Alþýðubandalagsblaðið - 06.05.1970, Síða 2
Stefim Alþýibaidaliðsím i bœjormdlum Ahureyrar
Þeim nemendum, sem af einhverjum ástæðum ná ekki tökum á
námi og dragast aftur úr, ber að tryggja möguleika á sérkennslu og
hvers kyns aðstoð, sem miðist við það að gera hverjum og einum
kleift að finna sér verkefni og framtíðarstarfssvið í samræmi við
getu og áhuga.
Alþýðubandalagið vill benda á það, að sérskóla hinna ýmsu
greina ber að efla svo sem framast er kostur.
Svo dæmi sé nefnt, mun Tónlistarskóli Akureyrar þurfa á aukn-
um fjárstuðningi að halda, ef hann á að geta fært út kvíarnar og
aukið fj ölbreytni í starfi sínu.
Jafnhliða því að tryggja skólanum eðlilegt vaxtarskilyrði, ber
ævinlega að leitast við að stilla skólagjöldum nemenda í hóf eins og
frekast er unnt.
Einnig verður að huga að því mikilvæga verkefni að efla alla
starfsemi áhugafólks á sviði tónlistar, enda er þar um að ræða veiga
mikinn þátt í því að hér nái að þróast tónlistarlíf að nokkru marki.
AIþýðubandakigið telur rétt, að bæjarstjórn Akureyrar beiti á-
hrifum sfnum tii þess, að innan vébanda Menntaskólans á Akureyri
verði starfrækt tæknideild sem framhald þeirrar undirbúningsdeild-
ar Tækniskóla íslands, sem rekin er á vegum Iðnskólans á Akureyri.
Framkvæmd þessara atriða, sem hér hafa verið talin, krefst vit-
anlega stóraukinna fjárframlaga, en skólum verða ekki búin við-
unandi starfsskilyrði öðruvísi en með auknum tilkostnaði og fram-
sýni í öllum áætlunum, er þá varða.
Það má ekki gleymast, að með síflóknari og margbrotnari gerð)
þjóðfélagsins, verður þörfin fyrir starfsmenntun og hvers konar
kunnáttu æ ríkari. 011 viðhorf til fræðslumála verða að mótast af
þeirri staðreynd, að vel menntað, sérhæft vinnuafl er dýrmætasta
auðlind hverrar þjóðar. Það fé, sem varið er til skóla- og fræðslu-
mála, er fjárfesting, sem skilar margföldum arði omeð aukinni og
bættri þjóðarframleiðslu, fyllra og auðugra menningarlífi.
HÚSNÆÐIS- OG BYGGINGAMÁL
Franihald af blaðsíðu 8.
Alþýðubandalagið telur, að
húsnæðis- og byggingamál séu
meðal þeirra mála, sem stjórn
bæjarins þarf að sinna og vinna
skipulega að á hverjum tíma,
því frumþörf hvers einstaklings
og fj ölskyldu er sú, að hafa þak
yfir ihöfuðið, en eðlilegur og
nauðsynlegur vöxtur bæjarfélags
ins er undir því kominn, að
stjórn bæjarins geri allt, sem í
hennar valdi stendur til að örva
byggingariðnaðnn og létta und-
ir með þeim ungu, sem eru að
stofna heimili og þeim, sem vilja
flytja til bæjarins.
Hér á landi er húsnæðiskostn-
aður mjög mikill og mun hærri
en þekkist í nálægum löndum.
Fáta mun nærri að hver meðalr
stór fjölskylda þurfi % tekna
sinna til að standa straum af
húsnæði því, sem hún þarf til
að búa í.
Hér á Akureyri, og víðast á
fslandi, er leiguhúsnæði ekki
falt, nema þá helzt í afgömlum
og lélegum húsum. Það verður
því hltuskipti stærstu og jafn-
framt fátækustu fjölskyldnanna
að hýrast í slíkum húsakosti.
Enn er að finna mörg átakan-
leg dæmi um slíkt í okkar bæ.
