Fiskifréttir


Fiskifréttir - 31.05.1996, Síða 14

Fiskifréttir - 31.05.1996, Síða 14
14 FISKIFRÉTTIR föstudagur 31. maí 1996 AflaskSp Texti: Magnús Þór Hafsteinsson urströnd Englands. Norðursjávar- hafnirnar voru lokaðar vegna hættu frá kafbátum og flugvélum. Við sigldum alltaf einskipa, - vild- um ekki sjá að vera í skipalestum. Skipið var auðgreint sem íslenskt, brúin var brynvarin með stein- steypu og við vorum með gamlan vélbyssuhólk um borð sem Bretinn lét okkur hafa. Þcssar ferðir gengu vel og við urðum aldrei fyrir nein- um árásum,“ segir Gunnar. Eldborgin sigldi oft fram á brak úr öðrum skipum sem skotin höfðu verið niður. Gunnar er spurður hvort hann hefði aldrei verið hræddur á þessum tíma. „Uss nei, maður var svo ungur og vitlaus á þessum árum,“ svararhann. — En var aldrei staldrað við þá stað- reynd að þið feðgarnir væru saman um borð? „Það var alla vega aldrei rætt,“ var svarið. Beygt undan sprengjum Litlu mátti þó muna í lok októ- ber árið 1942. Eldborgin var í flutningum fyrir breska herinn úti af Austfjörðum. Þýsk flugvél gerði þá ítrekaðar tilraunir til að varpa sprengjum á hana en skipið komst undan vegna snarræðis Olafs skip- stjóra. Þegar vélin birtist skipaði hann öllum inn í brynvarða brúnna. Sjálfur snaraðist hann upp á brúarþak þar sem öll stjórntæki voru fyrir hendi. Þarna uppi gat séð allan tímann til ferða vélarinn- ar þegar hún kom aðvífandi með sprengjurýmið opið og reyndi að miða út skipið. Með því að beina skipinu í krákustíga gat hann alltaf vikið Eldborginni undan á síðustu stundu. Líklega voru Þjóðverjar orðnir tæpir með eldsneyti, því að þeir gáfust upp og snéru aftur til bækistöðvar sinnar í Noregi. I kveðjuskyni sendu þeir kúlna- dembu úr vélbyssu en hittu ekki. Það var eins gott. Undir yfir- breiðslum á dekkinu var bensín- farmur, og ekki hefði þurft að binda um mörg sár hefðu Þjóðverj- arnir hæft. Flóabátur Eftir að strandferðaskipið Laxfoss eyðilagðist í strandi við Kjalarnes veturinn 1952 var Eld- borgin mikið höfð í flutningum á vörum og fólki milli Reykjavíkur, Akraness og Borgarness og var Gunnar Ólafsson skipstjóri. Skip- ið sinnti þessu hlutverki þar til fyrsta Akraborgin kom til landsins ár- ið 1956. Upp úr því var Eldborgin loks- ins seld aftur til Noregs og farsælum ferli hennar við ís- land þar með lokið. Heimildir Gunnar Olafsson, fyrrverandi skip- stjóri. Munnlegar heimildir. Matthías Olafsson (Hassi): Halló Eldborg. Ert’ að hlusta Óli? Saga ms. EldborgarMB 3 frá Borgarnesi. Hafglit, 1994. Heimskreppan hafði um nokkurra ára bil læst krumlum sínum um atvinnulíf landsmanna. I Borgar- nesi voru menn orðnir langþreyttir á doða kreppunnar. Framsýnir og stórhuga menn sáu að hér þurfti nýsköpun til svo renna mætti fleiri stoðum undir atvinnulíf sem eink- um byggði á verslun og þjónustu við landbúnaðarhéruð Borgar- fjarðar. Hinn U. desember 1933 var haldinn sögulegur fundur í Samvinnufélaginu Grími í Borgar- nesi. Samþykkt var að festa kaup á fiskiskipi. Það sætti tíðindum að landkrabbarnir í Borgarnesi ætl- uðu að hefja útgerð. Hér var held- ur ekkert hálfkák á hlutunum. Þeir höfðu augastað á svo til glænýju og glæstu stálskipi, sem smíðað hafði verið í Noregi árið áður. Sérhönnuð til útilegu Þetta var Eldborgin, 280 tonna skip sem upprunalega hafði verið hannað til selveiða í Norðurhöf- um, línuveiða, og doríuveiða við ísland, Grænland og í Barentshafi. Donuveiðar voru þær veiðar kall- aðar þegar menn stunduðu veiðar á opnum bátum frá stórum móð- urskipum sem þjónuðu hlutverki bækistöðvar þar sem menn hvfld- ust, nærðust og verkuðu