Fiskifréttir


Fiskifréttir - 31.05.1996, Side 16

Fiskifréttir - 31.05.1996, Side 16
16 FISKIFRÉTTIR föstudagur 31. maí 1996 FISKIFRÉTTIR föstudagur 31. maí 1996 17 Norðmenn á íslandsmiðum Texti: Magnús Þór Hafsteinsson Norðmenn stunduðu árlega fískveiðar á íslandsmiðum samfellt í hundrað ár. Fyrstu vel heppnuðu veiðar þeirra áttu sér stað sumarið 1867 þegar norskur kaupmaður veiddi sfld í net á Seyðis- fírði og saltaði þar í 300 tunnur. Ævintýrinu lauk á árunum eftir 1965 þegar norsk-íslenski sfldarstofninn hrundi. Mest veiddu þeir af sfld, en einnig stunduðu þeir bolfískveiðar, einkum á fyrri hluta þessarar aldar. Norðmenn búa yfir langri hefð sem úthafsveiði- þjóð og fyrstu úthafsveiðiskip þeirra voru skipin sem veiddu á miðunum við ísland. Veiðar og umsvif Norðmanna á íslandi í lok síðustu aldar mörkuðu djúp spor og höfðu án efa víðtæk og hvetjandi áhrif á sögu íslensks atvinnulífs. Erfitt er fyrir nútímamanninn að gera sér í hugarlund þá miklu erfiðleika sem Norðmenn urðu að yfirstíga til að stunda veiðar og vinnslu á fiski á svo fjarlægri og afskekktri eyju sem Island var. Menn sigldu snemma vors á skút- um yfir úfið og miskunnarlaust haf og ferðin gat tekið margar vikur. Bókstaflega allan búnað varð að flytja með heiman frá Noregi. Skipin voru fermd nótabátum, nótum og veiðarfærum, salti, tunnum, smíðavið, kolum, mat- vælum og fleiru, áður haldið var í vestur til móts við óvissuna. Auk þess varð að manna skipin vönum áhöfnum sem kunnu að verka sfld og fara með nætur þar sem slík verkkunnátta var ekki til á meðal íslendinga. Að lokinni vertíð seint á haustin voru skipin fermd með tunnum af saltsfld og menn héldu heim. Allan tímann biðu fjölskyld- ur þessara manna heima í Noregi án þess að hafa í raun hugmynd um hvort þeir væru lífs eða liðnir. Eng- inn ritsími var til á íslandi og sam- göngur vægast sagt stopular til og frá landinu. Hvað rak Norðmenn til íslands? Pað kann að virðast undarlegt að Norðmenn legðu það á sig að sækja alla þessa leið til að veiða sfld. Mikilvæg ástæða fyrir áhuga Norðmanna á íslandi var sú að um 1870 varð aflabrestur á sfld á hefð- bundnum miðum við vesturströnd Noregs. Sfldveiðiskip sem gerð voru út frá síldarbæjum eins og Stafangri, Haugasundi og Björg- vin urðu þá að sækja norður með Noregsströnd, en þar hélst veiðin góð. Floti vestlendinganna gat verið fjarverandi í allt að hálft ár á sfld við norðurhluta Noregs. Norskir kaupmenn sem siglt höfðu kaupförum sínum vestur um haf til íslands snéru aftur heim og sögðu frá mikilli og góðri sfld í fjörðum þar. Þeir höfðu séð miklar sfldar- torfur og stundað tilraunaveiðar í smáum stfl. Síldin var stór og feit og seldist háu verði á mörkuðum. Þegar síldarútvegsmenn í bæjum á vesturströndinni fréttu af þessu vaknaði áhugi þeirra. Aðstaða til neta- og landnótaveiða var góð í fjörðum norðanlands og austan, og þeir hafa líklega hugsað sem svo að þeir gætu allt eins farið þangað og veitt í stað þess að liggja við Norður-Noreg. Þeir áttu góð skip, búnað og höfðu á að skipa mann- skap