Sæbjörg - 09.02.1934, Blaðsíða 1
SÆBJORG
ÚTGEFANDI: UNGMENNADEILD SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS
ÁBYRGÐARMAÐUR: JÓN E. BERGSVEINSSON
ARG.
Reykjavík 9. febrúar 1934.
1. BLAÐ.
GLAÐUR GEFANDI.
Ertu að safna fyrir Slysauarnafélagið ?
Það er málefni, sem ég er uanur að styrkja.
Til lesendanna.
Þetta litla blað sem nú kemur fyrir almenningssjónir, á að verða málgagn
fyrir Ungmennadeild Slysavarnafélags íslands. Yngstu félagarnir vilja ná til
unglinga á sVipuðu reki, sem víðast og tala við þá um áhugamál sín.
Þá langar til að ná til eins margra og unt er og fá þá til að gerast fé~
laga í Ungmennadeildinni, eða stofna aðrar deildir með svipuðu sniði,
þar sem því verður viðkomið út um landið. Og til þess er blaðið stofnað.
Útgefendurna langar til þess, að sameina alla góða krafta til samvinnu
um gott málefni og þeir trúa þvi, að allur fjöldinn af æsku íslands verði
með og það von bráðar.
Áformað er að blaðið komi út fyrsta sunnudag hvers mánaðar og verð-
ur það sent öllum sem þess óska. Útgefendurnir eru vissir um, að þeir sem
vilja fá blaðið, muni greiða andvirði þess með fullum skilum og hafa því
engar áhyggjur út af fjárhagshliðinni. Jón E. Bergsveinsson.