Fiskifréttir - 03.10.1997, Qupperneq 2
2
FISKIFRÉTTIR föstudagur 3. október 1997
Einar Guðmundsson, trillukarl á Ljúfi BA 302:
Þorskurinn getur verið
skaðvaldur á grunnslóðinni
Aflabrögð smábáta á síðasta fiskveiðiári voru með miklum ágæt-
um enda hefur þorskgengd ekki verið meiri í lengri tíma og eins var
tíðarfar yfírleitt hagstætt á miðum smábátamanna. Nú eru hins
vegar blikur á lofti hjá smábátamönnum sem róið hafa með hand-
færi og línu í sóknardagakerfínu. Þeim hefur verið úthlutað 26
sóknardögum á fiskveiðiárinu, sem er nýhafið, og samkvæmt því má
gera ráð fyrir því að sókn þessa bátaflokks minnki um 70% á milli
ára. Einar Guðmundsson, trillukarl á Seftjörn á Barðaströnd, segist
þó í samtali við Fiskifréttir ekki hafa nokkra trú á því að þetta verði
niðurstaðan. Einar hefur róið með króka og stundað grásleppu-
veiðar um áratugaskeið og hann segir þorskgengdina í sumar hafa
verið með ólíkindum mikla.
Fréttir
LS um kjör sjómanna
á smábátum:
Ekki lakarí
en á bátum
yfir 12 brí.
Á stjórnarfundi Landssam-
bands smábátaeigenda, sem
haldinn var í sumar, var sam-
þykkt að fela stjórn sam-
bandsins að gera leiðbeinandi
samninga um launakjör og
ráðningu manna á smábáta.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
LS, segir að þetta mál hafi fyrst
verið tekið upp á 12. aðalfundi
sambandsins og hafi það verið
samþykkt á stjórnarfundinum að
þeim, sem leiti til skrifstofu LS
varðandi kaup og kjör á smábát-
um, verði tilkynnt að kjör sjó-
manna á þessum bátum séu ekki
lakari en kveður á um í samningi
LÍÚ og SSÍ um kjör sjómanna á
bátum yfir 12 brúttórúmlestum.
Ráðstöfun botn-
fiskafia:
Fjórðung-
ur unn-
inn á sjó
Hlutdeild frystitogara í heild-
arbotnfískaflanum hefur
verið að aukast jafnt og þétt
frá því að þeir fyrstu komu
inn í veiðar og vinnslu fyrir
rúmum áratug. Á síðasta ári
nam hlutur þeirra rúmum
22%. Fyrstu 8 mánuði þessa
árs er hlutfall vinnsluskipa
áætlað um 25% að meðtöld-
um karfaveiðum á Reykjan-
eshrygg og afla í Smugunni,
sem varð mun minni en síð-
ustu ár.
Þetta kom fram á aðalfundi
Samtaka fiskvinnslustöðva. Á
sama tíma og vinnsluskipum hefur
vaxið ásmegin hefur útflutningur á
ferskfiski verið að dragast saman.
Þegar þessi útflutningur náði há-
marki fyrir sjö árum varð gáma-
fiskuruml8% af botnfiskaflanum,
en fyrstu átta mánuði þessa árs er
hlutfallið 6%. Nær alveg hefur tek-
ið fyrir útflutning á óunnum ufsa á
erlendan markað og útflutningur á
karfa heldur áfram að minnka.
- Ég er búinn að stunda grá-
sleppuveiðar í þrjátíu ár en ég
varð þó að sleppa síðustu vertíð.
Ég taldi mig ekki hafa krafta í
það enda var þetta í fyrsta skipti
sem ekkert af börnunum er
heima en þau hafa róið með mér
á grásleppuveiðunum fram að
þessu, segir Einar en hann og eig-
inkona hans eiga átta börn og
hafa börnin öll aðstoðað föður
sinn við grásleppuveiðarnar.
Yngsta dóttir þeirra hjóna, sem
er á 21. aldursári, hefur róið með
karli föður sínum síðustu sex grá-
sleppuvertíðar en hún var er-
lendis og því ákvað Einar að
sleppa grásleppuveiðunum að
þessu sinni.
— Það hefur verið fínt að hafa
krakkana með sér í þessu. Þau
hafa fjármagnað skólagöngu sína
með grásleppupeningunum og
það hefur gert þeim gott að fást
við sjómennskuna, segir Einar.
Þorskurinn var
úttroðinn af seiðum
Einar gerir nú út smábátinn
Ljúf BA 302 frá Brjánslæk en
hann býr á Seftjörn skammt frá
höfninni. Áður gerði Einar út tvo
smábáta í félagi við son sinn sem
nú er fluttur til Grindavíkur með
annan bátinn.
