Lýðveldið - 01.05.1935, Qupperneq 2
2
Alítið þer að hið nuverandi gersjúka stetta'baráttu-þjóðfélag vort,
sem vaxið er upp úr sjúkum jarðvegi sjúkrar samtíðar, leiöi til raun-
verulegrar farsældar og þroska hinnar íslenzku þjóðar?
álítið þér að nokkur maður með þjóð.vorri, þrái þá hringiðu þjóð-
felagssjúkdóma, er vér nú búum við, nema þeir menn einir, er komið
hafa þessari hringiðu af stað og "lifa hátt" á því, að hún haldist
við 1 þjóðlífi voru-?.
Er það skoðun yðar, að hlutverk núverandi kynslóðar í lífs- og
þroskabaráttu'þjóðar vorrar sé: Efling heilbrigðs atvinnulífs x land-
inu og verklegrar menningar, eignalegur og efnalegur jöfnuður og
sjálfstæði borgaranna, heilbrigð skipulagning kraftanna til samstarfs
að því mikla marki, hej'ibrigt uppeldi þjóðar vorrar við sameining
starfs handar og andaíuppeldi allra ungra manna, að fullveldi þjóð-
ar vorrar verði heilt og óskorað, þ.e. að ísland Verði lýðveldi
1943 í samræmi við eðli og uppruna þjóðar vorrar og að komið verði
dómi yfir hið núverandi gersjúka stéttabaráttuþjóðfélag vort, þ.e,
‘að áhrif þess hverfi í þjóðlífi voru, svo að réttlætinu sé fullnægt
og þjóð vor geti lifað sem sannfrjáls, sannfarsæl og þróttmikil
þjóð í landi sínu?
úlítið þér að nokkur hinna núverandi gersjúku stéttabaráttu-
flokka, sem við lýði eru í landinu, sé þess megnuigur að byggja þá
brú einingar og kraftar með þjóð vorri, er gerði hana hæfa til þess,
að framkvæma áðurnefnd hlutverk í lífs- og þroskabaráttu sinni fyrir
alda og óborna?
Munduð þér vilja styðja samtök lýðveldismanna á íslandi um
stofnun "hýðveldisflokks" og útgáfu blaðsins "hýðveldið", er með
heilbrigðri, frjálslyndri, sóciallri einingarpólitík, heilbrigðri
skipulagningu kraftanna til samstarfs, heilbrigðu uppeldi þjóðar
vorrar í starfi handar og anda og stofnun hins íslenzka lýðveldis
1943, ynni að því að sameina alla unga uppvaxandi krafta þjóðar
vorrar, og allar vinnandi stéttir hennar til lands og s.jávar, í
eina sterka órjúfandi heild, er á næstu 8 árum yrði þess megnug
að sprengja hina núverandi gersjúku stéttabaráttuflokka og að því
loknu byggja upp hið nýja, einhuga, heilbrigða og sterka þjóðfélag
vort, er að framan greinir?