Hamar - 18.06.1937, Page 4
r
RÆÐA
BJARNA SNÆBJÖRNSSONAR.
Framh. af 1. síðu.
hefir ástand bæjanna, undir stjóm
núverandi stjórnarflokka versn-
að, sérstaklega þó þeirra bæja,
sem hafa orðið fyrir því óláni, að
hafa þá annan eða báða sem meiri
hluta bæjarstjórnar. Eg þarf ekki
að lýsa fyrir ykkur fjárhagsá-
standi þessa hæjar; það er yrir
löngu orðið okkur til skaða,
skammar og skapraunar. Alþingi
hefir liin siðari ár lagt á bæina
meiri og meiri kvaðir, sem hafa
aukin útgjöld í för með sér, fá-
tækraframfærið hefir aukist
vegna ýmissa aðgerða Alþingis hin
síðari ár, en líka vegna sivaxandi
atvinnuleysis, þótt jafnaðarmenn
lofuðu fyrir siðustu kosningar í
sinni alkunnu fjögra ára áætlun
vinnu handa öllum, sem vildu
vinna. Það hefir ekki vantað menn-
ina, sem vildu vinna og sem hafa
dag eftir dag, viku eftir viku og
mánuð eftir mánuð beðið um
vinnu og ekki fengið hana, með-
fram vegna aðgerða stjórnarflokk-
anna. En á sama tíma, sem fá-
tækraframfærið eykst, hafa svo
þessir sömu flokkar ungað út nýj-
um lögum, sem hafa rýrt tekju-
möguleika bæjanna, svo að þeir
geta ekki staðið við skuldbinding-
ar sinar, hafa ekki nægilegt fé til
nauðsynlegra útgjalda. Á þetta
hafa Sjálfstæðismenn oftlega bent,
m. a. á þingmálafundum hér, en
fyrir daufum eyrum jafnaðar-
manna. Nú eru loks farin að opn-
ast augu þeirra og eyru fyrir því,
að við svo búið megi ekki sitja,
en galliim er sá, að þeir meðal
jafnaðarmanna, sem skipa minni
hluta bæjarstjórnar, eins og t. d.
á sér stað livað Reykjavik snertir,
vilja ekki kannast við það enn,
að bæjunum séu nýir tekjustofnar
nauðsynlegir og berjast þvi á móti
lagfæringu í því efni, en hinir
jafnaðarmanna, sem skipa meiri
hluta bæjarstjórnar, eins og á sér
stað í Hafnarfirði, og ísafirði, eru
svo litilsigldir, að þeir láta undan
síga. í vetur var hér í bæjarstjórn
samþ. tillaga frá Sjálfstæðismönn-
um um nýja tekjustofna fyrir bæ-
inn, að fasteignaskattur og hluti
af tekju- og eignaskatti eða þá
þriðjungur af ágóða áfengisverzl-
unarinnar hér í bæ rynni i bæjar-
sjóðinn. Var þá verandi alþingis-
manni bæjarins falið að beita sér
fyrir því máli. Mér vitanlega hefir
hann ekkert gjört því máli til
framdráttar, sennilega af hræðslu
við Framsóknarmenn og Reykvík-
ingana meðal jafnaðarmanna.
Samt kom á þinginu frumvarp
um þetta efni frá Framsóknar-
flokknum er hljóðaði um stofnun
jöfnunarsjóðs bæja- og sveitarfé-
laga. Tekjur átti sjóður þessi að fá
á þann hátt að hækka átti um
15% kaffi- og sykurtoll og annað
aðflutningsgjald, vörutoll og verð-
toll. Verzlunarstofnanir ríkisins
áttu að greiða 5% af nettóágóða
aðalbúsins eða útibúsins á þeim
stað, er þær hefðu aðsetur sitt og
Síldarverksmiðj ur ríkisins áttu að
greiða í hæjar- og sveitarsjóði,
þar sem þær voru starfræktar, 1 %
af andvirði seldrar framleiðslu-
vöru verksmiðjunnar. Eins og þið
HAMAR
sjáið öll, þá koma þessar tillögur
Framsóknarflokksins oíkkur
Hafnfirðingum að sára litlu liði.
Þær verða eingungis til að hækka
dýrtíðina, ný tollahækkun á al-
menningi, hann á að greiða tekju-
hallann eftir sem áður, þó ekki
eftir efnum og ástæðum, en rikis-
sjóður má einskis missa. Frum-
varpi þessu var vísað til allsherj-
arnefndar efri deildar, en þar áttu
3 aðalflokkar þingsins sinn full-
trúa hvor, í þeirri nefnd. Fram-
sóknarmaðurinn vildi samþ. frv.
