Fjarðarfréttir - 12.10.2017, Side 6
6 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2017
þjónusta
Bílaþrif. Kem og sæki. Bón verndar
bílinn. Úrvals efni. Djúp hreins un. Hagstætt
verð. Uppl. í s. 845 2100.
Tek að mér að færa yfir á (vídeó, slide,
ljósmyndir) DVD diska eða flakkara.
Sýnishorn á siggileifa.123.is sími 8637265
siggil@simnet.is, Sigurður Þorleifsson.
smáauglýsingar
fjardarfrett ir@fjardarfrett ir. is
s ími 565 3066
Verð 1.200 kr. m.v. hver 200 slög.
Myndbirting 1.200 kr.
Tapað-fundið og Gefins: FRÍTT
www.fjardarfrettir.is
SMÁAUGLÝSINGAR
FRÉTTASKOT
Sendu fréttaskot á
fjardarfrettir@fjardarfrettir.is
Hafnarborg
Tvær sýningar standa nú yfir í Hafnar-
borg. Það eru sýningarnar „Málverk –
ekki miðill“ í aðalsal safnsins og
sýningin „Erindi“ í Sverrissal.
Skyggnilýsing
Í kvöld, fimmtudag kl. 20 hefst
starf semi Sálarrannsóknarfélagsins í
Hafnarfirði með skyggnilýsingarfundi
með Þórhalli Guðmundssyni miðli í
Safnaðarheimili Fríkirkjunnar að Linn-
ets stíg 6.
Íbúafundur
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar boðar til
íbúafundar um samgöngumál með
áherslu á Reykjanesbraut þriðju-
dagskvöldið 17. október kl. 20 í
Bæjarbíói.
Núverandi skipulag - væntanlegt
skipu lag – Þormóður Sveinsson, skipu-
lagsfulltrúi. | Ófremdarástand – Hrafn-
hildur R. Halldórsdóttir, íbúi í Setbergi |
„Ég dó næstum“ - Sindri Blær Gunn-
arsson, nemi í Flensborg | Ákjósanlegar
lausnir - Lilja Guðríður Karlsdóttir,
sam gönguverkfræðingur hjá Viaplan |
Sjónarhorn Vegagerðarinnar – Hreinn
Haraldsson, vegamálastjóri | Áætlanir
stjórnvalda – Jón Gunnarsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra |
Pallborðsumræður
Hrossakjötsveisla
Á föstudaginn kl. 19 standa Haukar
fyrir Góðu hrossakjötsveislunni í for-
salnum á Ásvöllum. Boðið verður upp á
saltað hrossakjöt eins og það gerist
best. Ræðumaður kvöldsins verður
lög maðurinn og Valsarinn Brynjar
Níels son Miðapantanir og sala á
Ásvöllum í síma 525 8700 og bhg@
haukar.is.
