Fjarðarfréttir - 18.04.2018, Síða 6
6 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018
Það voru merk tímamót í íþróttasögu
Hafnarfjarðar er nýr íþróttasalur var
vígður á Ásvöllum sl. fimmtudag, á 87
ára afmæli Hauka. Salurinn er sérstak
lega hannaður sem körfu knattleiks völlur
og nefndur eftir Ólafi heitnum Rafnssyni,
fyrrum formanni ÍSÍ og Haukamanni.
Hægt er að skipta salnum í tvennt og
reiknað með að salurinn verði einnig
notaður undir skólaleikfimi og mun
leysa úr brýnni þörf á húsnæði fyrir
íþróttastarfsemi Hauka.
Húsið er ekki að fullu tilbúið að utan
en að innan er það fullbúið fyrir utan að
skipta þarf út aðalkörfum vallarins sem
ekki munu standast staðla. Þá er eftir að
koma fyrir áhorfendapöllum.
Fulltrúar SÞ verktaka afhentu á
táknrænan hátt lykil af húsinu til bæjar
yfirvalda sem afhentu svo formanni
Hauka hann. Ýmsir fluttu ávarp og fögn
uðu tímamótunum en athygli vakti er
Gerður Guðjónsdóttir, ekkja Ólafs
Rafnssonar, flutti ávarp og afhenti Hauk
um eina milljón kr. til hugar þjálfunar en
styrkurinn er veittur úr minningarsjóði
Ólafs Rafnssonar. Þá blessaði sr. Kjartan
Jónsson, sóknarprestur í Átjarnarkirkju
salinn.
Fjölmargir voru viðstaddir athöfnina,
fulltrúar hönnuða og verktaka, stjórn
málamenn, fulltrúar íþróttasamtaka,
Haukafólk og fleiri gestir.
Við athöfnina var einnig skrifað undir
nýjan rekstrarsamning Hafnarfjarðar
bæjar við Hauka þar sem gert er ráð
fyrir rekstri hins nýja húss.
SÞ verktakar buðu lægst í byggingu
hússions, 516,3 milljónir kr. en heildar
kostnaður við framkvæmdirnar liggur
ekki fyrir þar sem framkvæmdum er
ekki lokið.
Nýr glæsilegur íþróttasalur vígður
Í fullri eigu Hafnarfjarðarbæjar og fékk nafnið Ólafssalur
Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Samúel Guðmunsson formaður Hauka
undirrita rekstrarsamning um rekstur hins nýja íþróttahúss.
Nýi glæsilegi íþróttasalur Hafnfirðinga á Ásvöllum við vígsluna.
Fleiri myndir frá vígslunni má finna á www.fjardarfrettir.is
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Kvennalið Hauka í körfuknattleik sló
Skallagrím úr Borgarnesi út í þremur
leikjum, unnu 8874, 7564 og 7763
og leika því til úrslita um Íslands
meistaratitilinn í körfubolta við Val.
HEIMALEIKUR
SUMARDAGINN FYRSTA
Haukar, sem eru deildarmeistarar,
eiga heimaleik í fyrsta leik á Ásvöllum
kl. 19.15 á morgun, sumardaginn
fyrsta.
Haukastúlkur stefna að sjálfsögðu á
Íslandsmeistaratitilinn. Þær unnu Val í
fyrsta leik í deildinni með 14 stigum en
töpuðu seinni leiknum með 10 stigum.
Það má því búast við spennandi keppni.
KR SLÓ KARLALIÐ ÚT
Eftir góða byrjun karlaliðs Hauka í
undanúr slitarimmunni gegn KR en þeir
sigruðu með 9 stiga mun, tapaði liðið
næst aleik með 8 stigum og spiluðu frá
sér unnum leik er þeir töpuðu með einu
stigi í þriðja leiknum. KR innsiglaði
svo sigurinn með 6 stiga mun á heima
velli og Haukar því komnir í sumarfrí.
Haukakonur í úrslit
KR sló karlaliðið út í körfuboltanum
Boltinn í beinni og lifandi tónlist allar helgar.
Tilvalinn staður fyrir einkasamkvæmi
stærri og smærri hópa.
Happy Hour alla daga frá kl. 16 til 19
og fleiri flott tilboð á barnum. Flatahrauni 5a, Hafnarfirði
sími 578 0200
Deildarmeistarar Hauka í körfubolta kvenna 2018.