Fiskifréttir


Fiskifréttir - 05.11.1993, Blaðsíða 6

Fiskifréttir - 05.11.1993, Blaðsíða 6
6 Aðalfundur LÍÚ Veiðarnar í Barentshafi: Stiórn völd tjacmrvnd fyrír að styðia ekki útcrerdirnar Sár óánægja ríkir meðal útgerðarmanna með aðgerðarleysi og upplýs- ingaskort utanríkisráðuneytisins og sjávarútvegsráðuneytisins í málefn- um þeirra útgerða sem sent hafa skip sín til veiða í Barentshafið. Þetta kom glöggt fram á fundi umræðuhóps um veiðar utan fiskveiðilögsögunn- ar á aðalfundi LÍÚ. Mönnum fannst, að stjórnvöld reyndu að humma málið fram af sér og kæfa það með þögninni, bæði veiðarnar sjálfar og umræðuna um þær. Útgerðarmenn fengju engin svör um réttarstöðu t.d. við Svalbarða, og kort af lögun Smugunnar hefði ekki fengist fyrr en að eftir því hefði verið falast af rússneskum skipstjóra í Reykjavíkurhöfn í skiptum fyrir viskíflösku. Þá kom það fundarmönnum á óvart, þegar lögfræðingur sjávarútvegsráðuneytisins upplýsti að honum hefði verið ávallt verið ljóst að Smugan væru mun stærri en menn héldu í upphafi. Þótt mönnum hafi verið heitt í hamsi í umræðuhópnum var ákveðið að spara stóru orðin í ályktun fundarins. Látið var nægja að segja, að því miður hefði orðið misbrestur á því að stjórnvöld styddu við bakið á útgerðarmönn- um þeirra skipa sem leitað hefðu á fjarlæg mið. „Þessir útgerðar- menn, sem lagt hafa í mikla áhættu með tilraunaveiðum á framandi slóðum sem þjóðarbúið nyti ekki síst góðs af, hljóta að geta ætlast til þess að fá óskiptan stuðning stjórnvalda. Stuðningur stjórn- valda þarf m.a. að koma fram í því að þau afli allra mögulegra upplýs- inga um veiðimöguleika og réttar- stöðu til veiða á fjarlægum miðum, svo og annarra upplýsinga, sem teljast nauðsynlegar til að þessar veiðar verði stundaðar," segir í ályktun fundarins. Fram kom í máli Jóhanns A. Jónssonar frá Þórshöfn, sem var formaður umræðuhópsins, að samkvæmt ummælum lögfræðings sjávarútvegsráðuneytisins gerði hafréttarsáttmálinn ráð fyrir að bjóða þyrfti samninga í málum eins og Smugudeilunni öðru hverju til þess að viðhalda rétti okkar. Hins vegar komu þau sjónarmið fram í umræðuhópnum að ekkert lægi á að semja og betra væri að öðlast meiri veiðirétt í Smugunni. Svalbarðasvæðið I umræðuhópnum komu fram efasemdir um að rétt væri að gerast aðilar að Svalbarðasamningnum því með því gætu Islendingar hugs- anlega glatað veiðirétti á svæðinu milli 4ra og 200 mílna. „Hins vegar er það staðreynd að Færeyingar, undir fánum ríkja í Karabíahafi, hafa reynt að láta reyna á veiðirétt á Svalbarðasvæðinu og mönnum finnst það dálítið súrt hér í miðju Atlantshafinu, að skip skráð þar syðra komi e.t.v. til með að öðlast meiri rétt en við,“ sagði Jóhann A. Jónsson. Hann benti á, að Norð- menn hefðu aðeins sett kvóta á þorsk á þessu svæði. Fyrir lægi að íslenskum skipum væri heimilt að stunda þarna rækjuveiðar og því væri gagnlegt fyrir okkur að öðlast þar veiðireynslu, ef til þess kæmi að Norðmönnum dytti í hug að setja kvóta á rækjuna. Alyktun aðalfundar LIU um Svalbarða er svohljóðandi: „Aðal- fundur LÍÚ 1993 beinir því til stjórnvalda að Island gerist ekki aðili að Svalbarðasamkomulaginu Norskt gæsluskip fylgist með Sigl- firðingi SI í Smugunni á dögunum. (Mynd/Fiskifréttir: Heiðar Elías- son). frá 1920, fyrr en ljóst er að það skaði ekki hagsmuni okkar. Aðal- fundurinn leggur áherslu á, að Svalbarðasamkomulagið tekur samkvæmt orðum sínum ekki til hafsvæðis utan fjögurra sjómílna. Hafnar fundurinn því að Norð- menn geti tekið sér einhliða rétt til útfærslu án samráðs og samninga. Þessi ákvörðun byggðist m.a. á umdeildri fræðikenningu. Hvorki Norðmenn né Rússar eiga einir og sér Svalbarða né hafa alræðisvald þar svo bindandi sé fyrir þriðja að- ila. Full ástæða er til að stjórnvöld kanni þjóðréttarlega stöðu okkar íslendinga varðandi þetta og láti reyna á rétt okkar sem allra fyrst.