Feykir


Feykir - 08.07.2020, Blaðsíða 4

Feykir - 08.07.2020, Blaðsíða 4
Á lokadegi Alþingis var samþykkt þingsályktunartillaga Samfylking- arinnar um mótun stefnu sem eflir fólk af erlendum uppruna til þátttöku í samfélaginu en fyrsti flutningsmaður er greinarhöfundur. Þetta var í annað sinn sem tillagan er lögð fyrir þingið og það ánægjulega gerðist að hún hlaut nú brautargengi. Á Íslandi hafa aldrei verið fleiri innflytjendur en nú um þessar mundir og hefur fjölgað býsna hratt undanfarin ár þótt eðlilega sé eitthvert uppihald á þeirri þróun eins og nú hagar til um gervallan heiminn. Hlutfall innflytjenda á Íslandi er mjög nálægt því sem gerist og gengur meðal annarra Evrópuþjóða eða um 14%. Farendur og flóttafólk Fólk er á faraldsfæti um heimsbyggð- ina af ýmsum ástæðum. Meirihluti innflytjenda flytur að eigin ósk eða um 90%. Aðeins 10% flýja átök og ofsóknir en það er átakanlegt hlut- skipti þeirra sem í hlut eiga. Þótt við leysum ekki þann vanda allan hér á litla Íslandi, þá getum við ekki skellt skollaeyrum við, látið sem ekkert sé. Samkvæmt nýrri skýrslu Flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna hefur 1% jarðarbúa eða nærri 80 milljónir manna orðið að flýja heimili sín vegna stríðs, átaka og ofsókna. Það er hins vegar talið að um 500 milljónir manna séu skil- greindir sem farendur í heiminum, sem leita öryggis og betra lífs- viðurværis fyrir sig og sína nánustu, leita að skjóli og öryggi fyrir börnin sín. Íslendingar jákvæðir Íslendingar mælast með jákvæðustu viðhorf til inn- flytjenda og fjölmenningar í Evrópu samkvæmt við- horfskönnun European Social Survey. Auk þess kemur fram að meirihluti landsmanna vill að ríkisstjórnin veiti mörgum hælisleitendum dvalarleyfi. Við trón-um þarna á toppnum með Írum og Svíum. Þetta þarf kannski ekki að koma á óvart ef horft er til sögu okkar í bráð og lengd. Íslendingar hafa verið talsvert á ferðinni og sótt heim aðrar þjóðir og valið að búa þar um lengri og skemmri tíma, þekkja vel þá reynslu að setjast að á framandi slóðum. Hvers vegna förum við? Oftast er þetta gert af fúsum og frjálsum vilja, ákvörðun hins frjálsa manns en þeir tímar hafa komið í sögu okkar að fólk hreinlega flúði örbirgð og vesöld, atvinnuleysi og fátækt. A.m.k. 14.000 Íslendingar fluttu þannig til Vesturheims á ofanverðri 19. öldinni. Skemmst er líka að minnast þeirra þúsunda sem fluttu frá landinu í efnahagshruninu fyrir rúmlega áratug til annarra landa í leit að betra hlutskipti. Eins og staðan er núna, þá eru rúmlega 46.000 íslenskir ríkisborgarar með skráða búsetu í útlöndum og íslenska ríkisborgara að finna í 118 ríkjum af 193 aðildarríkjum Sam- einuðu þjóðanna. Íslendingar búa því bókstaflega um alla jörð og ekki undarlegt að þeir taki af skilningi nýjum þegnum sem auðgað geta og bætt okkar samfélag um leið og sitt eigið líf. Skipulagður undirbúningur Rannsóknir sýna að þær þjóðir sem leggja áherslu á og setja í forgang vandaða aðlögun innflytjenda að vinnumarkaði og samfélagi uppskera mestan ábata. Mikilvægt er því að stjórnvöld hafi frumkvæði að jákvæðri samfélagsumræðu. Stóra Stóra atriðið er að aðlögun þarf að vera á forsendum beggja, vera tvíhliða og gagnkvæm þar sem borin er virðing fyrir menningu, tungumáli og uppruna viðkomandi. Í öllu þessu ferli ræður skilningur, upplifun og viðhorf heimafólks líka úrslitum. Langt í land Við eigum langt í land með að geta sagst standa framarlega í móttöku innflytjenda og þeir standa hér höllum fæti eins og víða í öðrum löndum. Við sjáum það á vinnumarkaðnum. Atvinnuleysi