Heilsuvernd - 01.02.1972, Blaðsíða 7

Heilsuvernd - 01.02.1972, Blaðsíða 7
og nauðsynlega líkamshreyfingu og rýkur upp til handa og fóta til að elta uppi heilsuna á harða spretti, svo að hjartað og lungun og fæturnir vita ekkert, hvaðan á sig stendur veðrið og fylgjast alls ekki með þessu uppátæki höfuðsins að heimta fyrirvaralaust þessa ofsa áreynslu, (sem þetta er raunverulega eftir alla kyrrð- ina), til þess að vinna það, sem tapazt hefir í doðakyrrð, næstum því dauðakyrrð, í mörg undanfarin ár. Það minnir á gleymsku hringjarans, fátið og kollsteypuna og æðisgegngna hringingu. Allt rólfært fólk þarfnast daglegrar útivistar í hreinu lofti. En þeir, sem hafa kúldazt í kyrrð og inniveru í mörg ár, held ég megi vara sig á mjög snöggum viðbrigðum, t.d. að taka allt í einu upp á því að þjóta rakleitt upp úr rúminu á harða sprett í köldu morgunlofti og kannske í hóp með öðrum, svo að úr verður eins konar keppni, að minnsta kosti í viðlögum, — allt í þeim fróma tilgangi að framkvæma gagnráðstafanir gegn hinni langvarandi kyrrð. Málið er ekki svona einfalt. Snöggar og harkalegar breytingar í þjálfunarefnum geta leitt margt illt af sér. Ég man, að fyrr á árum tíðkaðist það nokkuð í Reykjavík, að þeir, sem höfðu fengizt við íþróttir á yngri árum, svo sem knattspyrnu og hlaup, tóku sig til og fóru í keppni sem „old boys“, þegar þeir höfðu náð fimmtugu. Keppnin og félagsskapurinn með tilheyrandi endurminningum kemur slíkum görpum, sem einu sinni voru, í íþróttaskap á auga- bragði, og þeir leggja hart að sér á sprettinum. En mér er sagt, að ýmsir slíkra hafi ekki haft happ af þessum hamagangi og hrottaskap við sjálfan sig, af því að þeir athuguðu ekki, að þeir voru löngu komnir úr keppniþjálfun og meira að segja komnir sumir í óhirðu vegna vanrækslu á daglegri og duglegri hreyfingu til að halda sér í góðu horfi, farnir að fitna o.s.frv. Svo sannarlega er hjartanu eðlilegt að vinna, dæla og dæla blóð- inu um allan líkamann með fullum myndarskap. Einhvers staðar las ég, að hjartað hafi „átta stunda vinnudag“, þ.e. að hver hluti eða vöðvaögn hjartans væri í átaki sem svaraði einum þriðja hluta sólarhringsins; hinir tveir þriðju hlutar færu í hvíld og afslöppun. Allt gerist þetta vitanlega á örstuttum augnablikum við hvert slag hjartans. HEILSUVEHND 7

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.