“ Jóhann minnti á, að samkvæmt fréttum væri áætluð þorskveiði Rússa umfram kvóta sinn um 150 þús. tonn á þessu ári og giskað væri á að Norðmenn hefðu farið 30-40 þús. tonn fram úr sínum kvótum. Þetta væri töluvert meira en allur þorskkvóti íslendinga á núverandi fiskveiðiári. Rockall svæðið Fjallað var um Rockall svæðið á fundinum og var mótmælt öllum tilraunum Breta til þess að taka sér 200 sjómílna fiskveiðilögsögu út frá Rockall. Upplýst var að Frakk- ar og Færeyingar hefðu verið að veiðum á þessum slóðum, en þarna fengist stinglax, langhali og fleiri tegundir sem seldust góðu verði á ferskfiskmörkuðum í Frakklandi. Þessar tegundir virð- ast ekki vera kvótabundnar hjá Evrópubandalaginu en hvort Fær- eyingar eru þarna með leyfi banda- „Sjávarútvegsráðherra minnt- ist ekki einu orði á Smuguna á aðalfundi LÍÚ. Það sýnir best áhugaleysi ráðamanna og endur- speglar í raun stefnu stjórnarinn- ar í þessum málum. Við höfum t.d. ekki fengið nein svör frá haf- réttarsérfræðingum utanríkis- ráðuneytisins um það hver sé lagalegur grundvöllur Norð- manna fyrir flskverndarsvæðinu við Svalbarða. Eftir því bíðum við til þess að geta e.t.v. hafið veiðar inni á þessu svæði. Eg tel að stjórnvöld séu að brjóta á þegnum sínum, upplýsi þau þá ekki um lagalega stöðu þeirra í málum eins og þessum. Eg tel að verið sé að leyna okkur upplýs- ingum,“ sagði Ragnar Ólafsson, skipstjóri á frystitogaranum Sigl- firðingi SI, í samtali við Fiski- fréttir. Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ flytur ræðu sína á aðalfundinum. Kolbeinsson ráðuneytisstjóri hlýða á. lagsins er ekki vitað. Fram kom í umræðuhópnum sú skoðun, að fylgjast þyrfti með þessu máli og jafnvel gæti þetta blandast inn í nú- verandi samninga Islendinga við EB um gagnkvæmar veiðiheimild- ir varðandi karfa og loðnu. Önnur mið Veiðarnar á Flæmska hattinum voru einnig ræddar í umræðuhópn- um og fram kom í máli lögfræðings sjávarútvegsráðuneytisins að stefnt væri að því að setja kvóta á rækjuveiðar þar árið 1995. Kvóta- skiptingin mun fara eftir veiði- reynslu á svæðinu. Upplýst var að Grænlendingar væru skipulega að afla sér veiðireynslu þarna með því að halda þar stöðugt úti skipum og það þyrftu Islendingar líka að gera. í umfjöllun um blálönguveiðar á Reykjaneshrygg kom fram, að erf- iðlega hefði gengið að selja blá- lönguna frá í vor, enda tæki Frakk- landsmarkaður aðeins við um 2.000 tonnum af flökum á ári. Vegna þröngs markaðar fyrir þessa vöru væri það íslenskum út- gerðum talsvert hagsmunamál að losna við franska togara af þessum blálöngumiðum, enda stundu þeir veiðarnar að hluta til innan ís- lenkrar landhelgi. Norsk-íslenski síldarstofninn, sem nú er í örum vexti, bar einnig á góma, en núna veiða Norðmenn um 170.000 tonn úr þessum stofni og Rússar 30.000 tonn, — eða samtals 200.000 tonn. Norðmenn hafa það í hendi sér hversu mikið þeir taka úr stofninum. Á aðal- Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra og Árni fundi LÍÚ var samþykkt tillaga þar sem þeim tilmælum var beint til sjávarútvegsráðherra að viðræður um sameiginlega nýtingu norsk-ís- lenska sfldasrstofnins yrðu teknar upp við norsk stjórnvöld sem fyrst til þess að tryggja sem best íslenska hagsmuni. Hafnfirskir fulltrúar á aðalfundi LÍÚ. í ályktun aðalfundarins er því mótmælt að hlutur krókaleyfisbáta verði aukinn á kostnað annarra skipa. Með tillögum ráðherrans sé verið að rúmlega fjórfalda þann