Morgunblaðið - 14.07.2021, Page 7

Morgunblaðið - 14.07.2021, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2021 7VIÐTAL Reykjavíkur þar sem fólk getur gripið ferskt í matinn, girnilega osta og annað til að njóta heima hjá sér. Aðkoman tekin í gegn Við ætlum líka að taka aðkomuna austan- megin [gegnt Hafnartorginu] í gegn sem og al- menningssalernin. Þegar fólk kemur inn um dyrnar mun það ganga fram hjá kaffihúsi og blómabúð með gjafavörur en við trúum því að ef aðkoman er góð muni fólk vilja halda áfram inn á markaðinn. Við viljum að fólk komi á markaðs- torg sem er síbreytilegt. Nytjamarkaðurinn verður á sínum stað í vesturenda hússins en í austurhlutanum verður síbreytilegt markaðs- torg sem verður hægt að rýma með litlum fyrir- vara fyrir viðburði. Við ræddum meðal annars við fulltrúa Iceland Airwaves sem sögðu „Af hverju var ekki búið að segja okkur frá þessum stað? Hér getum við leikið okkur og gert allt mögulegt.“ Þeir eru að gera ráðstafanir til að koma fyrir viðburðum á hátíðinni í haust.“ Höfðu til skoðunar að opna mathöll – Hvernig verður veitingasalan? „Við ætluðum að vera með mathöll – nafnið segir allt sem segja þarf – en eftir nánari um- hugsun ákváðum við frekar að vera með matar- torg í norðausturenda hússins með íslenskum grunni. Bjóða upp á fiskinn, kjötið, súpuna og salatið og auðvitað einnig girnilega skyndibita.“ – Hvað sérðu fyrir þér marga rekstraraðila? „Við stefnum ekki að því að vera með marga rekstraraðila heldur að vera með einn sem þarf að vera fær í að reka heilt matartorg og hefur kannski með sér kokka sem geta eldað fjöl- breyttan mat. Þá fæst þessi tilfinning fyrir götu- mat sem er svo vinsæll þessa dagana. Það verð- ur heldur ekki dýrt að borða hjá okkur. Við verðum að vanda okkur mikið við matartorgið og barinn enda þurfum við að geta verið sveigj- anleg ef hingað koma aðilar sem vilja leigja torgið fyrir viðburð.“ Samstarf við Reykjavíkurmaraþonið – Ræðum aðeins meira um viðburðina. „Við ætlum okkur meðal annars að eiga í sam- starfi við aðila í íþróttageiranum, hreyfi- og lífs- stílsglaða hópa. Við höfum meðal annars rætt við fulltrúa Reykjavíkurmaraþons um að hafa hér móttöku fyrir hlaupið í framtíðinni og sam- kvæmi fyrir boðsgesti að hlaupi loknu. Til stendur að hafa samkvæmi eftir hlaupið nú í fyrsta sinn í ágúst.“ – Hvenær lýkur uppbyggingunni? „Það liggur ekki fyrir. Þó mun mikið gerast í ár og með haustinu birtast skemmtilegir hlutir sem munu fá fólk til að segja „vá“.“ – Hvaðan kemur hugmyndin að Hafnarþorpi? „Við höfum oft rætt hversu gaman það væri að setja upp lifandi markaðstorg. Aron Einar Gunnarsson [sjá grein hér til hliðar] og Krist- björg Jónasdóttir höfðu líka á orði að þegar Íslendingar ferðist til útlanda byrji þeir á að „gúgla“ markaðstorg á ensku. Þau eru enda meðal vinsælustu staða víða um heim. Til dæmis er Time Out Market annar vinsælasti staðurinn að heimsækja í Lissabon. Hann er ekki í mið- bænum heldur þarf að gera sér ferð – ganga í tíu mínútur frá miðbænum eða taka leigubíl – og þar er boðið upp á mat og viðburði. Við erum aftur á móti með meira úrval og erum í hjarta miðbæjarins. Svo er veðurfarið í Portúgal 80% útiveður og 20% inniveður, öfugt við veðrið hjá okkur á Íslandi. Svona markað vantar í Reykja- vík. Hversu oft hef ég verið spurður af útlend- ingum: „Is there any marketplace in Reykja- vík?