— Ég hef róið með handfæri í
sóknardagakerfinu og nýliðið
fiskveiðiár var mjög gott. Ég
fékk alls 80 tonn af þorski í 81
róðri og þó missti ég af mestu
aflahrotunni í júlí vegna vélarbil-
unar. Sl. haust var mjög gott og
aflinn var mjög jafn og góður í
sumar. Þorskgengdin hefur verið
með ólíkindum tvö sl. ár og
þorskurinn hefur gengið inn um
alla firði. I sumar fékk ég t.d.
góðan afla, stóran og fallegan
þorsk, um 200 metra frá landi
beint út af Flókalundi í Vatnsfirði.
Það man ég ekki til að hafi gerst
áður og reyndar var þorskveiðin
orðin ákaflega léleg fyrir nokkrum
árum. Ég segi ekki að það hafi
verið ördeyða en aflabrögðin voru
ekki upp á marga fiska, segir Einar
en þótt aukin þorskgengd gleðji
veiðimenn við Breiðafjörð og víð-
ar þá bendir Einar á að of stór
þorskstofn geti reynst öðrum fisk-
tegundum skeinuhættur.
— Þorskurinn í sumar var út-
troðinn af kola- og lúðuseiðum í
sumar og á meðan grásleppuver-
tíðinni stóð var hann greinilega að
éta þorsk- og grásleppuseiði og
það í engum smáskömmtum. Ég
ætlaði ekki að trúa mínum eigin
augum þegar ég var að gera að
þorskinum í sumar því í sumum
þorskmögunum voru tugir ef ekki
hundruð flatfiskaseiða. Þorskur-
inn var greinilega mikill skaðvald-
ur á grunnslóðinni í sumar og mér
kom ekki á óvart þegar ég las um
það í Fiskifréttum að rækjuveiði-
menn við Eldey hefðu áhyggjur af
þorskgengdinni, segir Einar.
Þurfa að borga 30
krónur með þorskkílóinu
Einar var á handfæraveiðum á
meðan grásleppuvertíðinni stóð og
þótt hann segist gjarnan hafa viljað
stunda grásleppuveiðarnar þá sé
hann hálft í hvoru feginn að hafa
losnað við þá samviskuklípu sem
hann segir grásleppukarlana hafa
verið setta í nokkur undanfarin ár.
— Þegar þorskgengdin er jafn
mikil og raun ber vitni þá komast
menn ekki hjá því að fá þorsk í
grásleppunetin. Þetta er misjafn-
lega gott hráefni eftir því hve
gamall þorskurinn er þegar netin
eru dregin en þó held ég að flestir
hafi getað fengið um 60 krónur
fyrir kílóið af þorskinum. Lögum
samkvæmt ber öllum að koma með
allan afla að landi en hafa verður í
huga að flestir þeir, sem stunda
grásleppuveiðar, eiga enga bol-
fiskkvóta. Ýmist eru þeir bara á
grásleppuveiðum eða að þeir
stunda krókaveiðar án aflamarks á
öðrum árstímum. Grásleppukarl,
sem á engan kvóta, þarf því að
leigja kvóta fyrir þorskaflanum,
sem slæðist í grásleppunetin, og á
þessum tíma var leigukvótaverðið
90 krónur fyrir kílóið. M.ö.o. grá-
sleppukarlarnir þurfa að borga 30
krónur með hverju þorskkílói, sem
villist í netin hjá þeim, til þess að
brjóta ekki gegn landslögum. Það
er ekki nema von að menn spyrji;
eru þetta nú skynsamleg lög? Svari
hver fyrir sig. Ég spurði einn emb-
ættismanninn í sjávarútvegsráðu-
neytinu um daginn hvað hann
myndi gera í sporum þessara
manna. Það varð fátt um svör, seg-
ir Einar en hann segir að til þess að
hægt sé að stunda grásleppuveið-
arnar í framtíðinni án þess að grá-
sleppukarlarnir eigi það á hættu að
þorskurinn setji þá á hausinn eða
valdi þeim sálarkreppu, þá þurfi
hver bátur á grásleppuveiðum að
fá fimm til tíu tonna þorskkvóta.
Afrakstur af auðlindinni
rennur til
fj ármagnseigendanna
Einar segir kvótakerfið vera
komið út í algjöra vitleysu og hann
undrast að alþýða manna skuli
ekki fyrir löngu hafa risið upp til
þess að mótmæla þróun undanfar-
inna ára.