afla sem þessum bátum sé ætlað samkvæmt núgildandi lögum. Auk þess er lýst undrun á því hvers vegna heimildir krókaleyfisbáta séu settar fram sem 5,5% hlutdeild í þorski, ýsu og ufsa, þegar í raun sé verið að veita þeim rétt til veiða á 8,2% af þorski. Þá mælir fundurinn gegn því að haldið sé eftir við úthlutun afla- heimilda 12.000 þorskígildistonn- um (18.000 lestum af fiski) til hugsanlegra jöfnunaraðgerða. Ennfremur er eindregið lagst gegn því að heimild til geymslu afla- heimilda milli ára verði skert úr 20% í 10%. Það hljóti að vera hag- kvæmara að geyma óveiddan fisk i sjónum en að stofna til óþarfa kostnaðar við veiðarnar. Aðalfundur LÍÚ ítrekar þá af- stöðu sína að afnema skuli núgild- andi ákvæði um að aðeins hálfur línuafli skuli talinn til kvóta í mán- uðunum nóveber-febrúar. Þessi í stað verði úthlutað sambærilegri heimild til þeirra sem þessar veiðar hafi stundað undanfarin þrjú ár. Með tillögu ráðherrans um að línu- tvöföldunin skuli gilda áfram sé verið að búa til nýtt sóknarmark á línuveiðum með tilheyrandi kostn- aði og fjárfestingu í beitningarvél- um. Þá mælir aðalfundurinn gegn takmörkun á tímabundnu framsali veiðiheimilda, en\sjávarútvegsráð- herra vill setja skorður við því að Stjórnvöld eru að brjóta á þegnum sínum — með því að uppiýsa þá ekki um lagalega stöðu sína „Svalbarðasvæðið er ekki eign Norðmanna og það er helvíti hart, að íslenskir ríkisborgarar skuli ekki getað fengið að vita hvar stjórnvöld standa gagnvart þeim, sem hefja þar veiðar. Það gæti jafnvel verið skoðun okkar færustu sérfræðingar að okkur væri heimilt lögum samkvæmt að stunda þarna veiðar, en stjórnvöld lægju á þess- um upplýsingum og héldu að sér höndum, ef íslenskt skip yrði tekið á þessum slóðum og fært til hafnar í Noregi. Það sjá allir að þetta er óþolandi staða,“ sagði Ragnar. Ragnar kvaðst hafa varað við því að stjórnvöld skrifuðu undir Svalbarðasáttmálann. Ástæðan væri sú, að kvótinn í Barentshafinu gilti um allt hafsvæðið, þar á meðal Smuguna og Svalbarðasvæðið. Ef við Islendingar gerðust aðilar að Svalbarðasamkomulaginu sam- — segir Ragnar Ólafsson skipstjóri á Siglfirðingi Sl þykktum við um leið kvótasetning- una og hættan væri sú að við lokuð- umst úti kvótalausir þar sem við hefðum enga veiðireynslu. „Ég tel miklu skynsamlegra að við veiðum næstu tvö til þrjú árin í Smugunni til þess afla okkur veiðireynslu en létum jafnframt reyna á rétt okkar við Svalbarða með því að veiða þar. Það eru fordæmi fyrir því að þjóðir, sem byrjað hafa veiðar við Svalbarða, hafi fengið veiðiheim- ildir í Barentshafi og nægir að nefna Grænlendinga í því sam- bandi,“ sagði Ragnar. Aðspurður kvaðst hann fylgjandi þeirri hug- mynd, sem fram hefur komið, að Islendingar „fórnuðu“ einu gömlu kvótalausu skipi og sendu það til veiða við Svalbarða upp á von og óvon um að það yrði tekið af norsku landhelgisgæslunni. „Reyndar get ég alveg búist við því að flotinn hreinlega taki sig saman og láti reyna á rétt okkar þarna. Norðmenn hafa ekki treyst sér til þess að taka skip á þessu svæði og ég á frekar von á því að þeir myndu frekar vilja fara samningaleiðina en dómsleiðina,“ sagði Ragnar. „Stjórnvöld eru ljósárum á ^ft- ir sjómönnum og útgerðarmönn- um í hugsun og framkvæmdum í þessum málum. Stjórnvöld geta haft sína skoðun á veiðum utan landhelgi, en það er lágmark- skrafa að þau birti mönnum lög- fræðilegt álit hafréttarsérfræð- inga á réttarstöðu þeirra sem fara inn á veiðisvæði á fjarlægum slóðum í stað þess að þegja fyrirspurnir þeirra í hel,“ sagði Ragnar. Hann benti einnig á, að í ljósi útrásar íslenskra skipa út fyrir landhelgina, í Smuguna og á