Fjarðarfréttir - 18.04.2018, Page 14
14 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2018
Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir, sem
er að ljúka BA námi í skapandi
tónlistarmiðlun í Listaháskólanum,
hefur verið að vinna með Sinfóníu
hljóm sveit Tónlistarskólans og Ár
manni Helgasyni, stjórnandi hennar,
undan farnar vikur. Verkið er samið
fyrir sinfóníuhljómsveit og sögumann
og er ætlað börnum. Verkið er byggt á
sögunni um Tindátann staðfasta eftir
H.C. Andersen.
Sinfóníuhljómsveitin verður með
stutta tónleika í Hafnarborg síðasta
vetrardag kl. 19.30 þar sem verkið
verður frumflutt. Einnig verða flutt
íslensk lög og létt klassísk tónlist þ.á.m.
Á Sprengisandi, Hani krummi og lög úr
Hnotubrjótnum. Ókeypis að gangur.
Sinfóníuhljómsveit TH frumflytur verk
þjónusta
Tek að mér að færa yfir á (vídeó, slide,
ljósmyndir) DVD diska eða flakkara.
Sýnishorn á siggileifa.123.is sími 8637265
siggil@simnet.is, Sigurður Þorleifsson.
smáauglýsingar
fjardarfrett ir@fjardarfrett ir. is
s ími 565 3066
Verð 1.200 kr. m.v. hver 200 slög.
Myndbirting 1.200 kr.
Tapað-fundið og Gefins: FRÍTT
www.fjardarfrettir.is
SMÁAUGLÝSINGAR
Hellisgerði aðalfundur
Aðalfundur Hollvinafélags Hellisgerðis
verður haldinn á laugardag kl. 11 í
Gaflaraleikhúsinu. Venjuleg aðal-
fundar störf og umræður um framtíð
félagsins. Kaffi og spjall í lok fundar.
Bjartir dagar
Sjá bls. 8-9.
Hafnarborg
Í aðalsal safnsins er sýningin Margoft
við sjáum og margoft við sjáum
aftur, með verkum Jóhönnu Krist-
bjargar Sigurðar dóttur. Í Sverrissal er
sýn ingin Afstæði þar sem sjá má ný
málverk eftir Jón Axel Björns son.
Sendið tilkynningar um viðburði á
fjardarfrettir@fjardarfrettir.is
Á DÖFINNI
Ein mikilvægasta forsenda þess að
lýðræðissamfélög virki er að almenningur
beri traust til mikilvægra stofnana sam
félagsins. Frá hruni hafa margar stofnanir
landsins glímt við minnkandi
traust almennings á þeim. Nægir
að nefna hið háa Alþingi í því
samhengi. Sömu lögmál gilda
um bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Það er því þyngra en tárum taki
að fylgjast með þeim farsa og
glundroða sem einkennt hafa
störf bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
síðustu vikur og mánuði. Núver
andi meirihluti, undir forystu
Sjálfstæðisflokksins, ber fulla ábyrgð á
glundroðanum, sem grefur undan því
trausti sem bæjarstjórn verður að njóta.
Atburðarás síðustu daga og vikna er
einfaldlega með þeim hætti að heiður
bæjarstjórnar er að veði.
VIRÐINGAR LEYSI
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Rekja má glundroðann til þess alvöru
og virðingarleysis sem Sjálfstæðis
flokkurinn sýndi bæjarstjórn þegar flokk
urinn lagði fram sýndartillögu síðasta
sumar um byggingu tveggja knatthúsa í
Hafnarfirði. Tillagan var eingöngu lögð
fram í pólitískum tilgangi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og í trausti
þess að hún yrði aldrei samþykkt.
Meirhlutinn klofnaði þegar
tillagan var afgreidd og hún var
að sjálfsögðu felld í bæjarstjórn.
Til marks um hversu lítil alvara
fylgdi málum þá datt engum
innan meirihlutans í hug að það
myndi hafa þær afleiðingar að
honum yrði slitið. Sjálfstæðis
flokkurinn hafði náð markmiði sínu, að
gera sig gildandi í augum hagsmunaaðila
en því miður var bæjarstjórn niðurlægð í
leiðinni. Og nú er staðan sú að búið er að
reka báða varabæjarfulltrúa samstarfs
flokksins, sem reyndust ekki nógu dyggir
meðreiðarsveinar Sjálfstæðisflokksins, úr
öllum nefndum og ráðum. Bæjarfulltrúi er
kallaður úr veikindaleyfi og Sjálfstæðis
flokkurinn samþykkir að bæjarfulltrúi búi
utan bæjarfélagsins en skrái lögheimili sitt
í Hafnarfirði. Seinna atriðið er í besta falli
löglegt en siðlaust og spurning hversu
marga bæjarfulltrúa með slíka búsetu
Sjálfstæðisflokkurinn væri tilbúinn að
samþykkja til að halda völdum. Þetta eru
afleiðingarnar af sýndarmennsku og
blekkingum Sjálfstæðisflokksins síðasta
sumar.
