Fiskifréttir - 23.08.1991, Qupperneq 11
föstudagur 23. ágúst
11
Afíabrögðin
Frh. af bls. 8
Sæbjörg 900 kg eftir þrjá róðra
hver, Mardís 500 kg, Skálavík 1.1
tn eftir tvo róðra hvor, Skáley 2.4
tn, Víkingur 200 kg og Trausti 400
kg eftir einn róður hver. Breiðdals-
vík: f>ann 13. ágúst landaði togar-
inn Hafnarey 67 tn, þar af 41 tn af
ufsa og 12 tn af þorski, eftir sjö
daga veiðiferð. Sonja var á hand-
færum og landaði 400 kg eftir tvo
róðra. Djúpivogur: Það varþokka-
legt veiðiveður í vikunni en afli var
frekar tregur. Þann 12. ágúst land-
aði togarinn Sunnutindur 70 tn,
aðallega þorski, eftir fimm daga
veiðiferð. Bylgjan var á dragnót og
landaði 600 kg eftir tvo róðra. Lín-
utrillan Eyjólfur Ólafsson landaðu
2 tn eftir einn róður. Eftirfarandi
handfæratrillur lönduðu: Magga 2
tn, Eva 2 tn eftir fimm róðra hvor,
Dedda 1.1 tn, Eyrún 1.1 tn, Höfr-
ungur 2.3 tn, Seley 1.3 tn eftir þrjá
róðra hver, Alda 800 kg, Glaður
250 kg, Már 2.1 tn, Öðlingur 2.5
tn, Magnús 400 kg eftir tvo róðra
hver, Sigurvin 300 kg, Fengur 600
kg, Orri 400 kg og Bodda 100 kg
eftir einn róður hver. Höfn: Það
viðraði vel á miðunum í vikunni en
aflinn er talinn í meðallagi miðað
við árstíma, að sögn heimildar-
manns. Þann 14. ágúst landaði tog-
arinn Stokksnes rúmum 50 tn af
þorski, ufsa og blönduðum afla
eftir sjö daga veiðiferð. Þessir
Svavar Ágústsson,
skipstjóri á Rúnu RE
Á sandkolaveiðum
við Garðskagann
— Við eigum aiveg eftir að slípa
þetta hjá okkur. Það eru mikil
viðbrigði að fá þetta nýja skip í
hendurnar og ég get ekki annað
sagt en að það lofi góðu. Við er-
um búnir að fara tvo túra og þrátt
fyrir að við séum enn að Læra á
skipið hefur aflínn verið alveg
sæmilegur. Við tókum t.d. ekki
nema tvö köst í síðasta túr en
fengum þó u.þ.b. þrjú tonn,
sagði Svavar Ágústsson, skip-
stjóri og annar eigandi Rúnu RE í
samtali við Fiskifréttir.
Svo sem greint var frá í Fiski-
fréttum fyrir skömmu þá tóku
Svavar og félagi hans, Hjörtur
Jónsson, nýlega við nýrri Rúnu
RE en þetta skip, sem kéypt er í
Norégi, leysir af hólmi 26 brúttó-
rúmlesta skip með sama nafni.
Hin nýja Rúna er hins vegar 41
brúttórúmlest og viðbrigðin eru
því eðlilega mikil. Svavar segir
vinnuaðstöðuna hafa gjörbreyst
og eins séu íbúðir hinna fimm
áhafnarmeðlima allar rúmbetri
og skemmtilegri.
Sandkolaleyfíð bundið
skilyrðum
Þeir Svavar og Hjörtur hafa
gert út á dragnót undanfarin ár
og Rúna RE: er einn þriggja báta
sem hafa svokallað sandkolaleyfi
inn við Garðskaga. Hinir bátarn-
ir eru Arnar KE og Haförn KE.
Þrátt fyrir að sandkolaleyfið þyki
ekki jafnast á við leyfi til skarkola-
veiði í Bugtinni, en það hafa tólf
bátar, er þó gott. að sögti Svavars,
að hafa sandkolann til að hlaupa
upp á en þessi fisktegund er utan
kvóta.
— Við höfum verið með þetta
leýfi í tvö ár og við getum ekki
kvartað yfir aflabrögðunum. Yfir-
leitt hefur aflinn verið jafn og góð-
ur en helsti gallinn við veiðarnar er
auðvitað sá að sandkolinn er mun
verðminni en skarkolinn. Þetta er
mikið þynnri fiskur, nánast bara
roð og bein að mati okkar íslend-
inga, en Hollendingar og fleiri
þjóðir virðast kunna að meta
þennan fisk, segir Svavar en hann
segir þá félaga selja allan aflann til
útflutningsfyrirtækisins Seifs hf.
en það flytur fiskinn á Hollands-
markað.
Leyfið til sándkoláveiðanna er
bundið ýmsum skilyrðum og
t.a.m, er veiðisvæðið ekki nema
um fimm fermflur að stærð. Sam-
kvæmt leyfinu má skarkolaaflinn
ekki fara upp fyrir 16 tonn á mán-
uði og hámark 15% aflans mega
vera bolfisktir. Ef farið er yfir þessi
mörk er aflinn gerður upptækur.
Veiðileyfið takmarkast einnig af
því að veiðina má aðeins stunda frá
klukkan sex að morgni og fram til
klukkan átta að kvöldi. Svavar
segist venjulega fara út um klukk-
an fjögur að nóttu til þess að vera
komin á miöiti þegar veiðin má
hefjast.
Sandkolaveiðin má venjulega
hefjast í lok júlí og hefur áhöfnin á
Rúnu RE yfirleitt getað stundað
veiðarnar fram til jóla. Fyrri hluta
vertíðarinnar er yfirleitt gert út frá
Reykjavík en þegar komið er fram
á haust hefur báturinn oft verið
færðúr til Keflavíkur og aflanum
landað þar.
