Gnúpverjinn - 01.12.1936, Qupperneq 4

Gnúpverjinn - 01.12.1936, Qupperneq 4
-4— leyti leiksoppar £ h.end.i h.inna ann- ara dutlunga, svo sem verðlagi, arferði o^- mörgu fleira, að ekki mion af veita, J)0 vdð stöndum saman eftir fremmsta megni. Hugsunarh.attur þess manns, sem lœtur sig engu skifta afdrif annara, en finnur fullnfsgingu í að sjá sjálfum sér horgið og tortryggir mátt samtakanna er orðinn úreltur, unga kyaslóðin kann ekki að meta h.ann. Eg vil ráðleggja þeim, sem ekki geta upprœtt þennan hugsunarh.átt, að reyna að minnsta kosti að dyl,|a hann* Það væri gaman að heyra og sjá eitt- hvað frá þeim, sem hafa horn í síðu þessa umrædda félagsskapar og ekki hafa fengist til að starfa í honum enn. Mundi þá ef til vill gefast tækifæri til að hæta einhverju við, sem ósagt kann að vera í þessari grein. Hæli í nóvemher 1936. Einar G-estsson. SEEMMTANIR. Með orðinu skemmtanir er átt við þær athafnir manna, sem ekki eiga skylt við hina daglegu lífsharáttu, heldur miða að því að gera mönnum lífið ljúfara og skemmtilegra. Skemmtanir eru öllum nauðsynlegar,þær gefa lífinu gildi, gera það þess vert að lifa því, án þeirra yrði tilveran ömur- leg og gleðisnauð. Æfi manna mstti þa líkja við æfi hegningarfanga, sem að morgni er rekinn til vinnu og lokaður inni að kvöldi án nokkurs tsakifæristil að geta glatt sig með öðrum mönnum þegar striti dagsins er lokið. En eru nú allar skemmtanir jafn holl- ar og mikils virði? Þessu verður að svara neitandi, því það er af öllum við- urkennt að margt af því, sem menn nota sér til skemmtunur er mjög lítils virði eða þá heinlínis skaðlegt, má þar til nefna nautnir allskonar, þesr veita stund- argleði en gleðin varir sjaldan lengur en nautnin, þaar eru meira og minna skað- legar fyrir líkamann og maðurinn á allt- af á^hættu að verða þræll þeirra. Su skemmtun., sem algengust er og mest iðkuð er an efa dansinn. Fyrir æskuna, sem er lífsglöð og full af æfintýraþrá, hefir hann mjög mikið aðdráttarafl. Um það atrið i ,hversu hollur hann sé má vitanlega deila, en að mínu álitL er eng- in skemmtun jafn vel til þess fallin og i dansinn,.að leiða óþroskaða unglinga á þær hrautir, sem síður skyldi fara. Að finna upp aðra skemmtun eða leik, sem geti kom- ið í stað dansins hefir enn ekki tekist, enda mun það vera örðugt, því hann hefir mjög mikil ítök í hugum manna. ööngur og íþróttir eru hollar skemmtan- ir, sem hver maður ætti að leggja sig eft- ir, það er eins og söngurinn lyfti okkur hærra og komi okkur í náið samband við það góða og göfuga, sem við leitum eftir. Hann snertir viðkvænustu strengi tilfinn- inga okkar og hylur blæju gleymskunnar, sorgir okkar og raunir. Iðkun íþrótta er mjög goð skemmtun, auk þess, sem þær eru mjög hollar fyrir líkamann, einnig eru þær mjög vel til þess fallnar að efla stund- vísi og felagslegan þroska manna. Ég get ekki látið hjá líða að nefna hér það, sem hrífur mig mest og veitir mér einna mesta gleði og áimqgju, en það er fegurð náttúrunnar. Getur nokkur hugsað sér meiri ánægju en þá að ferðast um land- ið a fögrum sumardögum og njóta fegurðar þess og fjölbreytni. Auk þess sem slíkar ferðir veita okkur oblandaða ánag’ju meðan a þeim stendur, vara endurminningar þeirra og ahrif mánuðum og jafnvel árum saman og flytja til okkar hirtu og yl í hvert sinn, sem okkur verður hugsað til þeirra. Ökemmtana þurfum við öll að njóta í sem ríkustum mæli, en gerum okkur ekki að góðu gagnrýnislaust allt, sem er á hoð- stolum í þeim efnum, sýnum í því sem öðru að við kunnum að velja og hafna, hafna þeim skemmtunum, sem okkur eru skaðlegar en velja þær, sem verka. þroskandi á sál og líkama. G. H.' PÉTUE 0 G PÁLL. - Smásaga - Tveir nýhakaðir gagnfræðingar eru að skilja, eftir þriggja ára samveru. Og hvað hyggjast þeir fyrir?- Helst hefðu þeir kosið að vera saman áfram. En að gagnfræðaprófi loknu hlutu þeir að skilja. Framtíðeirdraumar þóirra voru svo ólíkir. Það takmark, sem^páll þráði að ná, var að halda áfram námi, og lesa síðifi^- bók- menntasögu og listasögu, og búa sig með því undir að verða rithöfundur,- En

x

Gnúpverjinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gnúpverjinn
https://timarit.is/publication/1637

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.