Fiskifréttir - 03.10.1997, Qupperneq 5
FISKIFRÉTTIR föstudagur 3. október 1997
Allt verði óbreytt
í Gaulverjabæ
— eftir Guðjón 4. Krístjánsson
Á fundi Samtaka fiskvinnslu-
stöðva í síðustu viku var gerð
grein fyrir könnun meðal félags-
manna um hvort vilji væri til að
að selja allan fisk um fiskmark-
aði. Meginafstaðan hjá félags-
mönnum í heild var sú, að 80%
þeirra væru andvígir slíku fyrir-
komulagi á verðmyndun fisks.
Ekki kemur þetta á óvart þar
sem 80% fiskiskipa með kvóta
eru í eigu fyrirtækja sem einnig
reka fiskvinnslu. Þessir fisk-
vinnslu- og kvótagreifar vilja
með engu móti missa tökin á
þeirri einokunaraðstöðu sem
þeir hafa í dag að geta skammtað
sínum eigin skipum fiskverð og
þá jafnframt ákveðið hvað fisk-
vinnslan eigi að greiða fyrir fisk-
inn. Þeir geta einnig ákveðið að
fara inn á fiskmarkaðinn þegar
þeim hentar, annað hvort til að
selja eða kaupa fisk á hvaða verði
sem er frá þeim sem ávallt versla
á fiskmarkaði og eru háðir þeirri
hráefnisöflun fyrir fiskvinnslur
sínar. Þeir geta sem sagt ráðið
sjálfir sínu meðalverði þótt þeir
kaupi stundum dýrt. Þetta heitir
á venjulegu máli að sitja beggja
megin borðs og semja við sjálfan
sig.
Afstaða VSÍ
Þessu þvingunar- og nauðung-
arfyrirkomulagi vilja atvinnurek-
endur viðhalda. Þeir og þeirra
fyrirtæki eru þó flest öll í Vinnu-
veitendasambandi íslands (VSÍ),
sem a.m.k. í orði kveðnu hvetur
á öllum sviðum til aukinnar sam-
keppni og að jöfn samkeppnis-
staða sé tryggð í viðskiptum milli
manna og fyrirtækja. Margítrek-
að hafa samtök innan VSÍ skorað
á ríkisvaldið að stuðla að aukinni
samkeppni í viðskiptum. En
þegar kemur að því að þeirra eig-
in fyrirtæki eigi að una sam-
keppni með sölu fisksins á fisk-
markaði, þá fá afturhaldssjónar-
miðin í röðum fiskvinnslunnar
fullan stuðning.
Aftur á móti finnst útgerðar-
mönnum, sem eru 80% þeir sömu
og eiga fiskvinnsluna, alveg sjálf-
kaupa á fiskmörkuðunum innan-
lands eða selja ferskan fisk á hæstu
verðum, eru að búa til fyrir þjóðfé-
lagið þá mestu arðsemi úr fiska-
flanum sem völ er á.
))
Liggur við að sumir afturhaldsseggirnir
lýsi vistarbandinu sáluga sem
dýrðartímum íslenskrar alþýðu“
sagt að óveiddur fiskur í sjó, þ.e.
kvótinn, gangi kaupum og sölum
enda tryggt að þar sé borgað til
sameiginlegrar fiskvinnslu og út-
gerðaraðila. Þeir sem borga okur-
kvótaleiguna og fóðra kvóta-
braskarana eru hins vegar þeir sem
eru að gera mest verð úr hverju
veiddu fiskkílói, annað hvort með
sölu á uppboðsmörkuðum fyrir
ferskfisk á íslandi eða erlendis.
Eða þá þeir fiskvinnsluaðilar, sem
eru að selja fisk sérunninn fyrir
einstaka kaupendur ferskan, salt-
aðan eða frosinn. Þessar útgerðir
og fiskvinnslumenn, sem eru að
Fjötrar fortíðar
Með því að leigja kvótann okur-
verði eru þeir hins vegar að halda
uppi valdakerfi fiskvinnslu og út-
gerðar sem í 80% tilfella eru á
sömu hendi. Þegar greiðsluþol
þeirra leyfir ekki lengur að borga
okurkvótaleiguna fara sumir í það
að brjóta bæði landslög og kjara-
samninga sjómanna með því að
láta sjómenn taka þátt í að greiða
kvótagreifunum arðinn í formi ok-
urleigu af sameiginlegri auðlind.
Þessir sömu kvótarétthafar berjast
gegn því að full arðsemi fáist af
sjávaraflanum, mestu auðlind ís-
lendinga, með því að viðhalda
þeirri einokun í veiðum og
vinnslu sem endurspeglast í við-
horfum kvótagreifanna. Reynt
er með öllum tiltækum ráðum að
koma í veg fyrir samkeppni um
fiskinn með opinni sölu á fersk-
fiskmörkuðum. Haldið er uppi
hræðsluáróðri um það að ef fisk-
ur verði almennt seldur á fisk-
markaði þá missi allt verkafólk
vinnuna við fisk í landi. Reynt er
með öllum ráðum að viðhalda
fjötrum fortíðar og liggur við að
sumir afturhaldsseggirnir lýsi
vistarbandinu sáluga sem dýrðar-
tímum íslenskrar alþýðu.
I Noregi fjölgar þeim fiskiskip-
um og þeim fisktegundum sem
seldar eru á uppboðsmarkaði.