óbreytt. Sjálfstæðismaðurinn vildi
bæta við þeim tekjuauka fyrir
hæina, að allur fasteignaskattur-
inn, sem nú rennur til ríkissjóðs,
rynni til viðkomandi bæja og
sömuleiðis að 25% af tekju- og
eignaskatti, eins og liann er ákveð-
inn á hverjum tíma, rvnni einnig
til þeirra. En hvað vildi svo jafn-
aðarmaðurinn gera. Hann vildi
ekkert gjöra, vildi að allt væri ó-
breytt frá því, sem nú er. „Um
þörina fyrir nýjan skattstofn
handa hæja- og sveitarfélögum
má hka deila“, segir hann í nefnd-
aráliti sínu. Hann vill halda öllu
í sama farinu, en þó bætir hann
við í niðurlagi nefndarálitsins, án
þess þó að bera fram nokkrar til-
lögur í þá átt, að hrökkvi útsvör-
in ekki, þá megi setja á nýjan
skatt á fasteignir og verðhækkun-
arskatt af lóðum og lendum, m.
ö. o. hann vill fara svipaða leið
og framsóknarmaðurinn, auka
dýrtíðina í bæjunum með hækkun
húsaleigu, sem óhjákvæmilega
hlyti að leiða af þessari ráðstöf-
un. En sammerkt hjá háðum er
það, að tekjur ríkissjóðsins mátti
ekki skerða, þótt fátæk bæjar- og
sveitarfélög ættu í hlut, það kom
of mjög við buddu bitlingamann-
anna í stjórnarflokkunum. Sjálf-
um finst mér full sanngirni mæla
með því, að úr því á annað borð
að ríkissjóður hefir áfengisnautn
landsbúa að féþúfu, að þá renni
þær tekjur að verulegu leyti til
viðkomandi bæja. Þeir munu
hvort eð er sjúpa seyðið af því,
ef áfengisnautn er mikil á þeim
stað, sem vínsalan er rekin.
Loks vil eg minnast á gamalt
og nýtt áhugamál okkar Hafnfirð-
inga, og það er bygging hafnar-
garða hér. Það hefir svo oft verið
sýnt fram á nauðsyn þess máls,
og hún er ekki hvað síst nú í at-
vinnuleysinu. En þótt meiri hluti
bæjarstjórnar með bæjarstjórann í
fararbroddi hafi átt að hafa fram
kvæmd rannsókna á þvi máli í
fleiri ár, þá hefir samt ekki enn
í dag nokkurt fullnaðaráht legið
fyrir bæjarstjóm og nú virðist
málið algjörlega lagt á hilluna og
sá, sem í fararbroddi átti að
standa hefir nú tekið á rás til
Reykjavíkur, sem er keppinautur
okkar í því máli, því eins og við
vitum öll, hefir hann tekið að sér
embætti þar, sem heimtar krafta
lians óskifta. Sjálfstæðismenn í
bæjarstjórn hér eru orðnir þreytt-
ir á því að krefjast árangurslaust
ár eftir ár skýrslna um þetta efni;
en þegar Hafnfirðingar liafa kosið
mig sem þingmann kjördæmisins
þ. 20. þ. m., þegar þjóðin hefir
kjörið Sjálfstæðisflokkinn ráðandi
flokk þingsins sama dag, og þegar
Hafnfirðingar hafa kosið 5 að eg
ekki segi 6 fulltrúa Sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn nú eftir ára-
mótin, þá mun bæiarstjórn með
aðstoð meiri hluta Alþingis hrinda
þessu velferðarmáli Hafnfirðinga
í framkvæmd svo framarlega, sem
það á annað borð er framkvæm-
anlegt að áliti sérfróðra manna,
en um það efast eg ekki. ;
Heill fylgi því máli til sigurs
og öðrum viðreisnar- og velferð-
armálum, sem Sjálfstæðisflokk-
urinn herst nú fyrir.
Hatnfirðin^ar!
Notið góða veðrið, málið hús ykkar utan og inn-
an. 1 versluninni Málmur fáið þið allskonar utan og
innanhúss málningu. Einnig sérstaka þakmálningu og
þaktjöru.--
Gleymið ekki að vökva garðana! Sterkar og góðar
garðslöngur nýkomnar.
Einnig nýkomið: saumur, verkfæri, þakpappi,
veggfóður ávalt fyrirliggjandi og m. fl. —
Munið! Alt á sama stað.
Verzlnnin Málmur,
Austurgötu 17. — Sími 9230.
F»llllllllBliliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiini|
I Sjálfstæðismenn I
00 konur!
Látið kosningaskrifstofunni í té
allar þær upplýsingar, sem þér
teljið að komi henni að haldi.
Sími skrifstofunnar er 9228.
S
Hafnflrðingar!
KjísiD
Ábyrgðarmaður: Loftur Bjarnason.
F élagsprentsmiS j an