Fjarðarfréttir


Fjarðarfréttir - 12.10.2017, Qupperneq 8

Fjarðarfréttir - 12.10.2017, Qupperneq 8
8 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2017 Ný Ástjarnarkirkja var vígð sl. sunnudag við hátíðlega athöfn. Reyndar er þetta aðeins fyrri hluti byggingaráforma sóknarnefndar en á að duga sókninni fyrst um sinn. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðar­ dóttir leiddi athöfnina en naut aðstoðar sr. Þórhildar Ólafs prófasts Kjalarnessprófasts­ dæmis og sr. Kjartans Jóns­ sonar sóknarprests. Athöfnin hófst með því að sóknarnefnd, prestur, biskup og fleiri gengu í skrúðgöngu inn og fremstur fór formaður sóknarnefndar með kross en kirkjumunir voru bornir inn og lagðir á altarið. Ástjarnarsókn var stofnuð í október 2001 sem tilrauna­ verk efni en sóknin verður með stærstu sóknum landsins á næstu árum. Fyrstu árin fékk Ástjarnar­ kirkja inni á Ásvöllum og svo eftir að sóknin fékk úthlutað lóð að Kirkjuvöllum 1 og tveim ur gömlum kennslu­ stofum frá Hafnarfjarðarbæ árið 2006 voru athafnir þar en stærri athafnir áfram á Ás ­ völlum. Árið 2013 hófst undir­ búningur að byggingu kirkju og var síðar haldin hönnunar­ samkeppni á safnaðarheimili þar sem gert væri ráð fyrir kirkju skipi á síðari stigum. Teiknistofan Arkís var svo fengin til að hanna safnaðar­ heimilið og gengið til samn­ inga við Teiknistofuna Óðins­ torgi um verkfræði hönn un. í ágúst 2015 hófst jarðvinna og í nóvember var samið við SÞ verk taka um byggingu safnað­ ar heimilisins sem tekið var svo í notkun tveimur árum seinna og fyrsta guðsþjónustan var haldin í húsinu 20. ágúst. Fjármögnun verkefnisins hefur verið nokkuð strembin og ekki er útlit fyrir að hægt veri að ráðast í byggingu kirkju skipsins á næstu árum. Hafnarfjarðarbær leigir hús­ næðið undir skólastarf Skarðs­ hlíðarskóla fyrsta starfsár skól­ ans en Geir Jónsson formaður sóknarnefndar upplýsti að töluvert minna hafi komið út úr samningi við Hafnar­ fjarðarbær um leiguna en vonir stóðu til. Hafði sóknin gert sér vonir um svipaðan meðaltals stuðning og bærinn hefur veitt öðrum kirkjum í Hafnarfirði í gegnum árin. Hafnarfjarðarbær kostar gerð bílastæða sem einn ig eru opin fyrir aðra notk­ un. Sagði Geir að nú væri verk­ efni sóknarnefndar að afla tekna til að ljúka því sem út af stendur. „Það er einlæg von okkar sem að þessu hafa kom ið að þetta hús muni þjóna hverf­ inu okkar sem kirkja næstu árin og einnig sem menn ing arhús, undir fjölbreytta starf semi,“ sagði Geir að lokum. Safnaðarheimilið, sem verð­ ur nú kallað kirkja, er um 800 m² að stærð með fjölnota sal, skrifstofur, eldhús, fundar her­ bergi auk snyrtinga og geymslu. Húsið er hið glæsi­ legasta, greinilega vel til vand­ að og hagkvæmni í fyrirrúmi. Stóra salnum má skipta niður í minni sali. Stór gluggahlið snýr út að fallegu hrauninu og bak við altarið er stór glugga­ veggur að lokuðum altaris­ garði. Myndir á www.fjardarfrettir.is Flatahrauni 5a Boltinn í beinni og lifandi tónlist allar helgar. Tilvalinn staður fyrir einkasamkvæmi stærri og smærri hópa. Happy Hour alla daga frá kl. 16 til 19 og fleiri flott tilboð á barnum. Flatahrauni 5a, Hafnarfirði sími 578 0200 Sími: 555 7030 www.burgerinn.is Ný Ástjarnarkirkja vígð Bylting fyrir safnaðarstarfið og mun nýtast sem menningarhús fyrir hverfið Sigríði, Jónasi, Birni og Sigurði voru þökkuð mikil og óeigingjörn störf á meðan byggingu stóð. Kjartan Jónsson sóknarprestur við altarið, altarisgarðurinn í baksýn. Kirkjan var þéttskipuð – Gluggahliðin opnar sýn að fallegu hrauninu. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Geir Jónsson, formaður sóknarnefndar. Biskup Íslands tekur við altariskerti úr hendi ungs sóknarbarns. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.