sem var vanur löngum sigl- ingum og dvöl fjarri heimilum sín- um. Velgengni á Islandsveiðunum fyrstu árin leiddi til þess að Norð- menn flykktust til Islands og byggðu hús og bryggjur. Þegar um- svifin voru sem mest á fyrsta sfld- veiðitímabili Norðmanna á Islandi á árunum 1867 - 1887 voru allt að 180 skip og 1.800 menn viðriðnir veiðarnar. Líklega hafa fslendingar undr- ast það að Norðmenn sæktu svo langa leið yfir hafið til að veiða síld. Enginn ergði sig þó yfir þeim í byrjun. íslendingar kærðu sig lítt um að nýta sfldina, en tóku molun- um sem hrundu af borðum Norð- manna fegins hendi. Peningar voru fátíð sjón hjá almúganum á 19. öld. Umsvif Norðmanna veittu sumum atvinnu, og þeir borguðu leigu af því landi sem þeir þurftu til afnota við verkun sfldarinnar. Yfirvöldin kröfðu þá um svokall- aðan spítalaskatt, sem hljóðaði upp á 27,5 aura á tunnuna. Þetta þótti Norsurunum ósanngjarnt, þar sem hvorki sjúkrahús eða læknar fundust í verstöðvunum, en borguðu þó með semingi. Gód byrjun Eftir frekar hæga, en ágæta byrj- un á áttunda áratug aldarinnar juk- ust umsvif Norðmanna mjög árið 1880. Vertíðin það árið gekk vel. Þeir veiddu í Eyjafirði og í Aust- fjörðum og heildaraflinn varð 115.000 tunnur. 70.000 tunnur fengust í Seyðisfirði og 25.000 tunnur í Eskifirði. Sfldin var seld fyrir hátt verð til ýmissa Evrópu- landa. Útvegsmenn höfðu staðið fyrir verulegum fjárfestingum í tengslum við veiðarnar. Hús og bryggjur voru byggðar, og það var dýrt að halda úti útgerð svo fjarri heimahögunum. Samt skiluðu veiðarnar flestum góðum hagnaði á þessu ári. Forstjóri Kphlers verslunarfyrirtækisins í Stafangri, sem hafði sent skip til íslands, skrifaði: „Þetta byrjunarár var mjög gott - hreinn gróði nam næstum 150.000 krónum. Slíkur árangur gaf áræði og hvatningu til verulegrar stækk- unar fyrirtækisins, svo sem fleiri dýrar nætur, byggingu stórra geymsluhúsa, veruleg innkaup á salti, tunnum og fleiru, og við bættust ný gufuskip fyrirtækisins, usteinum. Svipað gilti um húsin. Ekki reyndu þó allir að koma sér undan lögunum og margir Norð- menn fluttust til Islands á þessum árum. Til dæmis voru 8 til 10 norsk- ar fjölskyldur búsettar á Seyðis- firði árið 1883. Aflabrestur á hefðbundnum sfldarmiðum við vesturströnd Noregs varð þess vald- andi að Norðmenn hófu sfldveiðar við ísland á ofanverðri 19. öld. Teikningin sýnir síldveiðar í norsku fjörðunum. Skúturnar voru margar glæsilegir farkostir undir fullum seglum. Norðmenn stunduðu fiskveiðar á íslandsmiðum samfellt í hundrað ár: Allt að 180 norskar skútur í senn á síldveiðum við ísland — á fyrsta síldveiðitimabili Norðmanna hér við land á árunum upp úr 1880 sem áttu að draga næturnar frá firði til fjarðar og flytja væntanleg- an afla heim“. 