Heilsuvernd - 01.02.1972, Blaðsíða 12

Heilsuvernd - 01.02.1972, Blaðsíða 12
SveitafaeOi um 1880 Árið 1960 komu út í Reykjavík endurminningar Sigfúsar Blöndals, sem var bókavörður við Konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn, en hann var aðalhöfundur hinnar miklu íslenzk-dönsku orðabókar, sem gefin var út á árunum 1920—24. Sigfús var Húnvetningur í báðar ættir, fæddur að Hjallalandi í Vatns- dal árið 1874. Foreldrar hans bjuggu að Heggstöðum í Miðfirði á árunum fyrir og eftir 1880, en fluttu til Reykjavíkur árið 1883. 1 bókinni lýsir Sigfús allítarlega mataræðinu á Heggstöðum, og er það eigi lítið frá- brugðið því, sem nú tíðkast. Hann segir svo: FaSir minn stundaði talsvert fiskveiðar, og einstöku sinnum líka selveiðar. Fugla skaut hann líka oft, enda var nóg af þeim, einkum öndum, lóum, spóum og svo allskonar sjófuglum. Ég hef oft síðan hugsað til þess, að viðurværi okkar hefur hlotið að vera allfjöl- breytt, þó að við værum fátæk á svona afskekktum stað. Fisk- gnægðin var óþrjótandi: við höfðum alltaf harðfisk, rikling og þorskhausa, kæsta skötu, nýjar og signar grásleppur og rauðmaga, heilagfiski, og svo nýjan fisk, einkum þorsk og ýsu — á vetrum stundum freðýsu. Lifrin úr þorskunum var látin í kútmagana og soðið hvort tveggja. Sundmagarnir voru súrsaðir og á vetrum borðaðir með heitri flóaðri mjólk. Kæstur hákarl kom stundum sem gjöf frá vinum. Lax og silung fengum við sjaldan, og þótti mikið í það varið, þegar reyktur lax barst okkur að gjöf, sem stundum kom fyrir. Kornmeti mun venjulegast hafa komið frá Borðeyri. Það var mest rúgur, bankabygg og svo hveiti og baunir.1) Af grænmeti man ég eftir káli, rófum, næpum og kartöflum. Kaffi var notað talsvert, en te úr blóðbergi, rjúpnalaufi og vallhumal. Þessar 1) Hér mun vera um ómalað korn að ræða. Ritstj. 12 HEILSUVERND

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.