Fiskifréttir - 03.10.1997, Page 4
4
FISKIFRÉTTIR föstudagur 3. október 1997
Fréttir
Góð grálúðuveiði á línuna 150 mílur úti á Reykjaneshryggnum:
Sigurfari ÓF með fullfermi
að verðmæti 21 millj. króna
— eftir aðeins 14 daga að vesðum
# p€DROLLO'
alhliða brunndælur
til lands og sjávar
Margar gerðir og stærðir fyrir-
liggjandi. Mjög hagstætt verð.
Leitið nánari upplýsinga.
VÉLASALAN EHF.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 552 6122.
Mjög góð grálúðuveiði hefur verið
á línu djúpt vestsuðvestur af
Reykjanesi að undanförnu. Byr
VE hefur stundað þessi mið frá því
í sumar og fengið góðan afla og um
síðustu helgi kom Sigurfari ÓF til
hafnar með fullfermi, 68 tonn af
frystu, eftir aðeins 14 daga á veið-
um. Aflaverðmætið var um 21
milljón króna eða ríflega 1200 þús-
und krónur á úthaldsdag í þessari
tæplega 18 sólarhringa löngu veiði-
ferð.
Að sögn Einars Númasonar,
fyrsta stýrimanns og afleysinga-
skipstjóra á Sigurfara ÓF, byrjaði
veiðin fremur rólega en síðan var
algengur afli um fimm til sex tonn
af grálúðu á sólarhring. Mest feng-
ust um 8,5 tonn af grálúðu eftir
sólarhringinn að verðmæti ríflega
2,5 millj. króna. Veiðisvæðið var
um 150 mflur vestsuðvestur af
Reykjanesi.
Sigurfari ÓF stundaði grálúðu-
veiðar á Reykjaneshryggnum utan
200 mflnanna í sumar en þar er
grálúðan utan kvóta. Einar segir
veiðarnar hafa gengið treglega og
algengur afli hafi verið um 100 grá-
lúður á hverja fjóra línurekka eða
samtals 4800 króka.
— I þessari síðustu veiðiferð
vorum við hins vegar að fá upp í
1050 lúður á sex rekka eða samtals
7200 króka. Algengt meðaltal hjá
okkur var 700-800 grálúður á sex
rekkana. Þarna er línan lögð á 670
til 700 faðma dýpi en þegar við
vorum fyrir utan landhelgismörkin
var mjög algengt að línan væri lögð
alveg niður á 770-870 faðma. Við
vorum þá með sérstakan búnað,
sem við fengum lánaðan, til þess
að mæla hitastig sjávar frá yfir-
borði og niður að botni og botnhit-
inn á þessum slóðum var 3,6 til
3,8°C, segir Einar en hann upplýsir
að meðalvigt á haus- og sporðskor-
inni grálúðu utan landhelginnar
hafi verið 3,6-3,8 kg á meðan
meðalvigtin í síðasta túr var rétt
rúm 3 kg. Grálúða, sem vegur 5 kg
eða meira, er lausfryst en minni
lúðan er fryst í blokkarpakkning-
um.
Margir línuútgerðarmenn telja
það reyndar óréttlátt að grálúða,
sem veiðist 150 mflur eða lengra frá
landinu, skuli vera kvótabundin.
Bent er á að á úthafskarfaveiðun-
um hafi togararnir fengið að veiða
karfann allt að 50 mflur inn í land-
helgina án þess að kvóti kæmi á
móti og að grálúðan, sem línuskip-
in hafi verið að veiða, sé langt utan
hefðbundinnar togslóðar togar-
anna.
í/ETTUN6A- OG STÍGVÉLAÞURRKARI
Útvegum vettlinga- og sígvélaþurrkara með stuttum
fyrirvara. Þurrkaramir eru einstaklega fyrirferðalitlir
og eyðslu grannir, smíðaðir úr ryðfríu stáli. Hægt er
að velja um ýmsar stærðir. Þurrktími á blautum
vettlingum er ca. 25 mín. Hentar mjög vel til sjós og
lands. Viðurkenndur búnaður af eftirlitsstofnun.
Vettlinga- og stígvélaþurrkarinn er komin meðal annars
í eftirtalin skip og líkar mjög vel: Arnar HU-1,
Helgu Björg HU-7, Sléttbak
EA-, Svalbak EA-,
Sæbjörgu ST-7,
Sighvat Bjarnason
VE-81, Sunnutind
SU-59, einnig í rækju-
og vinnslustöðvar víða
um land.
Sigurjón Ingólfsson
baader-maður Arnari HU-1. „Eftir að við
fengum þurrkarann þá eru blautir og illa lyktandi
vettlingar úr sögunni((.
Framleiðandi: Vélaverkstæði Karls Berndsen
Skagaströnd • Sími 452 2689
Söluaðili: OLIS iðnaðar- og efnavörusvið
ÚTUMALLTLAND!
Olíuverzlun íslands hf., Héðinsgötu 10,
Sími: 515 1000 Intemet: http://www.mmedia.is/olis
Kristjan Gislason, framkvæmdastjóri Radiomiðunar ehf., og Eyjólfur
Bergsson, tæknistjóri fyrirtækisins, með nýja Sailor Mini-M símann
ásamt SIM korti
Fyrsti gervihnattasíminn afnýrri
kynslóð settur í íslenskt fiskiskip:
Hnattræn símtöl fyr-
ir 180 kr
Radíómiðin ehf. hefur nýlega lokið
við uppsetningu á fyrsta Inmarsat
Mini-M gervihnattasímanum sem
seldur er til notkunar um borð í
íslensku fiskiskipi. Það var Grandi
hf. sem reið á vaðið og verður sím-
inn í notkun um borð í frystitoga-
ranum Örfirisey RE.
Að sögn Kristjáns Gíslasonar,
framkvæmdastjóra Radíómiðunar
ehf., mun tilkoma þessa nýja
gervihnattasíma vafalaust valda
byltingu í fjarskiptamálum í ís-
lenska fiskiskipaflotanum.
Mini-M síminn, sem framleiddur
er af Sailor, gerir mönnum kleift
að hringja til og frá fiskiskipum
hvar sem þau eru stödd án þess að
eiga á hættu að fá himinháa sím-
reikninga. Radíómiðun ehf. hefur
gert samning við hollensku jarð-
stöðina Station 12 um áskriftir að
Inmarsat Mini-M símakerfinu og
á mínútu
mun mínútan kosta íslenska not-
endur um 180 krónur.
Nýi gervihnattarsíminn kostar
um 500 þúsund krónur og er
loftnet símans aðeins um 10% að
umfangi ef miðað er við eldri gerð-
ir gervihnattasíma. Kristján spáir
því að Mini-M síminn verði þegar
fram líða stundir arftaki NMT far-
símakerfisins um borð í íslenskum
skipum en NMT kerfið hefur nú
verið hér í notkun frá árinu 1986.
Kostir nýja símans umfram NMT
kerfið eru umtalsverðir. Lang-
drægnin er hnattræn og síminn er
með þremur símanúmerum, einu
fyrir talsamband, öðru fyrir
faxsendingar og hinu þriðja fyrir
gagnasendingar. Hægt er að fá
SIM kort við símann og þannig er
hægt að hugsa sér að hver skipverji
hafi sitt eigið kort og greiði fyrir
afnot af símanum í samræmi við
notkun.