Fiskifréttir


Fiskifréttir - 05.11.1993, Blaðsíða 12

Fiskifréttir - 05.11.1993, Blaðsíða 12
o o FRETTIR 41. tbl. föstudagur 5. nóvember Áskriftarsími 91-812300 VONDUfl VEIDARFÆRI Við bjóðum ekkert nema það besta og höfum alltaf fyrirtiggjandi fjölbreytt úrval veiðarfæra. Leitið upplýsinga fagfólks - þar sem þjónustan er byggð á þekkingu. ® íslenskar sjávarafurðir hf. UMBÚÐA- OG VEIÐARFÆRADEILD KlRKjUSANDI • LAUGALÆK 2A • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 69 82 00 • FAX 67 87 92 W VÖRUAFGREIÐSLA HOLTABAKKA • SÍMAR 81 46 67 og 68 10 50 • FAX 81 28 48 Mikil aukning í sjófrystingu á rækju Rækjufrysting á sjó hefur stórauk- ist á undanförnum misserum og útlit er fyrir verulega fjölgun rækj- ufrystiskipa á næstunni. Sjófryst- ing á rækju virðist vera vaxtar- broddurinn í útgerð um þessar mundir, enda er ástand rækjust- ofnins ólíkt betra en þorskstofns- ins. Samkvæmt upplýsingum Fiskistofu lögðu alls 32 skip upp sjófrysta rækju á nýliðnu fiskveiði- ári en fyrirsjáanlegt er að þeim mun fjölga talsvert á þessu kvóta- ári. Hjá Fiskifélaginu fengust þær upplýsingar, að landað hefði verið 8.700 tonnum af sjófrystri rækju frá áramótum til júlfloka á þessu ári, en á öllu árinu í fyrra nam aflinn 6.400 tonnum. Þetta er 36% aukning, þótt borið sé saman rúmt hálf ár á móti heilu ári. Meðal nýrra rækjufrystiskipa má nefna Norðfjarðartogarann Blæng og þrjá grænlenska rækju- togara, sem búið er að kaupa hing- að til lands eða samið hefur verið um kaup á. Um er að ræða rækju- togara sem Snorri Snorrason á Dalvík hefur keypt, skip sem Jó- hann Halldórsson útgerðarmaður Andvara VE hefur samið um kaup á, og skip sem Básafell hf. á Isa- firði hyggst kaupa. Þá má nefna, að nýja Guðbjörgin ÍS verður með rækjuvinnslulínu og þó nokkrir aðrir togarar hafa fengið slíkan búnað. ÚTFLUTNINGUR Vantar skrápflúru, öfugkjöftu, sandkola og stóra langlúru. BRAND G. Ingason Fornbúöum 8, 220 Hafnarfirði •3 91-653525 • 91-654044 ■ 985-27020 — afíinn orðinn 36% meirí í júlílok en allt áríð í fyrra „Endurnýjun í fiskiskipum að undanförnu hefur greinilega tekið mið af árangri þeirra skipa sem veitt hafa rækju og unnið aflann um borð,“ sagði Kristján Ragnars- son formaður LIU í samtali við Fiskifréttir. „A sama tíma og feng- ist hafa 70-80 krónur fyrir kílóið af rækju í landi, hafa menn verið að fá um 250 króna meðalverð fyrir þá rækju sem fryst er úti á sjó. Því er augljóst, að í engri annarri grein er munurinn á sjóvinnslu og land- vinnslu svona mikill, — miklu meiri en gerist í bolfiski. Þá má benda á, að fullkomnustu loðnu- og rækjuskip okkar eins og Pétur Jónsson RE hafa haldið sig ein- göngu á rækju og framselt loðnu- kvóta sinn. Á hitt ber þó einnig að líta að verðsveiflur á þessum mark- aði eru geysilega miklar. Þannig hefur verð á sjófrystri rækju lækk- að um 30% frá því í fyrra. Það er mikið framboð á þessari vöru og auknar veiðar á nýju veiðisvæði, sem Flæmski hatturinn er, hafa einnig ýtt undir verðlækkunina. Það er því tvímælalaust áhætta því samfara að fara út í sjófrystingu á rækju, þótt þetta sé samt það besta sem menn hafa verið að gera að undanförnu.'1 Samkvæmt tölum í Útvegi, riti Fiskifélagsins var landað 6.400 tonnum af sjófrystri rækju árið 1992 að verðmæti 1.840 milljónir króna. Það er tvöfalt meira en árið Frystitogarí til Fáskrúðsfjarðar: OttarBirting á heimleið — á veiðar í Smugunni ef veður og aflabrögð leyfa 1990, en breytingin milli áranna 1991 og 1992 var hins vegar ekki mikil. Nú stefnir hins vegar í stór- aukningu eins og áður kom fram. Bettcher hanskar Ódýr slysavörn Þjálir öryggishanskar fyrir fiskvinnslu. Bettcher hanskarnir eru þeim kostum búnir að nær ómögulegt er að skera sig fyrir slysni. Hanskamir eru úr sterkum Von er á frystitogaranum Ottar Birting í fyrsta skipti til heima- hafnar á Fáskrúðsfirði nú eftir nokkra daga. Togarinn, sem nefndur hefur verið Glacier frá því að hann var keyptur í Englandi fyrr á þessu ári, átti að fara frá Danmörku nú í vikunni og að sögn Guðmundar Kr. Guðmundssonar, skipstjóra og eins forsvarsmanna útgerðarinnar, er hugsanlegt að komið verði til Fáskrúðsfjarðar að kvöldi nk. sunnudags. Frystitogarinn Ottar Birting hét áður Safco Endeavour. Nokkrir einstaklingar á Höfn í Hornafirði keyptu skipið og með hjálp frá Búðahreppi á Fáskrúðsfirði tókst þeim að fjármagna nauðsynlegar breytingar á skipinu en það verk var unnið í Danmörku. Togarinn var fyrst gerður út undir norska víkinganafninu Ottar Birting og hafa útgerðarmennirnir ákveðið að halda því. Að sögn Guðmundar Kr. Guðmundssonar lá ekki alveg ljóst fyrir hvenær togarinn gæti far- ið frá Danmörku. — Ef allt gengur að óskum þá komust við af stað á miðvikudag, 3. nóvember, en það gæti dregist fram á föstudag. Siglingin heim tekur um fjóra sólarhringa þannig að við ættum í fyrsta lagi að vera komnir til Fáskrúðsfjarðar á sunnudagskvöld en það gæti líka dregist fram í miðja næstu viku, sagði Guðmundur en hann sagði að trúlega yrði haldið til veiða í Smugunni fljótlega eftir komuna til íslands. — Við munum taka ákvörðun um framhaldið eftir að við komum til Fáskrúðsfjarðar. Veðurútlit og aflabrögð í Smugunni munu ráða ferðinni, sagði Guðmundur Kr. Guðmundsson en þess má geta að 24 skipverjar verða í áhöfn Ottars Birtings. Óhætt er að segja að fiskiskipa- floti Fáskrúðsfirðinga eflist mjög og dafni þessa dagana því auk frystitogarans bættust togbátarnir Sigurvík VE og Bergvík VE nýver- ið í hóp þeirra skipa sem gerð eru út frá staðnum. og hitaeinangrandi þráðum. Hafið samband Borgartún 29 Sími: 19920 3C CRETEL ROÐVELAR UMBOÐSAÐILI jfié Ýi IceMac Föxaskóla 2,101 Rvk, S:623518 Almenna auglýsingastofan hf.

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.