Sendið tilkynningar um viðburði á
fjardarfrettir@fjardarfrettir.is
Á DÖFINNI
ÚRVALSDEILD KARLA
FÉLAG L U J T MÖRK NET STIG
1 Valur 22 15 5 2 43-20 23 50
2 Stjarnan 22 10 8 4 46-25 21 38
3 FH 22 9 8 5 33-25 8 35
4 KR 22 8 7 7 31-29 2 31
5 Grindavík 22 9 4 9 31-39 -8 31
6 Breiðablik 22 9 3 10 34-35 -1 30
7 KA 22 7 8 7 37-31 6 29
8 Víkingur R. 22 7 6 9 32-36 -4 27
9 ÍBV 22 7 4 11 32-38 -6 25
10 Fjölnir 22 6 7 9 32-40 -8 25
11 Víkingur Ó. 22 6 4 12 24-44 -20 22
12 ÍA 22 3 8 11 28-41 -13 17
ÚRVALSDEILD KVENNA
FÉLAG L U J T MÖRK NET STIG
1 Þór/KA 18 14 2 2 44-15 29 44
2 Breiðablik 18 14 0 4 47-10 37 42
3 Valur 18 12 1 5 48-18 30 37
4 Stjarnan 18 10 3 5 36-19 17 33
5 ÍBV 18 9 6 3 33-21 12 33
6 FH 18 7 2 9 17-24 -7 23
7 Grindavík 18 5 3 10 16-44 -28 18
8 KR 18 5 0 13 15-41 -26 15
9 Fylkir 18 2 3 13 13-36 -23 9
10 Haukar 18 1 2 15 15-56 -41 5
1. DEILD KARLA
FÉLAG L U J T MÖRK NET STIG
1 Fylkir 22 15 3 4 50-19 31 48
2 Keflavík 22 14 4 4 43-24 19 46
3 Þróttur R. 22 13 3 6 37-21 16 42
4 HK 22 14 0 8 36-28 8 42
5 Leiknir R. 22 10 6 6 38-31 7 36
6 Þór 22 10 4 8 35-31 4 34
7 Haukar 22 9 6 7 34-39 -5 33
8 Selfoss 22 8 4 10 27-29 -2 28
9 Fram 22 7 6 9 32-39 -7 27
10 ÍR 22 5 4 13 27-38 -11 19
11 Leiknir F. 22 3 1 18 23-53 -30 10
12 Grótta 22 2 3 17 16-46 -30 9
Leikskólamál hafa verið mikið til
um ræðu síðustu vikur og mánuði og því
miður kemur það ekki til af góðu.
Leikskólastjórar hafa margir hverjir átt
erfitt með að manna leikskólana og víða
hefur þurft að seinka aðlögun nýrra barna
og loka deildum. Þetta hefur eðlilega haft
mikil áhrif, bæði innan leikskólanna þar
sem álagið hefur aukist á þá starfs menn
sem fyrir eru og á foreldra sem hafa
jafnvel þurft að taka launa laust leyfi frá
vinnu með an þeir bíða eftir að leik skóla
dvöl barna þeirra geti hafist. Í tæplega
tuttugu ár hef ég starfað í leikskólum og
gegnt þar ýms um störfum, sem leið
beinandi, al mennur leikskólakennari,
deildarstjóri, sinnt sérkennslu, aðstoðar
skólastjóri og leik skólastjóri. Miklar
breytingar hafa orðið í leik skólastarfinu á
þessum árum kröfurn ar hafa aukist.
Starfsmenn í leikskólum fagna almennt
þessum auknu kröfum því þeir eru
meðvitaðir um mikilvægi þess að
skólarnir séu í stöðugri þróun og er
faglegt starf í leikskólum almennt algjör
lega til fyrirmyndar.
Í 9. grein laga um menntun og ráðningu
kennara og skólastjórnenda við leikskóla,
grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/
2008 kemur fram að tveir þriðju starfs
manna eigi að vera leikskólakennarar að
mennt en raunin er sú að aðeins þriðjungur
starfsmanna í leikskólum hefur þá mennt
un. Því miður virðist allt benda til þess að
leikskólakennurum fari hratt fækkandi,
stéttin eldist hratt, lítil nýliðun er í faginu
og fáir stunda nám á þessu
sviði. Á sama tíma er alltaf að
verða ljósara hversu mikilvæg
leik skólaárin eru í lífi barna og
að þetta eru mestu mótunarárin
í þroska hvers einstaklings. Það
er því ljóst að gríðarlega mikil
vægt er að áfram séu við störf
metnaðarfullir kennarar sem
bera ábyrgð á menntun barn
anna í bland við aðra starfsmenn
leikskóla sem hafa dýrmæta reynslu í sínu
starfi. Þrátt fyrir aukið álag í leikskólastarfi
hafa starfsmenn leik skólanna staðið vörð
um faglega starfið og í stað þess að slaka
á kröfunum þá vinna þeir hraðar og taka
meiri vinnu á sig svo börn og foreldrar
þurfi ekki að líða fyrir þá stöðu sem uppi
er. Það eru þó takmörk fyrir hversu lengi
hægt að standa vörð um núverandi starf
og því miður eru kennarar fjölmennasta
háskólamenntaða starfsstéttin sem leitar
eftir þjónustu hjá Virk starfsendurhæfingu
vegna langtíma veikinda.
