi töluleg rök að stað-
hæfingum sinum. A ofangreindu
tímabili hefði þorskaflinn numið
160 þúsund tonnum miðað við
óslægðan fisk. Af þessum afla
hefði slægður þorskur togaranna
numið 44 þúsund tonnum en
slægt um borð í bátum 28 þúsund
tonn. Samtals slægt úti á sjó 72
þúsund tonn. Ef gengið væri út frá
viðurkenndum nýtingartölum
gæfi þetta 4.230 tonn af hrognum.
Ingólfur sagði, að miðað við inn-
vigtunarskýrslur hefðu í mesta
lagi 150 tonn af þessu magni skil-
að sér í land.
Hann gat þess að ef hrognin
hefðu borist að landi og gengið
væri út frá 10% rýrnun, hefðu
fengist 3.800 tonn af frystum
hrognum til útflutnings að fob-
verðmæti 316 milljónir króna. í
þessu útreikningi tekur hann mið
af þeim útflutningstölum sem fyr-
ir liggja, en fyrstu þrjá mánuði
þessa árs nam útflutningur frystra
þorskhrogna 679 tonnum að fob-
verðmæti rösklega 56,6 milljón-
um króna. Hér er um að ræða val-
in matarhrogn til frekari vinnslu,
svo og og iðnaðarhrogn (þ.e.
kramin og sprungin) sem eru um
25% af magninu og nokkuð
minna verð fæst fyrir.
Síldarfrysting i
tilraunaskyni ísumar
I sumar verður gerð tilraun með
að frysta síld á Japansmarkað hjá
Hraðfrystihúsi Þórkötlustaða í
Grindavík. Síldin verður kyn-
greind en Japanirnir sækjast eftir
hrygnum til frystingar.
Að sögn
mundssonar
Guðmundar Guð-
framkvæmdastjóra
er fyrirliggjandi sölusamningur
við Japani um lítilsháttar af síld.
Eins og fram hefur komið í Fiski-
fréttum hafa verið gerðar tilraunir
með sérstaka vél sem kyngreinir
síld. Vél þessi er íslensk hönnun
og hefur hún reynst vel. Vélin var
fyrst prófuð í Vestmannaeyjum
árið 1984.
Húsavík:
Jútius Havsteen ÞH með frystibúnað
Breytingum á rækjutogaranum
Júlíusi Havsteen ÞH frá Húsavík
er að Ijúka í Slippstöðinni á Akur-
eyri. Verið er að setja frystilest og
frystibúnað í togarann og er áætlað
að breytingin kosti útgerðina alls
um 14 milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum
Tryggva Finnssonar, forstjóra
Fiskiðjusamlags Húsavíkur,
breytir þessi búnaður miklu fyrir
útgerðina og verðmæti afla á að
aukast mikið. Það þýðir vísu að
rækjuvinnsla Fiskiðjusamlagsins
fær minna hráefni frá togaranum
vegna útflutnings en Tryggvi
sagðist ekki kviða hráefnisskorti.
Einn bátur er nú á rækjuveiðum
frá Húsavík en Tryggvi sagðist
reikna með að einir sex bátar frá
Húsavík, frá 40 og upp í um 150
tonn, yrðu á rækjuveiðum í sum-
ar.
Að sögn Tryggva hefur útgerð
togarans Kolbeinseyjar, gengið
eins og að var stefnt þegar togar-
inn var keyptur að nýju til staðar-
ins. Nokkur tröppugangur hefur
verið í veiðunum en nú síðast
landaði Kolbeinsey um 150 tonn-
um af þorski eftir aðeins þrjá daga
á veiðum.
— Við settum okkur það mark-
mið að ná ákveðnu aflaverðmæti
á árinu og því ætlum við að ná.
Við erum á áætlun og teljumst
góðir að hafa náð skipinu á þessu
verði, þegar farið er að selja báta
mun dýrar, sagði Tryggvi Finns-
son.
Eigum til á lager
þessar frábæru
vatnsdælur sem nota
má hvar sem er.
Sjálfáfyllandi
^ Einföld og sterk uppbygging
4 Mjög fyrirferðalítil
4 Hljóðlát
Soghæð
allt að 8 metrum
Afköst frá
300-3100 1/klst.
HAMAR HF
Borgartúni 26, 105 Reykjavík.
Síxni 22123.
CAT
PLUS
Fyrsta caterpillar díeselvélin var
framleidd áriö 1931. Þaö var D9900
geröin. Síöan þá hefur caterpillar
framleitt yffr 2 milljónir véla, sem
samtals framleiöa 500 milljón hest-
öfl. Á síðustu sex árum hafa þeir selt
fleiri vélar, en öll hin árin.
Fimmtíu ár stööugrar framleiðslu-
próunar hafa leitt til minnkaðrar
eldsneytisevöslu og aukinna afkasta,
samfara stööugt léttari, fyrirferöa-
minni, áreiðanlegri og endingar-
betri vélum.
Af þessum sökum hefur vélasala
Caterpillar stöðugt aukist.
YFIR 50 ÁR
í FARARBRODDI
Œ
CATERPILLAR
SALA & ÞJDNUSTA
Caterpillar, Cat og[Beru skrásett vörumerki
D9900
í dag býöur fyrirtækið, sex megin-
gerðir díseselvéla, í stæröum frá 85
-1500 hestöfl (63-1119 kw).
Heildarframleiðslulínan telur 189
útfærslur véla frá 4 strokka — 16
strokka. Framleiðslulínan tekur yfir
52 geröir sjóvéla og 31 gerö trukk-
véla. Aö auki eru boönar 28 gerðir
díeselrafstööva frá 50 kw til 940 kw
til notkunar á sjó og í landi.
HEKLA HF
Laugavegi 170-172 Sími 21240