Feykir


Feykir - 11.03.2020, Blaðsíða 2

Feykir - 11.03.2020, Blaðsíða 2
Það eru undarlegir tímar sem við erum að upplifa þessa dagana. Sjálfsagt hefur aldrei á minni ævi verið eins mikill samhljómur með því sem rætt er í þjóðfélaginu. Það er sama hvar það er, í fjölmiðlum, á kaffistofum, á samfélagsmiðl- unum, í búðinni, alls staðar er umræðuefnið það sama. Ég þykist viss um að ekkert stórmót í fótbolta hefur náð þvílíkri útbreiðslu í samræðum manna á milli því vitanlega hafa ekki nándar nærri allir áhuga á fót- bolta (þó sumir virðist halda það) en umræðuefnið þessa dagana snertir alla á einhvern hátt. Já, COVID-19 snertir alla, það getur ekki farið hjá því þó á misalvarlegan hátt sé. Margir eru hræddir, aðrir kæra sig kollótta. Örugglega eiga allir einhverja ættingja eða vini sem eru veikir fyrir og gætu farið illa út úr því að fá þennan umrædda vírus. Önnur bein áhrif eru sýningar og samkom- ur sem eru felldar niður, íþróttamót sem ekki eru haldin og ferðir sem ekki eru farnar. Nemendur skóla sem eiga að útskrifast í vor vona í lengstu lög að veiran setji ekki þau plön í uppnám. Áætlanagerð fyrir sumarfríið er sett á bið og aðrir afpanta ferðir. Hlutir sem áður þóttu sárameinlausir eins og salatbarir og sinnep og tómatsósa á pyslusjoppum eru allt í einu orðin stórhættulegir, að ég tali nú ekki um að stinga upp í sig vínberi í ávaxtadeildinni í búðinni. Á meðan hverfur önnur umræða í skuggann. Gular við- varanir ná engu flugi, kannski þó appelsínugular. Mottu- mars, Megan og Henry, loftslagsváin og Trump. Allt fellur í skuggann af kórónaveirunni. Enda ekki að furða. Og ég sem ætlaði alls ekki að skrifa um COVID heldur blessuð litlu börnin sem Útlendingastofnun sér sér ekki fært annað en að vísa úr landi og senda til Grikklands þar sem vægast sagt ömurlegar aðstæður bíða þeirra og foreldra þeirra. Að vísu bárust þær fréttir fyrir stundu að brott- vísuninni hefði verið frestað en það er víst ekki vegna brjóstgæða íslenskra embættismanna, heldur breytinga á boðleiðum í grísku stjórnkerfi. Það hlaut að vera því líklega eru flestir farnir að gera sér ljóst að það er varla sveigjan- leika að vænta hjá hinum háu herrum íslenskrar Útlendingastofnunar. Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður LEIÐARI Efst á baugi Verkfallsaðgerðum BSRB aflýst Samningar náðust við flesta Aðildarfélög BSRB sem boðað höfðu til verk- fallsaðgerða undirrituðu öll kjarasamninga við viðsemjendur í vikunni og var verkfallsað- gerðum því aflýst. Fjögur aðildarfélög banda- lagsins eiga enn eftir að ná samningum þegar þetta er skrifað. Á heimasíðu BSRB kemur fram að samningarnir séu afturvirkir frá 1. apríl 2019 og gildi út 31. mars 2023. „Stærstu tímamótin í samningunum eru án efa ákvæði um styttingu vinnuvikunnar án launaskerð- ingar. Starfsmenn í dagvinnu geta stytt vinnuvikuna allt niður í 36 stundir. Vinnuvika vaktavinnufólks styttist í 36 stundir og er mögulegt að stytta allt niður í 32 stundir,“ segir í færslunni. Þá var samið um að allir félagsmenn aðildarfélaganna fái 30 orlofsdaga á ári sem þýðir að þeir sem voru með fæsta orlofsdaga áður bæta við sig sex dögum. Launahækkanir sem aðildarfélögin sömdu um rúmast innan ramma lífs- kjarasamningsins sem gerður var á