Flæmska hattinn, hljóti stjórn- völd jafnframt að þurfa að skoða hvort hagsmunir íslendinga séu e.t.v. meiri sem úthafsveiðiþjcð- ar en strandríkis. Sé sú raunin, þurfi ráðamenn að fara að hugsa öðru vísi en þeir hafi gert hingað til í hafréttarmálum. Aðalfundarfulltrúar af Norðurlandi. kvóti sé fluttur á skip umfram aug- ljósa veiðigetu þess. Jafnframt tel- ur fundurinn fráleitt að lagt verði sérstakt gjald (10.000 kr.) á hverja tilkynningu um flutning aflamarks umfram tíu. Síðast en ekki síst er varað við hugmyndum sjávarútvegsráðherra þess efnis að fiskvinnslustöðvar geti eignast aflaheimildir. Þetta sé atlaga að núverandi fiskveiði- stjórnun og vísasti vegurinn til þess að hún verði lögð niður. „Við fisk- veiðar þarf skip en ekki fisk- vinnslustöðvar og er ekki fyrirsjá- anleg breyting í því efni“, segir í ályktun fundarins. þurfi ekki að falla af skipaskrá, þótt nýtt skip hafi komið í flotann í þess stað, og að tvö skip megi koma í stað eins, ef afkastagetan eykst ekki. Málamiðlun Viðkvæmasta deiluefnið í sam- bandi við breytingar á fiskveiði- stjórnuninni snýst án efa um krókaleyfi smábáta. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra kvaðst í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ harma að hvorki LÍÚ né Landssamband smábátaeigenda hefðu fallist á tillögur sínar um eo'E ao’N 75'N 35‘N Smugan og Svalbarða- svæðið Á þessu korti, sem dreift var á aðalfundi LIU, sést uppdráttur af hinum umdeildu veiðisvæðum í Barentshafi. Smugan er doppótti þríhyrningur- inn sem miðlínan gengur í gegnum. Þetta er ekki kórrétt lögun Smugunn- ar en gefur þó hugmynd um staðsetningu hennar. Skástrikaði flöturinn sýnir Svalbarðasvæðið, sem íslenskir útgerðar- menn vilja fá nánari vitneskju um rétt sinn á, en þeir kvarta undan þögn stjórnvalda. Flöt- urinn með lóðréttu strik- unum táknar „grátt svæði“ út frá landamær- um Noregs og Rússlands sem þessar þjóðir hafa samið um og er óviðkom- andi hagsmunum Islend- inga. Texti: GE Myndir: Gunnar Fyrirhugaðar breytingar á fiskveiðistjórnarlögunum: Tillögum ráðherrans yísað útí hafsauga málamiðlun í þessari deilu. Sú málamiðlun fæli vissulega í sér að þorskveiðiheimildir kvótabáta og togara yrðu skertar um 6% og tekj- ur útgerðarmanna og sjómanna minnkuðu að sama skapi. Yrði niður- staðan sú að veiði smábátanna yrði í engu skert, myndu sum byggðarlög fá meira í sinn hlut en málamiðlunin gerði ráð fyrir og önnur minna. Þannig myndu Vestmanna- eyjar t.d. tapa um 5,2% af þorskafla- heimildum sínum en Hafnfirðingar auka þær um 8,7%. Bílddælingar myndu tapa tæp- lega 7% en Flateyr- ingar auka sínar heimildir um rúm 6%. Á Hvammstanga myndu þorskaflaheimildir aukast um 13% en skerðast á Sauðárkróki um 6%. Aflaheimildirnar myndu aukast í Grímsey um 30% en skerðast á Akureyri um rúm 4%. Á Bakka- firði myndu þær aukast um 10% en minnka um 6% á Fáskrúðsfirði. Svona mætti lengi áfram telja. Sjávarútvegsráðherra lagði áherslu á, að í frumvarpi sínu væri reynt að taka tillit til hagsmuna ólíkra hópa innan sjávarútvegsins. Ef allir ætluðu að þverskallast hver í sínu horni væri ekki á vísan að róa um framtíðina og innbyrðis reiptog fjölgaði ekki fiskunum í sjónum. Aðalfundur LÍÚ lýsti megnri óánægju með þær breytingar sem felast í frumvarpi sjávarútvegsráðherra um fiskveiðistjórnun og var þeim nánast öllum vísað á bug. Voru þær ýmist taldar skaða núverandi fyrirkomulag veiðistjórnunar eða vera beinlínis atlaga að núverandi kerfi. í raun mælti aðalfundur LÍÚ aðeins með einni veigamikilli breytingu í frumvarpi sjávarút- vegsráðherra, — þeirri að skip

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.