Fiskifréttir


Fiskifréttir - 03.10.1997, Qupperneq 7

Fiskifréttir - 03.10.1997, Qupperneq 7
6 FISKIFRÉTTIR föstudagur 3. október 1997 FISKIFRÉTTIR föstudagur 3. október 1997 7 Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva Á að skylda með lög um að allur fiskur fari á fiskmarkað? — niðurstöður könnunar á vegum Samtaka fiskvinnslustöðva „Telur þú æskilegt að skylda með lögum að selja skuli allan fisk um fiskmarkaði?“ — var spurt í skoðanakönnun sem fyrirtækið Markviss ehf. (Einar Kristinn Jónsson) vann fyrir Samtök fiskvinnslustöðva. 82% svöruðu því neitandi, 12% játandi. Eins og að líkum lætur fóru viðhorf manna mjög eftir því hvort þeir ráku bæði útgerð og fiskvinnslu eða eingöngu fiskvinnslu. Þannig voru 98% hinna fyrrnefndu andvígir sölu- skyldu á mörkuðum en 57% hinna síðarnefndu voru henni fylgjandi. Úrtakið í könnun sem þessari skiptir að sjálfsögðu verulegu máli. Alls voru 79 manns spurðir, 39 þeirra (50%) ráku bæði útgerð og vinnslu, 13 manns (16,7%) stunduðu eingöngu fiskvinnslu, í hópnum voru 11 sveitarstjórar (15,4%), 11 verkalýðsleiðtogar (14,1%), þrenn sölusamtök (3,8%) og tveir fiskmarkaðir (2,6%). Svarendur dreifðust um land allt. Stuðningur við að setja allan fisk á markað reyndist mestur á Reykjanesi, Reykjavík og á Norð- urlandi vestra en annars staðar var nokkuð eindregin andstaða við söluskyldu á markaði. Afleiðingar söluskyldu á mörkuðum Spurt var hvaða áhrif menn teldu að söluskylda hefði á afkomu fyrirtækja. 49% svarenda töldu að afkoma „blandaðra“ fyrirtækja (bæði í útgerð og vinnslu) myndi versna, en 58% svarenda töldu að afkoma „hrcinna" fiskvinnslufyr- irtækja myndi batna. Spurt var um önnur áhrif sem fylgdu söluskyldu. Þá kom fram, að tveir af hverjum þremur töldu að hún myndi ekki hafa áhrif á sameiningu fyrirtækja. Álíka stór hópur taldi líklegt að söluskyldan drægi úr vinnslu í landi og stuðlaði jafnframt að auk- inni vinnslu á sjó. Þá töldu 79% líklegt að sérhæfing í vinnslu myndi aukast. Mjög skiptar skoð- anir voru um það hvaða áhrif sölu- skyldan hefði á hráefnisgæði. Um 60% svarenda töldu að byggð myndi þéttast og fólksflutningar til höfuðborgarsvæðisins aukast ef allur fiskur yrði skyldaður inn á markað. Jákvætt — neikvætt í niðurstöðum könnunnarinnar eru áhrif söluskyldu á markaði flokkuð sem jákvæð eða neikvæð fyrir fiskvinnsluna. Jákvæðu punktarnir eru taldir þessir: * 67% töldu að hráefnisverð á fiskmörkuðum myndi lækka * 45% töldu að hráefnisverð yrði lægra en í beinum viðskiptum í dag (35% töldu að það yrði óbreytt). * 58% töldu að afkoma „hreinna“ vinnslufyrirtækja myndi batna Neikvæðu áhrifin eru metin þessi: * 58% töldu að fiskverð yrði óstöðugra * 51% töldu að atvinnuöryggi starfsfólks í fiskvinnslufyrirtækj- um myndi minnka * 49% töldu að afkoma „bland- aðra“ fyrirtækja myndi versna * 45% töldu líklegt að hagur starfsfólks myndi versna Áhrif á fískverð „Ég dreg þá ályktun af þessari könnun, að meirihluti fiskvinnslu- manna sé hlynntur því að málin þróist áfram í átt til aukinna við- skipta á fiskmörkuðum. Aukning- in hefur verið nánast 3% árlega síðustu árin og nú er svo komið að 39% af botnfiskaflanum, sem fer til vinnslu innanlands, er seldur á fiskmörkuðum. Menn eru andvígir því að skylda þetta með lögum eða kjarasamningum við sjómenn. Það er nokkuð ljóst, að ef allur fiskur yrði skyldaður á markað myndi fiskverð á mörkuðunum lækka umtalsvert. Þróist málin hins vegar í rólegheitum í átt til aukinnar markaðssölu, eins og verið hefur, mun verðið eitthvað lækka á mörkuðunum, en verð í beinum viðskiptum væntanlega haldast svipað, þannig að munurinn þarna á