150.000 norskar krónur voru geypifé á þessum ár- Gróðavonir brugðust arnar urðu mjög dýrar. Þó að aldrei hefði veiðst jafn mikið af sfld í tunnum talið, var árangurinn ekki í samræmi við sóknina. Ein- ungis öfluðust 93 tunnur á mann, Arið lögðu eftir Norð- menn enn meira undir. Nótalið- um, skipum og mönnum var stórfjölgað (sjá töflu), og út- vegsmenn gerðu nýja samninga við landeigend- ur á íslandi um að fá aðstöðu og leyfi til að byggja hús í landi þeirra. Nú skyldi aldeilis grætt á tá og fingri. Tugum saman voru fullbún- ar skútur dregnar út fyrir norska skerjagarðinn, áður en segl voru sett upp og stefnan tekin í norð- vestur, en gróðavonirnar brugð- ust. Hafís var við ströndina vorið 1881 og sjórinn mjög kaldur. Fyrsta síldin kom ekki inn á Austfirði fyrr en í júlí, og hún var horuð og léleg. Aflabrögð voru dræm á Austfjörð- um, en góð haustvertíð í Eyjafirði bjargaði miklu. Alls var saltað í 167.000 tunnur þetta árið, en veið- Sfldveiðar. Norsk teikning frá árinu 1900. samanborið við 192 tunnur árið áður. Þetta ár var upphaf langvar- andi harðindatímabils sem átti eft- ir að leika bæði íslendinga og Norðmenn grátt. íslendingar spyrna við fótum Arið 1882 settu íslensk stjórn- völd hömlur á starfsemi Norð- manna, en margir voru farnir að líta það hornauga að útlendingar gætu hreiðrað um sig í landinu eins og Norðmenn höfðu gert. Þess var nú krafist að til að fá leyfi til veiða við ströndina yrðu menn að vera skráðir borgarar á íslandi eða í Danmörku. Fjölmargir norskir útvegs- menn áttu hús á íslandi. Þeir urðu nú að sjá til þess að fólk byggi í þessum húsum allan árs- ins hring. Ef þeir gátu ekki búið þar sjálfir, urðu þeir að út- vega ábúanda, og færa eignina yfir á hann á pappírnum. Meiri harðindi Þetta ár var enn kaldara en hið fyrra og hafísinn lá við landið langt fram eftir sumri. I lok júní komust nokkur skip vestur fyrir Langanes og lögðust við festar nálægt mynni Eyjafarðar, þar sem þau komust ekki inn fjörðinn vegna íss. Skipin neyddust til að liggja þar í fjórar vikur, þar til losnaði um ísinn í firðinum og þau komust naumlega inn til Akureyrar. Þá brast á lang- varandi norðanátt og fjörðurinn fyllist aftur af ís. Skúturnar lokuð- ust inni og komust ekki út fyrr en í lok september. Þetta sumar voru aflabrögð mjög léleg á Austfjörð- um og haustvertíðin misheppnað- ist á Eyjafirði. Skipin héldu heim með rýran afla og mörg með salt og tómar tunnur um borð. Margir höfðu bundið mikið af fjármagni í síldveiðunum á Islandi. Þó að verð héldist hátt á sfld, leiddi aflabrest- urinn til þess að margir töpuðu stórt. Skriða gjaldþrota reið yfir sfldarspekú- lanta í Vestur- Noregi veturinn eftir. Meðal þeirra var Kphler fyrirtæk- ið sem nefnt var hér að ofan. góð, en vel veiddist í Eyjafirði. Þar náðist sfld í 65.000 af þeim 103.900 tunnum sem saltað var í þetta árið. Flestir sluppu frá vertíðinni réttu megin við núllið, en hún gat engan veginn jafnast á við metárið 1880. Síldarsjómenn höfðu oft orðið varir við mikið af hval við ísland. Fréttirnar spurðust út og þetta sumar mættu norskir hvalveiði- menn til leiks. Byggðar voru hval- Reiðarslag á Eyjafírði Vertíðin sumarið 1884 byrjaði vel. Þokkaleg veiði var á Aust- fjörðum um sumarið, einkum fyrri hluta sumarsins. I ágúst fóru menn að huga að haustvertíð á Eyjafirði. Sú vertíð