Fiskifréttir - 03.10.1997, Blaðsíða 12
FRETTIR
36. tbl. föstudagur 3. okt. 1997
HSSS
Allt til netaveiða!
í krafti áratuga reynslu okkar í sölu veiðarfcera
tryggjum við viðsiciptavinum okkar ávallt
fyrsta flokks vöru á góðu verði. I\I E T A. S A L A l\I
Skútuvagi 1S-L Sími SE8 1819 Fax SBB 1BB4
Nefndarálit um endurnýjunarreglur væntanlegt í vikulokin:
25% stækkun án úreldingar?
— rætt um að hverfa aftur til þess fyrirkomulags sem
giiti áður en reglurnar voru hertar
Endurnýjun íslenska fiskiskipaflotans hefur setið á hak-
anum að margra áliti mörg undanfarin ár og kenna
menn þar einkum um ströngum úreldingarreglum. Ef
útgerðarmenn vilja láta smíða fyrir sig ný skip eða flytja
inn stærrri og fullkomnari skip, í stað skipa sem fyrir eru
í rekstri, þá verða þeir að úrelda gamla skipið og jafn
marga rúmmetra og nemur mismuninum á stærð skip-
anna. Samkvæmt heimildum Fiskifrétta kann að verða
breyting á þessum reglum á næstunni og leyft verði að
stækka skipin um allt að 25% án þess að úrelda þurfi
rúmmetra á móti stækkuninni.
Sex manna nefnd, sem sjávar-
útvegsráðherra skipaði í ársbyrjun
til þess að fara ofan í saumana á
Oskum eftir
afurðum til sölu,
land- eða sjófrystum
ICELAND PRIMA
BRAND
G. Ingason
Fornubúðum 8, 220 Hafnarfirði
■3 565 3525 • 565 4044 • 852 7020
-RækjU'
framleiðendur
Hafið
samband
um verð
og
greiðslukjör
a&
íslenska
útflutningsmiðstöðin hf.
Sidumuli34 • 121 Reykjavik
Sími 588 7600
þessum málum, skilar af sér áliti
nú í lok vikunnar. Formaður
nefndarinnar er Ari Edwald, að-
stoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra, og í samtali við Fiskifréttir
vildi hann hvorki játa því né neita
að nefndin legði til að endurnýjun-
ar- og úreldingarreglunum yrði
breytt með þeim hætti sem nefnd-
ur er hér að framan. Að sögn Ara
hefur því verið haldið fram að
þröngar reglur sjávarútvegsráðu-
neytisins hömluðu eðlilegri þróun
fiskiskipaflotans og var það m.a.
verkefni nefndarinnar að kanna
sannleiksgildi þess og hvort ekki
væri tekið nægjanlegt tillit til auk-
inna krafna um aðbúnað áhafna og
bætta meðferð hráefnis. Að öðru
leyti vildi Ari ekki tjá sig um málið.
Endurnýjunarreglurnar hafa
oftar en ekki verið til umræðu á
fundum hagsmunaðila í sjávarút-
vegi á undanförnum árum og hefur
verið vaxandi vilji fyrir því meðal
útgerðarmanna að afnema núgild-
andi fyrirkomulag. Á það jafnt við
um kaup á nýjum skipum til lands-
ins sem og breytingar á eldri skip-
um. í þessu sambandi hefur ekki
síst verið horft til endurnýjunar
nótaskipaflotans en til skamms
tíma voru engin íslensk nótaskip
útbúin með sjókælitönkum líkt og
tíðkast hefur í nágrannalöndum
okkar um langt árabil. Flafa út-
gerðarmenn þessara skipa þurft að
fara ýmsar krókaleiðir til þess að
sleppa við að greiða tugmilljóna
kostnað vegna kaupa á rúmmetr-
um bara vegna breytinga á lestar-
rýminu. Eru þess jafnvel dæmi að
ný skip hafi verið smíðuð utan um
nokkrar stálplötur úr eldri skipum
til þess að losna við þennan fórnar-
kostnað en heimilt hefur verið að
lengja og breyta eldri skipum án
þess að þurft hafi að úrelda rúm-
metra á móti stækkuninni. Þeir,
sem farið hafa þá leið að kaupa
notuð kælitankaskip frá útlönd-
um, hafa hins vegar undantekning-
arlaust þurft að greiða tugi millj-
óna króna í úreldingu vegna óhjá-
kvæmilegrar stækkunar frá fyrra
skipi.
Samkvæmt heimildum Fiski-
frétta felur breytingin, sem nú er
lagt til að gerð verði á endurnýjun-
arreglunum, í sér að horfið verði til
svipaðra reglna og giltu áður en
reglurnar voru hertar og að leyft
verði að stækka skipin um allt að
25% án úreldingar rúmmetra.
Búast má við því að útgerðar-
menn, sem þurft hafa að kaupa úr-
eldingu dýrum dómum á undan-
förnum árum, séu andsnúnir
breytingunni en rétt er að hafa í
huga að mjög miklar breytingar
hafa orðið á rúmmetraverðinu til
lækkunar á tiltölulega skömmum
tíma. Stafar það m.a. af auknu
framboði af skipum í kjölfar sam-
einingar veiðiheimilda og þannig
hefur markaðurinn sjálfur orðið til
þess að lækka rúmmetraverðið.
W^ralöng reynsla í . . .
|smíðum - uppsetningum - viðhaldi
1'VliltIKONn - ItLWIXiIJKAK- 0«
ÞVOTTAKÖlt - SWItTILÍM Il
fyrir FLOTA og FISKVINNSLu]
IÍÆLI- 0(í FRYSTIKEllFI
WJjárn Blikk
I Alhliða járn- og suðuvinna
Vesturvör 26, 200 Kópavogur
Sími 564 4200 Fax: 564 4203
Farsímar 892 1512 & 893 5990
DIESELVÉLAR • TURBINUR
A
MITSUBISHI
DIESELVELAR
AÐAL- OG
HJÁLPARVÉLAR
MIKIÐ ÚRVAL
HAGSTÆTT VERÐ
Vinsamlega leitið tilboða!
MDvélar hf.
FISKISLÓÐ 135 B, Pósthólf 1562 - 121 Reykjavík - Sími: 561 0020 - Fax: 561 0023
VELBUNAÐUR • VARAHLUTIR
BDL Tromlumótorar
Hdgœða mótorar fyrir allan
matvœlaiðnað.
formax)c *
Faxaskála - Faxagötu, 101 Reykjavík,
Sími: 562-6800 Fax: 562-6808