milli mun minnka,“ segir Árnar Sigurmundsson formaður Sam- taka fiskvinnslustöðva í samtali við Fiskifréttir. — í niðurstöðum könnunarinn- ar er það flokkað sem jákvœður þáttur fyrir fiskvinnsluna að með því að skylda allan fisk á fiskmark- að muni hráefnisverð á mörkuðum lœkka. Erþað ekki einmittþað sem botnfiskvinnslan þarf á að halda í bullandi taprekstri? „Ef allur fiskur færi á markað myndi fiskverð á mörkuðunum vissulega lækka, en á móti kæmi að markaðsverðið yrði eftir sem áður hærra en það sem nú er greitt í beinum viðskiptum. Við sölu- skyldu á markaði myndi hráefnis- verð til þeirra sem eru mest í bein- um viðskiptum sennilega hækka frá því sem nú er. Sumir þeirra eiga reyndar veiðiskip og ætla má að þeir nytu hærra söluverðs á mark- aði í staðinn fyrir afla sinn, en á móti kemur kostnaður vegna sölu- launa og flutnings á aflanum. Síð- ast en ekki síst myndi þetta fyrir- komulag valda stórum fyrirtækj- um, sem eru að búa sig undir hreinan verksmiðjurekstur, miklu óhagræði. Sum þeirra, eins og t.d. Útgerðarfélag Akureyringa, eru nánast sjálfum sér nóg með hráefni allt árið,“ sagði Arnar Sigur- mundsson. Framkvæmdastjórar - Útgerðarstjórar Nýr valkostur í þjónustu stærri frysti- og kælikerfa Jón Valdimarsson GSM: 896 1447 Steinar Vilhjálmsson GSM: 899 6988 Vésteinn Marínósson GSM: 897 1447 Heimasíða: http://www.isholf.is/frystikerfi/ E-mail: frysti@isholf.is Frá aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva Tap á frystingu er 13%, samkvæmt mati Þjóðhagsstofnunar: VÁ FYRIR DYRUM — segir Arnar Sigurmundsson formaður Samtaka fiskvinnslustöðva „Hér er vá fyrir dyrum. Verði ekki breyting á afkomu í fryst- ingu og söltun botnfisktegunda mun vinnslan dragast enn frekar saman og kastað verður á glæ þeim tækifærum sem felast í frek- ari fullvinnslu sjávarafurða hér á landi. Gerist slíkt glatast að nokkru gífurlegt markaðsstarf erlendis fyrir íslenskar sjávaraf- urðir og ómetanleg verkþekking starfsfólks í fiskvinnslu,“ sagði Arnar Sigurmundsson formaður Samtaka fiskvinnslustöðva á að- alfundi samtakanna í síðustu viku. Arnar vitnaði til mats Þjóð- hagsstofnunar, sem birt var þann sama dag um afkomu fiskvinnslu og útgerðar. Samkvæmt því eru frysting og söltun nú rekin með 9,5% halla og rekstur báta og ís- fisktogara er í járnum. Tapið í frystingunni er áætlað 13% og í saltfiski 4,5%. Rækjuvinnsla og rækjuveiðar eru nú nálægt núllinu, en afkoma í loðnuveiðum og loð- nuvinnslu er á hinn bóginn með mesta móti og útlitið bjart fram- undan. „Sjaldan hefur afkomumunur verið eins mikill á einstökum greinum sjávarútvegs og nú. Sem betur fer eru mörg fyrirtæki í fleiri en einni grein veiða og vinnslu. Annars væru mörg fyrirtæki í botn- fiskvinnslu löngu hætt rekstri,“ sagði Arnar. „Vandi fyrirtækjanna er margvíslegur, en í saltfisk- vinnslu verður að telja að 72% hrá- efniskostnaður af skilaverði afurð- anna og óhagstæð gengisþróun Evrópumynta og gengishækkun krónnar ráði mestu. í frystingunni er vandinn miklu flóknari og erfið- ari. Það er alveg ljóst að frystingin þolir ekki 58% hráefnishlutfall og 26% launakostnað samhliða lægra skilaverði vegna gengishækkunar krónunnar.