— Það er ekkert sem kemur í
veg fyrir að fámenn fjármálaklíka
eignist allar veiðiheimildir í land-
inu. Þessir aðilar eru í dag að leigja
frá sér aflaheimildir dýrum dóm-
um og afraksturinn af auðlindinni
rennur í vasa fjármagnseigend-
anna. Það hafa á öllum tímum
verið að alast upp efnilegir fiski-
menn hérlendis en þessir ungu
menn eiga í dag enga möguleika
vegna þess að stærstur hluti afla-
heimildanna hefur færst til örfárra
fyrirtækja. Það er talað um að fisk-
veiðiheimildirnar leggi sig á eina
160 milljarða króna en hverjir
njóta ávinningsins? Ekki eru það
menntastofnanir landsins sem nú
berjast í bökkum. Mín skoðun er
sú að það væri betra að verja þess-
um fjármunum til þess að efla
menntun í landinu og skynsam-
legast væri ef drjúgur hluti þeirra
rynni beint til Háskóla íslands.
Danir styrkja fólk til náms og
treysta því að fá fjármagnið til
baka £ formi aukinna skatttekja
frá velmenntuðu og vellaunuðu
fólki en Islendingar eru svo sam-
ansaumaðir hvað varðar námslán
að fjöldi fólks hefur orðið að
hrökklast frá námi.
Þingmenn láta ekki
rústa byggðarlögunum
Sem fyrr segir er Einar í hinu
svokallaða sóknardagakerfi
krókabáta. Á þessu ári mátti
hann róa í 84 daga en á yfirstand-
andi fiskveiðiári hafa stjórnvöld
skammtað honum og félögum
hans 26 sóknardaga.
— Ég hef enga trú á því að
þettaverði niðurstaðan. Ef þessu
verður ekki breytt á allra næstu
dögum þá hlýtur það að gerast á
Alþingi í haust. Ég hef enga trú á
því að þingmenn horfi þegjandi
upp á það að verið sé að rústa
byggðarlög um land allt með
þessum hætti. Menn hafa verið
að kaupa báta, sem kosta 14-15
milljónir króna, til þess að geta
róið í sóknardagakerfinu en nú
eiga þessir menn að fá 26 daga til
þess að ná endum saman. Það er
alltaf verið að tala um að króka-
karlarnir séu að taka eitthvað frá
öðrum. Á fundi, sem við smá-
bátakarlar héldum á Patreksfirði
fyrir skömmu, lagði ég til að
þetta mál yrði skoðað niður í
kjölinn og allir þættir málsins
yrðu teknir til athugunar. Spurn-
ingin er einföld. Hvernig fær
þjóðfélagið mest út úr auðlind-
inni? Hver rennur afraksturinn í
dag? Fer hann til fjármagnseiga-
ndanna, banka og lánastofnana
eða fer hann til uppbyggingar at-
vinnulífs í byggðum landsins? Ég
vil láta skoða allar veiðar og ef
það kemur í ljós að eitt veiðarfæri
er þjóðhagslega hagkvæmara en
annað þá finnst mér að það eigi
að taka mið af því. Ég kvíði ekki
samanburðinum hvað króka-
veiðarnar varðar og ég veit að
Alþingi mun aldrei samþykkja
það að fórna þeim til þess að fjár-
magnseigendurnir geti grætt enn
meira en þeir hafa gert fram að
þessu, segir Einar
Guðmundsson.
Útgefandi: Fróöi hf.
Héðfnshúsinu, Seljavegi 2,
101 Reykjavík
Pósthólf 8820,128 Reykjavík
Sírhi: 515 5500
Ritstjóri og ábyrgöarmaður:
Guöjón Einarsson
Ritstjórnarfuiltrúi:
Eiríkur St. Eiríksson
Ljósmyndarar:
Gunnar Gunnarsson
Hreinn Hreinsson
Auglýsingastjóri:
Hertha Árnadóttir
Rítstjórn:
Sími515 5610
Telefax 515 5599
Augiýsingar:
Simí 515 5558
Telefax 515 5599
Áskrift og ínnheimta:
Simi 515 5555
Telefax515 5599
Stjórnarformaöur:
Magnús Hreggviösson
Aöairitstjóri:
Steinar J. Lúövíksson
Framkvæmdastjóri:
Halldóra Viktorsdóttir
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Grafik hf.
Áskríftarverð: 3.984 kr. m.vsk. sept.-des. 1997
Hvert töiublað í áskrift 249 kr. m.vsk.
Þeir sem greiöa áskrift með greiðslu-
korti fa 10°v afslátt. þannig aö áskriftar-
verö verður 3.586 kr. fyrir ofangreint
tímabil og hvert tölublað þá 224 kr.
Lausasöluverð 349 kr, Atlt verð m.vsk.
Handbókin SJÁVARFRÉTTIR fylgir
áskrift að Fiskifréttum. en hún kemur
út í byrjun september ár hvert.
ISSN 1017-3609