Fjarðarfréttir


Fjarðarfréttir - 12.10.2017, Qupperneq 4

Fjarðarfréttir - 12.10.2017, Qupperneq 4
4 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2017 Hvað verður hægt að kjósa um? VG, Píratar, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafa valið efsta fólk á sínum listum Níu flokkar hafa tilkynnt framboð í SV­kjördæmi en tíu flokkar buðu fram sl. haust. Sex af þeim náðu inn þingmanni, ellefu kjördæmakjörnum og tveimur í uppbótarsæti. Dögun og Flokkur fólksins sem buðu fram í síðustu kosningum munu ekki bjóða fram en Miðflokkurinn kemur nýr inn. Í kosningunum 2016 bættu Píratar lang mest við sig, juku fylgi sitt um 172% á meðan Samfylking og Fram­ sókn töpuðu 64,7% af sínu fylgi hvor flokkur og Samfylking fékk engan mann á þing úr kjördæminu sem hefur ekki gerst síðan Samfylkingin var stofnuð. Töluverðar breytingar eru á efstu sætum lista flestra flokka nema hjá VG og Sjálfstæðisflokki sem eru með sama fólk í efstu sætum. Samfylkingin býður fram nýtt fólk á lista, Píratar eru með nýtt fólk í 2.­4. sæti, Viðreisn er með sömu í fyrstu tveimur sætunum, Björt framtíð fær oddvita úr Reykjavík og mikil endurnýjun er hjá Framsókn sem sækir oddvita sinn úr 2. sæti í fyrra. ALÞÝÐUFYLKINGIN Hefur ekki birt lista sinn. BJÖRT FRAMTÍÐ 1. Björt Ólafsdóttir 2. Karólína Helga Símonardóttir 3. Halldór Jörgensson FRAMSÓKN 1. Willum Þór Þórsson 2. Kristbjörg Þórisdóttir 3. Linda Hrönn Þórisdóttir PÍRATAR 1. Jón Þór Ólafsson 2. Oktavía Hrund Jónsdóttir 3. Ásta Helgadóttir SAMFYLKING 1. Guðmund ur Andri Thors son 2. Mar grét Tryggva dótt ir 3. Adda María Jó hanns dótt ir SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR 1. Bjarni Benediktsson 2. Bryndís Haraldsdóttir 3. Jón Gunnarsson VIÐREISN 1. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 2. Jón Steindór Valdimarsson 3. Sigríður María Egilsdóttir VINSTRI GRÆNIR 1. Rósa Björk Brynjólfsdóttir 2. Ólafur Þór Gunn ars son 3. Una Hild ar dóttir MIÐFLOKKURINN Tilkynnir lista sinn í vikunni. Umrótið í samfélaginu er mikið og nauðsynlegt að koma á stöðugleika og festu við stjórn landsins. Það fylgir því mikil áskorun að bjóða sig fram til setu á Alþingi. Í dag er landslag stjórnmálanna því miður ekki í þeim farvegi sem æskilegt væri. Úr því er hins vegar hægt að bæta. Stærsta verkefnið er koma á ný trausti milli almennings og þeirra sem taka sæti á Alþingi að loknum kosningum í október. Það er öllum ljóst mikilvægi þess að á Alþingi ríki andrúmsloft góðra samskipta og samvinnu. Sjálfur hef ég starfað með Willum Þór Þórssyni á vettvangi stjórnmálanna og innan knattspyrnunnar. Störf hans á Alþingi og innan íþróttanna báru vott um samviskusemi og mikla þekkingu. Í öllu okkar samstarfi kom í ljós hversu mikill leiðtogi og góður liðsmaður Willum Þór er, ásamt því að hafa mikla þekkingu á málefnum íslensks sam­ félags. Hvar sem hann kemur hefur hann jákvæð áhrif á umhverfi sitt. Ég er einn af þeim fjöl­ mörgu sem á síðustu vikum hafa skorað á Willum Þór að taka 1. sæti á lista Framsóknar í Suðvesturkjördæmi og hefur hann sem betur fer ákveðið að verða við þeirri áskorun. Fram undan er snörp kosn­ inga barátta sem vonandi verð­ ur háð á drengilegan hátt. Það er mjög mikilvægt að afloknum kosning um að heiðarlegt og samviskusamt fólk veljist til forystu. Við þurfum fleiri einstaklinga líkt og Willum Þór á Alþingi okkar Íslendinga til að koma á stöðugleika og trausti í íslensku samfélagi. Höfundur er stjórnmálafræðingur og MPM. Ágúst Bjarni Garðarsson Stöðugleiki og traust er það sem vantar KJÖRSKRÁ Í HAFNARFIRÐI Kjörskrá í Hafnarfirði vegna alþingiskosninganna þann 28. október 2017 liggur frammi almenningi til sýnis í Ráðhúsi Hafnarfjarðar, þjónustuveri, Strandgötu 6, frá kl. 8-16 alla virka daga frá 18. október 2017. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskránni. Athugsemdum við kjörskrá skal beina til bæjarráðs Hafnarfjarðar. Kjósendum er einnig bent á vefinn www.kosning.is en þar má finna hvar kjósendur eru á kjörskrá. Hafnarfirði 9. október 2017 Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðar. 585 5500 hafnarfjordur.is Úrslit 2016 flokkur atkvæði % breyting kjörd. uppb. þingmenn Sjálfstæðisflokkur (D) 18.049 33,9% +10,4% 5 0 5 Píratar (P) 7.227 13,6% +172% 2 0 2 Viðreisn (C) 6.857 12,9% 1 1 2 Vinstri græn (V) 6.378 12,0% +51,9% 1 0 1 Björt framtíð (A) 5.458 10,2% +10,9% 1 1 2 Framsókn (B) 4.062 7,6% -64,7% 1 0 1 Samfylking (S) 2.532 4,8% -64,7% 0 0 0 Flokkur fólksins (F) 1.742 3,3% 0 0 0 Dögun (T) 893 1,7% -55,3% 0 0 0 Alþýðufylkingin (R) 103 0,2% 0 0 0 Velgengni FH í Evrópukeppninni í handbolta heldur áfram en krlalið félagsins sigraði St. Petersburg á laugardag 32­27. FH sigraði Dukla Praha í fyrsta umferð samtals 61­52 en St. Petersburg fór beint inn í 2. umferð. FH leiddi í hálfleik 17­14 eftir æsi­ spennandi fyrri hálfleik. Liðin skiptust á forystunni í fyrri hálfleik og þegar staðan var 9­10 hrukku FH­ingar í gang og skoruðu næstu 5 mörk leiksins. Ágúst Birgisson stóð sig eins og hetja á línunnu þar sem hann hélt stöðu sinni vel og skoraði 4 mörk í fyrri hálfleik auk þess að fiska nokkur víti. Seinni hálfleikur var mun jafnari en FH­ingar misstu aldrei forskot sitt. Ágúst Elí Björgvinsson var frábær í markinu og varði hann oft í tvígang, Varði hann 21 skot í leiknum sem lauk sem fyrr segir 32­27. Seinni leikur liðanna fer fram á sunnudaginn í Rússlandi. Glæsilegur Evrópusigur FH Sigraði St. Petersburg frá Rússlandi Ágúst Birgisson skoraði 8 mörk Lj ós m .: Vi gn ir G uð na so n

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.