Flestir, sem stofna heimili
eða flytjast til bæjarins, verða
annað tveggja, að kaupa íbúð-
ir eða ráðast í nýbyggingar. —
Verð meðal-íbúðar er varla und
ir l1^ milljón kr. Sá baggi er
flestum algerlega ofviða, enda
eru árlegar vaxtagreiðslur ein-
ar saman álíka há upphæð og
árslaun verkamanns með 8
stunda vinnudag.
Hér er því vissulega þörf
breytinga, — breytinga og um-
bóta ,sem bær og ríki eiga að
beita sér fyrir.
Alþýðubandalagið mun án af
láts vinna að því, að bæjar-
stjórn Akureyrar hverfi frá al-
geru aðgerðarleysi í þessum
málum, til raunhæfra átaka og
úrbóta. í þessu sambandi skal
sérstaklega bent á eftirfarandi:
1. — Bærinn láti byggja eigi
færri en 5—6 íbúðir á ári
hverju, og verði þær síðan
leigðar þeim fjölskyldum, sem
sízt hafa bolmagn til íbúðar-
kaupa, eða búa í ófullnægjandi
eða heilsuspillandi húsnæði.
2. — Byggingalánasjóður bæj
arins verði efldur þannig, að
hann geti lánað a. m. k. 100
þús. kr. út á nýjar íbúðir.
3. — Bærinn hlutist til um,
að ávallt verði byggðir hér svo
margir verkamannabústaðir,
sem lög heimila og fjármagn er
fáanlegt til.
4. — Bærinn hafi forgöngu
um tilraunir og rannsóknir á
sviði íbúðabygginga, því sýnt
er, að einstaklingsframtakið
gerir það.ekki með neinum já-
kvæðum árangri. Hér er átt við
það, að bærinn beiti sér fyrir
byggingu tilraunahúsa, þar sem
reyndar verði nýjar teikningar,
form, aðferðir og byggingaefni.
Ef af heilindum og hagsýni er
unnið að þessum þýðingarmiklu
málum, ætti að fást úr því
skorið, hvaða byggingaform,
byggingaefni og íbúðarstærð
hentaði 'bezt og gæti dregið úr
hinu óhóflega verði, sem nú er
á nýbyggingum.
5. -—- Nægar lóðir verði ávallt
til úthlutunar og nýjum byggðar
hverfum valinn staður, sem
hentar bezt þeirri gerð húsa,
sem byggja skal á hverjum
stað.
Alþýðubandalgaið mun af
fremsta megni stuðla að fram-
kvæmd þessara mála, fái það að
stöðu til þess á næsta kjörtíma-
bili.
»Bjöm d brotnu shipi«
Framhald af blaðsíðu 8.
aðeins tekizt að berja saman
lista við íbæjarstjórnarkosning-
arnar 31. þ. m. í fjórum kaup-
stöðum. I öllum hinum er hanni-
balisminn óþekkt fyrirbœri.
Og taki menn eftir: Jafnvel á
Isafirði, sem um áratuga skeið
var höfuðvígi Hannibals Valde-
marssonar, tókst honum ekki að
bjóða fram núna.
Þetta segir raunar allt, sem
segja þarf. Klofningsbrölt þeirra
fóstbræðranna hefur farið út um
þúfur, eins og það var líka dæmt
til frá upphafi.
„I upphafi skyldi endirinn skoða
áður en maður fer sér að voða,“
sagði Káinn einu sinni.
Akureyringar mættu gaum-
gæfa þetta vel og rækilega áður
en þeir gefa Ingólfi Arnasyni at-
kvæði sitt á kjördegi: Sá sem
„er kominn úti“ er „Björn á
brotnu skipi“, eins og segir í
gömlu þulunni, — og hefur nú
gloprað niður og týnt nálunum,
sem honum voru „fengnar í
fyrragær“ til að sauma seglið.