fékk hins vegar snubbótt- an endi og er nánar greint frá or- sökum þess annars staðar í blað- inu. Sfldarverð fór nú óðum lækk- andi og atvinnulíf útgerðarbæja í vestur Noregi lenti í djúpum öldu- dal. Verst var ástandið í Hauga- sundi og í Stafangri, en þaðan voru flest skipanna sem lentu í hremm- ingunum á Eyjafirði. Margir reyndu nú að hætta öllum umsvif- um á íslandi og seldu eigur sínar þar. Sumarið 1885 héldu rúmlega helmingi færri menn til veiða við ísland en árið áður. Illa aflaðist á Austfjörðum um sumarið og Eyja- fjarðarveiðarnar brugðust (sjá grein). Nú fóru jafnvel þeir þraut- seigustu að missa trúna á sfldveið- um við Island og reyndu að losa sig við eignir sínar þar. Sömu sögu var að segja í Reyðarfirði. Sfldarsjó- menn sem höfðu orðið eftir til vetrardvalar þar veiddu mikið af stórri og feitri sfld í net í nóvemb- er. Nú virtist augljóst hvert stefndi. Enn eitt aflaleysisárið rann skeið sitt á enda og síldarverð lækkaði enn á mörkuðum. Kafíaskipti Upp úr þessu flosnuðu flestir Norðmannanna upp frá Islandi. Umsvif þeirra minnkuðu ár frá ári og sumarið 1892 komu engin nóta- lið frá Noregi til veiða við ísland. Einu Norðmennirnir sem stund- uðu sfldveiðar Sfldveiðar Norðmanna við ísland 1879-1886 Fjiildi núliiliða Fjöldi skipa Földi manna Síldar- tunnur Tunnur á mann 1879 1880 1881 1882 1883 1884 1885* 1886 9 76 187 155 157 143 83 30 72 678 1799 1590 1807 1625 776 237 3.000 115.000 167.600 65.000 103.900 20.100 24.700 2.900 42 192: 93 41 58 12 32 12 Sókn er besta vörnin Menn létu ekki andstreymið buga sig og árið 1883 voru fleiri menn sendir til síldveiða en nokkru sinni fyrr. Norðmenn höfðu nú komið sér upp 33 bæki- stöðvum á Austfjörðum og í Eyja- firði með bryggjum, pakkhúsum og íbúðarhúsum. Slíkar fjárfest- ingar var ekki hægt að gefa upp á bátinn baráttulaust. Vertíðin við Austfirði var ekkert sérstaklega *Tölur 1885 ná ekki yfir skip frá Stafangri en þaðan komu fjögur skip með samtals 120 mönnum. landið menn flust til ís- veiðistöðvar við Norðfjörð og í Álftafirði við ísafjarðardjúp. Gagnrýni ýmissa íslendinga á umsvif Norðmanna á íslandi varð sífellt háværari. Ekkert eftirlit var með veiðunum og Norðmenn gátu nánast gert það sem þeim datt í hug. Margir þeirra beittu fyrir sig íslenskum leppum sem skráðir voru fyrir veiðunum svo þeir gæti stundað þær óhindrað uppi í fjör- við voru sem höfðu lands og byggt upp atvinnu- starfsemi hér. Norðmenn gleymdu þó ekki sfldaræv- intýrunum við þessa óblíðu eyju vestur í hafi. Hér lauk einungis fyrsta kaflanum í síldarsögu Þegar leið að þeir að sækja þeirra við ísland. aldamótum fóru hingað á nýjan leik, og umsvif þeirra áttu eftir að aukast á ný á öldinni sem nú fór í hönd. En það er önnur saga. Heimild Kari Shetelig Hovland: Norske seil- skuter pá Islandsfiske. Universit- etsforlaget, 1980. — Grípið niður í nokkur bréf sem norskir sjómenn sendu heim Mörgum hinna erlendu gesta þótti ísland kyndugt land. Sumarið 1880 skrifaði skipstjóri einn frá Stavangri sem staddur var í Mjóafirði heim: „ísland