“ Útflutningsgreinarnar greiða niður verðbólguna Arnar vék að hugsanlegum lausnum á hallarekstri botnfisk- vinnslunnar, en tók fram að það þyrfti mikið til að breyta 9% tapi í viðunandi hagnað á skömmum tíma. „Lækkun hráefnisverðs er ekkert auðveld í framkvæmd þegar samkeppni um hráefnið er mjög mikil. Áukinn þorskafli á næstu árum gæti hjálpað eitthvað til þar sem afkoma bátaflotans og ísfisktogara batnaði þá að sama skapi. Við þurfum að bæta nýt- ingu vinnutíma og halda áfram tilraunum með ný vinnslu- og launakerfi í frystihúsunum. Lækkun fjármagnskostnaðar skiptir verulegu máli fyrir mörg fyrirtæki. Stjórnvöld geta slegið á frest hækkun tryggingagjalds á sjávarútveg. Þá verður gengis- stefnan að taka mið af því að við lifum á útflutningi og hækkun gengis krónunnar á undanförn- um mánuðum færir þær skyldur á herðar útflutningsgreinum að greiða niður verðbólgu á íslandi. Svo mikið er víst að fiskvinnsla í bullandi taprekstri hefur enga burði til að standa undir slíkum aukaútgjöldum. Lausnin erheld- ur ekki eingöngu fólgin í aukinni sérhæfingu og sameiningu fyrir- tækja. Lausnin felst ekki í stórum gengisfellingum eins og á árum áður,“ sagði Arnar Sigurmun- dsson. Fram kom í máli hans að lækkun útflutningstekna af sjáv- arafurðum vegna gengishækkun- ar krónunnar næmi 1.500 milljón- um króna á einu ári. Arnar Sigurmundsson í ræðustól á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva Myndir/Fiskifréttir: GE Texti: myndir: GE Flæðilínurnar eiga sök á meðal- mennskunni í frystíhúsunum — segir Ólafur Rögnvaldsson framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hetiissands Tap á botnfiskvinnslu, sem nú er metið 13% í frystingunni og 4,5% í saltfiskverkun á landinu öllu samkvæmt áætlun Þjóðhagsstofnunar, er forráðamönnum fiskvinnslufyrirtækjanna mikið áhyggjuefni eins og fram kom á nýafstöðnum aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva. Því miður eru þessar afkomutölur engin ný sannindi því botnfiskvinnslan hefur verið rekin með bullandi tapi mörg undanfarin ár. Bent hefur verið á að eina leiðin til þess að snúa við taprekstri undangenginna ára sé aukið hagræði í vinnslunni, lækkun hráefnisverð og samein- ingar fyrirtækja. Ekki taka þó allir frystihúsamenn undir þetta og einn þeirra er Ólafur Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands. - Við höfum rekið okkar fyrir- tæki réttu megin við núllið og stundum hefur þokkalegur hagn- aður verið af vinnslunni. Ég held að við þurfum að fara aftur á miðj- an síðasta áratug til þess að finna dæmi um taprekstur í þessu fyrir- tæki, segir Ólafur en hann er sann- færður um að vandi frystingarinn- ar sé a.m.k. að hluta til heimatil- búið vandamál. — Vandræðin hófust fyrir al- vöru þegar flæðilínurnar ruddu sér til rúms á sínum tíma. Þær áttu að sögn að leysa allan vanda og menn kepptust við að henda út vinnslu- línunum, sem þeir höfðu fyrir, og taka inn rándýrar flæðilínur sem engin reynsla var komin á. I mörg- um húsum hafa tvær kynslóðir flæðilína verið í notkum og þess eru dæmi að í sumum húsum hafi verið keyptar þrjár gerðir flæði- lína, segir Ólafur en hann segir flæðilínurnar fram að þessu hafa skapað fleiri vandamál en þær hafi leyst. Bónusdrottningarnar duttu niður í meðalmennskuna - Við stóðum frammi fyrir því hvort við ættum að henda út gamla bakkakerfinu, sem við höfum not- að með 'góðum árangri fram að þessu, og fylgja straumnum og kaupa flæðilínu í húsið. Við höfum aldrei verið miklir jafnaðarmenn og við gerðum okkur fljótlega grein fyrir því að flæðilínunum fylgdi ekkert annað en meðal- mennskan. Það gefur augaleið að starfsfólk í snyrtingu og pökkun er misduglegt og áður en flæðilínurn- ar héldu innreið sína þá bar dug- legasta fólkið mest úr býtum. Með tilkomu flæðilínanna fengu bónus- drottningarnar, sem margar eru þyngdar sinnar virði í gulli fyrir fyrirtækin, allt í einu sömu laun og konur sem skiluðu litlum afköst- um. Það þarf ekki að fjölyrða um það að þetta var ekki afkastahvetj- andi fyrirkomulag og auk þess sem afköstin duttu niður þá fóru flæði- línurnar ekki nægilega