Morgunblaðið - 14.07.2021, Side 2

Morgunblaðið - 14.07.2021, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021FRÉTTIR Höfum opnað á Selfossi komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegum sýningarsal okkar GÆÐI ÞJÓNUSTA ÁBYRGÐ www.tengi.is Kópavogur – Smiðjuvegur 76 Akureyri – Baldursnes 6a Selfoss – Austurvegur 69 414 1000 414 1050 414 1040 VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR Mesta lækkun KVIKA -0,73% 23,70 Mesta hækkun ARION +3,13% 165,00 S&P 500 NASDAQ +1,65% 14.799,813 +1,61% 4.390,52 +1,34% 7.124,72 FTSE 100 NIKKEI 225 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. +2,13% 28.718,24 80 40 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)GULLVERÐ ($/únsu) 14.1.'21 1.500 2.000 1.850,3 14.1.'21 75,98 13.7.'21 56,42 13.7.'21 1.809,3 „Við sjáum það á tölum frá evrópsku hagstofunni að 83% Íslendinga á aldrinum 16-74 ára hafa pantað sér þjónustu eða vöru á netinu á síðustu 12 mánuðum og af þeim hafa 62% nýtt sér þjónustuna undanfarna 3 mánuði,“ segir Egill Fannar Hall- dórsson, framkvæmdastjóri Górilla vöruhúss, en hann hefur tekið sam- an forvitnlega tölfræði um notkun Íslendinga á netverslunum. Notast hann við tölur frá fyrrnefndri hag- stofu ásamt rauntímagögnum úr kerfum Górilla en í gegnum vöru- húsið hafa farið u.þ.b. 44 þúsund sendingar frá ríflega 50 netversl- unum síðasta árið. „Þessar rann- sóknir veita spennandi innsýn í net- verslun á Íslandi, þá þróun sem er að eiga sér stað og mögulega það sem koma skal á næstu árum,“ að sögn Egils Fannars. Bendir hann á að tilfinnanlegur skortur hafi verið á mælitækjum þegar kemur að net- versluninni þar sem Hagstofa Ís- lands hafi ekki birt tölur um þróun hennar síðustu 15 mánuði eða svo. Sé litið fram til ársins 2020 er Ísland í 7. sæti á lista yfir þær þjóðir þar sem notkun netverslana er út- breiddust. Hlutfallið er 90% í Bret- landi og það eru Þýskaland, Svíþjóð og Noregur, Holland og Danmörk sem skilja á milli. „En þegar fókusinn er settur á þá sem versla mest á netinu er Ísland í öðru sæti af öllum löndum Evrópu. 25% Íslendinga segjast kaupa vörur á netinu 10 sinnum eða oftar á hverju þriggja mánaða tímabili en Bretarnir hafa betur þar einnig með hlutfallið 29%,“ segir Egill Fannar. Íslenska verslunin stendur vel Þegar rýnt er dýpra í tölurnar segir hann að fróðleg mynd blasi við. Á síðustu þremur mánuðum hafi 46% Íslendinga verslað við ís- lenska netverslun en hlutfallið sé 42% þegar litið er til erlendra versl- ana. „Það er magn- að að fleiri eigi viðskipti við ís- lenska netverslun en erlenda. Það er í raun frábært. Við vitum ekki ná- kvæmlega hvað veldur en mögulega kjósa Íslendingar fremur að versla við íslensk fyrirtæki, en svo getur verið að þjónustan við Íslendinga sé betri hjá íslenskum verslunum, t.d. fljótlegri vöruafhending, minna ves- en eða þægindin meiri. Þá má einnig velta upp hvort fólk treysti betur verslunum hér heima.