Fjarðarfréttir


Fjarðarfréttir - 12.10.2017, Blaðsíða 2

Fjarðarfréttir - 12.10.2017, Blaðsíða 2
2 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2017 Útgefandi: Hönnunarhúsið ehf. kt. 450106-1350 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðni Gíslason Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, Auglýsingar: 565 3066, fjardarfrettir@fjardarfrettir.is Prentun: Ísafoldarprentsmiðja • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 2298-8858 Vefútgáfa: ISSN 2298-8866 www.fjardarfrettir.is www.facebook.com/fjardarfrettir.is Hönnunarhúsið ehf., Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Nýtt guðshús var vígt sl. sunnu dag er biskup Íslands vígði Ástjarnarkirkju. Í allri viðleitni við að tryggja rétt allra virðist eins og kristin trú og starf hennar sé ekki eins sjálfsögð og áður. Það þykir eðlilegt að nýta skattfé bæjarbúa til að byggja boltahús fyrir milljarða en svo hrekkur allt í baklás ef leitað er aðstoða við bygginu kirkjulegra bygginga. Kirkjulegt starf hefur verið með blóma í Hafnarfirði með öflugar kirkjur, þrjár kirkjur Þjóðkirkjunnar og ein öflug Fríkirkja auk kirkju kaþólskra og minni safnaða í bænum. Húsnæðið hefur verið nýtt undir fjölbreytta starfsemi og það kom fram við vígslu Ástjarnar­ kirkju að vilji væri til þess að húsið nýttist sem menn ingarhús Valla. Starf kirkjunnar er ekki síður mikilvægt í nútímaþjóðfélagi en það hefur verið. Áhersla á það góða í hverjum manni og fyrirgefninguna sem er grunnstoðin í kristinni kirkju, er sérstaklega mikilvægt í orrahríð óvandaðra ummæla sem svo auðvelt er að koma á framfæri með sam félags­ miðlum nútímans. Það er auðvelt að afneita kristinni trú með því að segja að þróunarkenningin hafi afsannað sköpunar­ kenninguna. Það er hins vegar alls ekki rétt og ef fólk er efins um sköpunarkenninguna þá er jafn auðvelt að efast um upphaf lífs samkvæmt þróunarkenningunni. Ekkert verður til úr engu og úr hverju varð mikli hvellur? Ef heimurinn er að þenjast út, hvað er þá fyrir utan hann? Trú manna byggist á svo miklu fleiru en því hvort menn trúi því að Guð hafi skapað heiminn eða hann hafi orðið til af sjálfu sér. Fólk sem ekki trúir á Guð þarf líka að virða trú kristinna manna sem trú og vantrú annarra. Starf kirkjunnar hefur breyst og þróast mikið á liðnum árum og mun breytast áfram. Allt tekur sinn tíma og góðar breytingar munu halda og efla starf kirkjunnar. Til hamingju Ástjarnarsókn! Guðni Gíslason ritstjóri. leiðarinn ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Kristín Ingólfsdóttir Hilmar Erlendsson Sverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5a, Hafnarfirði Vaktsímar: 565 5892 & 896 8242 • www.utfararstofa.is • Allan sólarhringinn Sunnudagur 15. október: Sunnudagaskóli kl. 11 Kvöldvaka kl. 20 þar sem tónlistin ræður ríkjum. Örn Arnarson leiðir okkur inn í sálmana og segir okkur söguna á bak við þá. Nánar á www.frikirkja.is og á Facebook Sunnudagur 15. október Bleik messa kl. 11 í tilefni af baráttu gegn krabbameini kvenna Sunnudagaskóli á sama tíma www.astjarnarkirkja.is Auglýsingar sími 565 3066 - 896 4613 gudni@fjardarfrettir.is Víðistaðakirkja Sunnudaginn 15. október Fjölskylduhátíð kl. 11 Barnakór Víðistaðakirkju syngur undir stjórn Helgu Þórdísar. Umsjón María og Bryndís. Hressing í safnaðarsal á eftir. Kyrrðarstund á miðvikudögum kl. 12:10 Súpa og brauð á eftir. www.vidistadakirkja.is Sunnudagur 15. október Sunnudagaskóli kl. 11 Útimessa við minnisvarðann við höfnina kl. 11 Kaffiveitingar í Kænunni á eftir í boði safnaðarins. Sjá nánar á www.hafnarfjardarkirkja.is www.facebook.com/hafnarfjardarkirkja Útimessa verður við minnismerkið á Óseyarar­ bryggju á sunnudaginn kl. 11 til að minnast fyrstu messunnar sem sungin var á Íslandi samkvæmt lútherskum sið. Er þessi messu þáttur í að minnast 500 ára siðbótarafmælisins. Þýskir kaupmenn reistu kirkju á Háagranda á árunum 1533­1534 og var messað þar í um sjö áratugi, þar til verslun þeirra var bönnuð. Til að minnast þessa var myndarlegur steinbogi afhjúpaður við höfnina árið 2003 af forsetum Íslands og Þýskalands og biskup Íslands flutti bæn og blessun. Vígslubiskupinn í Skálholti, sr Kristján Valur Ingólfsson, prédikar á sunnudaginn og þjónar ásamt prestum Hafnarfjarðarkirkju. Fulltrúi þýska sendiráðsins verður viðstaddur. Sungnir verða sálmar Lúthers. Eftir messuna býður Hafnarfjarðarsókn viðstöddum að þiggja kaffiveitingar í veitingahúsinu Kænunni. Allir eru hjartanlega velkomnir. Fyrsta lúterska messan var sungin á Háagranda Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.