Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 22.02.1993, Qupperneq 1
VEGAGERÐIN
Starfsfólk
Vegagerðarinnar
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
Þettaerfyrstatölublaðnýsfréttabréfs Vegagerðarríkisins
sem mun verða kallað „Framkvæmdafréttir“. Því er ætlað
að auka tengsl Vegagerðarinnar við þá aðila sem helst
starfa við vegagerð í dag þ.e. verktaka og verkfræðistofur.
Margir verktakar og starfsmenn þeirra vinna stóran hluta
ársins við vegagerð og eru því hinir raunverulegu spor-
göngumenn gömlu mannanna sem lögðu vegi með skóflu,
haka og hestakerru.
Aðalefni blaðsins verður umfjöllun um útboðsverk.
Birtur er listi yfir útboðsverk á baksíðu blaðsins og eru
þau flokkuð sem „fyrirhuguð útboðsverk“, „auglýst
útboðsverk", „útboð opnað og á samningsstigi“ og „samn-
ingum lokið“. Verk koma inn á listann í fyrst nefnda
flokkinn og ganga síðan niður og hverfa af honum þegar
sagt hefur verið frá samningum.
Niðurstöður allra útboða verða birtar í töflu. Bjóðendum
er raðað eftir tilboðsupphæð og reiknað er hlutfall af
s^££öUbóka|í5^’
kostnaðaráætlun. Margir hafa gaman af að sjá hvaða upp-
hæð skilur að lægstu tilboð og því er reiknað frávik allra
tilboða frá lægstu tölunni.
Fyrirhugað er að kynna stærri útboðsverk sérstaklega.
Fjallað er um þau í texta og birtar myndireða kort. Form-
legar auglýsingar útboðsverka verða einnig í blaðinu.
Auk þessa verður í blaðinu annað efni sem til fellur og
við teljum að erindi eigi til áskrifenda.
I fyrstu atrennu verður blaðið sent til verktaka, verkfræði-
stofa og fjölmiðla sem eru á áskrifendalista Vegamála,
tímarits Vegagerðarinnar. Allir áhugamenn geta þó gerst
áskrifendur en til þæginda fyrir okkur er æskilegt að sótt
sé um áskrift bréflega eða með símbréfi (622332). Áskrift
er endurgjaldslaus.
Stefnan er að blaðið verði einblöðungur (tvær síður) en
þó getur það farið í fjórar síður. Það mun koma út hálfs-
mánaðarlega að öllu jöfnu.
Breiðholtsbraut (Arnarnesvegur)
Nú hefur verið auglýst útboð Breiðholtsbrautar (Arnar-
nesvegar). Vegarkaflinn er 2 km langur, frá Jaðarseli, yfir
Elliðaár að Elliðavatnsvegi. Vegurinn verður í flokki B1,
með 7,5 m breiða akbraut og 3 m breiðar axlir, hann verð-
ur malbikaður og lýstur. Stefnugreind gatnamót verða
gerð við Jaðarsel annars vegar og við Vatnsendaveg og
Elliðavatnsveg hins vegar. Umferðarljós verða við Jaðar-
sel. Byggð verða ein undirgöng rétt austan við Jaðarsel.
Verklok verða 1. september.
Einnig hefur brúargerð yfir Elliðaár verið boðin út að
nýju eftir gjaldþrot verktaka. Útboðið var lokað fyrir
þann hóp sem skilaði inn tilboðum í upphaflega útboðið.
Brúin verður 50 m löng. I endastöplum verða byggð hús
sem hýsa lagnir veitustofnana og tengivirki. Byggingu
brúarinnar á að verða lokið 15. júlí.
Á byggingartíma verða nokkrar umferðartafir við
gatnamót Elliðavatns vegar og Rafstöðvarvegar en umferð
um Jaðarsel og Suðurfell verðurum bráðabirgðatengingar.
Þessar vegaframkvæmdir auðvelda mjög akstur austur
á land og t.d. styttir það leið Garðbæinga og Hafnfirðinga
um 2,5 km miðað við akstur um Ártúnsbrekku.
Áætlað er að allt verkið muni kosta um
180 m.kr.
Framkvæmdafréttir Vegageröar ríkisins 1. tbl. 1. árg. nr.1 22. febrúar 1993
Ritstjórn og umsjón útgáfu:
Viktor A. Ingólfsson
Ábyrgöarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun:
Steindórsprent Gutenberg
Sendiö upplýsingar
um breytt heimilisfang til:
Vegagerð ríkisins
framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
Vegagerðin gefur út framkvæmdafréttir til aö kynna útboðsframkvæmdir
fyrir verktökum. Fyrirhuguö útboö eru kynnt, útboðsauglýsingar eru birtar
og greint frá niðurstöðum og samningum. Auk þess er í blaðinu annað það
fréttaefni sem til verður hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka.
Áskrifendur eru verktakar, verkfræðistofur og fjölmiðlar. Áskrift er
endurgjaldslaus.