Feykir - 24.02.2020, Qupperneq 4
Áhugi á bogfimi alltaf að aukast
Á dögunum fór fram bogfiminámskeið á vegum
bogfimideildar Tindastóls og Neista á Hofsósi sem þótti
takast vel og í framhaldinu kannaður áhugi fyrir frekara
námskeiðahaldi. Það er Indriði Ragnar Grétarsson á
Sauðarkróki sem stýrir en hann hefur verið öflugur að
kynna íþróttina fyrir Íslendingum.
Bogmaðurinn Indriði breiðir út boðskapinn
Indriði hefur verið iðinn við að kynna bogfimiíþróttina vítt um landið.
MYNDIR AF FB-SÍÐU BOGFIMIDEILDAR TINDASTÓLS
Bogfimi hentar fólki á öllum aldri. Skotið í mark í Litlaskógi.
„Ég hef oft verið beðinn um
að halda bogfimikynningu á
Hofsósi og greinilega mikill
áhugi þar. Tilgangurinn er m.a.
að auka fjölbreytni íþrótta á
svæðinu en hugsunin er sú að
bogfimideild Tindastóls sjái
um þennan þátt í stað þess að
stofna deildir víða í héraðinu,“
segir Indriði aðspurður um
viðburðinn. Um 25 manns
mættu í félagsheimilið Höfða-
borg, meirihluti unglingar en
Indriði segir að eitthvað hafi
komið af fullorðnum líka og
mikill áhugi hjá þeim.
Indriði segir að ekki hafi
allir verið byrjendur sem þang-
að komu því ein stúlkan er
fyrrum Íslandsmeistari í bog-
fimi í sínum aldursflokki. Sú
hafi æft bogfimi á Akureyri en
flutt á Hofsós fyrir fáum
mánuðum síðan. „Hún fer
væntanlega að skjóta á ný,“
segir Indriði, og væntir þess að
hún geti verið honum innan
handar ef reglulegar æfingar
komast á á Hofsósi.
Indriði segir áhuga fyrir
bogfimi aukast smátt og smátt
en viðurkennir að hann óski
þess að fleiri létu sjá sig á
æfingum, sérstaklega á Krókn-
um þar sem besta aðstaðan sé.
Þar fara æfingar fram tvisvar í
viku líkt og í Varmahlíð en þar
er um tugur að mæta, flest börn
og unglingar. Í Varmahlíð sér
Merle Storm um æfingarnar á
þriðjudögum og Indriði mætir
á sunnu-dögum.
Indriði segir að vandamálið
við inniæfingarnar á veturna sé
aðstaðan. Húsnæði vanti þar
sem hægt væri að koma hvenær
sem er. „Draumastaðan væri sú
að geta verið með fast húsnæði
líkt og bogfimifélögin á Akur-
eyri og í Reykjavík en þar getur
fólk komið þegar því hentar.
Það sem aðallega hefur hamlað
því að fullorðnir komi í þetta
sport, alla vega hér á Króknum,
er að menn vilja getað farið í
þetta þegar þeir eru lausir. Ekki
bara þessi tími þarna, klukkan
þetta, á þessum degi. Það virðist
henta illa.“
Alltaf hægt að prófa
Ef fólk ætlar að stunda bogfimi
segir Indriði betra að hver og
einn eigi sinn búnað sjálfur því
það geti verið erfitt fyrir félög
að útvega hann fyrir alla. „Ef
fólk vill ná einhverri færni og
stöðugleika er betra að eiga
sinn eigin búnað. En við erum
með boga sem allir geta notað,
skemmti- eða leikboga. Það
geta allir notað þá og enginn
stillibúnaður á þeim. Fyrir þá
sem vilja taka næsta skref mæli
ég með að keyptur sé betri
búnaður og farið á námskeið til
að læra á þá,“ segir Indriði og
aðspurður um kostnað telur
hann að byrjendasett gæti
kostað á bilinu 40 – 50 þúsund
en alvöru keppnisbúnaður gæti
farið í og yfir 70 þúsund krónur.
Skemmtibogi er þó ódýrastur
UMFJÖLLUN
Páll Friðriksson
en gæti kostað í kringum 15
þúsund.
Fjarlægðirnar sem verið er
að skjóta á innan húss eru um
18 metrar fyrir eldri iðkendur
en 10 – 12 metrar fyrir þá yngri.
Hins vegar er markið mun
lengra frá á sumrin utanhúss
þar sem yngri skjóta af 20 – 30
metra færi en eldri 50 – 70
metra en það fer eftir því
hvernig boga viðkomandi er
með. „Með trissuboga eru það
50 metrar en 70 metrar fyrir
sveigboga. Svo er einnig verið
að skjóta í skóglendi „3D
bogfimi“ og langar mig að
koma upp aðstöðu til þess en
vandamálið hefur verið að það
þarf alltaf að taka mörkin niður
eftir æfingar. Það tekur mikinn
tíma og því gott að vera með
fasta aðstöðu.“
Indriði hefur verið öflugur í
útbreiðslumálum bogfiminnar
og hefur haldið námskeið víða
en einnig hefur hann verið
UMFÍ innan handar á Ung-
lingalandsmótum. Í sumar er
ætlunin að vera á ULM 2020 á
Selfossi þar sem hann mun sjá
um utanumhald þeirrar greinar
en fyrst var boðið upp á bogfimi
á Unglingalandsmóti á Sauðár-
króki árið 2014.
Indriði segir að allir geti
komið og prófað án endurgjalds
en æfingar eru á þriðju- og
miðvikudögum frá klukkan
19:30 til 21 á Sauðárkróki og í
Varmahlíð á þriðjudögum
klukkan 18.30 og á sunnu-
dögum milli 13-15.
4 08/2020