er í niínum auguni nijiig magurt land, þar sem fátt er að sjá annað en grjót og háa kletta. Fólkið býr í jarðhýsum, og þar sem ég hef komið inn líkjast húsakynnin einna helst rottuholum, þau eru einungis stærri um sig“. Ærslast og drukkið með prestinum Annar Stavangursmaður situr þetta sumar við bréfaskriftir í Seyðisfirði, þar sem hanrt hefur stundað síldveiðar í sjö vikur: „Einungis á sumrin, frá miðjum maí til 9. septcmber, er staðurinn í póstsambandi við umheiminn. Þrír kaupmenn eru hér í firöin- um. cinn i'rá Kaupmannahöfn og tveir íslenskir. Hér búa prestur og sýslumaður en að öðru leyti cinungis fátækir fiskimenn. Presturinn þjónar tveimur sókn- um, Mjóafirði og Seyðisfirði. í Mjóafirði messar hann þrisvar á ári, aðeins þegar fólk kemur af og til sjóleiðina eða landleiðina til kirkju og þá aðallega til þess að ærslast og drekka mcð prest- inum. Hann fer og kaupir brenni- vín í blikkbrúsa sem rúmar fimm potta. Hitti liann kunningja á lciðinni drekka þeir og kyssast síðan eins og siður cr hér". Síðar segir brcfritari: „Þurrabúðarfólk hér Jifir mjög báglega, á veturna skríður það í hýði sitt eins og bjarndýr. Þá lifir það að mestu á þurrum fiski (ósoðnum) og brauöi; meö þessu notar það samanbrædda tólg og lýsi. Sem eldivið notast fólkið við torf og þurrkað sauðatað. Þetta er scr- staklega vinsamlegt og gestrisið fólk". Húrra fyrir Norðmönnum Norðmaður frá Haugasundi, hefur stundað síldveiðar í Eskif- irði sumarlangt, skrifar nú bréf heim. Hann segir að á íslandi sé hráslagalegt og kalt, en fólk „vin- samlegt og got“. í bréfinu lýsir hann útreiðatúr sem hann fór í eina helgina ásamt tveimur félög- um sínum og íslenskum prentara, Guðmundi Sigurðssyni að nafni. Þeir lögðu af stað frá Eskifirði laugardagskvöld eitt klukkan 22. Fyrst héldu þeir yfir hátt fjall og eftir það yfir hæðir og um djúpa dali. Eftir fimm tíma lcrð riðu þeir í hlað bæjar sem hét Þórðar- staðir. Þeim var vel tekið þótt þeir kæmu um miöja nótt. Góður matur var reiddur fram og hest- unum gefið hey. Ferðalangarnir hvfldust í þrjár klukkustundir á Þórðarstöðum. Síðan héldu þeir áfram og riðu rúma 40 kflómetra þar til þeir komu til byggðar með mörgum bæjum. Þeim var alls staðar vel tekið. Þeir sprettu af klárunum í túngaröi einum og ljöldi íslendinga, aldnir jafnt sem ungir, kom ríðandi þangað til að líta gcstina augum, rabba viö þá og heyra um „Norðmannanna stórfenglega land". íslending- arnir sögðu hinum erlendu gest- um hinsvegar sagnir úr ísiend- ingasögunum. Klukkan átta á sunnudag- skvöld hófu ferðalangarnir heim- ferðina til Eskifjarðar. Þrjátíu og fimm íslendingar fylgdu þeim rfðandi langleiðina til baka. Loks kom að því að ísiendingarnir yróu að snúa heim og þá segir í bréfinu: „Fylgdu þeir okkur cftir með löngun í augnaráöinu tncð- an þbir hrópuðu í kór: Húrra, húrra fyrir hinum norsku bræðr- um okkar". Klukkan var orðin fimm á mánudagsmorgni þegar félagarnir náðu aftur niður til Eskifjarðar hinir ánægðustu með íerðalagið.

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.