Fjarðarfréttir - 12.10.2017, Side 8
8 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2017
Ný Ástjarnarkirkja var vígð
sl. sunnudag við hátíðlega
athöfn. Reyndar er þetta aðeins
fyrri hluti byggingaráforma
sóknarnefndar en á að duga
sókninni fyrst um sinn. Biskup
Íslands, Agnes M. Sigurðar
dóttir leiddi athöfnina en naut
aðstoðar sr. Þórhildar Ólafs
prófasts Kjalarnessprófasts
dæmis og sr. Kjartans Jóns
sonar sóknarprests.
Athöfnin hófst með því að
sóknarnefnd, prestur, biskup
og fleiri gengu í skrúðgöngu
inn og fremstur fór formaður
sóknarnefndar með kross en
kirkjumunir voru bornir inn og
lagðir á altarið.
Ástjarnarsókn var stofnuð í
október 2001 sem tilrauna
verk efni en sóknin verður með
stærstu sóknum landsins á
næstu árum.
Fyrstu árin fékk Ástjarnar
kirkja inni á Ásvöllum og svo
eftir að sóknin fékk úthlutað
lóð að Kirkjuvöllum 1 og
tveim ur gömlum kennslu
stofum frá Hafnarfjarðarbæ
árið 2006 voru athafnir þar en
stærri athafnir áfram á Ás
völlum.
Árið 2013 hófst undir
búningur að byggingu kirkju
og var síðar haldin hönnunar
samkeppni á safnaðarheimili
þar sem gert væri ráð fyrir
kirkju skipi á síðari stigum.
Teiknistofan Arkís var svo
fengin til að hanna safnaðar
heimilið og gengið til samn
inga við Teiknistofuna Óðins
torgi um verkfræði hönn un. í
ágúst 2015 hófst jarðvinna og í
nóvember var samið við SÞ
verk taka um byggingu safnað
ar heimilisins sem tekið var svo
í notkun tveimur árum seinna
og fyrsta guðsþjónustan var
haldin í húsinu 20. ágúst.
Fjármögnun verkefnisins
hefur verið nokkuð strembin
og ekki er útlit fyrir að hægt
veri að ráðast í byggingu
kirkju skipsins á næstu árum.
Hafnarfjarðarbær leigir hús
næðið undir skólastarf Skarðs
hlíðarskóla fyrsta starfsár skól
ans en Geir Jónsson formaður
sóknarnefndar upplýsti að
töluvert minna hafi komið út
úr samningi við Hafnar
fjarðarbær um leiguna en vonir
stóðu til. Hafði sóknin gert sér
vonir um svipaðan meðaltals
stuðning og bærinn hefur veitt
öðrum kirkjum í Hafnarfirði í
gegnum árin. Hafnarfjarðarbær
kostar gerð bílastæða sem
einn ig eru opin fyrir aðra notk
un.
Sagði Geir að nú væri verk
efni sóknarnefndar að afla
tekna til að ljúka því sem út af
stendur. „Það er einlæg von
okkar sem að þessu hafa kom ið
að þetta hús muni þjóna hverf
inu okkar sem kirkja næstu árin
og einnig sem menn ing arhús,
undir fjölbreytta starf semi,“
sagði Geir að lokum.
Safnaðarheimilið, sem verð
ur nú kallað kirkja, er um 800
m² að stærð með fjölnota sal,
skrifstofur, eldhús, fundar her
bergi auk snyrtinga og
geymslu. Húsið er hið glæsi
legasta, greinilega vel til vand
að og hagkvæmni í fyrirrúmi.
Stóra salnum má skipta niður í
minni sali. Stór gluggahlið
snýr út að fallegu hrauninu og
bak við altarið er stór glugga
veggur að lokuðum altaris
garði.
Myndir á www.fjardarfrettir.is
Flatahrauni 5a
Boltinn í beinni og lifandi
tónlist allar helgar.
Tilvalinn staður fyrir
einkasamkvæmi stærri
og smærri hópa.
Happy Hour alla daga
frá kl. 16 til 19 og fleiri
flott tilboð á barnum.
Flatahrauni 5a, Hafnarfirði
sími 578 0200
Sími: 555 7030
www.burgerinn.is
Ný Ástjarnarkirkja vígð
Bylting fyrir safnaðarstarfið og mun nýtast sem menningarhús fyrir hverfið
Sigríði, Jónasi, Birni og Sigurði voru þökkuð mikil og
óeigingjörn störf á meðan byggingu stóð.
Kjartan Jónsson sóknarprestur við altarið, altarisgarðurinn í baksýn.
Kirkjan var þéttskipuð – Gluggahliðin opnar sýn að fallegu hrauninu.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Geir Jónsson, formaður
sóknarnefndar.
Biskup Íslands tekur við altariskerti úr hendi ungs sóknarbarns.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n