Fiskifréttir


Fiskifréttir - 03.10.1997, Síða 3

Fiskifréttir - 03.10.1997, Síða 3
FISKIFRÉTTIR föstudagur 3. október 1997 3 Frettir Skelveiðar kúffiskveiðiskipsins Skeljar ÍS ganga vel: Aðalvíkin er okkar besta veiðisvæði — segir Bjarni Harðarson skipstjóri — Þetta hefur gengið alveg þokkalega hjá okk- ur. Við reynum að dreifa veiðinni skynsamlega á fírðina og víkurnar hér fyrir norðan og fram að þessu höfum við verið með 40 grindur í túr eða sem svarar 56 tonnum, segir Bjarni Harðarson, skip- stjóri á kúffiskveiðibátn- Fengu tvo þorska í skelplóginn Veiðisvæðin eru misjöfn að sögn Bjarna. Hann segir Aðalvíkina bera af að því leyti að þar sé stærsta veiðisvæðið og þar og í Arnarfirði hafi besta kúfskelin fengist fram að þessu. Hins vegar sé skelin stærst í Fljótavík. — Skelin er mjög misjöfn eftir veiðisvæðum bæði hvað varðar stærð og lit. Þaö er nauðsynlegt að dreifa sókninni þannig að veiði- álagið verði ekki of mikið og því er mikill munur áþví eftir dögum hve langt er róið. í dag vorum við að veiðum hér í Önundarfirði og þá er aðeins tíu mínútna sigling á miðin. Lengst þurfum við að fara eftir skelinni norður í Hornvík en þang- að höfum við ekki farið fram að þessu, segir Bjarni er Fiskifréttir ræddu við hann sl. mánudag hafði Skel ÍS fengið óvæntan aukaafla þá um morguninn. — Við fengum tvo þorska í plóg- Skel ÍS inn og það hefur ekki gerst áður á þessum veiðum eftir því sem ég veit best. Ég var á Æsunni og við fengum aldrei þorsk í plóginn. Ætli þetta sé ekki bara til marks um þá miklu þorskgengd sem sjó- menn hafa verið að greina frá um nokkurt skeið. Mér þykir það sennilegasta skýringin, segir Bjarni Harðarson. um Skel ÍS 33, í samtali við Fiskifréttir en Bjarni og skipverjar á Skel ÍS hafa nú stundað skelveiðarnar í um hálfan annan mánuð. Við eigum efíir að rannsaka gríðarstórt veiðisvæði Það er Vestfirskur skelfiskur á Flateyri, sem gerir Skel ÍS út til veiðanna, og er kúfskelin unnin í verksmiðju fyrirtækisins. Skel ÍS var keypt til landsins frá Banda- ríkjunum og kom skipið til Flateyr- ar í lok júní sl. Það er 13 ára gamalt, 36,8 metra langt og 8,7 metra breitt, og kostaði það alls um 100 milljónir króna að með- töldum breytingum sem gera þurfti á því. Skel ÍS er með 12 þús- und tonna kvóta á kúfskel í fjörð- um fyrir vestan auk þess sem það hefur leyfi til veiða í Breiðafirði. Háþrýstidæla skilur sandinn frá skelinni Að sögn Bjarna fara veiðarnar þannig fram að plógur er dreginn eftir botninum en kúfskelin er grafin í botnlaginu. Til þess að forða því að plógurinn fyllist af sandi og drullu er notuð mjög öflug háþrýstidæla og skilur hún skelina frá botnlaginu. Aflabrögðin eru reiknuð í grindum, en grindur þessar eru notaðar til að geyma skelina á í lestum skipsins, en ein grind samsvarar 1420 kílóum af skel. Segir Bjarni að hægt sé að ná allt að tveimur grindum í sköfu eða tæpum þremur tonnum þegar best lætur. — Við höfum rými fyrir alls 54 grindur í lestinni og við getum því alls komið með tæp 80 tonn af skel að landi í einu. Fram að þessu höf- um við þó ekki tekið meira en 40 grindur eða 56 tonn í hverri veiði- ferð. Við höfum verið að þreifa okkur áfram með veiðarnar og eins hefur vinnslan í landi þurft ákveðinn aðlögunartíma. Ég reikna þó með því að við förum að beita okkur af fullum krafti áður en langt um líður, segir Bjarni. — segir Guðlaugur Pálsson framkvæmdastjóri Vestfirsks skelfisks — Þetta er allt að smella saman hjá okkur. Við höfum starfrækt kúffiskvinnsluna í einar fimm vik- ur og vinnslan hefur gengið mjög vel. Afkastagetan er um 80 tonn á sólarhring miðað við átta tíma vinnudag en við erum að vonast til þess að hægt verði að taka upp tvískiptar vaktir þegar fram líða stundir og ef kvótinn verður auk- inn þá er það alveg inni í myndinni að bæta við öðru skipi, segir Guð- laugur Pálsson, framkvæmdastjóri Vestfirsks skelfisks á Flateyri. Guðlaugur segir að töluverður tími hafi farið í að slípa vinnsluna og veiðar Skeljar IS en nú séu allir byrjunarörðugleikar að baki. Fyrirtækið hafi haft góða reynslu af vinnslu á kúffiski á meðan Æsa ÍS sá verksmiðjunni á Flateyri fyrir hráefni og tekist hafi að ná tökum á vandkvæðum sem tengdust of- næmi á meðal starfsmanna verksmiðjunnar vegna