Lýðveldið - 01.05.1935, Síða 3
- 3 -
Er það skoðun yðar, að svo framt lýðveldið er framtíðar-stjórn-
skipulag íslendinga, þá sé stofnun '’Lýðveldisflokks" engin dægur-
fluga, heldur eigi hann langann aldur og baráttu fyrir höndum, ekki
einungis fyrir stofnun lýðveldis vors, heldur og einnig fyrir þroska
þess og varðveizlu nú og á ókomnum öldum?
Ef þer eruð oss sammála í því, sem að framan greinir, þá kallar
velferð yðar, okkar allra og föðurlands okkar á óeigingjarna hjálp
yðar, að stofnun "Lýðveldisflokks" á Islandi á komandi hausti, er
þá mundi hefja haráttu sína fyrir þeim heilbrigðu stefnumálum, sem
að framan greinir, í lífs- og þroskaharáttu þjóðar vorrar og jafn-
framt til dóms yfir því gersjúka stéttaharáttuþjóðfelagi, sem vér
nú lifum 1, og þeim mönnum, er vaxnir upp úr sjúkum jarðvegi sjúkrar
samtíðar og því sjálfir gersjúkir, hafa. til þess stofnað!
Ver munum fyrst heita öllum kröftum vorum að því. að efla
"Lýðveldisflokkinn" hér í Reykjavík með reglulegum fundarhöldum
og útgáfu hlaðsins "Lýðveldið", eins oft og hægt er. Segjum fyrst
2. x mánuði og svo vikulega og oftar, eftir því sem kraftar aukast.
Tæki það sennilega 2-3 næstu ár að rótfesta flokkinn í höfuðstaðnum
og því næst og samtímis því út um bygðir landsins.
Ver vonum að þér skiljið að það er ekkert áhlaupaverk að vinna
upp nýjan stjórnmálaflokk og það þótt stefna hans sé heilbrigð
einingarstefna og þörfin jafn knýjandi eins og hér„
En, "trú flytur fjöll", og svo mun reynast hér, ef skynsam-
lega ex barist!