Róg:tung:ur
Framhald af bls. 5.
senda náunganum tóninn með
götudrengjalátæði. — Hitt er
furðulegra, að finnast skuli rit-
stjórar, sem geta fengið sig til
að leggja 'blöð ,sín undir slíka
framleiðslu. Því virðist svo að
framámenn Alþýðumannsins
eigi nokkurt verkefni framund-
an, að sverja af sér heiðurinn
af þessum skrifum. En hinir
ungu leikarar mega vel við una.
Árangur þessara bréfritara hef-
ur orðið þveröfugur við tilgang-
inn og svoddan fólk er svo
miklu betra að eiga að andstæð-
ingum en vinum.
E. K.
ÍBÚÐ TIL SÖLU
Til sölu er efsta hæð hússins
NORÐURGATA 12.
Upplýsingar í síma 1-21-92
og 1-15-79.
AUGLYSING
um skoðun bifreiða í iögsagnarumdæmi Akur-
eyrarkaupst-aðar og í Eyjafjarðarsýslu
ÁRIÐ 1970
Skoðun fer fram sem hér segir:
Miðvikudaginn 6. maí A— 701— 800
Föstudaginn 8. maí A— 801— 900
Mánudaginn 11. maí A— 901—1000
Þriðjudaginn 12. maí A—1001—1200
Miðvikudaginn 13. maí A—1201—1300
Fimmtudaginn 14. maí A—1301—1400
Föstudaginn 15. maí A—1401—1500
Þriðjudaginn 19. maí A—1501—1600
Miðvikudaginn 20. maí A—1601—1700
Fimmtudaginn 21. maí A—1701—1800
Föstudaginn 22. maí A—1801—1900
Mánudaginn 25. maí A—1901—2000
Þriðjudaginn 26. maí A—2001—2100
Miðvikudaginn 27. maí A—2101—2200
Fimmtudaginn 28. maí A—2201—2300
Föstudaginn 29. maí A—2301—2400
Mánudaginn 1. júní A—2401—2500
Þriðjudaginn 2. júní A—2501—2600
Miðvikudaginn 3. júní A—2601—2700
Fimmtudaginn 4. júní A—2701—2800
Föstudaginn 5. júní A—2801—2900
Mánudaginn 8. júní A—2901—3000
Þriðjudaginn 9. júní A—3001—3100
Miðvikudaginn 10.júní A—3101—3200
Fimmtudaginn 11. júní A—3201—3300
Föstudaginn 12. júní A—3301—3400
Skoðunin fer fram við skrifstofu bifreiðaeftirlitsins
í lögreglustöðinni við Þórunnarstræti.
Aðalskoðun verður ekki framkvæmd á laugardög-
um. Aðra virka daga verður skoðun framkvæmd frá
kl. 9—17 daglega nema á mánudögum frá kl. 9—-18.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu
fylgja bifreiðinni til skoðunar. Við skoðun skulu öku-
menn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskírteini.
Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðaskattur og vá-
tryggingariðgjald ökumanna fyrir árið 1970 séu
greidd og lögboðin vátrygging fyrir bverja bifrið sé í
gildi.
Þeir bifreiðaeigendur, sem hafa viðtæki í bifreiðum
sínum skulu sýna kvittun fyrir greiðslu afnotagjalds
til ríkisútvarpsins fyrir árið 1970, annars að greiða
gjaldið við skoðun ökutækisins. Ennfremur ber að
framvísa vottorði frá viðurkenndu bifreiðaverkstæði
um að ljós bifreiðarinnar liafi verið stillt.
Létt bifhjól mæti á áðurgreindum skoðunartíma svo
og þær bifreiðar sem skrásettar eru í öðrum umdæm-
um en eru í notkun hér í umdæminu.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar
á réttum degi verður hann látinn sæta sektum sam-
kvæmt umferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og
bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst.
Skoðun bifreiða í Dalvíkur- og Svarfaðardals-
hreppum fer fram dagana 16., 18. og 19. júní.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Akureyri, 13. apríl 1970.
Bæjarfógetinn á Akureyri og sýslumaðurinn
í Eyjafjarðarsýslu.
2 — KOSNINGABLAÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS