Fjarðarfréttir - 18.04.2018, Blaðsíða 2
2 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018
Útgefandi: Hönnunarhúsið ehf. kt. 450106-1350
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðni Gíslason
Ritstjórn og auglýsingar: 565 4513, 896 4613
fjardarfrettir@fjardarfrettir.is
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja • Dreifing: Póstdreifing
ISSN 2298-8858 Vefútgáfa: ISSN 2298-8866
www.fjardarfrettir.is
www.facebook.com/fjardarfrettir.is
Hönnunarhúsið ehf., Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Það eru Bjartir dagar í Hafnar
firði. Menningin blómstrar og
gróska í miðbænum sem býður
nýs deiliskipulags og áforma
um uppbyggingu. Sumarið er að
koma og skrúðganga skátanna
er eitt fyrsta merki um sumarkomuna og bæjarbúar
fylkja liði og ganga glaðbeittir með, haldandi á
íslenska fánanum og eru í hátíðarskapi. Bæjarbúar
taka þátt í hátíðarhöldum Bjartra daga, gleðjast og
hitta aðra í skugga þess að það er ekki svo bjart alls
staðar í Hafnarfirði.
Það eru ekki bjartir dagar í bæjarstjórn Hafnar
fjarðar þar sem farið er á svig við lög og siðferðið
látið liggja á milli hluta.
Það var Björt framtíð í Hafnarfirði sem boðaði
samstöðupólitík og ný og betri vinnubrögð í
stjórn sýslunni. Lítið var látið reyna á samstöðu
pólitíkina þegar möguleiki sást á meirihlutastarfi
og aðgerðir undanfarinna vikna hfa sýnt að verri
vinnubrögð hafa verið tekin upp og lýðræðið
fótum troðið.
Nú segjast Píratar vilja breyta svo svona
starfshættir eigi sér ekki stað á ný og oddviti þeirra
í Hafnarfirði segir bæjaráði haldið saman með
þeim hætti sem eru brot á lögum og reglum og
segir meirihlutann í raun fallinn.
Mönnum finnst ekkert að því að einn bæjar
fulltrúi skrái lögheimili sitt hjá systur sinni í
Hafnarfirði þó hann sé fluttur úr sveitarfélaginu.
Hinir bæjarfulltrúarnir sitja þegjandi hjá.
Sjálfstæðisflokkurinn styður gerræðislegar
aðgerðir forseta bæjarstjórnar og fyrrum oddvita
Bjartrar framtíðar þrátt fyrir að þær gjörðir séu í
andstöðu við 49. gr. sveitarstjórnarlaga. Samfylking
og Vinstri grænir greiða ekki atkvæði gegn þessum
tillögum, heldur sitja hjá og enginn gerir athuga
semd að málið var ekki einu sinni á dagskrá
fundarins.
Enginn gerir heldur athugasemd að samþykkt
bæjarstjórnar þann 14. mars stendur enn þar sem
bæjarstjórn afgreiddi málið ekki né tók ákvörðun
ina til baka á fundinum 11. apríl.
Þó sök bæjarfulltrúa sé mis mikil þá er enginn
saklaus í þessu máli og hafa bæjarfulltrúar látið
ranglæti viðgangast og hafa ekki einu sinni haft
fyrir því að kanna lögmæti þess sem menn voru að
fara að gera.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Flatahraun 5a
Símar allan sólarhringinn: 565 5892 & 896 8242
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er
www.utfararstofa.is
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Sunnudagur 22. apríl
Country messa á
Björtum dögum og
sunnudagaskóli kl. 11
Skráning
fermingarbarna
2018-2019 hafin
Sjá nánar á www.hafnarfjardarkirkja.is
www.facebook.com/hafnarfjardarkirkja
Smardagurinn fyrsti 19. apríl
Skátamessa kl. 13
Sunnudagur 22 apríl
Blómamessa kl. 11
Barnakórinn syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar.
Fjölbreytt fjölskyldustund
í umsjá Maríu og Bryndísar.
Eftir guðsþjónustu á kirkjutorginu:
Grill - Leikir
www.vidistadakirkja.is
Sunnudagurinn 22. apríl:
Sunnudagaskóli kl. 11
Nánar á www.frikirkja.is og á Facebook
ABC barnahjálp opnaði nýjan nytjamarkað að
Dalshrauni 13, í stóru glæsilegu húsnæði. Tekið er við
fötum, búsáhöldum, leikföngum, bókum, plötum og
geisladiskum, húsgögnum, veggmyndum og
rafmagnstækjum svo eitthvað sé nefnt.
Opið verður alla virka daga kl. 1218 og 1216 á
laugardögum.
Að sögn Írisar Óskar Friðriksdóttur verkefnastjóra
er hlutum sem komið er til þeirra komið í nýjar hendur
gegn vægu verði og rennur allur ágóði markaðarins til
starfsemi ABC barnahjálpar sem styður fátæk börn til
náms í Afríku og Asíu.
Tekið er á móti vörum að Dalshrauni 13 alla virka
daga á milli kl. 12 og 18.
ABC rekur nú þegar með Nytjamarkað í Víkurhvarfi
2 í Kópavogi en samtökin hafa rekið Nytjamarkað til
styrktar starfsins í 10 ár.
Nýr Nytjamarkaður ABC
Opnaði í gær að Dalshrauni 13
Opnað síðar um helgar
Fjölmargir sundlaugargestir hafa lýst óánægju sinni
með því að stóru sundlaugarnar verði, frá næstu
mánaðarmótum opnaðar kl. 9 í stað 8 um helgar. Er
þetta gert um leið og opið verður lengur virka daga
ogauk þess verður opið á morgnana um helgar í Su
ndhöllinni, en þar hefur verið lokað á þeim tímum.
Hafa menn sent inn mótmæli og líka bent á að þett
askerði aðgengi hreyfihamlaðra um helgar.
Glundroði í
bæjarstjórn
Litin er mjög alvarlegum augum sú misbeiting
valds sem átt hefur sér stað í bæjarstjórn Hafnarfjarðar
og í bæjarráði.
1. Þann 14. mars var tekið fyrir erindi Guðlaugar
Svölu sem hafði tilkynnt ótímabundin forföll sem
bæjarfulltrúi. Samþykkt var að varamaður hennar
Borghildur yrði aðalmaður í bæjarstjórn.
2. Þann 5. apríl er Borghildi sem löglegum 2.
varamanni BF í bæjarráði meinað að sitja fund þrát
fyrir ákvæði í 39. gr. samþykkta um stjórn Hafnar
fjarðarkaupstaðar.
3. Þann 11. apríl mætir Guðlaug aftur í bæjarstjórn
án nokkurra skýringa á fundinum.
4. Á fundinum 11. apríl leggja Guðlaug og Einar
Birkir til breytinga í ráði og stjórn bæjarins án þess að
málið sé á dagskrá og í andstöðu við 49. gr. sveitar
stjórnarlaga.
5. Einar Birkir Einarsson situr í bæjarstjórn í krafti
þess að hann skráir lögheimili sitt hjá systur sinni í
Hafnarfirði þó hann búi sjálfur í Kópavogi.
6. Erindi hefur verið sent til samgöngu og sveitar
stjórnarráðuneytis sem er með málið í skoðun.