almenna vinnu- markaðinum á síðasta ári. /PF Fjögur skip lönduðu á Sauðárkróki í síðustu viku og var rannsóknaskipið Bjarni Sæm- undsson eitt þeirra en hann er nú á svo- kölluðu togararalli eða marsralli úti fyrir Norðurlandi. Fjögur skip á vegum Hafrannsóknastofnun- ar taka þátt í verkefninu; togararnir Gnúpur GK, Múlaberg SI og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson en verk- efnið hefur verið framkvæmt með sambæri- legum hætti á hverju ári síðan 1985 að því er segir á vef Hafrannsóknastofnunar, hafogvatn. is. Togað verður á tæplega 600 stöðum á 20-500 m dýpi umhverfis landið og geta áhugasamir fylgst með ferðum skipanna á slóðinni https:// skip.hafro.is/. Helstu markmiðin eru að fylgjast með breytingum á stofnstærð, aldri, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið en einnig verður sýnum safnað vegna ýmissa rannsókna, erfðasýni tekin úr nokkr- um fisktegundum, athuganir gerðar á botn- dýrum og mat lagt á magn ýmiss konar rusls á sjávarbotni. Til gamans má geta þess að á Bjarna Sæmundssyni er rannsóknaliðið að þessu sinni alfarið skipað konum í fyrsta skipti í 36 ára sögu verkefnisins. Arnar HU 1 var aflahæstur þeirra skipa sem lönduðu á Sauðárkróki í vikunni með rúmlega 280 tonn. Á Sakgaströnd var landað rúmum 35 tonnum úr fimm bátum, þeirra aflahæstur var Dagrún HU 121 með rúm 19 tonn. Heildaraflinn á Norðurlandi vestra í fyrstu viku marsmánaðar var 551.318 kíló. /FE Aflatölur 1.– 7. mars 2020 á Norðurlandi vestra Bjarni Sæm á marsralli SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SAUÐÁRKRÓKUR Arnar HU 1 Botnvarpa 281.553 Bjarni Sæmundsson RE 30 Botnvarpa 3.611 Drangey SK 2 Botnvarpa 79.510 Málmey SK 1 Botnvarpa 151.503 Alls á Sauðárkróki 516.177 SKAGASTRÖND Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 19.246 Fengsæll HU 56 Landbeitt lína 577 Hafdís HU 85 Línutrekt 503 Onni HU 36 Dragnót 10.173 Sæfari HU 212 Landbeitt lína 4.642 Alls á Skagaströnd 35.141 Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Sauðárkrókur Olís byggir bensínstöð við Strandveginn á Króknum Eflaust hafa einhverjir klórað sér í kollinum vegna fram- kvæmda á lóðinni Borgarflöt 31 á Sauðárkróki, neðan við lóð Skagafjarðarveitna. Skv. upplýsingum Feykis stendur Olís fyrir framkvæmdunum en á lóðinni, sem er 2555 m2, er fyrirhugað að byggja sjálfsafgreiðslustöð ÓB með þremur eldsneytisdælum. Sótt var um að koma fyrir nýrri sjálfsafgreiðslustöð á steyptu áfyllingarplani með dæluskyggni, koma fyrir tæknirými í tengslum við sjálfsafgreiðslustöð og koma fyrir ID skilti. Fyrir eru á Sauðárkróki þrjár bensínstöðvar, N1 stöð á Ábæ, Orkan Bláfelli og loks er Olís með tank við Verslun Haraldar Júlíus- sonar þar sem Bjarni Haraldsson stendur vaktina en nálgast nú óðfluga tíræðisaldurinn. Brennustæði Sauðárkróks hefur síðustu árin verið rétt sunn- an lóðar Olís og væntanlega væri nú óráðlegt að kveikja áramóta- brennu í bakgarði bensínstöðvar. Að sögn Jóns Arnar Berndsen, skipulagsfulltrúa Svf. Skagafjarð- ar, hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort brennustæðið verður flutt né þá hvert. /ÓAB Myndin sýnir byggingarsvæði nýrrar sjálfsafgreiðslustöðvar. MYND AÐSEND 2 10/2020

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.