Jólatíðindin - 15.12.1937, Síða 4

Jólatíðindin - 15.12.1937, Síða 4
JÓLATÍÐINDIN Jóla- ljósið Jesús sagði einu sinni um sjálfan sig: „Eg er ljós heims- ins“. Þetta ljós opinberaðist mönnunum í fyrsta skipti í Betlehem. Líf hans var ljós heimsins. Hirðarnir, vitringarnir, Hanna og Símon og fleiri komu og sáu ljós kærleikans, sem var kveikt af himnaföðurnum hér á jörðu. Því að svo elskaði Guð heim- inn, að hann gaf son sinn ein- getinn. Jóh. 3, 16. Orð Hans er ljós mannanna. Það er fagnaðarerindið um eilífðarfrelsið. Orð Hans er andi og líf. Það er lifandi ljósgeislar sem tala um frelsi og frið við Guð. Og lífið var opinberað og við höfum séð og vottum og boðum yður lífið hið eilífa, sem var hjá Föðurnum. Opinberun Jesú á öllum sviðum sýnir oss kærleika Guðs. Andi Frelsarans er eldur kærleikans. Án elds eig- um við ekkert ljös. Andinn er gefinn til þess að vera eldur kærleikans og bera vitni um kærleika Krists. Jesús er í dag hið skínandi ljós á himni og jörðu. Vegna Hans er svo bjart á himni og í hjörtum Guðs barna á jörðu. Hefir þú eignast þessa birtu í hjarta þitt? Þá getur þú í sannleika haldið GLEÐILEG JÓL. Herbert Larsson. (Framh. af 3. síSu.) víð föðurinn fyrir Jesúm Krist. En við megum ekki láta sitja við það, að horfa á hann, — við verðum að gefa honum rúm í hjörtum okkar og lífi. — Hjá öllum, stórum og smáum, í höll og hreysi, á bóndabænum og bústöðum sjómannanna, skip- unum úti á ókyrru hafinu, get- ur þetta ljós frá vöggunni um- skapað bæði hugsunarlíf og at- hafnalíf, og lýst okkur inn í samfélag við Guð Föður Son og Heilagan Anda. Megi því þessi jól verða okk- ur sönn friðarhátíð, og það geta þau orðið, ef við, hvert fyrir sig leyfum Friðarhöfðingj anum að ráða í hjörtum okkar og heim- kynnum, í skyldu- og ábyrgðar- Gleðileg jól, gott og Sarsælt nýtt ár! B. Berntsen, Kaptein. N. Gundersen, Adjutant. ..—i Dömur og Herrar! Þurfið pér Kemisk hreinsun, hletthreíusun og guiupressun eða viðgerð á fatnaði yðar, pá fáið pér fyrsta flokks vinnu í Gufupressan STJARNA Kírkjustrætí 10. Sækjum — Sími 4880 — Sendum M u n i ð : Aðeins hjá okkur verður”fatnaður yðar ryksugaður um leið og hann verður gufupressaður á hina heimsfrægu — patenterede — Prosperity pressunarvél. Tjarnarbúðin Tjarnargoiu 10 . Sími 3570 Nýlenduvörur - Hreinlætisvörur Snyrtivörur - Tóbaksvörur Ávextir - Allt í jólabaksturinn Það borgar sig að gera innkaup í TJARNARBÚÐINNI, þar er fjölbreytt úrval. - Fyrsta flokks vörur. - Lægst verð, Munið Tjarnarbúðina Sími 3570 störfum vorum. — Þegar svo há- tíðin er liðin hjá, göngum við inn í hið nýja ár sem nýj- ar skepnur í Jesú Kristi. Mætti ljós himinsins lýsa yfir okkur í öllum athöfnum okkar og lífi, svo að við getum umgengist meðbræður okkar og -systur með hlýju hjartaþeli, og minnzt orða Jesú: — Það sem þér vilj- ið að aðrir geri yður, það skul- uð þér og öðrum gera. Kæri faðir. Við vitum ekki hvað hið nýja áT ber í skauti sínu. Ef til vill færir það okkur mikla gleði og ef til vill mikla sorg. Þér, í eilífum vísdómi þín- um, mun ef til vill þóknast, að senda þjón þinn, sorgina eða dauðan, til einhvers okkar. En hvað sem skeður, hjálpa þú okk- ur, Guð, að minnast þess, að við erum í þinni hendi, og að allt, sem fram við okkur kemur, frá þinni hendi, er okkur til góðs. Hjálpa okkur til að opna huga og sálu fyrir allri þekkingu, um þinn undursamlega heim, sem þetta komandi ár á að færa okk- ur. Láttu kærleikssól þína lýsa yfir starfs- og hvíldarstundir okkar, hjálpa okkur til að stunda eftir því að vera það, sem þú vilt við séum: Ljóssins og himinsins börn. Þegar hér á jörðunni. Amen. B. Berntsen, kaptein. Aftanklukkurnar Nú aftanklukkur óma, Vor andi lifnar við, Vér þekkjum þessa hljóma, Því þeir oss boða frið. Þeir boða sælu bjarta, Þeir boða frelsi nýtt, :,: Þeir drepa á dyr vors hjarta Svo dásamlega blítt. :,: Svo há er höllin eigi Né hreysiþakið lágt, Að sorgin sjatna’ ei megi Um sæla jólanátt. í konungshöllum háum Jafn himinfagurt sem :,: í lýðsins kofum lágum Skín ljós frá Betlehem. :,: En ef að dimmir aftur Og undraljósið dvín, Ef kærleiks rénar kraftur Og kólnar sólin þín, Ó, flý á fund þíns herra, Þá finnurðu’ aftur jól, :,: Og aldrei þá mun þverra í þínu hjarta sól. :,: Guðs friðar boðskap blíða Ei burt fær tíminn máð. Sjá, ár og aldir líða, En æ er söm hans náð, Sú gleðifregn ei gleymist, Að Guðs son kom á jörð. :,: Sú sæla saga geymist í söng og þakkargjörð. :,: Bezta jólamarsípanið Ritvél með tækifærisverði. — Sími 3203. »Freía« fiskbúðingur er regiulegur jólamaftur Pantið tímanlega »Freia« Laufásveg 2. Sími 4745 Veggfóður Innlendar og erlendar málningarvörur, lístmálaraliftir. Alskonar skólaliftir Bezt í Málaranum Bankastræti 7 Símí 1496 Jóla-Herópið EFNI: Þar sem fley fljóta, eftir Lt,- Kommandör Th. Westergaard Gleymdu ekki Betlehem, eftir frú Lt.-Kommandör Wester- gaard. Hj álpræðið (j ólahugieiðing). Þegar orðið varð hold (kvæði). Jesús ..... stjarnan skínandi, morgunstjarnan, eftir Adj. J. Överby. Alira heilagra messa, eftir Adj. N. Gundersen. Klukknahljómur, eftir Evangel- ine Booth, hershöfðingja. Kærleikshöndin, kvæði eftir Guðm. Guðmundsson. Gleðileg jól! eftir Ofursta R. Kristoffersen. Hann vildi það, en gat það ekki, eftir Ofursta J. Möklebust. Úr dagbók líknarsystur. Ennfremur myndir, söngvar og lag á nótum. Kaupið og lesið Jóla-Herópið. Verð 50 aurar. PRENTSMIÐJAN EDDA H.F. Bezftu óskir um gleðileg jól og gott og sigursælt nýár 1938. Svava Gísladóttir 5*a@: \ 9

x

Jólatíðindin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólatíðindin
https://timarit.is/publication/1617

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.