Morgunblaðið - 14.07.2021, Side 6

Morgunblaðið - 14.07.2021, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021VIÐTAL áratug komu fleiri sölubásar sem seldu vörur gagngert til útlendinga. Engu að síður verður stöðnun. Íslendingum sem sækja Kolaportið fer að fækka og það skapast þörf fyrir að hrista upp í hlutunum. Árin 2018 og 2019 áætluðum við að 75-80% gesta væru erlendir ferðamenn sem voru auðvitað mikil umskipti. Við fórum því að velta fyrir okkur leiðum til að gera Kolaportið meira spennandi fyrir Íslendinga. Hluti af því var að gera svæðið snyrtilegra. Lyktin af hákarlinum var svo kapítuli út af fyrir sig. Við vildum hafa nútímalegri nytjamarkað og meiri endurnýjun. Þessar breytingar skiluðu sér í aukinni umferð og við fórum að sjá ný andlit Ís- lendinga sem voru að versla. Þegar slakað var á sóttvörnum í vor fengum við allt að 5.000 manns á dag og samt áttu erlendu ferðamennirnir eftir að koma.“ Hægt að rýma með litlum fyrirvara – Segðu mér meira af þessum breytingum. Hvernig var brugðist við stöðnun? „Breytingin fólst fyrst og fremst í því að þétta raðirnar hjá sölufólkinu. Með því myndaðist þetta rými í austurhluta hússins sem við köllum viðburðatorg en það verður hægt að rýma með litlum fyrirvara fyrir allskyns viðburði; árshá- tíðir, tónleika, brúðkaupsveislur, matarmarkað, þemadaga og pólska viku svo eitthvað sé nefnt. Við erum opin fyrir öllu. Ég hef með mér góða aðila sem hjálpa mikið til, enda er ég viss um að Hafnarþorpið verði skemmtilegur og vinsæll staður sem bætir miðbæinn okkar. Við vissum að við þyrftum að taka matar- markaðinn í gegn. Friðrik Ármann Guðmunds- son leiðir þá vinnu. Við ætlum að vera með girni- legan matarmarkað. Meðal annars verður þar mikið um vörur beint frá bónda. Allt saman ferskt og skemmtilegt. Matarmarkaður í miðbæ Síðustu misseri hefur umhverfi Kolaportsins tekið miklum breytingum. Hafnartorgið hefur risið og þar til norðurs Austurhöfn. Hlerar á norðurhlið Kolaportsins hafa vikið fyrir stórum gluggum sem hleypa inn birtu og útsýni yfir höfnina. Til suðurs er verið að endurgera Tryggvagötuna við Tollhúsið og Naustin og með því víkja bílastæði fyrir göngugötu við mósaík- verk Gerðar Helgadóttur myndhöggvara. Þessar framkvæmdir – og uppbyggingin í miðborginni síðustu ár – setja Kolaportið í nýtt samhengi. Breytingarferlið heldur svo áfram á næsta ári þegar Tollurinn flytur úr Tollhúsinu. Ekki hefur verið greint frá því hvaða starfsemi kemur í staðinn. Félagið Portið ehf. hefur farið með rekstur Kolaportsins og er Gunnar Hákonarson, fram- kvæmdastjóri Kolaportsins, meðal hluthafa. Ríkissjóður á húsnæðið, Tryggvagötu 19, en borgin framleigir hluta jarðhæðar til Portsins. Það var með þessa þróun og endurgerð Kola- portsins í huga sem ViðskiptaMogginn settist niður með Gunnari Hákonarsyni framkvæmda- stjóra Kolaportsins. Teikningarnar hér til hliðar eru teiknaðar af ítalska arkitektinum Michele Santucci sem er Portinu innan handar með út- færslur. Á þeim má sjá að fjölbreytnin verður meiri með þeirri viðbót að bæta færanlegu markaðstorgi við núverandi nytjamarkað. Kolaportið verður í vesturhlutanum Nytjamarkaðurinn – gamla Kolaportið – verður í vesturhluta hússins en markaðstorgið austan við hann. Matarmarkaðurinn verður til suðurs en í norðausturhorninu verður matar- torg og bar. Vestan við matartorgið verður hægt að koma fyrir sviði fyrir tónleika og við- burði. Summan af þessu verður Hafnarþorpið sem byggt verður upp í áföngum næstu misseri. Samtalið hefst á að ræða upphaf Kolaportsins sem var opnað 8. apríl 1989 í bílageymslu við Arnarhól. Broddmjólkin, harðfiskurinn, lakk- rísinn og allt hitt urðu fastir liðir í borgarlífinu. „Þegar Kolaportið var stofnað var almennt óheimilt að hafa verslanir opnar um helgar. Það var meðal annars þess vegna sem fólk sótti í Kolaportið til að hafa eitthvað fyrir stafni. Það var hluti af bæjarferðinni um helgar að gefa öndunum, fara á kaffihús og koma svo við í Kola- portinu. Þar gátu gestir og gangandi rætt beint við framleiðendur á matvælum og seljendur ým- iss konar varnings. Þá var öllu pakkað saman á sunnudögum enda