Margir hafa haldið því fram að leiðin til
að laða að fleiri leikskólakennara og auka
starfsánægju sé að hækka launin. Að
sjálfsögðu eiga launin að vera mann sæm
andi og lýsandi fyrir það hvar mestu auð
æfin okkar eru geymd stóran hluta dags
ins en ég hef bent á að fyrst og fremst
þarf að huga að starfsumhverfi kennara.
Ég tel að við þurfum að endur
skilgreina leikskólann og grípa
til róttækra aðgerða sem von
andi gerir starfsum hverfið
meira aðlaðandi. Mín tillaga er
sú að við skil greinum leikskóla
til klukkan tvö á daginn og eru
kenn arar með börnunum í
skipu lögðu skólastarfi á þeim
tíma þar sem markvisst er hug
að að öllum grunn þáttum
mennt unar. Tíminn eftir klukkan tvö
verði skilgreindur sem lengd viðvera og
fer þá fram annars konar nám. Á þeim
tíma sinna kennarar undirbúningi, sam
ráði og fundum en börnin eru áfram í
örugg um höndum annarra starfsmanna
og sú vinna sem fer fram þá og þar til
börnin eru sótt er skipulögð á annan máta.
Með þessari breytingu sé ég fram á að
leikskólinn verði meira aðlaðandi vinnu
staður fyrir kennara sem er gríðarlega
mikilvægt fyrir okkur öll sem viljum
vegferð barna okkar sem allra besta.
Höfundur er leik- og grunnskóla-
kennari og skipar 3. sæti á lista
Framsóknarflokksins í
Suðvesturkjördæmi.
Linda Hrönn
Þórisdóttir
Stöndum vörð um faglegt leikskólastarf
Lokastaðan í knattspyrnunni
Knattspyrnuleiktíðinni er lokið og
niðurstaða hafnfirsku liðanna var ekki
eins og bjartsýnir vonuðust eftir.
Eftir frábært gengi á undanförnum
árum eru mikil vonbrigði með 3. sætið
í úrvalsdeild karla. Heimi Guðjónssyni
var í kjölfarið sagt upp eftir glæsileg ár
með liðinu.
Eftir nokkrar væntingar og spennu
hjá kvennaliði Hauka sem kom upp í
úrvalsdeildina í fyrra, varð leiktíðin
gríðarleg vonbrigði með aðeins tvö
jafntefli og einn sigur – í síðasta leik
liðsins sem fellur aftur í 1. deild.
FH stúlkurnar héldu sér í miðri
deildinni, unnu 7 leiki og gerðu tvö
jafntefli.
Haukar sýndu flotta spretti í 1. deild
inni, ekki síst á heimavelli en gáfu ör
lítið á lokametrunum er þeir töpuðu
þrem ur leikjum í röð og enduðu í 7.
sæti
Fyrirtækjaheimsókn Markaðsstofunnar
Markaðsstofan ákvað að taka hádeg
is fræðsl una sem stofan hefur verið að
bjóða upp á aðeins lengra og leita til
fyrirtækjanna í bænum og fá þau til að
bjóða hafnfirskum fyrirtækj um heim.
Fyrsta fyrirtækjaheimsókn Markaðs
stofunnar af mörgum verður þann 19.
október frá kl. 1719 en þá bjóða
Gaman Ferðir fyrirtækjunum í bænum
í heimsókn.
Segir í tilkynningu að þetta sé kjörið
tækifæri til að kynnast starfsemi Gaman
Ferða betur og heyra reynslusögur úr
rekstrinum. „Fyrirtækjaheimsóknir eru
góður vettvangur fyrir hafnfirsk fyrir
tæki til að efla og styrkja tengslanetið
og kynnast öðrum fyrirtækjaeigendum
í bænum,“ segir í tilkynningunni.
Léttar veitingar verða í boði og
skráning á msh.is