4 Spor í rétta átt
Svavar segir þá nýbreytni hafa
verið tekna upp nú í sumar að hægt
sé áð velja um það hvort veitt sé
innan svæðis eða utan þess hálfan
mánuð í senn.
— Við getum brugðið okkur út
fyrir með litlum fyrirvara en ef við
gerum það þá verðum við líka að
stunda veiðarnar fyrir utan svæðið
í hálfan mánuð. Að þeim tíma
loknum getum við gert það upp við
okkur hvort við viljum fara aftur
inn á svæðið næsta hálfa mánuðinn
eða hvort betra sé að vera áfram
fyrir utan. Þetta svigrúm er mjög
gott og spor í rétta átt fyrir okkur,
segir Svavar.
Að sögn Svavars hefur afkoman
á sandkolaveiðunum verið sæmi-
leg á undanförnum árum.
— Þetta hefur svona skrölt hjá
okkur og yfirleitt til þess að brúa
það bil sem við þúrfum að brúa
vegna lítils bolfiskkvóta. Við vor-
um með 290 tonna þorskígildis-
kvóta fyrir þetta átta mánaða
kvótatímabil sem nú er að Ijúka og
þar afvaru.þ.b. helmingurinn ýsá.
Nú kemur enn ein skerðingin
þannig að ég á ekki von á því að
kvótinn fyrir næsta heila fisk-
veiðiár verði mikið meiri en þessi
290 tonn, segir Svavar.
Mikil fískgengd
Að sögn Svavars hefur ástand-
ið á kolanum verið með besta
móti í sumar.
— Það hefur verið óvenju mik-
ið um kola nú í sumar hér við
vesturströndina. Við höfum
heyrt að kolagengd í Breiðafirði
og við Vestfirði sé með allra
mesta móti og ég held að ástand-
ið sé ekki lakara hér í Flóanum.
Það hefur einnig verið mjög mikil
þorskgengd á þessu svæði og við
vorum fljótir að taka þorskkvót-
ann okkar. Við vorum á netum í
janúar pg febrúar og við tókum
tæpan helming kvótans, 120
tonn, í febrúar. Janúar var hins
vegar mjög lélegur vegna
ógæfta. Við skiptum svo yfir á
dragnótina í mars og á henni höf-
um við verið síðan með hléum,
segir Svavar.
Svavar segir að þrátt fyrir að
nýja skipið sé töluvert stærra en
hið gamla þá noti hann sömu
veiðarfæri og á gamla bátnúm.
Yfirleitt er nótin dregin í þetta 20
til 30 mínútur áður en hún lokast
og Svavar segist ánægður með
það ef hann „fær pokann" eins og
hann orðar það en það samsvarar
um 600 til 700 kflóa afla.
trollbátar lönduðu: Bjarni Gísla-
son 269 kg af heilum humri, 191 kg
af slitnum humri og 6.6 tn af fiski
eftir tvo róðra, Lyngey landaði 500
kg af humri og 6.8 tn af fiski og
Steinunn landaði 100 kg af slitnum
humri ogg 9.8 tn af fiski eftir einn
róður. Hinir trollbátarnir lönduðu
fiski: Harpa 644 kg, Þinganes 3.3
tn, Sigurður Ólafsson 6.6 tn,
Hvanney 28 tn, Æskan nýja 11.5
tn, Æskan eldri 3.1 tn og Vísir 4.1
tn eftir einn róður hver. Freyr
landaði 12.9 tn af þorski eftir tvo
róðra. Skinney var á dragnót og
landaði 10 tn eftir tvo róðra. Línu-
báturinn Krossey landaði 5.4 tn,
Ingunn 749 kg eftir tvo róðra hvor,
Faxafell 875 kg og Máni 4 tn eftir
einn róður hvor. Eftirfarandi
handfærabátar lönduðu: Öngull
3.2 tn, Herborg 4.8 tn, Unnur 3.6
tn eftir fjóra róðra hver, Flóki 716
kg, Æðey 2.3 tn, Eskey 2 tn, Kiðey
2.6 tn eftir þrjá róðra hver, Jökull
Jónsson 892 kg, Njörður 2 tn,
Mímir 936 kg, Gerpir 691 kg, Uggi
754 kg, Sæfari 1.4 tn, Gæska 913
kg, TGjafi 2.4 tn, Örn 1.2 tn, Hnef-
ill 1 tn eftir tvo róðra hver, Ingunn
193 kg og Gissur hvíti 762 kg eftir
einn róður hvor.
intralox
TIL FISKVINNSLU, ÚTGERÐAR OGIÐNADAR
Slitsterk, létt, auðveld í uppsetningu
og viðhaldi. Færibönd í öllum
breiddum og ýmsum gerðum með
stuttum fyrirvara. Á færiböndin fást
margs konar gerðir og stærðir
meðfæra einnig frost og hitaþolin
færibönd.
TÆKNILEG RÁDGJÖF
FÆRIBÖND • PLASTEFNI • MÓT0RAR
HÁ Martvís hf.
HAMRABORG 5 • 200 KÓPAVOGUR
SÍMAR: (91) 641545 - 641550
SÍMAFAX: (91)41651
SÁPUKVOÐUKÚTURINN
ÍSACO sápukvoðukúturinn er
nýjasta lausn okkar til að létta og
auðvelda þrif í minni
matvælafyrirtækjum. Með honum má
sápukvoða á einfaldari, auðveldari
og ódýrari hátt en gert hefur verið.
Kynnið ykkur einnig
SÁPUKVOÐUKERFID
ísÁco
H
F
Gilsbúð 7 -210 Garðabæ ■ Sími 657744 Fax 656944