Fiskifréttir


Fiskifréttir - 09.10.1992, Blaðsíða 4

Fiskifréttir - 09.10.1992, Blaðsíða 4
4 FISKIFRÉTTIR föstudagur 9. október 1992 Fréttir Ferskfiskmarkaðir: Eftir litlu að slægjast Verð helst enn Iágt á ferskfisk- mörkuðunum í Bretlandi og Þýskalandi. í Bretlandi hefur markaðurinn ekki verið svipur hjá sjón að undanförnu og til marks um það má nefna að þorskverð í september í ár var rúmlega 14% lægra en í sama mánuði í fvrra. I Þýskalandi hefur mikið magn ódýrra karfaflaka frá Færeyjum valdið verðfalli og eru íslenskir út- gerðarmenn allt annað en hressir með þessi undirboð frænda vorra. Meðalverð á þorski í Bretlandi í september var 149 krónur fyrir kílóið en fyrir réttu ári var meðal- verðið 174 krónur fyrir kílóið. Ekki verða íslenskir útflytjendur sakaðir um að hafa drekkt mark- aðnum í of miklu magni því þorsk- útflutningurinn dróst saman um tæp 24% á milli ára. Veruleg verð- lækkun hefur einnig orðið á ýsu en útflutningur á ýsu hefur þó dregist saman um tæplega helming. Það er orðið fátítt að íslensk fiskiskip selji afla í Bretlandi en það gerðist þó í sl. viku, nánar til- tekið 1. október, er Guðmundur Kristinn SU seldi þar 57 tonn af fiski. Ekki fékk útgerðin þó mikla umbun fyrir þetta framtak því alls fengust 7.2 milljónir króna fyrir aflann og var meðalverðið 127.36 kr/kg. Uppistaðan í aflanum var þorskur á 134.50 kr/kg en fyrir 5 tonn af ýsu fengust 148.10 kr/kg. Austfirðingar hafa oft verið drjúg- ir við landanir í Bretlandi á haust- mánuðum en miðað við verðþróun ytra og gengisþróun má búast við því að austfirskir útgerðarmenn hugsi sig tvisvar um áður en þeir láta skip sín sigla. Gámar Mjög lélegt verð fékkst fyrir ís- lenskan ísfisk úr gámum í Grimsby og Hull í vikunni 28. september til 2. október. Seld voru 426 tonn af ISLENSK FYRIRTÆKI 19 9 3 STÆRRI ÞYNNRI HANDHÆGARI MEIRI UPPLÝSINGAR f i^l \T Ármula 18, 108 Reykiavík XÍVAJJLWL sími: 812300 BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA myndsendir: 812946 fiski úr gámum fyrir alls 52.1 millj- ón króna og var meðalverðið því 122.36 kr/kg. Mest var selt af þorski, 136 tonn, og var meðal- verðið 124.75 kr/kg, fyrir 105 tonn af ýsu fengust 139.48 kr/kg og fyrir 79 tonn af kola voru greiddar 113.90 kr/kg. Hefur verðið fyrir flestar tegundir ekki verið lægra í háa herrans tíð. Þýskaland Svipaða sögu er að segja af þýska ferskfiskmarkaðnum. Verð á karfa í september féll um rúm 5% miðað við sama tíma í fyrra og ufsinn hefur kolfallið í verði þrátt fyrir tæplega helmings samdrátt í magni. Meðalverð á ufsa nú í sept- ember var 74 krónur fyrir kílóið en í sama mánuði í fyrra var það 103 kr/kg. Við áttum eftir að greina frá sölu Ögra RE í Bremerhaven 28. september sl. en þá voru seld alls 137 tonn af fiski úr skipinu fyrir alls 13.1 milljón króna. Meðalverð var 95.75 kr/kg. Fyrir 126 tonn af karfa fengust 93.57 kr/kg og fyrir 4 tonn af ufsa fengust 65.71 kr/kg. Hegranes SK seldi 134 tonn af fiski í Bremerhaven 30. september og fékk alls 10.9 milljónir króna fyrir. Meðalverð var 81.41 kr/kg. Fyrir 118 tonn af karfa fengust 80.65 kr/kg, fyrir 5 tonn af grálúðu fengust 150.42 kr/kg og fyrir 2 tonn af ufsa fengust 62.91 kr/kg. Tæpast er hægt að segja að októbermán- uður hafi byrjað vel því er togarinn Ásbjörn RE seldi afla í Breem- erhaven 1. og 2. október sl. má segja að verðið hafi farið niður úr öllu valdi. Fyrir 170 tonn af fiski fengust 12.1 milljón króna og með- alverð var því 71.30 kr/kg. Aflinn var nánast eingöngu karfi og var meðalverðið á honum 71.91 kr/kg. LubeSife SMURSKAMMTARAR Á. BJARNASON H/F. Hvaleyrarbraut 3, Hafnarf. Sími 91-651410 & 651266 Fax 91-651278 Markaður LYFTARAR! Höfum til sölu uppgerða rafmagnslyftara og uppgerða rafmótora í ýmsar gerðir lyftara. Al- hliða viðgerðarþjónusta á rafmagnslyfturum. Raflyftarar h/f Lynghálsi 3 Reykjavík sími 91-672524 • fax 91-672890

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.