“ Við hugsum okkur að bæjarbúar muni leggja leið sína hingað reglulega. Fólk sem býr í nágrenninu, eða vinnur í miðbænum, mun til dæmis geta komið með föt í hreinsun og verslað í matinn í leiðinni.“ Aðstoða listafólk að koma sér á framfæri – Hvað mun kosta að leigja nýju rýmin á markaðstorginu? Munu seljendur geta leigt sér minni sölurými en nú eru á boðstólum? „Við ætlum okkur að vera vistvæn á allan mögulegan hátt. Vera væn við þá sem vilja koma sér á framfæri án þess að það kosti þá aðra höndina. Ef einhver er til dæmis að föndra háls- men úr íslensku hrauni mun sá geta fengið hér ódýra aðstöðu en ekki þurfa að greiða tugi þús- unda fyrir heilan bás og leigu á posa. Það er allt- of dýrt fyrir slíka einyrkja. Við munum bjóða upp á pakka þar sem allt verður innifalið, að- staða og posi. Markaðs- og viðburðatorgið verður um 800 fermetrar og þar verður allt á hjólum og fær- anlegt. Þannig að seljendur á torginu vita að þeir þurfa stundum að víkja og verður básunum þá komið fyrir á bak við harmónikuhurðirnar sem munu skilja torgið og nytjamarkaðinn að.“ Lífsstílsvörur og reiðhjól – Hvernig mun vöruúrvalið í Kolaportinu breytast með markaðstorginu? Gætirðu tekið dæmi um nýjungar? „Til dæmis verða á torginu lífsstílsvörur, vörur fyrir hreyfingu og útivist, snjallvörur, alls kyns vörur fyrir ferðalanga, snjalltæki og lík- lega einnig hjól og rafhjól, svo eitthvað sé nefnt sem kemur til viðbótar við vöruúrvalið hjá okk- ur. Úrvalið verður mun meira en áður enda er um heilt „þorp“ að ræða.“ – Hvers vegna leggið þið svona mikla áherslu á að fá Íslendinga í húsið? „Við viljum fyrst og fremst vera með góðan stað fyrir okkar fólk, Íslendinga, því svona stað vantar hér á landi. Með því að stíla fyrst og fremst inn á Íslendingana erum við sannfærð um að ferðamennirnir muni koma. Við teljum að Hafnarþorpið verði skemmtileg miðstöð fyrir innlenda sem erlenda gesti. Miðstöð þar sem fólk getur jafnvel varið heilum degi, ekki ósvip- að og í flottum fríhöfnum eða á lestarstöðvum erlendis þar sem hægt er að finna svo margt til dundurs. Þorpið er innanhúss, hitastigið um 20 gráður og engin rigning og þar verður meðal annars „strönd“ með barnahorni.“ Ódýrt að koma list á framfæri – Mér skilst að þið hafið hugmyndir um að gera listamönnum hátt undir höfði. Hvernig mun það birtast gestum Kolaportsins? „Það verður ódýrt að koma list á framfæri hjá okkur. Við höfum einnig rætt við skóla í Reykja- vík um samstarf við sýningar á verkum nem- enda í Hafnarþorpinu en þar mun fjöldi fólks geta séð verkin. Þá höfum við rætt við skólana um ýmiss konar samstarf í list og menningu.“ – Þið eigið í samstarfi við ítalskan hönnuð, Michele Santucci, og annan listamann. Hvað einkennir hönnunina á Hafnarþorpinu? „Hönnunin er hrá en skemmtileg. Viður hefur verið endurnýttur hjá okkur og þegar smíða- vinnu lýkur munu skemmtilegar útfærslur sjást. Listamaðurinn Einars Timma hannaði og smíð- aði skemmtilega hringbarinn okkar,“ segir Gunnar Hákonarson að lokum. erlend markaðstorg Teikningar/Portið/Michele Santucci Hér má sjá drög að nýjum sölugangi á nýju markaðstorgi. Horft er til norðurs. Á efri myndinni hafa færanlegir sölubásar vikið fyrir borðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.