Feykir - 12.02.2020, Page 10
Útivistarskýli í Sauðárgili
Ásýnd svæðisins með
skírskotun í skagfirska sögu
Í nóvember voru lagðar fyrir
umhverfis- og samgöngunefnd
endanlegar teikningar af
útivistarskýli í Sauðárgili á
Sauðárkróki en undanfarin ár
hefur nokkuð verið kallað eftir
uppbyggingu á aðstöðu og
afþreyingu þar og í Litla-Skógi
sem staðsettur er ofar í gilinu.
Ýmsum möguleikum hefur verið
velt upp í því samhengi og m.a.
skoðuð uppbygging á aðstöðu í
lundi neðarlega í gilinu.
Að sögn Indriða Þórs Einars-
sonar, sviðsstjóra veitu- og
framkvæmdasviðs, voru frum-
drög að þeirri hugmynd unnin
árið 2017 og er þar gert ráð
fyrir útivistarskýli, litlu leik-
svæði, grillaðstöðu og sviði.
Staðsetning svæðisins er m.a.
valin með það í huga að gott
aðgengi verði að því. Umhverf-
is- og samgöngunefnd Sveitar-
félagsins hefur haft málið til
umfjöllunar frá upphafi og
fylgt því eftir.
Ákveðið var að hefja vinnu
við hönnun á útivistarskýlinu
sem fyrsta áfanga uppbyggingar
á þessu svæði og hófst sú vinna
árið 2018. Stefnt er að því að
halda áfram uppbyggingu á
svæðinu á næstu árum.
Indriði segir að gert sé ráð
fyrir að allt að 40 gestir geti notað
skýlið samtímis. Skýlið er opið
og er tyrft þakið borið uppi af
timbursúlum sem ganga ofan í
steyptar undirstöður. Bálstæði
verður í miðju skýlinu til að nota
fyrir matseld og að einhverju
leyti til hitunar rýmisins. Grjót-
hleðslur eru umhverfis skýlið.
Á fjárhagsáætlun ársins
2019 voru sex milljónir ætlaðar
til hönnunar og mögulegra
efniskaupa og í nýsamþykktri
fjárhagsáætlun ársins 2020 er
gert ráð fyrir 10 milljónum í
framkvæmdina.
„Arnar Birgir Ólafsson,
landslagsarkitekt á Teiknistofu
Norðurlands, hefur annast
hönnun á skýlinu og liggja nú
fyrir endanlegar teikningar af
því. Byggingunni er ætlað að
hýsa aðstöðu fyrir athafnir og
samkomur tengdum útivist af
ýmsum toga og er sú upp-
bygging stórt skref í að auka
enn frekar notagildi þessa frá-
bæra útivistarsvæðis sem Sauð-
árgilið og Litli-Skógur er fyrir
íbúa og gesti sveitarfélagins,“
segir Indriði en heildar ásýnd
svæðisins er með skírskotun í
skagfirska sögu og uppbygg-
ingu bæjarstæða til forna. /PF
Staðsetning skýlisins í Sauðárgili..
Þrívíddarteikning af skýlinu. TEIKNISTOFA NORÐURLANDS
Grunnmynd af skýlinu. TEIKNISTOFA NORÐURLANDS
Veðurspá Veðurklúbbsins á Dalbæ
Góutunglið leggst vel í
spámenn
Þann 4. febrúar komu saman til fundar ellefu félagar
Veðurklúbbsins á Dalbæ og fóru yfir spágildi síðasta mánaðar.
Fundarmenn voru nokkuð sáttir með þær hugmyndir sem þeir
höfðu um veðrið síðastliðinn mánuð, þó var hann ögn harðari.
Næsti mánuður verður áfram umhleypingasamur, þó kannski
heldur mildari.
„Tunglið sem er ríkjandi núna er þorratunglið sem kviknaði 24. janúar.
Næsta tungl kviknar í suðvestri 23. febrúar kl 15:32. Það er góutungl og
sunnudagstungl og kviknar á konudaginn. Það leggst vel í menn,“ segir í
tilkynningu frá klúbbnum. Af draumum að ráða finnst spámönnum að
febrúarmánuður verði nokkuð kaflaskiptur í veðurfari. Með skeyti Dalbæinga
fylgir gömul vísa úr Almanakinu um Pálsmessu, sem er 25. janúar ár hvert,
og talið er að hægt sé að ráða í komandi tíðarfar út frá því hvernig veðrið er
þann daginn. Veðrið var hið skaplegasta á Pálsmessunni svo vænta má
góðrar tíðar eftir þessari vísu að dæma:
Ef heiðríkt er úti veður
Á pálsmessudegi,
ársins gróða, og gæða meður
get ég að vænta megi.
Með þorrakveðju Veðurklúbbsins á Dalbæ fylgir, samkvæmt venju, veðurvísa
fyrir febrúar.
Febrúar á fannir
þá læðist geislinn lágt.
Í mars þá blæs oft biturt
en birtir smátt og smátt.
/PF
HSN og Björgunarsveitin Strönd
Samkomulag um vettvangslið
á Skagaströnd
Gengið hefur verið frá samkomulagi milli Heilbrigðisstofnunar
Norðurlands og Björgunarsveitinnar Strandar á Skagaströnd um
uppsetningu vettvangsliðs á Skagaströnd. Gengur það út á
samstarf um þjálfun og tækjabúnað vettvangsliðs á vegum
Björgunarsveitarinnar.
Á vef Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir að Heilbrigðisstofnunin muni
kosta menntun og þjálfun vettvangsliða en á næstu vikum fer tíu manna
hópur frá Skagaströnd í vettvangsliðanám á vegum Sjúkraflutningaskólans.
Heilbrigðisstofnunin veitir síðan vettvangsliðum endurmenntun eftir þörfum
og leggur einnig til nauðsynlegan tækjabúnað til viðbótar þeim búnaði sem
er í eigu björgunarsveitarinnar. Almenn ánægja ríkir innan
björgunarsveitarinnar með þetta samkomulag.
„Hlutverk vettvangsliða er hugsað þannig að vettvangsliði geti verið sá sem
fyrstur er á vettvang og verði fær um að veita fyrstu bráðaþjónustu áður en
sjúkraflutningamenn koma á staðinn og frekari læknisaðstoð berst.
Markmiðið er að svæðið verði betur í stakk búið til að bregðast við í neyð og
þannig styrkt heilbrigðisþjónustu svæðisins,“ segir á vef HSN. Ennfremur
segir að í ljósi undangenginna áfalla tengdum illviðri sé vert að fagna
þessum samningi sem styrkja muni bæði Björgunarsveitina Strönd og
heilbrigðisþjónustuna á staðnum, íbúunum til heilla. /FE
Jón Helgi Björnsson forstjóri HSN, Örn Ragnarsson framkvæmdastjóri
lækninga á HSN, Einar Óli Fossdal forstöðumaður sjúkraflutninga HSN á
Blönduósi, Reynir Lýðsson formaður björgunarsveitarinnar Strandar og
Alexandra Jóhannesdóttir sveitarstjóri Skagastrandar. MYND: HSN.IS
10 06/2020