kúffisk- vinnslunnar. Ofnæmisviðbrögð af þessu tagi eru þekkt í kúffisk- vinnslu víðar og er þess skemmst að minnast að fyrr á þessu ári þurfti að loka kúffiskverksmiðj- unni á Þórshöfn vegna þessa kvilla. Vestfirskur skelfiskur fékk út- hlutað 12 þúsund tonna kvóta á veiðisvæðum fyrirtækisins en Guð- laugur segir að í raun sé aðeins búið að taka út sex firði og víkur á Vestfjörðum með tilliti til kúffisk- veiðanna. Veiðisvæðin séu í Arn- arfirði, Dýrafirði, Önundarfirði, einum Jökulfjarðanna, Aðalvík og Fljótavík. Veiðar hafi enn ekki verið reyndar utan þessara veiði- svæða. — I raun er ákaflega lítið vitað um ástand kúfskeljarstofnsins hér við land en miðað við reynslu ann- ars staðar í heiminum þá mun það sennilega taka okkur tugi ára að komast yfir að rannsaka miðin. í Bandaríkjunum eru veiðarnar t.d. aðallega stundaðar úti á rúmsjó, í 17-18 tíma siglingu frá landi, en hér heima erum við aðeins að nýta nokkra firði. Bandaríkjamenn veiða 167 þúsund tonn af kúfskel á ári og það er ótrúlegt annað en að hér verði hægt að auka veiðarnar verulega á komandi árum. Við lít- um því á þennan 12 þúsund tonna kvóta sem byrjunarkvóta sem hægt verði að auka við eftir því sem rannsóknir og veiðireynslan auk- ast, segir Guðlaugur. Skel IS hefur landað 56 tonnum af kúfskel á degi hverjum fimm daga vikunnar en fyrirhugað er að auka veiðarnar þannig að skipið komi með fullfermi, tæp 80 tonn, að landi eftir hverja veiðiferð. Nú starfa um 25 manns við kúffisk- vinnsluna og fimm manns eru í áhöfn Skeljar IS og eru forráða- menn Vestfirsks skelfisks bjartsýn- ir á að hægt verði að fjölga starfs- fólki til muna á komandi árum. Erlent Breytt kvótakerfi í Noregi: Raunvirði fiskiskipa snarhækkar Hjóðlát bylting hefur orðið innan norska kvótakerfisins. Kvótar eru orðnir að verslunarvöru og fyrir vikið hefur orðið mikil hækkun á raun- verði fiskiskipa. Fyrir nokkrum misserum ákváðu stjórnvöld að leyfa útgerðarmönnum að slá saman veiðileyfum og kvótum einstakra skipa. Útgerðir stærri nótaskipa og togara geta nú keypt skip og yfirfært veiði- leyfi þess og kvóta yfir á sitt skip. Helsta skilyrðið er að skipið sem kvótinn er tekinn af, sé afskráð og fjarlægt úr norska fiskiskipaflotanum. Með þessu óskuðu stjórnvöld að draga úr fjölda fiskiskipa og auka hagkvæmni flotans. En þetta hefur einnig leitt til þess að útgerðar- menn í Noregi eru nú farir að líta á kvótana sem slíka eign, og versla með þá sín á milli dýrum dómum. Þess eru dæmi að gömul nótaskip sem í mesta lagi eru um 500 millj. ísl. kr virði hafi að undanförnu selst á tvöfalt hærra verði. Þar eru menn ekki að borga fyrir skipin sjálf, heldur veiðileyfi þeirra og rétt til kvóta. Svipuð dæmi finnast í togaraflotanum. Norska dagblaðið Norðurljós telur að um 80 prósent af makríl sem veiddur er af norskum skip- um, 60 prósent af síld, og rúmlega 30 prósent af þorski og ýsu tilheyri nú skipum sem heimilt er að flytja kvóta á milli. Útgerðarmenn líti á kvóta þessara skipa sem sína eign. Þar með hafi Norðmenn stigið stórt skref í þá átt að taka upp kerfi með framseljanlegum kvótum á borð við það sem er á íslandi. Blaðið telur að kvótar stærri nóta- skipa, sem eru um hundrað talsins, séu allt í einu orðnir samtals um 40 milljarða íslenskra króna virði. Fyrir tveim árum datt engum í hug að spá í kvóta þegar samið var um verð á notuðum skipum. Aður var fjölda skipa stjórnað meðútgáfuveiðileyfa. Skipinvoru flokkuð eftir ákveðnum skilgrein- ingum, annað hvort eftir stærð eða tegund. Kvótum var síðan skipt jafnt milli hinna einstöku skipa- flokka eftir fyrirfram ákveðnu kerfi. Kvótaréttindin voru ekki eign útgerðanna og bannað var að stunda verslun með kvóta. Þannig var reynt að úthluta fiskinum í sjónum á sem réttlátastan hátt, án þess að útgerðarmönnum gæti gef- ist kostur á að gera fjármuni úr honum áður en hann væri veiddur. Þannig er þetta ennþá, að minnsta kosti í orði. En reyndin er í raun orðin önnur á borði. Sjávarfréttir að koma út Híindbókin Sjávarfréttir 97/98 er að konia úr prentvinnslu og verður hún póstsend til áskril'- enda Fiskilrétta á næstunni. Öðrum er boðin bókin til kaups. Þá er skipaskrá og kvótaskrá bókarinnar fáanleg á tiilvutæku forrni.

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.