“ Þriðjudagur til þrautar? Í gögnum Górillu vöruhúss kem- ur margt áhugavert í ljós. M.a. að 16,5% pantana eru gerð á þriðju- dögum og enginn annar dagur sem skákar því hlutfalli. Mánudagarnir koma þar næst á eftir með 16% og því ljóst að fyrri hluti vikunnar er vinsæll meðal þeirra sem nýta sér netverslunina. Lægst fer hlutfallið á föstudögum og sunnudögum en þá virðast Íslendingar sinna öðrum málum en innkaupum af netinu. „Flestar pantanir sjáum við koma inn í kringum hádegið. Al- gengasti pöntunartími dagsins er milli kl. 10 og 11 á morgnana eða 8,2% og milli kl. 11 og 12 eða 8%. Flestar pantanir í netverslun eru gerðar milli kl. 9 og 14 á daginn eða 37%. Ef horft er til hefðbundins vinnutíma milli 8 og 17 þá eru 60% pantananna að detta inn á þeim tíma,“ segir Egill Fannar. Hann bendir sömuleiðis á að rannsóknir að utan sýni að 32% Ís- lendinga hafi keypt föt á netinu á undangengnu þriggja mánaða tíma- bili. „Þar erum við talsvert á eftir ná- grannalöndunum í Norður-Evrópu þar sem stórar fatakeðjur hafa kom- ið sér vel fyrir.“ 20% fólks hafa keypt húsgögn, gjafavöru eða aðrar heimilisvörur á sama tímabili. Matvaran virðist hins vegar koma mjög sterk inn en 42% Íslendinga hafa á undangengnum þremur mán- uðum keypt hana eða veitingar af öðru tagi. „Það segir manni að veit- ingastaðir og verslanir sem ekki eru með gott þjónustustig á vefnum ættu að uppfæra sig.“ Næstum allir nýta netverslun Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Þeir sem á annað borð nýta sér netverslun hér á landi gera það af miklum móð. Oftast er það á þriðjudögum. Pantanir eftir tíma sólarhrings Pantanir eftir vikudögumNeysluhegðun Íslendinga á internetinu 8% 6% 4% 2% 0% 06 07 08 09 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 01 02 03 04 05 06 Heimild: Górilla Vöruhús Mánudagur 16,0% Þriðju- dagur 16,5% Miðvikudagur 14,5% Sunnudagur 12,6% Fimmtudagur 14,4% Laugardagur 13,5% Föstudagur 12,6% Morgunblaðið/Árni Sæberg Netverslunin kallar á mjög öflug vöruhús sem halda utan um birgðir. Egill Fannar Halldórsson SMÁSALA Miklatorg hf. sem er rekstraraðili IKEA á Íslandi hagnaðist um 500 milljónir króna á reikningsárinu sem stóð frá 1. september 2019 til 31. ágúst 2020. Er það mikil aukning frá árinu 2019 þegar hagnaðurinn nam 210 milljónum króna. Þetta kemur fram í nýjum ársreikningi fyrir- tækisins. Vörusala nam 12,3 milljörðum króna og jókst um tæplega 300 millj- ónir. Í skýringum með reikningnum segir að sala hafi dregist saman um 15% frá marsmánuði 2020 og fram til júlímánaðar en að eftir það hafi sal- an verið á uppleið. Brugðust stjórnendur fyrir- tækisins m.a. við með því að lækka launakostnað og hagræða í rekstri. Launakostnaður hækkaði lítillega milli ára og nam tæpum 2,9 millj- örðum króna. Laun framkvæmda- stjóra félagsins lækkuðu verulega, fóru úr 52 milljónum árið 2019 í 31 milljón í fyrra. Miklatorg greiddi á síðasta rekstrarári 368 milljónir í leyfisgjöld til IKEA og hækkuðu gjöldin um rúmar 8 milljónir frá fyrra ári. Heildareignir Miklatorgs námu 2,7 milljörðum í lok ágúst í fyrra og höfðu aukist um ríflega 300 milljónir frá fyrra ári. Skuldir fé- lagsins námu tæpum 1,8 milljörðum króna og höfðu lækkað um ríflega 70 milljónir á árinu. Eigið fé félagsins stóð því í ríflega 970 milljónum við lok reikningstímabilsins og hafði vaxið um tæp 70% milli ára. Handbært fé í lok rekstrarársins nam 475 milljónum en hafði staðið í 7,5 milljónum við uppgjör ársins 2019. Samkvæmt skýrslu stjórnar er lagt til að greiddur verði arður vegna liðins rekstrarárs sem nemi 500 milljónum króna. Miklatorg hf. er í eigu bræðranna Jóns og Sigurðar Gísla Pálmasona. ses@mbl.is IKEA hagnast um 500 milljónir króna Morgunblaðið/Hari Stefán R. Dagsson er fram- kvæmdastjóri IKEA á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.