vel með fiskinn. Hann varð fyrir meira hnjaski og það varð meira los í honum en í t.d. bakkakerfinu, seg- ir Ólafur en hann gefur ekki mikið fyrir fullyrðingar um bætta nýtingu með notkun flæðilínanna. Ólafur dregur enga dul á að stjórnendur Hraðfrystihúss Hellis- sands hafi oftar en ekki verið skot- spónn fiskvinnslumanna og fleiri sem töldu það merki um gamal- dags hugsunarhátt og dugleysi að taka ekki þátt í flæðilínuvæðing- unni. — Það komu m.a. hingað bankastjórar sem hneyksluðust á því að við værum ekki með flæði- línur. Það væri enginn maður með mönnum nema hann tæki lán til þess að setja upp slíkan kostagrip. Það er hins vegar gott að vera stundum íhaldssamur og ég segi fyrir mig að mér fannst það vera tómt bull að eyða 20-40 milljónum króna í flæðilínu þegar bakkakerf- ið skilaði okkur hreint ágætum ár- angri. Miðað við fjárfestingar ann- arra frystihúsamanna á undan- förnum árum þá er gamla bakklínan okkar sennilega 70-80 milljón króna virði og ég er hreint ánægður með það, segir Ólafur en hann segir að það sé fyrst nú að fram séu að koma flæðilínur sem taki á nefndum vandamálum með því að mæla nýtingu og afköst frá hverjum einasta starfsmanni. Skil ekkert í þessu hagræðingarhjali í máli Ólafs kemur fram að sennilega hafi það hjálpað Hrað- frystihúsi Hellissands mikið að vera ekki það sem hann kallar miðahús en með því á hann við fyrirtækin sem skráð eru á almenn- um hlutabréfamarkaði. — Við höfum rekið okkar fjöl- skyldufyrirtæki og fram að þessu höfum við ekki séð ástæðu til þess að breyta rekstrarfyrirkomulag- inu. Við höfum fengið að vera í friði með þennan rekstur og það hefur verið lítið um það að leitað hafi verið til okkar um að samein- ast öðrum fyrirtækjum. Það gæti hins vegar komið til álita í framtíð- inni en þá á heilbrigðum forsend- um. Ég skil t.d. ekkert í öllu þessu hagræðingarhjali svokallaðra sér- fræðinga. Það er alltaf verið að tala um að það þurfi að hagræða hinu og þessu og sameina þetta og hitt. Tveir mínusar verða sjaldnast að plús í þessum rekstri. Þessir háu herrar mega gjarnan koma hingað og segja mér það„ segir Ólafur en hann segir að ekki sé hægt að saka forráðamenn Hraðfrystihúss Hell- issands um að hafa haldið hráefnis- verðinu niðri. — Við gerum út tvo báta, Rifs- nes SH og Örvar SH, og við greið- um áhöfnum þessara báta hátt verð fyrir aflann. Hið sama má segja um fiskinn sem við kaupum á fiskmörkuðum. Við kaupum hann á hæsta verði hverju sinni, segir Ólafur en hann lítur björtum aug- um til framtíðarinnar. — Ég hef alltaf sagt að ef okkur Ólafur Rögnvaldsson tækist að lifa árið 1996 af og kljúfa dæmið fram til 1. september 1997 þá væri okkur borgið. Það tókst og nú er útlitið gott. Þorskgengd hef- ur aukist mikið og einu áhyggjurn- ar, sem ég hef af þorskinum, er hve magur hann er um þessar mundir. Hann virðist ekki hafa nægilegt æti og það er umhugsunarefni fyrir stjórnvöld og fiskifræðinga hve stór skörð vaxandi þorskstofn virðist höggva í aðra nytjastofna. Það er dýrt að láta þorskinn éta upp rækjustofninn og mér finnst menn mættu hugleiða það hvort ekki væri hagkvæmara fyrir þjóð- félagið ef menn gengju heldur hægar um gleðinnar dyr hvað varð- ar loðnuveiðarnar. Að mínu mati væri heppilegra að draga heldur úr loðnuveiðunum en að láta þorsk- inn rústa rækjunni eins og hann hefur svo sannarlega gert núþegar hér í Kolluálnum, segir Ólafur Rögnvaldsson. KARCHER HAÞRYSTI DÆLUR SKEIFUNNI 3E-F • SÍMI 581 2333 ■ FAX 568 0215 TIL SANDBLÁSTURS SANDBLÁSTURSSANDUR HNPUSSNING Sf. Dugguvogur 6. 10- Rvk. ® 553 2500

x

Fiskifréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.