ALMANNAHAGUR RÁÐI
FÖR
Til þess að endurreisa virðingu og traust
á bæjarstjórn Hafnarfjarðar leggur
Samfylkingin áherslu á vönduð og fagleg
vinnubrögð þar sem ákvarðanir eru teknar
út frá almannahag. Flokkspólitískir hags
munir og aðrir sérhagsmunir mega ekki
ráða för. Til að ró og festa einkenni á nýjan
leik störf bæjarstjórnar Hafnarfjarðar er
nauðynlegt að Samfylkingin fái sterka
útkomu úr kosningunum í vor. Þannig
verður tryggt að almannahagsmunir verði
hafðir að leiðarljósi við stjórn bæjarins
næstu fjögur árin.
Höf. skipar 5. sætið á lista
Samfylkingarinnar í Hafnarfirði
Árni Rúnar
Þorvaldsson
Glundroði í bæjarstjórn í Hafnarfirði
– í boði Sjálfstæðisflokksins
Nýstofnað kammertríó, Tríó Amasia
kemur fram á tónleikum á sumardaginn
fyrsta á lista og menningarhátíðinni
Björtum dögum. Tríó Amasia skipa þau
Hlín Erlends dóttir fiðluleikari, Ármann
Helgason klarinettuleikari og Þröstur
Þorbjörns son gítarleikari.
Efnisskrá tónleikana samanstendur af
litríkum tónum fyrir fiðlu, klarinettu og
gítar þar sem heyra má ólík stílbrigði.
Tónverkin eiga það sameiginlegt að
vera undir áhrifum tónlistar millistríð
áranna og má þar nefna áhrif frá
franskri kaffihúsa og götutónlist, jazzi ,
eistlenskum og armenskum þjóðlögum,
dönsum frá Kúbu og Suður Ameríku
og argentískri tangótónlist.
Tónleikarnir verða í Fríkirkjunni
Hafnarfirði sumardaginn fyrsta kl. 17.
Aðgangur er ókeypis.
Tríó Amasia með tónleika
Tónlist millistríðsáranna
A sunnudaginn kl. 20, slá þær Hulda
Jónsdóttir, fiðluleikari og Tinna Þor
steinsdóttir, píanóleikari botninn í
fimmta starfsár tónleikaraðarinnar
Hljóðön í Hafnarborg með tónleikum
sínum tileinkuðum andþemum og
örsögum. Frumflutt verður nýtt verk
Karólínu Eiríksdóttur Örsögur að vori,
sem samið er sérstaklega í tilefni
tónleikanna og fléttast verkið saman við
andþemu og styttri frásagnir allt frá
miðbiki 20. aldar og fram á okkar daga,
í verkum Pierre Boulez, Karlheinz
Stockhausens, Giacinto Scelsis og
Bryns Harrisonar.
Nýtt tónverk frumflutt
Listamaðurinn Ingvar Björn setur
upp sýninguna Tourist á Björtum dög
um kl. 19 á sumardaginn fyrsta á Víði
staðatúni. Tourist er nokkuð margþætt
verk sem bæði byggist upp á innsetn
ingu, skúlptúr, tónlist, og málverkum.
Vill hann fá bæjarbúa til að koma í
höggmyndagarðinn Víðistaða tún og
njóta fegurðar sem garðurinn býður upp
á. Þar sem gestir munu fá sér göngu á
milli verka. Ingvar hefur sett gínur víðs
vegar um garðinn og hefur hann málað
á þær texta sem er á kín versku, ensku og
íslensku um íslenska náttúru og eru þau
lýst upp á skemmti legan hátt. Hann
setur hljóð víðs vegar um garðinn með
náttúruhljóðum og munu gestir upplifa
misjöfn hljóð hvar sem hann er í
garðinum.
Fyrir þá sem hafa ekki eins gaman af
innsetningum mun verslunar miðstöðin
Fjörður setja upp verk Ingvars víðs
veg ar um húsið þannig að gestir fá
innsýn á náttúruna frá lista manninum.
Vill Ingvar meina að í list séu engin
landamæri og að íslenska náttúran geti
sameinað mismunandi þjóðerni. Því
feg urðin og fjölbreytileikinn standi
alltaf upp úr þegar kemur að náttúru
Íslands.
Ingvar Björn með innsetn
ingu á Víðistaðatúni
Sýnir einnig risamyndir í Firði