Nú síðast var bræðslufiskur sett-
ur inn á uppboðsmarkað. I Fær-
eyjum fer ferskur fiskur nú um
uppboðsmarkaði sem stofnaðir
hafa verið á sl. 2-3 árum. En í
„Gaulverjabæ" er allt við það
sama, þar halda menn sínum
gömlu hefðum og kemur lítið við
hvernig heimurinn breytist til
frjálsræðis á öllum sviðum.
Hlutur stærstu
stj ór nmálaflokkanna
Tveir stærstu stjórnmálaflokk-
ar landsins viðhalda svo óbreyttu
ástandi enda megnið af kvóta-
greifunum innan núverandi ríkis-
stjórnarflokka. Að vísu heyrist
annað slagið í hátíðarræðum,
m.a. hjá forsætisráðherra nýver-
ið, að stuðla beri að aukinni og
virkri samkeppni og í því sam-
bandi þurfi að gæta jafnræðis.
Slíkt hjal gleymist fljótt þegar
grípa þarf fyrir eyrun vegna óð-
ríks söngs alþýðunnar sem ennþá
syngur söng hlutabréfanótunnar
of falskt, enda skilur hún ekki
textann.
Höfundur er forseti Farmanna-
og fiskimannasambands íslands.
Loðnubræðslur:
18% hagnaður á síðasta ári
smiðjurnar réttu megin við núllið,
því hagnaður varð hjá sjö verk-
smiðjum, rekstur einnar var í járn-
um og fjórar voru reknar með
halla, að því er fram kom á aðal-
fundi Samtaka fiskvinnslustöðva.
5
íslenskir markaðir
Allir markaðir Vikan 21.-27. sept. 1997 Hæsta Lægsta Meðal- verd verð verð Tegund (kr/kg) (kr/kg) (kr/kg) Magn (kg)
Annar afli 650,00 5,00 67,67 3.133
Annar
flatfiskur 40,00 40,00 40,00 102
Bland. 64,00 9,00 54,68 59
Blálanga 77,00 30,00 66,27 7.495
Djúpkarfi 85,00 80,00 80,64 17.089
Gellur 300,00 300,00 300,00 49
Grálúða 120,00 24,00 77,85 79
Hlýri 131,00 79,00 108,13 30.171
Háfur 5,00 5,00 5,00 141
Hámeri 135,00 120,00 126,67 225
Karfi 100,00 5,00 70,25 56.593
Keila 74,00 6,00 64,58 19.099
Langa 92,00 20,00 79,86 19.852
Langlúra 116,00 90,00 102,94 3.174
Lúða 605,00 0,00 390,46 7.901
Lýsa 53,00 15,00 45,31 6.738
Rækja 107,50 90,00 100,43 2.401
Steinb./
hlýri 109,00 109,00 109,00 55
Sandkoli 70,00 15,00 60,35 61.482
Skarkoli 159,00 40,00 105,32 43.830
Skata 204,00 80,00 174,85 205
Skrápfl. 60,00 10,00 51,05 10.195
Skötusel 270,00 100,00 202,64 6.180
Steinb. 1.660,00 50,00 105,85 43.854
Stórkjafta 96,00 45,00 68,46 5.970
Sfld 35,00 35,00 35,00 16
Sólkoli 250,00 60,00 198,71 18.288
Tindaskata 35,00 5,00 10,34 10.441
Ufsi 77,00 35,00 65,04 201.303
Undm.f. 173,00 47,00 87,00 10.577
Ýsa 1.660,00 48,00 121,74 118.015
Þorskur 275,00 60,00 109,19 353.901
1.059.800
Sjávarútvegur:
Heildar-
skuld-
ir 119
milljarðar
Heildarskuldir sjávarút-
vegsins hafa hækkaö um 6
milljarða króna frá ára-
mótum og eru nú 119 millj-
arðar króna, samkvæmt
nýju mati hagdeildar Seð-
labankans, sem unnið var
að beiðni Samtaka fisk-
vinnslustöðva.
Á undanförnum fimm árum
hafa heildarskuldir sjávarútvegs-
ins aukist um 20%, en miklar fjár-
festingar hafa átt sér stað í grein-
inni, einkum í vinnsluskipum og
fiskimjölsverksmiðjum. Á móti
kemur að stóraukin úthafsveiði
ásamt vaxandi veiði og vinnsla á
rækju, loðnu og sfld hefur skilað
auknum útflutningstekjum.
Nýlokið er könnun á afkomu 12
fiskimjölsverksmiðja á síðasta ári,
sem tóku á móti 95% af allri loðnu
og sfld sem fór í bræðslu. í heild
voru verksmiðjurnar reknar með
14% hagnaði sem er umtalsvert
betri afkoma en árið á undan þegar
hagnaðurinn nam 6% af tekjum.
Bætt afkoma milli ára kemur
ekki á óvart í ljósi góðs afurða-
verðs á mjöli og lýsi og mikillar
aukningar á loðnu og síld til
bræðslu. Ekki voru þó allar verk-
Hönnun • smíði • viðgerðir • þjónusta
STÓRÁSl S • 210 GARÐABÆR • SÍMI 565 2921 • FAX 565 2927
- afkastamiklir
vinnuþjarkar
SKEIFUNNI 3E-F •
SÍMI 581 2333 • FAX 568 0215
KahCHER