er t.d. meira hér meðal innflytjenda en innfæddra. Reynsla annarra þjóða sýnir einnig að launa- kjör innflytjenda eru lakari en inn- fæddra. Skv. úttektum nemur það allt að 20 – 30% í sambærilegum starfs- greinum. Þá eiga innflytjendur á brattann að sækja á húsnæðismarkaði og við þekkjum mörg ömurleg dæmi þess sem ratað hafa í fjölmiðla. Mun færri hefja framhaldsnám og enn færri ljúka framhaldsnámi en innfæddir, hátt brottfall er staðreynd og það er takmarkaður stuðningur í skólakerfinu. Við metum með ófull- nægjandi hætti menntun innflytjenda og viðurkennum ekki vel fagleg réttindi. Í Evrópu er áætlað að 22% innflytjenda hafi menntun umfram það sem krafist er í viðkomandi starfi á móti 13% innfæddra. Stefna um vandaða móttöku Fjölgun innflytjenda hefur verið mikil hjá okkur á allra síðustu árum miðað við nágrannalöndin og við erum reynsluminni á þessu sviði. Svíar og Kanadamenn hafa t.d. þróað mér sér kerfi í sinni innflytjendastefnu og njóta þess í betri þátttöku á vinnumarkaði og í samfélaginu öllu og af þeim getum við margt lært. Við skulum vinna að því og gera það hluta af samfélagssáttmála okkar að vera þjóðin sem veit og skilur hvað innflytjendur skipta miklu máli. Guðjón S. Brjánsson alþingismaður Samfylkingarinnar NV kjördæmi AÐSENT | Guðjón S. Brjánsson skrifar Bjóðum nýja Íslendinga velkomna Á laugardaginn fór Drang- eyjarmótið í götuhjólreiðum fram í Skagafirði en þetta var annað bikarmót ársins. Hjólreiðafélagið Drangey í Skagafirði og Hjólreiða- samband Íslands sáu um framkvæmd mótsins. Það voru Ingvar Ómarsson og Ágústa Edda Björnsdóttir sem urðu hlutskörpust í aðalkeppninni sem er 124 kílómetra hringur í Skagafirði en líkt og í fyrra endaði leiðin á löngu klifri upp á skíðasvæði Tindastóls. Keppendur voru ræstir af stað kl. 19. Þrátt fyrir hið besta gluggaveður lengstum þá endaði keppnin í þykkri þoku í Stólnum. Eftir því sem leið á daginn bætti töluvert í vind í Skagafirði og undir kvöld var kominn norðanstrekkingur. Þetta leiddi til þess að kepp- endur héldu sig meira í hópum og ekki mikið um að reynt væri að stinga af. Þannig voru til dæmis enn ellefu keppendur í hnapp í karlaflokki þegar komið var að brekkunni upp á skíðasvæðið en þá setti Ingvar í túrbógír- inn og kláraði hálfri mínútu á undan næsta manni. Hann fór hringinn á 3:26:33 sekúndum. Eyjólfur Guðgeirsson varð annar en sekúndu á eftir honum var Birkir Snær Ingva- son sem sigraði í mótinu í fyrra. Keppnin hófst á Króknum en þaðan var hjólað fram í Varmahlíð, síðan yfir í Blöndu- hlíð og alla leið á Hofsós þar sem snúið var við, farið yfir í Hegranes og á Krókinn og lokaspretturinn var síðan upp á skíðasvæði. 124 kílómetrar sem fyrr segir. Ágústa Edda sigraði í aðal- keppni kvenna en hún kláraði á 3:57:20, Hafdís Sigurðardóttir varð önnur á 3:58:37 og Bríet Kristý Gunnwarsdóttir þriðja á 3:58: 56. Á sama tíma var einnig keppt í styttri vegalengd, 82 kílómetrum, en þeir kepp- endur fóru sömu leið en þurftu ekki að fara á Hofsós, tóku snarpa vinstri beygju yfir í Nes áður en komið var að Narfa- stöðum. Þá var keppt í almenn- ingsflokki karla og kvenna að morgni laugardags kl. 9 en sú keppni hófst í Varmahlíð. Síðan var hjólað yfir í Blönduhlíð og þaðan á Krókinn og síðan fram í Varmahlíð; alls 65 kílómetrar. Heldur var vindur rólegri á meðan á almenningskeppninni stóð. /ÓAB Ágústa og Ingvar sigurvegarar Drangeyjarmótið í götuhjólreiðum Frá Drangeyjarmótinu 2020. MYNDIR: BRÍET GUÐMUNDSDÓTTIR 4 27/2020

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.