afla sinn. Vistarverur voru margar um borð og lúkarinn frammi í stafni á tveimur hæðum. Um borð í Eld- Aflaskipið Eldborg HAPPASKIPIÐ ELDBORGIN — Síldveiðiskip, fisksöiuskip og flóabátur borgarinnar hætt og hún seld aftur til Noregs. Gunnar hóf sjómennskuferil sinn á skipinu. „Eg fór fyrsta sinn sem hálfdrættingur með pabba á síldveiðar sumarið 1935, þá 13 ára. Þetta var fyrsta sumarið sem skipið var gert út á sfld. Við lönduðum á Siglufirði og aflinn fór yfirleitt í bræðslu. Árið 1936 lönduðum við á Djúpuvík. Eftir 1938 lönduðum við alltaf á Hjalteyri. Eldborgin var fyrsta skipið sem landaði farmi í verksmiðjunni þar. Við fórum alltaf á veiðar í byrjun júní og kom- um heim í síðari hluta september," segir Gunnar. Eldborgin var alla tíð mikið aflaskip, og hún var aflahæsta síld- veiðiskipið á vertíðunum 1943 og 1944. Sumarið 1943 veiddu Ólafur og menn hans 30.300 mál og það var ekki slegið fyrr en mörgum ár- um síðar. „Manni fannst þetta svo sem ekkert voða sérstakt. Eld- borgin bar svo mikið. Hins vegar var ótrúlegt hvað Guðmundur á Freyjunni gat fiskað. Hann, áþess- um litla pung, var aðeins lægri en við,“ segir Gunnar hógværlega rúmum 50 síðar. Árið 1948 var Eldborgin send til Grænlands. Þar gegndi hún hlut- verki móðurskips fyrir línubátana Fram og Minní. Línan var beitt um borð um í Eldborginni og afli bát- anna saltaður þar um borð. Þessi útgerð borgaði sig ekki og var ekki endurtekin. Fiskflutningar til Englands Skipinu var sjaldnast haldið úti til fiskveiða á veturna. Þá var Eld- borgin í ýmsum flutningaverkefn- um víða um land svo og erlendis. Mest var skipið í flutningum á fiski. Safnað varbátafiski á ýmsum höfnum um landið, hann ísaður um borð og síðan var siglt með hann til Englands þar sem hann var seldur. Oft voru kolafarmar teknir og færðir heim til Islands á bakaleiðinni. „Eldborgin sigldi með fisk milli íslands og Englands öll stríðsárin. Ég var með á henni síðustu tvö árin, en þar á undan var ég á Júpít- er og Fjölni. Annað hvort keypti útgerð skipsins fiskinn af bátunum eða við fluttum beint út fyrir þá. Við vorum tíu á í þessum ferðum og vorum á föstum grunnlaunum. Að auki fengum við einhverjar prósentur af sölunni, þannig að góðar sölur gátu gefið af sér auka- tekjur fyrir okkur. í stríðinu sigld- um við alltaf á Fleetwood á vest- Aflakóngar á sfld Eftir að Ólafur hætti með Eldborg- ina tók Gunnar sonur hans við skip- inu og var skipstjóri á því til ársins 1956. i Þá var útgerð Eld- Gunnar Ólafsson Flóabáturinn Eldborg borginni voru stórir olíu- og vatns- tankar og lestarrými var mikið. Vélin var 400 hestafla Bolinder. Þessi vél var snarvend. Það þýddi að enginn gír var tengdur við vél- ina, og þurfti að drepa á henni og skjóta á hana aftur svo hægt væri að bakka. Olíukyntur gufuketill var um borð sem framleiddi gufu fyrir spil og stýrisvél. Þetta var sterkbyggt og fallegt skip og engan þarf að undra að Borgnesingar féllu fyrir því. Arnfirðingurinn Ólafur Magn- ússon var ráðinn skipstjóri. Hann hafði stundað sjóinn frá blautu barnsbeini, fyrst frá Bfldudal og síðar sem stýrimaður og skipstjóri á bátum frá Sandgerði og Akra- nesi. Nú flutti sjóarinn með fjöl- skyldu sína upp í Borgarnes og tók þar við fyrsta og hingað til eina fiskiskipi Borgfirðinga. Hann var með það næstu 13 árin eða til 1947. Líklega hefur engan grunað þegar Eldborgin kom til landsins hvflíkt æfintýratímabil var framundan, með mokveiði á sfld, stríðsrekstri og strandferðum á mestu umbrotatím- um sem íslenskt þjóðlíf hefur gengið í gegnum.

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.