þurftu sölubásarnir að víkja fyrir bílastæðum virka daga. Það fór því ansi mikil vinna í að tæma á sunnudögum. Það tak- markaði umsvifin hjá seljendum sem gátu enda aðeins komið fyrir takmörkuðu magni af vörum um hverja helgi,“ segir Gunnar. Að grunni til óbreytt frá upphafi Hann hefur starfað hjá Kolaportinu síðan það var flutt í Tollhúsið í júní 1994. „Grunnlíkanið að baki rekstrinum – að leigja rými undir sölubása – hefur verið óbreytt frá upphafi en með því að leyfa fólki að hafa sölu- básana yfir vikuna í Tollhúsinu, og setja upp einhvers konar innréttingar, gátu seljendur komið upp stærra sölusvæði. Um leið nýttum við húsnæðið betur, en við getum haft stóra og litla aðila í bland og þeir geta minnkað eða stækkað básana eftir þörfum.“ – Hvernig hefur Kolaportið þróast? „Með auknum fjölda ferðamanna á síðasta Morgunblaðið/Unnur Karen Hafnarþorp í takt við erle Baldur Arnarson baldura@mbl.is Rekstraraðilar Kolaportsins áforma nýtt markaðs- og matartorg, Hafnarþorpið. Kolaportið verður þó áfram á sínum stað í vesturhluta húsnæðisins. Með Hafnarþorpinu á að laða að fleiri gesti með meiri fjöl- breytni, matsölu og viðburðahaldi í takt við erlend markaðstorg. Athafnahjónin Aron Einar Gunnarsson og Kristbjörg Jónasdóttir hafa gengið til liðs við Gunnar Hákonarson og félaga og tekið þátt í undirbúningi Hafnarþorpsins. Þau koma inn í Hafnarþorpið sem fjár- festar og meðeigendur í verkefninu. Spurður um aðdragandann segir Aron Einar að Ívar Jósafatsson hafi kynnt þeim hugmyndir um að betrumbæta Kolaportið. „Okkur fannst þetta spennandi verkefni og við vildum fá að taka þátt í að breyta Kolaportinu sem var orðið dálítið lúið. Við vildum taka þátt í að skapa markað í Reykjavík, eins konar þorp innandyra, þar sem er alltaf gott veður. Slíkur markaður hefur aldrei verið til á Íslandi,“ segir Aron Einar sem horfir til erlendra markaðstorga. Kom við á keppnisferðunum „Ég man að það fyrsta sem móðir mín „gúglaði“, þegar farið var í utanlandsferð, var hvort þar væru markaðir,“ segir Aron Einar sem kveðst lengi hafa haft taugar til Kolaportsins. Hann minnist þess að hafa á yngri árum komið þar við í keppnisferðum í handbolta og fótbolta og keypt lakkrís og kókosbollur, áður en haldið var heim norður. Nú sé hins vegar kominn tími á endurnýj- un án þess þó að glata tengingunni við upp- runa Kolaportsins. „Við viljum halda í stemninguna en betrumbæta ýmsa hluti og koma þeim hægt og rólega í verk.“ Kristbjörg og Aron Einar, sem er fyrirliði karlalandsliðsins í knattspyrnu og atvinnu- maður í Katar, hafa haft mörg járn í eldinum. Árið 2017 stofnaði Aron Einar íbúðahótel- ið Lava Apartments á Akureyri, í samstarfi við félaga sinn fyrir norðan, og um líkt leyti fjárfesti hann í bjórböðum Kalda á Árskógs- sandi. Árið 2019 hófu hjónin svo framleiðslu á snyrtivörum undir merkjum AK Pure Skin, í samstarfi við Pharmarctica í Grenivík. Skoða spennandi verkefni – Þér hefur vegnað vel sem atvinnumaður. Sérðu fyrir þér að fara út í frekari fjárfest- ingar eftir að þeim ferli lýkur? „Já, það kemur vel til greina. Við tökum okkur alltaf góðan umhugsunartíma og ef það koma spennandi verkefni inn á okkar borð erum við alltaf með augun opin fyrir fjárfestingum. Það er virkilega spennandi að gera eitthvað allt annað en að vera að sprikla á fótboltavelli og elta bolta og stjórna fótboltamönnum í kringum sig.“ – Kemur til greina að fjárfesta jafnframt í annars konar starfsemi í miðborginni nú þegar ferðaþjónustan er að lifna við? „Við ætlum að byrja á þessu. Svo sjáum við hvað gerist í framhaldinu en sem stend- ur einbeitum við okkur að þessu verkefni. Þegar Hafnarþorpið er farið að taka á sig mynd verður til skemmtilegt þorp innandyra sem fólk á eftir að hafa gaman af að sækja heim,“ segir Aron Einar Gunnarsson um hið væntanlega Hafnarþorp. Aron Einar og Kristbjörg fjárfesta í markaðstorginu Morgunblaðið/Ófeigur Aron Einar og Kristbjörg Jónasdóttir hafa fjár- fest í ferðaþjónustu, húðvörum og afþreyingu. Gunnar Hákonarson, framkvæmdastjóri Kola- portsins, segir breytingarnar munu koma á óvart.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.